blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 blaðiö 6 I IWWLEWDAR FRÉTTIR KB banki seldi í Baugi Group mbl.is | Kaupþing banki hf. seldi í gær 8,75% hlutaíjár í Baugi Group hf. og hefiir þar með selt allan hlut sinn í félaginu. Innleystur hagnaður vegna söl- unnar nemur um 3,3 milljörðum króna. Kaupandi hlutanna er fjárfestingafélagið Gaumur og Eignarhaldsfélagið ISP. í tilkynningu frá Kaupþingi banka segir að með sölunni ljúki verkefni sem hófst árið 2003 með yfirtöku og afskrán- ingu Baugs Group úr Kauphöll fslands ásamt skiptingu þess í fjárfestingafélagið Baugur Group og smásölufyrirtækið Hagar hf. Þar hafi bankinn séð um ráðgjöf og fjármögnun og eignaðist við það um fimmt- ungs hlut í Baugi Group. ftilkynningunni segir einnig að KB banki hafi um árabil starfað með Baugi Group að ýmsum umbreyting- arverkefnum á fyrirtækjum og muni salan á eignarhlut- anum nú engin áhrif hafa á áframhaldandi samstarf. íbúðalána- sjóður lækk- ar vexti mbl.is | íbúðalánasjóður hefúr í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúða- lána sjóðsins verði lækkaðir úr 4,7% í 4,65%. Taka þeir vextir gildi í dag. fbúðalán með sérstöku uppgreiðsluálagi, sem eru með 0,25% lægri vöxtum en vextir hefðbundinna lána, munu bera 4,4% vexti. f fyrsta áfanga íbúðabréfa á þessu ári bárust alls tilboð að nafnvirði 14,92 milljarðar króna. Ákveðið var að taka tilboðum í íbúðabréf að nafn- virði 4,4 milljarðar króna. Auka hlut sinn í Bang & Olufsen FL Group hefúr aukið hlut sinn í danska raftækjaframleiðand- anum Bang & Olufsen um 1,9% og á nú um 10,1% í félaginu eða 1,25 milljón hluti. Þetta kom fram í tilkynningu til dönsku kauphallarinnar í gær. f febrúar síðastliðnum keypti FL Group um 8,2% hlut í Bang & Olufsen fyrir um 7,5 milljarða króna. „Umræða um álver eykur væntingarv' Formaður Samfylkingarinnar segir að umrœða umfleiri álver hafi áhrifá efnahaginn hér á landi. Forráðamenn fyrirtœkja íþekkingariðnaði eru svartsýnir á framtíðina. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að spá íslandsbanka frá því í gær stað- festi skoðun Sam- fylkingarinnar um að ekki sé rými til að byggja tvö álver á íslandi á næstu árum. í spánni kemur fram að verði af stækkun áf- versins í Straums- vík, auk þess sem álver á Húsavík verði byggt, muni það á næstu árum þýða hærra með- algengi íslensku krónunnar, hærri stýrivexti, aukna verðbólgu og meiri viðskiptahalla en ella hefði verið. Sérstaklega er tekið fram í greiningu fslandsbanka að ekki er gert ráð fyrir að ráðist verði í bygg- ingu álvers i Helguvík. HllmarV. Pétursson Umræðan hefur áhrif á efnahaginn „Það er varhugavert fyrir stjórnvöld að setja öll þessi álver á dagskrá því þetta snýst um að stjórna vænt- ingum,“ segir Ingibjörg. „Ef búnar eru til þær óraunhæfu væntingar að af öllum þessum framkvæmdum verði þá hefur það líka áhrif á gengið, verðbólguna og viðskiptahallann. Þá telja bæði fyrir- tæki og almenningur að það séu for- sendur fyrir áframhaldandi skuld- Staða útflutningsgreina hér á landi er erfið um þessar mundi, og er það að hluta til rakið til uppbyggingar stjóriðju á Austurlandi. Myndin er tekin á byggingarsvæði Alcoa á Reyðarfirði. Ljósmynd Pétur Sörensson setningu og neyslu. Því finnst mér óábyrgt af stjórnvöldum að tala eins og þau gera því þetta hefur áhrif á bæði almenna umræðu og vænt- ingar sem henni tengjast. f stað þess að róa markaðinn aðeins og draga úr þenslunni er á þennan hátt kynt undir henni.