blaðið - 08.03.2006, Side 20
28 I MATUR
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 bladiö
Mestu þurrkar í Kenýa í 40 ár
Yfirvofandi matarskortur sagður geta orsakað hungursneyð.
1 norðurhluta Kenýa hafa a.m.k. 40
látið lífið vegna matarskorts og á
sama svæði hafa kameldýr, naut-
gripir og apar látist af sömu sökum.
Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út
þá yfirlýsingu að berist mataraðstoð
ekki fljótlega til 3,5 milljóna íbúa
landsins geti það haft alvarlegar
afleiðingar.
Miklir þurrkar hafa verið á svæð-
inu sem hafa skapað erfiðustu
aðstæður sem ríkt hafa þar í fjóra
áratugi. James Morris, yfirmaður
Matvælahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, hefur heimsótt Kenýa og
segir umheiminn þurfa að vakna
til vitundar um alvarleika málsins,
algjört neyðarástand vofi yfir. Ber-
ist ekki fjárhagsaðstoð til landsins
nú þegar muni það valda vannær-
ingu og hugsanlega hungursneyð.
Birgðir af maís og hrísgrjónum sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa útvegað
íbúunum munu aðeins endast út
næsta mánuð og birgðir bauna og
jurtaolíu munu þverra mun fyrr að
mati Morris.
Ástandið í Sómalíu er ekki skárra.
Morris hvatti stríðandi fylkingar
þar til að leggja ágreining til hliðar
og einbeita sér að því að skipuleggja
martaraðstoð fyrir íbúa landsins.
Kristin hjálparsamtök frá Bret-
landi taka undir orð Morris og segja
að í Kenýa liggi dauðir nautgripir á
víðavangi. Sumir íbúar landins hafi
selt allar eigur sínar í skiptum fyrir
mat. Segja talsmenn þessara sam-
taka að fólk fái vart dregið fram lífið
lengur á þeim matarbirgðum sem
nú eru í landinu. Fljótlega verði því
þörf á frekari matvælaaðstoð. Sam-
tökin segja að þó þurrkar séu helstu
ástæður yfirvofandi neyðarástands
hafi vaxandi fátækt í landinu líka
mikil áhrif. í síðustu viku ákváðu
Bretar að bæta við 15 milljónum
punda til fjárhagsaðstoðar i Kenýa.
James Morris telur 190 milljónir
punda þurfi til að koma í veg fyrir
næringarskort í landinu.
Grennandi kartafla
Ný kartafla hefur nú verið ræktuð
en hún inniheldur minna en helm-
ing kaloría sem venjulegar kartöflur
innihalda. Kartaflan kallast Vivaldi
kartaflan og er afrakstur níu ára
rannsókna og ræktunar. Vivaldi
kartaflan inniheldur aðeins þriðj-
ung kolvetna sem venjuleg kartafla
inniheldur.Rannsóknarniðurstöður
sýna að Vivaldi kartaflan inniheldur
að jafnaði 26% minni kolvetni og
33% færri kaloríur en venjuleg kart-
afla. Talsmaður framleiðanda Vi-
valdi kartöflunnar sagði hana hina
fullkomnu lausn fyrir þá sem vilja
passa mataræði sitt. Vivaldi kart-
aflan inniheldur sama magn C-vít-
amíns og annarra næringarefna og
venjuleg kartafla.
hugrun@bladid.net
SÖLUMENN
ÓSKAST
Vegna aukinna umsvifa óskar
Blaðið eftir sölumönnum i
fulla vinnu.
%
% Um er að ræða skemmtilegt
starf hjá fyrirtæki í örum
vexti með skemmtilegu
fólki. Góðir tekjumögu-
leikar fyrir gott fólk.
I Blaðiö
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
Umsóknir sendist á atvinna@vbl.is
Ofnbakaður lax með
eplum og ólífum
fyrir 4
Uppskriftin er svo einföld að það
kemur kannski á óvart hversu góð
hún er. Ef hráefnið er gott, verður
maturinn góður án mikillar fyrir-
hafnar. Tíminn skiptir máli því
laxinn á að vera fullmatreiddur
en ekkert meira. Hann á að vera
safaríkur en ekki þurr, losna
sundur þegar ýtt er við honum
með gaffli, þéttur en ekki harður
viðkomu. Eplin mega heldur ekki
jorna, heldur á að koma safi úr
jeim sem skilar að sjálfsögðu sæt-
unni sem þau innihalda.
Það sem þarf:
600 gr nýflakaður og roðflettur lax, skor-
inn í fjögur jafnstór stykki
1 epli, skorið í þunna báta
100 gr steinlausar og grófhakkaðar
grænar ólífur (etv. fylltar með möndlum,
papriku eða hvítlauk)
Nýmalaður svartur pipar t.d. Maldon safi
úr sftrónu
Raðið laxabitunum í ofnfast fat og þekið
með eplabátum og ólífum ásamt pipar. Bak-
ið í 170°C heitum ofni (forhituðum) og takið
út eftir nákvæmlega 8 mínútur.
Heimabakað heilkornabrauð er gott
meðlæti, t.d. heilkornaspeltbrauð úr
Himneskt grófspelti, og létt salat eða
gufusoðið grænmeti. Munið að rétt-
urinn bragðast jafn vel kaldur sem
heitur og hægt að útbúa nóg í nestið
á morgun eða kaldan kvöldmat.
