blaðið - 15.03.2006, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaöiö
Fjonr vilja 1
Hæstarétt
Fjórir hafa sótt um embætti hæsta-
réttardómara, en umsóknarfrestur
rann út ío. mars sl. Umsækjend-
urnir eru Hjördís Hákonardóttir,
dómstjóri við Héraðsdóm Suður-
lands, Páll Hreinsson, prófessor og
deildarforseti lagadeildar Háskóla ís-
lands, Sigríður Ingvarsdóttir, héraðs-
dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur
og Þorgeir Ingi Njálsson, héraðs-
dómari við Héraðsdóm Reykjaness.
Röng mynd
Á veiðisíðu á bls. 14 í Blaðinu
í gær birtist röng mynd með
viðtali við Eddu Helgason, leigu-
taka í Hofsá í Vopnafirði. Eru
hlutaðeigendur beðnir afsök-
unar á þessum mistökum sem
urðu við vinnslu blaðsins.
(Jdncíadar ilaís/car
sfj/'/'aíju \ (//■
www. primavera. is
Bla6i6/Frikki
Kaðlaklifur í Kópavogi
Þogerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður hvetja unga snót áfram á leikskóianum Urðarhóli í gær. Tilefni heimsóknar þeirra
var kynning á skýrslu starfshóps sem gert hefur tillögu um íþróttastefnu fslands til framtíðar.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjónmeð 2 börn,
2-11 ára, vikuferð i mai eða sept.
Diamant ibúðahótelið.
Bókaðu núna á
www.heimsferdiV,
Brottfarir í júní og ágúst
aó seljast upp
Skógarhlíó 18 • 105 Reykjavík • Simi 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
„Ljósleiðaravæðing Seltjarnar-
ness bitnar ekki á Reykjavík"
Félag sjálfstæðismanna í Vestur- og
miðbæ gagnrýnir nýgerðan samn-
ing Orkuveitu Reykjavíkur(OR) og
Seltjarnarnesbæjar um lagningu
ljósleiðarakerfis í bænum. í til-
kynningu frá félaginu eru áherslur
borgaryfirvalda í þessum málum
átaldar, þar sem ljósleiðaravæðing
borgarinnar hafi setið á hakanum á
sama tíma og borgarbúar séu látnir
standa undir kostnaði við ljósleiðara-
væðingu annara sveitarfélaga. Það
er einnig harmað, að ekki sé í fyrir-
sjánlegri framtíð á dagskrá að ljúka
við lagningu ljósleiðara í Vestur- og
miðbæ.
Verið að vinna af fullum krafti
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitunnar segir að ljósleiðaravæð-
ing annarra sveitarfélaga á vegum OR
eins og á Seltjarnarnesi og á Akranesi,
komi ekki niður á framgangi verksins
í Reykjavík. „Við erum að vinna af
fullum krafti við að tengja hús í borg-
inni. Þetta verkefni á Seltjarnarnesi á
ekki að koma niður á því. Hins vegar
sýndu hin sveitarfélögin ákveðið
frumkvæði í því að vera frumkvöðlar
í þessari tækni og njóta þau þess.“ Guð-
mundur segir að samkvæmt áætlun
verði vestur- og miðbærinn ljósleiðara-
væddur árið 2008. „Ég myndi nú telja
það vera I fyrirsjáanlegri framtíð.“
Ekki ókeypis
Sjálfstæðisfélagið segir að OR hafi
tekið að sér að leggja ljósleiðara inn
I hvert hús á Seltjarnarnesi, íbúum
að kostnaðarlausu. Guðmundur segir
þetta ekki alls kostar rétt. „Kostnað-
urinn við lagninguna er innheimtur
í formi notkunargjalda. Hann kemur
því yfir tímabil eins og tíðkast í
öðrum veitum." Hann bendir á að
það sé mun ódýrara að tengja öll
húsin í einu, í stað þess að tengja eitt
og eitt hús. „Það var því valinn sá
kostur að tengja alla og innheimta
notkunargjöld í framtíðinni."
„Múrarnir hrynja fyrr eða síðar"
Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri Hive, hefur áhyggjur afframferði risanna tveggja
áfjarskiptamarkaði en telur að neytendur muni sjá við þeim.
Arnþór Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Hive, segist ekki draga dul
á áhyggjur sínar af þróun á fjar-
skiptamarkaði, en að undanförnu
hafa risarnir tveir, Síminn og Og-
Vodafone eflst mjög og sótt fram á
fleiri sviðum en áður. „Þessi blokka-
myndun er ekki neytandanum til
góða. Við sjáum hvernig bæði fé-
lögin hafa verið að auka við sig og
umfang rekstursins víkkar stöðugt,
en allt er þetta fjármagnað í krafti yf-
irburðastöðu á fjarskiptamarkaði."
Eins og greint var frá í Blaðinu í
gær hyggst Síminn svara nýjasta
útspili OgVodafone á næstunni,
en OgVodafone býður nú ókeypis
hringingar milli heimasíma í öllum
kerfum fyrir þá viðskiptavini sína,
sem hafa alla fjarskiptaþjónustu hjá
sér. Fleiri dæmi má finna um tilboð
á þessum markaði, sem byggja á því
að notendur haldi sig við aðra hvora
samsteypuna.
Arnþór telur þessa þróun hættu-
Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri
Hive.
lega fyrir frjáls markaðsviðskipti
og neytendur alla. „Það er verið að
reisa nýja múra í stað þess að rífa þá
niður eins og markmiðið var.“
Hann segir Hive einbeita sér að
fjarskiptamarkaðnum og því óttist
þeir þetta brölt risanna tveggja ekki
svo mjög. „Við ætlum að sækja fram
af fullri hörku og gera neytendum til-
boð, sem bragð er að, án þess að gera
kröfur um hvar þeir eru í öðrum
viðskiptum,“ segir Arnþór og kveðst
leggja traust sitt á skynsemi neyt-
enda. „Það er skammgóður vermir
að fá eina þjónustu af mörgum fría
ef menn þurfa svo að binda sig með
löngum samningum um allar hinar
og borga fyrir fullu verði. Ég held
að menn átti sig á því að þeir eru
ekki að fá neitt ókeypis. Menn borga
þetta allt á endanum.“
Arnþór segir að Hive hafi bent
samkeppnisyfirvöldum á ýmislegt,
sem þeir telji athugunarvert í þessu
viðfangi, en viðbrögðin hafi látið á
sér standa. „En við erum ósmeykir.
Við teljum þessa stefnu að byggja
upp múra utan um viðskiptamenn-
ina dauðadæmda. Þeir múrar hrynja
fyrr eða síðar.“