blaðið - 08.03.2006, Page 18
26 I HEIMILI
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 blaðiö
Málverk og textíll
Svava K. Egilson hefur vakið athyglifyrir að blanda saman málverki og textíl í myndverki.
Eftirspurn eftir góðum lista-
verkum og málverkum hefur
aukist mikið undanfarið. Það eru
ótal hæfileikaríkir listamenn á ís-
landi sem allir hafa sína sérstöðu.
Svava K. Egilson, Iistamaður,
hefur vakið athygli fyrir sérstæð
og falleg verk sín en hún blandar
meðal annars saman málverki
og textíl í myndverki. Hún lista-
maður marsmánaðar í Gallerí
Lind í Kópavogi.
Svava segir að það einkenni hana
að blanda saman málverki og textíl.
,Mér finnst rosalega gott að hvíla
mig og þá nota ég vatnsliti eða akrýl.
Það er líka gott að setjast við sauma-
vélina og sauma og hanna. Ég bæði
mála efnin og nota silki þegar ég
þrykki. Einnig nota ég grafík. Ég
bý til allt frá grunni nema að vefa
efnið,“ segir Svava og hlær. „Ég nota
yfirleitt einlit efni sem ég mála eða
þrykki og bródera. Mér finnst líka
Frjósemd
mjög gaman að mála með vatns-
litum og fanga augnablikið en þá
Jöfragleði, blönduð tækni
Miðvikudaginn 15. mars
Greinar • Viðtöl • Fræðsla • og margt fleira
blaöió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Simi 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net
Bjami Danielsson • Simi 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjarni@bladid.net
Svava K. Egi!son:„Mér finnst líka mjög gaman að mála með vatnslitum og fanga augna-
blikið en þá vinn ég með birtu
vinn ég með birtu. Ég kem alltaf
fersk inn ef ég breyti um reglulega.
Stundum gerist það jafnvel í miðri
mynd að ég missi taktinn og þá verð
ég að gera eitthvað annað. Eg ætla
að hætta ef mér fer að leiðast þetta. Á
meðan ég finn kraftinn og það sem
þetta gefur mér þá held ég áfram.“
Tengimig viðfólk
„Hausinn er starfandi allan sólar-
hringinn,“ segir Svava og hlær þegar
hún er innt eftir því hvaðan hún fái
innblásturinn. „Ymist eru þetta lita-
samsetningar sem ég vinn út frá eða
einhver form sem eru að miklum
hluta til úr náttúrunni eða úr lífinu
sjálfu.“ Svava gerir líka gluggaverk
sem hafa verið mjög vinsæl en þau
eru sérpöntuð. „ Ég vinn oft út fráþví
sem fólk vill en ég er með nokkrar
gerðir af gluggaverkum. Mér finnst
mjög gaman að fara á staðinn og sjá
gluggann og umhverfið. Ég vinn út
frá tengslum, lífi fólks og reyni að
tengja mig við hvað fólk er að leita
eftir,“ segir Svava og bætir við að list
á Islandi sé frekar ódýr miðað við
erlendis.
Opin vinnustofa
Svava bjó lengi fyrir norðan en flutti
suður fyrir þremur árum og opnaði
þá vinnustofu í Hafnarfirði. „Þetta
er opin vinnustofa með vísi að gall-
eríi og við deilum henni þrjár. Eftir
að ég flutti suður þurfti ég eiginlega
að byrja á byrjunarreit aftur og
auglýsa mig en ég var komin með
ágætis kúnnahóp fyrir norðan. Ég
starfa eingöngu við listina og það
er rosalega gefandi. En þetta getur
líka verið erfitt og ég keyri ekki um
á Benz,“ segir Svava hlæjandi. „Það
er alveg óútreiknanlegt hvernig
hver mánuður er. Janúar getur þess
vegna verið miklu betri en desem-
ber. Þetta er upp og niður en ég er
ennþá í þessu og ætla mér svo sem
aldrei að hætta.“
Verk Svövu má sjá á vinnustofu
hennar að Brekkugötu 2 í Hafnar-
firði, í Gallerí Lind í Bæjarlind í
Kópavogi eða á heimasíðu hennar
www.gallerygryla.nett.is
svanhvit@bladid.net
Plastparket hentar
best i barnaherbergið
Fagmennirnar telja að plastparketið henti betur í barnherbergið
en önnur gólfefni vegna þess að það er auðvelt að þrífa ogsterkt.