“ Aðrar útflutningsgreinar í vanda Erfið staða annarra útflutnings- greina en áliðnaðarins hefur verið nokkuð til umræðu að undanförnu. Sterk staða krónunnar hefur meðal annars reynst fýrirtækjum í sjávar- útvegi ákaflega erfið og hafa mörg þeirra lagt upp laupana síðustu miss- eri. Forráðamenn fyrirtækja I þekk- ingariðnaðinum hafa ennfremur verið duglegir við að benda á hvaða áhrif núverandi staða í efnahagskerf- inu hefur á fyrirtæki í þeirra grein. Á sama tíma og kostnaður þessara fyrirtækja, sem fyrst og fremst felst f launakostnaði starfsmanna, hefur staðið í stað eða aukist, komi mun færri krónur í kassann þar sem mik- ill hluti tekna þessara fyrirtækja er I erlendri mynt. „Staðan hjá okkur er reyndar merkilega góð þrátt fyrir að við höfum reiknað það út að sterk staða krónunnar undanfarin misseri hafi kostað fyrirtækið um 200 milljónir króna,“ segir Hilmar V. Pétursson, forstjóri CCP, sem stendur að baki leiknum Eve Online. „Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé kominn timi til að stjórnvöld hætti þessu og fari að einbeita sér að ein- hverju öðru og meira uppbyggilegu, t.d. að byggja upp þekkingariðnað. Ég hef talsverðar áhyggjur af þess- ari atvinnugrein hér á landi. Þau fyrirtæki sem náð hafa einhverjum árangri eru nú í skipulögðum brott- flutningi héðan frá Islandi og ég er ekki að sjá að það muni breytast. Þessi fyrirtæki eru ekki endilega að flytja sig til landa þar sem til að mynda launakostnaður er lægri heldur einfaldlega til landa þar sem stöðugleikinn er meiri,“ segir Hilmar. Gosblandaö áfengi sækir á Áfengisneysla fslendinga eykst jafnt og þétt ef marka má nýjar tölur frá Hagstofu fslands. Lang- stærstur hluti af áfengisneyslu landans liggur í bjórdrykkju, en rúmlega helmingur alls þess alkó- hóls sem fslendingar setja ofan í sig kemur í gegnum ölið. Samkvæmt Hagstofunni varð tæp- lega 7% aukning í áfengissölu í fyrra miðað við árið áður. Seldir voru áfengir drykkir sem samtals inni- héldu 1.625 lhra af hreinu alkóhóli á síðasta ári, en árið áður voru lítr- arnir 1.523. Salan samsvarar því að hver ein- staklingur yfir 15 ára aldri hafi keypt 7,05 lítra af hreinu alkóhóli árið 2005 sem er um 5% aukning milli ára. Ástralía og Nýja Sjáland vinsæl Mikil aukning hefur orðið á neyslu Bjórdrykkja skýrir stærstan hluta af neyslu alkóhóls (slendinga. gosblandaðra drykkja og hefur neyslan aukist úr 0,7 lítrum árið 2000 í um 1,8 lítra á hvern íbúa 15 ára og eldri árið 2005. Sífellt meira er ennfremur selt af léttum vínum og hefur rauðvín þar nokkurt forskot á hvítvínið. En frá hvaða löndum eru vínin sem við erum að drekka? Jú, ef við skoðum rauðvínið kemur í ljós að Ástralía og Nýja Sjáland hafa sótt mjög í sig veðrið á siðustu árum og nú velja flestir vín frá þeim löndum ásamt Spáni þegar farið er í heim- sókn í Ríkið, nú eða á næsta veitinga- stað. Lengi vel völdu flestir vín frá Frakklandi, sem nú situr í fjórða sæti listans yfir vinsælustu fram- leiðslulönd rauðvíns. Frakkland hefur líka aðeins gefið eftir hvað hvítvín varðar. Landið er í öðru sæti listans yfir þau lönd sem selja mest af hvítvíni á íslandi og þarf aftur að lúta í gras fyrir Ástr- alíu og Nýja Sjálandi. Neysla á sterkum vínum nemur síðan um 20% af áfengisneyslu landans. Mikill verð- munur á hrein- lætisvörum Mjög mikill munur var á verði hreinlætisvara í könnun sem verðlagseftirlit Alþýðusambands íslands (ASÍ) gerði í gær. Mesti verðmunurinn i könnuninni var 102% á Fructis hárnæringu sem var ódýrust í Bónus á 198 kr. en dýr- ust í Samkaupum Strax á 399 krónur. Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í alls 15 tilvikum. Ellefú-ellefii var hins vegar oftast með hæsta verðið eða í 17 tilvikum. ASÍ kannaði einnig verð á þurrmjólk og bleium og kom í ljós að verð á þessum vörum hefúr hækkað nokkuð ífá því í ágúst í fyrra. Þannig hefur meðalverð fyrir 450 gr dós af Sma Gold þurrmjólk hækkað úr kr. 345 í ágúst i kr. 436 nú eða um rúm 26%. Meðalverð á pakka af Pampers Baby Dry Maxi+ 58 stk. hefúr hækkað úr 831 kr í SJONARHOLL Gleraugnaverslun Reykavíkurvegur 22 220 Hafnarfirði 565-5970 Líklega hlýlegasta gleraugnaverslunin norðan Alpafjalla

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.