blaðið - 15.03.2006, Page 1
Hlve.is Þjónustusími 414 1616
Hiveute
Þráðlaust internet
4GB niðurhal
8Mb tenging
3.990
ÁMÁNUÐI*
■ MENNING
Óhamingjusam-
asta kona Evrópu
SÍÐA 32
100% eldbökun,100% ísl. ostur,
100%metnaður, 100% Rizzo"
'iimi 5777000
61. tölublað 2. árgangur
miðvikudagur
15. mars 2006
Rice fékk kóka-
skreyttan gítar
Condoleezza Rice, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, var
vafalaust búin undir að fundur
hennar og Evo Morales, hins
nýkjörna forseta Bólivíu, myndi
einkum snúast um kókarækt.
Morales var forðum leiðtogi
kókaræktenda í Bólivíu en
Bandaríkjamenn hafa á und-
anliðnum árum mjög þrýst á
stjórnvöld þar um að stöðva þá
framleiðslu.
Þegar 25 mínutna fundi
þeirra lauk á mánudag færði
Morales bandaríska utanríkis-
ráðherranum gítar að gjöf. Gít-
arinn, sem er fimm strengja og
nefnist „charango“ hefur lengi
fylgt íbúum á Andes-svæðinu
í Rómönsku-Ameríku en ein-
takið sem Rice fékk er fagurlega
skreytt kókalaufum sem greypt
eru inn í viðinn.
„Við kunnum vel að meta þess
gjöf. Við þurfum hins vegar
að setja okkur í samband við
tollayfirvöld til að kanna hvaða
reglur gilda um innflutning á
slíkum gripum,“ sagði banda-
riskur embættismaður sem sat
fundinn.
Reuters
Ólga á Gaza
Stjórnleysi ríkti á Gaza-svæðinu
og á Vesturbakkanum í gær
eftir að ísraelskir hermenn
höfðu ráðist inn í fangelsi
Palestínumanna í bænum Jer-
íkó og handtekið þar Ahmed
Saadat, leiðtoga palestínsku
Alþýðufykingarinnar. Tveir
menn féllu í árásinni og tugir
voru handteknir.
Þeir Lýður og Francisco undu sér vel við drullumall við leikskólann Urðarhól I Kópavogi, en kjöraðstæður voru til slikrar iðju. Svo góðar raunar að þeir félagar vildu helst ekki hlýða
kalli fóstru sinnar um að koma nú inn fyrir.
Verðhækkanir á matvöru vofa yfir
Blaóið/Frikki
Allt útlit erfyrir að matvörur og aðrar neysluvörur muni hœkka á nœstu vikum og mán-
uðum. Hagfrœðingur ASÍ segir svigrúmfyrir smásöluaðila að halda að sér höndum.
Bullumsull og bleyta, börnin min góð!
Veiking krónunnar mun skila sér út
í verðlagið innan þriggja mánaða
að mati forstöðumanns Rannsókn-
arseturs verslunarinnar. Gjaldskrár
innflytjenda eru þegar teknar að
hækka. Hagfræðingur Alþýðusam-
bands Islands segir innflutnings og
smásöluaðila hafa svigrúm til þess
að velta gengislækkun ekki að fullu
út í verðlagið.
Styrking krónu skilaði
sér ekki að fullu
Gengi krónunnar hefur lækkað
um rúm 13% frá áramótum og
þar af um rúm 10% síðastliðinn
mánuð. í ársbyrjun stóð dollarinn
í rúmum 63 krónum en í gær var
hann tæpar 71 krónur. Veiking
krónunnar þýðir að innflutningsað-
ilar greiða meira fyrir vörur sínar
en áður og það mun að sögn Ólafs
Darri Andrasonar, hagfræðings Al-
þýðusambands íslands, skila sér út
í verðlag til neytenda. „Það er alveg
ljóst að veiking krónunnar mun
skila sér út í verðlagið. Um það er
ekki deilt. Ég tel hins vegar að inn-
flytjendur hafi svigrúm til þessa að
fara hóflega í það að velta þessu yfir
á almenning."
Ólafur Darri bendir á að þegar
gengi krónunnar var sem sterkast
hafi það ekki skilað sér að öllu leyti
í lægra vöruverði og því sé svigrúm
núna fyrir smásöluaðila að halda að
sér höndum. „Styrking krónunnar
skilaði sér aðeins að hluta til í lækk-
uðu vöruverði þannig að það er eðli-
legt að gengislækkunin lendi ekki af
fullum þunga á neytendum.“
Gjaldskrár þegar byrj-
aðar að hækka
Jón Þór Sturluson, forstöðumaður
Rannsóknarseturs verslunarinnar,
segir það aðeins tímaspursmál hve-
nær gengislækkunin muni skila sér
út í verðlag til neytenda. „Reynslan
sýnir að áhrif gengisbreytinga á
matvöruverð skilar sér til hækk-
unar og lækkunar. Það getur tekið
tvo til þrjá mánuði að þessi gengis-
lækkun komi fram. Ég hef heimildir
fyrir því að gjaldskrár heildsala séu
þegar farnar að hækka.“
Jón segir að almennt hafi mat-
vöruverð hækkað lítið frá fyrri
hluta síðasta árs en á meðan hafi
laun og annar rekstrarkostnaður
hækkað. Því sé það ekki óeðlilegt að
reikna með einhverjum hækkunum
í kjölfar gengislækkunar. „Afkoma
i matvöruverslunum hefur versnað
og það getur haft þau áhrif að menn
verði óþolinmóðari við að hækka
verð. Þá eru menn víða uggandi yfir
gengisþróuninni og verð er þegar
byrjað að hækka t.d. á bílasölum.11
Þá bendir Jón á að verslanir rniði
í auknu mæli verð sitt við væntingar
um gengisþróun sem hafi áhrif til
hækkunar eða lækkunar. „Það eru
flestir á þvi að gengið muni síga
niður á við og það ýtir undir að verð-
hækkanir gerist hraðar en ella.“
ós&Orka
Skeifunni 19 108 Reykjavík