blaðið - 08.03.2006, Page 13
blaðið MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006
Tækjasjúkur maður hefur sérstaka ánægju af Go-kart enda sameinar það helstu áhuga-
mál hans: hraða og tæki.
Tækjasjúkur
karlmaður
Það er auðveldara sagt en gert að dekra við
tœkjasjúkan karlmann þar sem hann vill
sjaldnast yfirgefa heimilifullt afgrœjum
Fólk getur lagt ólíka merkingu
í orðið dekur. Það sem einum
þykir ljúft dekur getur öðrum
þótt hin mesta tímasóun og leið-
indi. Dekur er því afstætt hugtak
og mjög svo persónubundið. Oft
hefur dekur frekar verið tengt við
kvenmenn og eru það jafnan karl-
menn sem dekra við konurnar. En
sem betur fer er það ekki alltaf
svo og karlmenn fá líka sinn skerf
af dekri. En hvernig er best að
dekra við tækjasjúkan karlmann?
Það er auðveldara sagt en gert að
dekra við tækjasjúkan karlmann því
líkurnar eru á að hann muni berjast
gegn því. Því eins og allir vita er
erfitt að koma tækjasjúka karlmann-
inum út úr húsi vegna þess að...
1. Hann verður að sitja við tölvuna
og hala niður þessari einu mynd
því annars er öruggt að himinn
og jörð farast...
2. Honum er lífsnauðsynlegt að
halda við kunnáttu sinni í vinsæl-
ustu leikjunum í X-Box, Playst-
ation og PSP, því ekki má hann
vera síðri en strákarnir þegar
þeir koma í heimsókn...
3. Eins og allir vita er skipulag
nauðsynlegt og því verður hann
að eyða laugardagskvöldinu í að
raða og skipuleggja myndirnar í
tölvunni...
Dekur tækjasjúka karlmannsins
verður fyrst og fremst að snúast um
tæki og aftur tæki. Þeir sem hyggj-
ast taka að sér það verkefni að dekra
við tækjasjúkan karlmann þurfa að
hafa það vel í huga að hinn tækja-
sjúki má alls ekki fá nein tæki að
gjöf fyrr en dekrinu er lokið. Ástæða
þess er sú að fái hann tæki að gjöf
þá kemst ekkert annað að enda þekk-
ist það vel að tækjasjúkir menn eiga
margar andvökunætur vegna nýrra
tækja.
Tækjasjúkur maður þarf nauðsynlega að
halda við kunnáttu sinni í vinsælustu leikj-
unum í X-Box, Playstation og PSP.
Enski boltinn í 42 tommum
Sem betur fer er til fullt af tækjum
í heiminum þannig að dekur tækja-
sjúka mannsins er auðveldara en
það virðist í fyrstu. Þeir sem vilja
komast sem auðveldast út úr dekri
tækjasjúka mannsins geta byrjað á
því að kaupa glæsilegt 42 tommu
sjónvarp með heimabíói. Þegar
maðurinn er búinn að jafna sig á
kætinni yfir sjónvarpinu og hefur
eytt nokkrum klukkutímum í að
skoða leiðarvísirinn og prófa alla
mögulega möguleika sjónvarpsins,
sem verða síðan aldrei aftur notaðir,
(hver vill horfa á 6 sjónvarpsrásir í
einu hvort sem er?) þá er kominn
tími fyrir gjöf nr. 2 sem er vitanlega
nokkurra mánaða áskrift að Enska
boltanum yfir HM tímabilið.
Go-Kart og bátsferð
Fyrir þá sem vilja leggja meira á sig
fyrir dekurdag tækjasjúka manns-
ins er ýmislegt í boði. Tilvalið væri
að byrja daginn á að fara með ljúf-
fengan morgunmat í rúmið þar sem
kannski nýjasti tölvuleikurinn fylgir
innpakkaður. Þegar búið er að leika
sér nóg í leiknum er komið að næsta
þrepi dekurdagsins en það gæti til
dæmis verið Go-Kart ferð, snjósleða-
ferð eða jafnvel bátsferð. Það er því
ýmislegt sem hægt er að gera og allt
sem tengist tækjum vekur án efa
ánægju tækjasjúka karlmannsins.
Svo er hægt að toppa kvöldið með
því að gefa honum eitt skemmtilegt
tæki sem mun án efa vera vinsælt.
svanhvit@bladid.net
Þegar maðurínn er búinn að jafna sig á kætinni yfir
sjónvarpinu og hefur eytt nokkrum klukkutímum
í að skoða leiðarvísirinn og prófa alla möguleika
sjónvarpsins, sem verða síðan aldrei aftur notaðir.
IAN ANDERSON
p. — 1
l rjl =i=
Miðasala hefst í dag ld. 10
IAN ANDERSON
Plays The Orchestral
JETHRO TULL
í Laugardalshöll 23. maí.
Maðurinn á bak við Jethro Tull, flautuleikarinn, söngvarinn og lagasmiðurinn
Ian Anderson á stórtónleikum í Laugardalshöll 23. maí,
ásamt eigin hljómsveit og félögum úr Reykjavík Chamber Orchestra.
Miðasala á www.midi.is, í verslunum Skífunnar og BT á Akureyri og Selfossi.
Aðeins selt í númeruð sæti, takmarkaður fjöldi.
&
perf#rmer
www.performer.is