blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 blaöiö
Kinky næsti ríkisstjóri Texas?
Bandaríski sveitasöngvarinn og rithöfundurinn Richard F. „Kinky“
Friedman stefnir að því að verða fyrsti óháði ríkisstjórinn í Texas-
ríki frá því að Sam Houston sigraði í ríkisstjórakosningum árið 1859.
Takist Friedman ætlunarverk sitt mun hann feta í fótspor þeirra
Jesse Ventura og Arnold Schwarzenegger sem nýlega færðu sig úr
skemmtanabransanum yfir í stól ríkisstjóra.
Prófkjör hjá repúblikönum og
demókrötum lauk í gær, þriðjudag.
Allt útlit var fyrir að Rick Perry,
sitjandi ríkisstjóri, myndi sigra auð-
veldlega í prófkjöri repúblikana en
mjótt var á mununum hjá demók-
rötum. Þar tókust á tveir tiltölulega
óþekktir frambjóðendur; Chris Bell
og Bob Gammage. Friedman stólar
á litla þátttöku í prófkjörum flokk-
anna tveggja en einungis þeir sem
ekki taka þátt í þeim mega lýsa yfir
stuðningi við óháðan frambjóðanda.
Friedman þarf að safna 45 þúsund
stuðningsyfirlýsingum fyrir 5. maí
til þess að fá að bjóða sig fram í
kosningunum sem verða haldnar í
nóvember.
Samkvæmt nýlegum könnunum
hefur framboð Kinky Friedmans
10% fylgi meðal kjósenda í Texas.
Þrátt fyrir að stjórnmálaskýrendur
telji Kinky hafi litla möguleika á að
sigra í kosningunum benda sumir
þeirra á almennan leiða meðal
kjósenda á „hefðbundnum" stjórn-
málamönnum. Öllum að óvörum
gæti eitthvað svipað gerst í Texas og
gerðist í Minnesota þegar fjölbragða-
glímukappinn Jesse Ventura sigraði
í ríkisstjórakosningum.
Samúðarfullur sveitavargur
Kinky Friedman er skrautlegur
maður og sker sig frá öðrum fram-
bjóðendum í klæðaburði. Hann er
ávallt með kúrekahatt og keðjureykir
digra vindla. Þrátt fyrir það gengst
hann ekki upp í þeirri staðalmynd
sem menn hafa af kúrekum frá
Texas. Hann er gyðingur og stjórn-
málaskoðanir hans verða að teljast
frjálslyndar á bandarískan mæli-
kvarða. Hann er meðal annars á
móti dauðarefsingum þótt hann seg-
ist ekki vera á móti því að taka seka
af lífi. Hann skilgreinir stjórnmála-
viðhorf sitt á þann veg að hann seg-
ist vera „samúðarfullur sveitavargur"
(e. compassionate redneck) og kall-
ast skilgreiningin á við hina „sam-
úðarfullu íhaldsstefnú' sem George
Bush forseti boðaði á sínum tíma.
Meðal helstu stefnumála Friedmans,
sem notar slagorðin „A fhverju ekki“
og „Hversu erfitt getur það verið að
gegna starfi ríkisstjóra“ í kosninga-
slagnum, er að innleiða karlmennsk-
una aftur í stjórnmál ríkisins. Hann
hefur lofað kjósendum að fá söngvar-
ann Willie Nelson i rílysstjórn, beri
hann sigur úr býtum í nóvember, en
Friedman er sannfærður um að tón-
listarmenn séu betur til þess fallnir
Kinky Friedman á baki fjölbreyttan feril og stefnir nú að því að vera ríkisstjóri Texas
að stjórna Texas-ríki. Hann segir að verk fyrir hádegi en yrðu þeim mun
vísu myndu þeir ekki koma miklu í duglegri á kvöldin. Til þess að fá
Nelson til liðs við sig ætlar hann að
skíra hraðbraut í höfuðið á honum
auk þess sem hann hefur lofað að
gera slíkt hið sama til þess að heiðra
minningu Buddy Holly. Friedman
vill leyfa fjárhættuspil í ríkinu og
nota skatta lagða á þá starfsemi til
þess að hækka laun kennara, lög-
reglu- og slökkviliðsmanna. Hann
er stuðningsmaður þess að samkyn-
hneigðir fái að ganga í hjónaband
þar sem hann telur að hommar og
lesbíur hafi jafnan rétt á við gagn-
kynhneigða til að líða ömurlega í
viðjum hjónabands.