Græn súpa
fyrir 4
Þessi súpa er dásamlega einföld
og það tekur aðeins 15 mínútur
að matreiða hana. Ef ekki er til
heimalagað soð úr Römertopf,
má nota tilbúinn kraft, t.d. 1-2 tsk
Condimento Vegetale frá LaSelva,
sem er ferskur grænmetiskraftur,
eða lífrænan krafttening án syk-
urs og sterkju.
Það sem þarf er eftirfarandi:
300 grspínat, t.d. 1 poki afsplnati frá Him-
neskri hollustu
’A I vatn
4-5 dl heimatilbúið kjúklinga-og grænmet-
issoð úrRömertopf
(sjá uppskrift ofar)
1 flnhakkað hvltlauksrif
Safiogog rifinn börkur afeinni llfrænt
ræktaðri sltrónu
5 gr ferskt engifer, flnt saxað
3-4 dropar af fiskisósu
I tsk túrmerik, t.d. frá Sonnentor
Ögn afkaneldufti, t.d Sonnentor
Ögn afvanilludufti, t.d frá Himneskri
hollustu
’A- 1 dl extra jómfrúaróllfuolía, t.d. frá
LaSelva
Sjávarsalt, t.d. Maldon
Nýmalaður svartur pipar, t.d. Maldon
Ef til er wok eða pottur með gufu-
suðurist er spínatið gufusoðið
yfir Vt lítra af vatni í 2 mínútur.
Spínatið á bara að mýkjast,
en ekki að linast alveg upp. Ef
ekki er til gufupottur eða wok er
spínatið soðið í venjulegum potti,
i nákvæmlega 2 mínútur og síðan
fært upp úr pottinum með töng
eða gataspaða, eða hellt gegnum
sigti.
Soðið er geymt.
Spínat, kjúklinga- og grænmetis-
soð, hvítlaukur, engifer, fiskisósa,
túrmerik, kanelduft, vanilluduft
og 1/2 dl af ólifuolíu er maukað
í blandara eða í matvinnsluvél.
Bragðbætt með salti og pipar
og e.t.v. meiri olíu ef súpan á að
verða kremaðari. Ef hún á að vera
þunn má nota soðið af spínatinu.
Epli og perur með hvítu
möndlusmjöri og kanel
fyrir 4
Einfaldar uppskriftir eru oftast
bestar og það sannast í þessum
rétti. Það er unun að láta hörð,
fersk og stökk eplin og perurnar
leika í munni sér, böðuð í flauels-
mjúku möndlusmjöri, krydduðu
með kaneldufti og ávaxtasætu
og merkja andstæðurnar í sí-
trónubragðinu. Þetta er ævintýri
fyrir bragðlaukana og algerlega
án sykurs eða annarra sætuefna.
Vitaskuld má nota aðra ávexti í
staðinn fyrir eða með eplunum
og perunum. Ef möndlusmjörið
er of þykkt, má setja örlítið kalt
vatn saman við það áður en því er
bætt saman við ávextina.
Það sem þarf er eftirfarandi:
4 epli, skorin I grófa bita
4 perur, skornar íþunnar sneiðar, eftir
lengdinni
nýpressaður safiúr’/i sltrónu eða appel-
slnu
1 tsk kanelduft, t.d. Sonnentor
’A tsk vanilluduft, t.d. frá Himneskri
hollustu
’A tsk kardemommuduft, t.d. Sonnentor
1 tsk hreint kakóduft.t.d. frá Himneskri
hollusta
2 msk hvltt möndlu- eða cashewhnetu-
smjör, t.d. Biona
Veltið eplum og perum i app-
elsínu- eða sítrónusafa ásamt
kryddinu og látið standa í kæli,
að minnsta kosti í hálfan sólar-
hring en helst í heilan sólarhring.
Skiptið kryddlögðum ávöxt-
unum í 4 skálar og hrærið Vi msk
af möndlusmjöri saman við inni-
hald hverrar skálar.
Peru-banana ís með hörfræja-
olíu og sýrðum rúsínum
fyrir 4
Minnir á mjúkan ís, en er mjólkur-
og sykursnauður, hollur og
bragðgóður. Ef til er ísvél, sleppur
maður við að frysta ísinn
i frysti og taka hann út á 'á tíma
fresti fyrstu 2 klst. Það léttir ísgerð-
ina mikið, en jafnvel án ísvélar er
ísinn ómaksins verður. Lagaðu
e.t.v. stærri skammt í einu og frystu
í tveimur ílátum.
Það sem þarf er eftirfarandi:
1 dl Ijósar rúslnur
'A dl brúnt hrlsgrjónaedik, eplaedik eða
sítrónusafi
6 þroskaðir bananar
2 dl mild extra jómfrúarolía (óllfu-, repju-,
möndlu-, eða sólblómaolla), t.d. frá LaSel-
ve eöa Biona
2 dl hörfræjaoila, t.d. frá Himneskri holl-
ustu
4 perur, skornar I stóra bita
2 tsk vanilluduft frá Himneskri hollustu
Leggið rúsínurnar í bleyti í ediki eða
sítrónusafa í 3-4 klst. Látið renna af
þeim gegnum sigti og geymið krydd-
löginn til að nota síðar í olíu-ediks
dressingu á salat. Maukið banan-
ana með jómfrúarolíunni. Bætið
nú perunum og vanilluduftinu í og
maukið áfram svo úr verður létt,
flauelsmjúkt krem. Hellið kreminu
í ílát eða form sem þolir frost og
hrærið rúsínunum í. Frystið ísinn
í u.þ.b. 4 klst í frystinum.en takið
hann út á hálftíma fresti fyrstu 2
klst og hrærið í.