blaðið - 15.03.2006, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaöið
Fermingar
tertur
Eggert Jónsson
bakara- og conditormeistarí
Pantið tímanlega!
Félagsmálaráóherra segir að breyt-
ingar verði gerðar á íbúðalánasjóði
Jóhanna Sigurðardóttir segir það kaldhœðnislegt að nota eigi sjóðinn til að bjarga við-
skiptabönkunum. Telur hœttu á að vextir ogþjónustugjöld hœkki við breytinguna.
lánaumhverfi. Jóhanna
Hann segir að Siguröardóttir
gerðar verði breytingar á sjóðnum,
en of snemmt sé að segja til um
hverjar þær verði.
Að undanförnu hefur nokkuð
verið rætt um að íbúðalánasjóði
verði breytt í svokallaðan heildsölu-
banka. Ef sú leið yrði farin yrði
fbúðalánasjóður lagður niður í
þeirri mynd sem við þekkjum í dag
og breytt í þá veru að hann lánaði
bönkunum fé á hagstæðum kjörum
en lánaði ekki beint til einstaklinga
.Það er starfs- jön Kristjánsson
hópur sem er
að fara yfir málefni sjóðsins hér
innandyra. Hann er m.a. að skoða
hvernig málefnum sjóðsins verði
komið fyrir til frambúðar í nýju
umhverfi og sú leið að gera sjóðinn
að heildsölubanka er ein þeirra leið
sem þessi hópur er að skoða,“ segir
Jón- «
„það.,verður farið í samráðsferli
þar sem ýmis hagsmunasamtök
hafa möguleika á að segja skoðun
sína. Það sem ég legg áherslu á er
að það verði gætt að því hlutverki
sjóðsins að vera undirstaðan í lána-
kerfi landsmanna og sjá til þess að
allt landið njóti sambærilegrar fyr-
irgreiðslu eins og hefur verið,“ segir
Jón ennfremur.
Telur að vextir og þjónustu-
gjöld geti hækkað
Hugmyndum um breytingu á fbúða-
lánasjóði er mis vel tekið. Bent hefur
verið á að sjóðurinn stafi á öðrum
forsendum en viðskiptabankarnir.
Þannig hafi sjóðurinn ákveðið fé-
lagslegt hlutverk, til að mynda að
lána fólki til íbúðakaupa og bygg-
inga hvar sem það býr á landinu.
Ennfremur beri sjóðnum að lána fé
til bygginga á félagslegu húsnæði.
Að lokum að sjóðurinn taki mun
vægar á því þegar fólk lendi í fjár-
hagslegum vandræðum heldur en
viðskiptabankarnir geri og gangi
lengra í því að semja við fólk um t.d.
greiðslufresti.
Jóhanna Sigurðardóttir er ein
þeirra sem hefur efasemdir um
breytingar á fbúðalánasjóði.
„Það er ákveðin hætta á að vextir
og þjónustugjöld hækki við þessar
breytingar," segir Jóhanna.
„Eg sé ekki hvernig hagur lands-
manna er tryggður með þessum
breytingum og er í raun hrædd um
að staða lántakenda gæti versnað.
Ég sé til að mynda ekki að bank-
arnir muni taka við því félagslega
hlutverki sem sjóðurinn hefur sinnt
fram að þessu", segir Jóhanna og
bætir við að mikilvægt sé að stigið sé
varlega til jarðar í þessum málum.
„Það hefur verið gríðarlega mikil út-
lánaþensla hjá viðskiptabönkunum
að undanförnu. Mér finnst það kald-
hæðnislegt ef íbúðalánasjóður á
síðan að bjarga bönkunum úr þeirri
stöðu sem þeir hafa sjálfir komið sér
í,“ segir Jóhanna að lokum.
Matreiðslu-
meistarinn
leiðir listann
Baldvin H. Sigurðsson, mat-
reiðslumeistari, mun slcipa fyrsta
sæti Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs á Akureyri í
komandi bæjarstjórnarkosn-
ingum. Listi hreyfingarinnar
var samþykktur á félagsfundi
síðastliðinn mánudag. Kristín
Sigfúsdóttir, framhaldsskóla-
kennari, mun skipa annað sætið
og Dýrleif Skjóldal Ingimars-
dóttir, sundþjálfari, það þriðja.
Vinstri hreyfingin fékk
einn mann kjörinn í síðustu
bæjarstjórnarkosningum.
Bloöið/lngó
Línuívilnun á
ýsu afnumin
Línuívilnun á ýsu verður
afnumin frá og með 19. mars
næstkomandi samkvæmt
tilkynningu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu sem send var út í gær.
Upphaflega voru 1.472 tonn
af hefldarafla ýsu tekin frá leyfi-
legum afla og ráðstafað tfl línu-
ívilnunar. Samkvæmt útreikn-
ingum verður sá afli genginn til
þurrðar eftir u.þ.b. viku og því
ákveðið að loka á frekari veiðar.