Verður seint sakaður um
pólitíska rétthugsun
Kinky Friedman er þekktastur fyrir
að hafa verið söngvari sveitarokk-
hljómsveitarinnar Texas Jewboys á
áttunda áratugnum. Meðal þekkt-
ustu laga hljómsveitarinnar eru
„They ain't making jews like Jesus
anymore“, enlagið fjallar um gyðing
sem gengur í skrokk á hvítum kyn-
þáttahatara, og „An asshole from E1
Paso“. Þessi lög endurspegla þá stað-
reynd að afstaða Kinky verður seint
sögð vera bundin á klafa pólitískrar
rétthugsunar
Á níunda áratugnum hætti Kinky
með hljómsveitina og hóf feril sem
glæpasagnahöfundur. Hann hefur
gefið út rúmlega tuttugu bækur. Sög-
urnar, sem þykja í anda verka Raym-
ond Chandler, fjalla um persónu,
byggða á honum sjálfum, sem leysir
glæpamál í New York borg.
Vott?fen
Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaöar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo seni
höfuðverk, tannpinu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum, skal
leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsar eða skerta lifrarstarfsemi ættu
að ráðfæra sig við lækní áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalísýru, íbuprófen eða önnur bólgueyðandi
lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni. en
aldrei á síðasta þríðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal
vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki na til né sjá.
FUOTVIRKT
VERKJALYF
^Lyf&heilsa
Ifið hlustum!
Austurstræti • Austurveri • Domus Medica • Firðí. Hafnarfirði • Fjarðarkaupum
Glæsibæ • Hamraborg Kópavogi ■ JL-húsinu • Kringlunni l.hæð • Kringlunni 3.hæð
Melhaga • Mjódd ■ Mosfellsbæ ■ Salahverfi • Eiðistorgi ■ Hellu • Hveragerði • Hvolsvelli
Kjarnanum Selfossi • Vestmannaeyjum • Þorlákshöfn ■ Dalvik • Glerártorgi Akureýri
Hrísalundi Akureyri ■ Ólafsfirði • Akranesi • Keflavík v
Kínverjar auka enn
útgjöld til varnarmála
Kínverski utanrikisráðherrann, Li Zhaoxing, kynnir útgjöld til varnarmála í Peking í gær.
Kínversk stjórnvöld munu auka
útgjöld til varnarmála um tæp
15% á þessu ári. Útgjöld til varnar-
mála hafa farið hríðvaxandi und-
anfarin ár og aukist um að með-
altali 10% á ári undanfarin tíu
ár. Ákvörðunin var kynnt á þingi
Kommnúnistaflokksins sem fer
fram í Peking um þessar mundir.
Samkvæmt opinberum tölum
munu stjórnvöld eyða rúmum 35
milljörðum Bandaríkjadala til
varnar- og öryggismála á árinu og
er talið að útgjöldin fari vaxandi
næstu árin.
Á fundi með blaðamönnum í gær,
þriðjudag, varði Li Zhaoxing, ut-
anríkisráðherra Kína, hækkunina
og undirstrikaði það að Kínverjar
væru friðelskandi þjóð. Hækkun
útgjalda væri eingöngu tilkomin
vegna hækkandi olíuverðs á heims-
mörkuðum, aukinna launagreiðslna
til hermanna og nauðsynlegra
endurfjárfestinga vegna úreltra
hergagna. Hann benti ennfremur
á að þrátt fyrir aukninguna verðu
kínversk stjórnvöld aðeins 1/77 af
því sem Bandaríkjamenn verja til
varnarmála, sé miðað við þjóðar-
framleiðslu á íbúa. Ennfremur sagði
hann útgjaldaaukningu til hermála
í ár ekki óeðlilegar í ljósi þess hag-
vaxtaskeiðs sem landið hefur notið.
Bandaríkjamenn véfengja
opinberartölur
Bandarísk stjórnvöld hafa löngum
sakað Kínverja um að falsa opin-
berar tölur um útgjöld til varnar-
mála. Þau hafa bent á að það fé sem
rennur til rannsókna og þróunar
á nýrri tækni á vegum hersins sé
ekki talið fram, ólikt því sem gerist
í Bandaríkjunum. Bandariskir sér-
fræðingar segja að í raun hafi Kín-
verjar veitt nálægt 90 milljörðum
dollara til varnarmála í fyrra en
fram kemur i opinberum gögnum
frá stjórninni í Peking að upphæðin
hafi verið um 30 milljarðar.
Fréttir um áframhaldandi út-
gjaldaaukningu berast á sama tíma
og samskipti Kínverja og Taívana
fara versnandi og Bandaríkja-
menn og Indverjar hafa innsiglað
samkomulag um náið samstarf í
framtíðinni.