Það eru gerðar aðrar kröfur til gólf-
efna í barnaherbergi en öðrum her-
bergjum. Börn hafa ánægju af því
að hoppa og skoppast um herbergið
auk þess að hoppa úr kojunum
sínum. Þau geta dottið úr rúminu,
krotað á gólfið og svo mætti lengi
telja. Gólfefni í barnaherbergi þarf
því að uppfylla ýmsar kröfur sem
annað gólfefni þarf ekki að gera.
María Steinmóðsdóttir, sölumaður
í gólfefnadeild Húsasmiðjunnar
Smáratorgi, og Ragnar Valsson hjá
Álfaborg voru sammálaumað plast-
parketið uppfyllti þessar kröfur.
Ragnar talar um að auðvelt sé að
þrífa plastparketið, það er sterkt,
slitsterkt og endingargott og
ekki of hart. Allt eru þetta kostir
sem eru nauðsynlegir í barnaher-
bergjum. „Plastparketið er vinsæl-
ast. Flísar eru of harðar og gefa
ekkert eftir. Viðarparketið rispast
frekar, til dæmis ef börnin eru
með bíla og dúkkur á ekta parketi.
Dúkurinn er svipaður og flísarnar,
þær eru límdar beint á steininn og
gefur því ekk-
ert eftir eins og
parketið gerir,"
segir Ragnar
og bætir við að
undir parket-
inu sé undirlag
sem dúar að-
eins og veitir
þessa eftirgjöf
sem leitað er ...............* * * *'
eftir. „Ef það er
krotað á teppi í
barnaherbergi þá getur verið mjög
erfitt að ná því af.“
Gæði plastparkets meiri en áður
María talar um að einnig finnist
mörgum plastparketið hlýlegra í
barnaherbergið en dúkur. Áukþess
er auðveldlega hægt að hreinsa krot
Hægt er aö fá alls kyns falleg plastparket í barnaherbergi en plastparket þolir meiri
ágang og er sterkara en annað gólfefni.
og annað af plastparketinu, með
réttum hreinsiefnum. „Allt parket
Flísar eru ofharðar og gefa ekkert eftir. Viðarpar-
ketið rispast frekar, tildæmis efbörnin eru með
bíla og dúkkur á ekta parketi. Dúkurinn er svipaður
og flísarnar, þær eru límdar beint á steininn og
gefurþví ekkert eftir eins og parketið gerir.
rispast og það kvarnast upp úr öllu
parketi. Það skiptir engu máli hvað
það heitir. Ég myndi ráðleggja
fólki að leggja plastparket í styrkt-
arflokki 32 á barnaherbergi en það
er næsthæsti styrktarflokkurinn.
Slíkt parket þolir meiri ágang og
er harðara." Enda segir Ragnar að
fólk kaupi helst plastparket á barna-
herbergi en leyfi sér þá jafnvel að
kaupa eitthvað
veglegra á
’ önnur herbergi
hússins. „Það
hefur skiljan-
lega aukist að
plastparket sé
sett á gólfið.
Fólk er farið
að átta sig á því
’**••••••• að plastparket í
dag er ekki það
sama og það
fyrir nokkrum árum, gæðin
hafa breyst mikið. Þú getur ennþá
fundið ódýrt plastparket en það er
þá frekar notað til bráðabirgða.
svanhvit@bladid. net
var