5,5% hagvöxtur á síöasta ári
Hagvöxtur á síðasta ári nam 5,5%
samkvæmt Þjóðhagsreikningum
Hagstofunnar sem birtir voru í
gær. Árið 2004 mældist hagvöxt-
urinn 8,2%. Mikill vöxtur var í
einkaneyslu og fjárfestingum á
fjórða ársfjórðungi síðasta árs.
Verulegur viðskiptahalli
Samkvæmt Þjóðhagsreikningum
Hagstofunnar nam landsfram-
leiðslan á síðasta ári 996 milljörðum
króna og óx að raungildi um 5,5% frá
fyrra ári. Árið 2004 nam hagvöxtur
8,2% og árið þar á undan 3%. Þá
jukust þjóðartekjur á síðasta ári um-
fram landsframleiðslu um 6,7% aðal-
lega vegna batnandi viðskiptakjara
frá fyrra ári og minni vaxta- og arð-
greiðslna til útlanda.
Vöxtur landsframleiðslunnar á
liðnu ári einkenndist af mikilli fjár-
festingu og einkaneyslu að mati Hag-
stofunnar og uxu þjóðarútgjöldin
því langt umfram landsframleiðsl-
una eða um 14,9%. Það leiddi síðan
til verulegs viðskiptahalla uppá
162,3 milljarða króna.
Mikil einkaneysla
Vöxtur einkaneyslu á fjórða ársfjórð-
ungi síðasta árs var mesti vöxtur í
einum ársfjórðungi siðan gerð árs-
fjórðungsreikninga hófst. Á sama
tíma og útflutningur jókst um 7,8%
jókst innflutningur um 33,9% frá
sama tíma árið áður. Alls er einka-
neysla talin hafa vaxið um 10,6% á
ársfjórðunginum og í heild jukust
þjóðarútgjöld um 13,8% miðað við
sama tímabil á fyrra ári.
Þá jókst fjárfesting um 35,4% á
árfjórðunginum og samneysla um
3,6%.
Undirbúningur fyrir sýninguna „Verk og vit" er í fullum gangi 1' Laugardalshöll og í gær
vann Páll Arnar Guðmundsson hörðum höndum að því að koma fyrir Ijósabúnaði í lofti
sýningarsvæðisins.
Vill fjölga líf-
færagjöfum
Upplýsingar um líffæragjafir
munu koma fram í ökuskír-
teinum einstaklinga ef frumvarp
sem Ágúst Ólafur Ágústsson,
varafor-
maðurSam-
fýlkingar-
innar hefur
lagt fram
fær braut-
argengi.
I greinar-
gerð með
frumvarp-
inu segir að
líffæra-
gjafir séu
fátíðari á
íslandi en annarsstaðar á
Norðurlöndum og að hér á
landi fari helmingi fleiri ein-
staklingar árlega á biðlista eftir
líffærum en þeir sem fá líffæri.
„Á Vesturlöndum deyja nú
fleiri sjúklingar sem bíða líffæra-
gjafar en þeir sem fá líffæri. Mik-
flvægt er því að fjölga íslenskum
líffæragjöfum en hver líffæragjöf
getur bjargað allt að sex manns-
lífum. Fram tfl ársins 1991 gátu
íslendingar einungis þegið líf-
færi frá öðrum þjóðum en ekki
lagt þau tfl sjálfir,“ segir Ágúst.
Vegna þessa telur hann
nauðsynlegt að upplýsingar
um vilja tfl líffæragjafar verði
sem aðgengilegastar og er talið
heppflegt að nýta ökuskírteini
tfl þessa. Sú leið hafi verið
farin í Bandaríkjunum og
gefist vel, ekki sist vegna þess
að látnir ökumenn komi oft
tfl greina sem líffæragjafar.
Ættingjar hafna líffæragjöf
ættmenna sinna í um 40%
tflfella en á Spáni er þetta
hlutfall helmingi lægra.
„Það er því ástæða að auðvelda
upplýsingagjöf viðkomandi
einstaklings hvort hann kæri
sig um að gefa líffæri sín eða
ekki,“ segir Ágúst ennfremur.
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Opið virka daga 10.00-19.00
fímmtudaga 10.00-21.00
laugardaga 10.00-18.00
sunnudaga 11.30-18.00
sirni 544 2332
www.adesso.is
CAFÉADESSO
2. hæð í Smáralind vAIetrargarðinn
Rafport
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is www.rafport.is
Umboðsmenn um land allt
■ ■
t
L
/m'i
m
fé) Jl
HP
Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
Á CD/DVD diska, mi&ar úr plasti
Prenlar miéa úr Word-, Extel- og Outlook
Prentar merkiborða bæði á pappir og plasl,
stærðir eftir vali, allt að eins meters langa
Allt að 62mm breidd
50 miðar á mínútu*
> USB tenging
> Windows hugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Heilar lengjur eða staðlaðar
Staðlaðir póstfangamiðar
brother ql-sso
1
i
\
8