blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 26

blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 26
m/jjjw SmtiRR^BÍÓ PINK PANTHER kl. 3.45,5.50,8 og 10.10 CONSTANT GARDENER kl. 8og 10.45 B.i. 16Ara NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50 UNDERWORLD kl. 8 B.1.16 Ara ZATHURA m/íslensku tali kl. 3.40 og 5.50 B.l. 10 Ara ZATHURA m/ensku tali kl.5.50 B.I.10ARA WALKTHE LINE kl.8og10.45 B.I.12ARA WALKTHE LINEÍLÚXUS kl. 5,8og 10.45B.i.12Ara FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40 og 10.20 REcnBOEinn CAPOTE kl. 5.30,8 og 10.20 b.u6Ara TRANSAMERICA W. 5.45,8 og 10.15 BJ.14ARA WALKTHE LINE W.6og9 B.1.12ARA BROKEBACK MOUNTAIN W.6og9 B.I.12ÁRA MATCH POINT W. 5.30,8 og 10.15 NANNY MCPHEE kl. 6og 8 GOOD NIGHT, AND GOOD LUCK W.8og10 FINAL DESTINATION 3 Kl. 6og10B.i. 16Ara THE PINK PANTHER W. 6,8 og 10 BROKEBACK MOUNTAIN W.8B.I.12 AWL CONSTANT GARDENER kl. 10.25 B.1.16 ARA NANNY MCPHEE W. 6 'tíurij€trtj/rn □□ Dolby /DD/ 34 I KVIKMYi aPRBMmHMRA ' sjrsmnmv’ MIÐVIKUDÁGÚR 8. MARS 2006 blaöið Margbrotin ádeila Syriana_________________________ Leikstjóri: Stephen Gaghan Aðalhlutverk: Alexander Siddig, Matt Damon og George Clooney Gott: Tímabær ádeila é skriffínsku Verst: Flókinn söguþráður. Sýnd í Sambíóunum og Háskólabíói. Syriana er ein af mörgum kvik- myndum sem komið hafa út undan- farið þar sem kvikmyndaiðnaðurinn sýnir hvernig hann getur bitið frá sér. Sjónarmið sem eftir 11. september voru mjög ríkjandi vestan hafs hafa fengið að víkja og þeirra í stað efast bandarískir kvikmyndagerðarmenn um heilindi stjórnvalda. Þeir velta fyrir sér hvort logið sé að almenningi um hin ýmsu hitamál og velta fyrir sér hversu mörg og stór í sniðum myrkraverk stjórnvalda eru. Syriana er einmitt dæmi um mynd sem gefur bandarískum stjórn- völdum bágan vitnisburð. Þar að auki er mikið farið inn á tengsl stjórn- mála og viðskipta sem eru greinilega of mikil að mati leikstjórans. Ásættanlegar mannfórnir Rauði þráður myndarinnar er að enginn er svo merkilegur að honum megi ekki fórna á altari alþjóðastjórn- mála og peningahyggju. Þegar pen- ingar og völd einstakra manna eru til umræðu svífast menn einskis til þess að tryggja aukinn arð og meiri völd. Þannig mega peðin sín lítils í stríði konunganna. Persónufargan Stíll Syriana er í anda Traffic sem er eftir sama leikstjóra. Myndatakan virðist fremur hrá en er samt sem áður greinilega vönduð og hver rammi hugsaður í þaula. Það eina sem e.t.v. gengur ekki al- veg í kvikmyndinni er flókinn sögu- þráðurinn. í honum eru fléttaðar saman sögur margra aðila sem tengj- ast einungis mjög takmarkað. Hugs- anlega má líkja því við kvikmyndir Guy Ritchies en Stephen Gaghan færist of mikið í fang svo einstakir þræðir verða fullflóknir. Þá er gerð til- raun til þess að vera með gífurlegan fjölda persóna sem oft er erfitt að átta sig fyllilega á. Hvað sem því líður standa allir leikarar sig mjög vel og er einstaklega sterkt að láta arabískar persónur tala arabísku. Verk í vinnslu Syriana er mjög umdeild mynd og finnst mörgum sem ofsatrúarmenn í röðum múslima fái of jákvæða um- fjöllun i henni. Hins vegar tel ég að leikstjóranum hafi einmitt tekist ætlunarverk sitt með því. Maður sér ekki Syriana án þess að hafa skoðun á málunum, verst er að maður veit ekki endilega hver sú skoðun er og mun ekki komast að því fyrr en löngu seinna. Myndin heldur áfram að hafa áhrif á áhorfendur löngu eftir að úr kvikmyndahúsinu er komið. Auk þess legg ég til að hlé í kvik- myndahúsum verði lögð niður. agnar.burgess@bladid.net Miðasalan á Ian Anderson hefst í dag hefst miðasala á tónleika Ian Anderson sem best er þekktur sem flautuleikari þjóðlagasveitarinnar Jethro Tull. Tónleikar Anderson verða haldnir þann 23. maí næst- komandi í Laugardalshöll en honum til halds og trausts verða meðlimir úr sinfóníuhljómsveitinni. Númeruð sæti verða á tónleik- unum og höllinni skipt í fjögur svæði. Verð á miðum er 8.900 krónur í A svæði, 7.900 í B svæði, 5.900 fyrir C svæði, sem er á svoköll- uðum pöllum, og 5.500 í D svæði, stúku. Ofan á miðaverð leggst svo miðagjald sem er í hlutfalli við verð miðans. Miðasala fer fram á www.midi.is og í verslunum Skífunnar og BT um allt land. SÆKTU LAGIÐ! Aqualung með JethroTull Þeír sem ætla að skella sér að sjá lan Anderson ættu að hita upp og hlusta á gömul og góð lög með JethroTull, Aqualung er eitt af þeim. Blaðið treystirþvi að lesendursínirkunniskilá lögum umhöfundarrétt. Aukasýning Curtis Adams Miðasala á sýningu töframanns- ins Curtis Adams 7. apríl í Austurbæ fór svo vel af stað að ákveðið hefur verið að hafa aukasýningu daginn eftir, laug- ardaginn 8. apríl. Hún fer fram í Austurbæ kl. 19.30, húsið verður opnar kl. 19.00 og miðaverð er frá 1.900, auk miðagjalds, til 3.900, auk miðagjalds. Miðasalan er á www.midi.is, í verslunum Skífunnar í Reykja- vík og BT á landsbyggðinni. Waters safnar liði Það hefur verið staðfest að Nick Mason, fyrrum trommuleikari Pink Floyd, muni spila Dark Side Of The Moon með Roger Waters í Frakklandi á tóneika- ferð þess síðarnefnda í sumar. Eins hefúr Waters boðið Rick Wright, fyrrum hljóm- borðsleikara Pink Floyd, að spila með sér á sömu hljóm- leikum. Eins og vitað er mun Waters heiðra Islendinga með nærveru sinni í byrjun sumars og eru tónleikahaldararnir að ræða um hvort þeir Mason og Wright komi hingað. Siggi hitar upp fyrir José Einn sérstæðasti trúbador þjóðarinnar, Siggi Ármann, mun spila á undan sænska tónlist- armanninum José González á tónleikum hans í Reykjavík næstkomandi mánudag. Siggi hefur fengið prýðisdóma fyrir sinn nýjasta geisladisk, Music for the Addicted, sem kom út fyrir síðustu jól. Tón- list Sigga Ármanns hefur verið lýst sem lágstemmdri, einlægri og melódískri. Miðasala á tónleikana fer fram í verslunum Skíf- unnar og á www.midi.is. Miðaverð er 2.500 krónur auk 200 króna miðagjalds. Hvað eraðgerast? Blaðið vill endilega fjalla um atburði líðandi stundar. Sendu okkur línu á gerast@bladid.net. I dag kl. 14 | Glæpir og Góðverk í Iðnó midi.is | Leikfélagið Snúður og Snælda sýna Glæpir og góðverk. Byggt á verki An- tons Delmer „Tutter a note“. í dag kl. 20 | Eldhús eftir máli í Þjóðleikhús- inu Smíðaverkstæði midi.is | Þessi leiksýning er tileinkuð minningu skáldkon- unnar Svövu Jakobsdóttur sem lést á s.l. ári en hún hefði orðið 75 ára á þessu ári. Vala Þórsdóttir hefur leitað fanga í nokkrum af þekktustu smá- sögum Svövu, eins og Veisla undir Grjótvegg, Saga handa börnum, Eldhús eífir máli o.fl. f dag kl. 20 | Hungur í Borg- arleikhúsinu, litla sviði midi.is | Hungur er um lífsbar- áttu fjögurra einstaklinga í heimi þar sem útlitskröfurnar eru svo óraunhæfar að Inter- netið er eini staðurinn þar sem hægt er að uppfylla þær.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.