blaðið - 15.03.2006, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaöiö
Saka stríðsglæpadóm-
stólinn um vanrækslu
Sergei Mironov, forseti efri deildar
rússneska þingsins, lýsti því yfir
í gær að stríðsglæpadómstólinn
í Haag, í Hollandi, bæri ábyrgð á
dauða Slobodan Milosevic. Mironov
sagði að dómstóllinn hefði meinað
Milosevic að halda lífi með því hafna
bón hans um að komast undir lækn-
Marko Milosevic, stígur upp í bifreið í Ha-
ag, eftir að hafa sótt lík föður sín úr vörslu
hollenskra yfirvalda.
ishendur í Moskvu. Þingforsetinn
tók einnig fram að sjálfsægt væri
að útför fyrrum forseta fúgóslavíu
og síðar Serbíu, færi fram í Moskvu.
Sonur Milosevic, Marko, tók í sama
streng í gær eftir að hann sótti lík
föður sins úr vörslu hollenskra yfir-
valda. Hann sagði að augljóst væri
að föður hans hafi verið byrlað
eitur.
Ekki er enn ljóst hvar Milosovic
verður grafinn. Serbnesk stjórnvöld
hafa lýst því yfir að útförin geti
farið fram í Belgrad en hún verði
ekki opinber og forsetinn verði
ekki grafinn í reit sem er tekinn frá
fyrir stórmenni og þjóðhetjur. Hins-
vegar eru ekkja Milosevic og sonur
eftirlýst í landinu og þrátt fyrir að
stjórnvöld hafi boðist til að tryggja
að þau yrðu ekki handtekin kæmu
þau til landsins er ólíklegt að fjöl-
skyldan geti þegið það boð. Þau telja
það of áhættusamt og sagði Marko
Milosevic að þau mæðgin ættu
þann eina kost að grafa Slobodan
Milosevic í Moskvu.
Réttarhöldin yfir tuttugasta
flugræningjanum í uppnámi
Dómari í réttarhöldunum yfir Za-
charias Moussaoui, sem er eini
maðurinn sem hefur verið ákærður
fyrir hryðjuverkin í New York og
Washington þann n. september
2001, hefur frestað réttarhöldunum
tímabundið.
Ástæðan fyrir frestunni er að
stjórnvöld hafa viðurkennt að hafa
veitt vitnum gegn hinum ákærða
leiðsögn um hvað þau ættu að segja
við réttarhöldin. Dómarinn, Leonie
Brinkema, íhugar nú hvort að þessi
játning stjórnvalda verði til þess að
útiloka möguleika á dauðarefsingu
í málinu. Verjendur Moussaoui
sækjast eftir að hann fái lífstíðar-
fangelsi, en hann hefur viðurkennt
að vera sekur um meinsæri og að
hafa ætlað að fremja hryðjuverk.
Hann viðurkennir ekki að hafa
vitað um áætlanir 19 flugræningja
um að ræna farþegavélum og fljúga
þeim á skotmörk á austurströnd
Bandaríkjanna.
Sækjendur málsins gerðu dóm-
aranum viðvart að lögfræðingar
Flugmálastjórnar Bandaríkjanna
hafi farið yfir útskrift af fyrsta degi
réttarhaldanna með fjórum vitnum
í málinu. Slíkt brýtur í bága við
stjórnarskrárbundin réttindi sak-
borninga í Bandaríkjunum og sagði
dómarinn að ákæruvaldið hafi gerst
sek um stórfelld mistök í starfi.
Þetta varð til þess að verjendur Mo-
ussaoui kröfðust þess að dauðarefs-
ing yrði útilokuð í málinu á þeirri
forsendu að sakborningur myndi
elcki fá sanngjörn réttarhöld.
Nicotineir dÍLYFJA
Hœttum að reykja í samfélagi á
vefnum þar sem alllr fá styrk hver frá
öðrum og enginn þarf að standa
einn í baráttunnl. Með sameiginlegu
átaki drepum við f fyrir fuilt og allt
Skráðu þig f átakið á vidbuinis
Þar er auk þess haegt að finna
allar upplýsingar um málið.
Barátta gegn bókstafstrú?
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gantast við Elmo, einn af íbúum Sesame-strætis, í Djakarta í Indónesíu í gær.
Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að fjármagna kennsluáætlun sem byggir á fræðslugildi þáttanna um íbúa Sesame-strætis. Kennslu-
áætlunin verður tekin upp við íslamska-skóla víðsvegar um landið.
Rice er í opinberri heimsókn í Indónesíu en stjórnvöld í Washington vilja nánari tengsl við landið, sem er lýðræðisríki í heimshluta
sem einkennist af vaxandi mætti Kínverja.
Fyrrum ráðgjafi
Bush kærður fyr-
ir búðarhnupl
Lee fann sér skjól frá daglegu amstri stjórnmálanna á golfvellinum einum of oft.
Forsætisráðherra
sleginn út af
stjórnmálavellinum
Forsætisráðherra Suður-Kóreu, Lee-
Hae chan sagði af sér embætti í gær.
Hann sætti mikilli gagnrýni eftir
að út spurðist að hann hefði farið í
golf 1. mars síðastliðinn, sama dag
og verkamenn hjá járnbrautum rík-
isins fóru í verkfall með þeim afleið-
ingum að samgöngur í landinu löm-
uðust. Ekki vænkaðist hagur Lee
þegar fjölmiðlar komust á snoðir
um að golffélagar forsætisráðherr-
ans þann daginn voru auðkýfingar
sem sakaður höfðu verið um inn-
herjasvindl áhlutabréfamarkaðnum
og um að greiða ólögleg framlög í
kosningasjóði stjórnmálaflokka.
1. mars er almennur frídagur í
Suður-Kóreu, en þann dag árið 1919
risu Kóreumenn upp gegn nýlendu-
oki Japana. Þrátt fyrir það var Lee
gagnrýndur fyrir að vera ekki við
vinnu meðan neyðarástand ríkti.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
forsætisráðherrann hefur tekið
golfið fram yfir skyldustörf á við-
sjárverðum tímum. I apríl 2005 var
hann á vellinum á meðan hættulegir
skógareldar gengu yfir hluta lands-
ins og tveim mánuðum síðar tók
hann kylfurnar fram yfír þjóðarhag
þegar gríðarlegar rigningar ógnuðu
byggðum í suðurhluta landsins.
Lee hefur beðið almenning ít-
rekað afsökunar á forgangsröðun
sinni en hefur á sama tíma verið
undir miklum þrýstingi frá flokks-
félögum sínum. Þeir hafa óttast að
golfhneykslið kunni að draga dilk á
eftir sér þegar gengið verður til þing-
kosninga í landinu í enda maí.
Hlutverk forsætisráðherra í stjórn-
kerfi S-Kóreu er fyrst og fremst
táknrænt en sökum náinna tengsla
við forsetann, Roh Moo-hyun var
Lee talinn til valdamestu manna
landsins.
Claude Allen,
fyrrum ráð-
gjafi George
Bush, forseta
Bandaríkj-
anna.íinnan-
ríkismálum,
hefur verið
á k æ r ð u r
fyrir búðar-
hnupl. Hann var handtekinn í Mary-
land-ríki á föstudaginn í síðustu
viku. Allen, sem var einn hæstlaun-
aði starfsmaður Hvíta hússins, er
meðal annars sakaður um að hafa
svindlað út prentara, buxur, jakka,
sólgleraugu og heimabíó með því að
nota gamlar kassakvittanir.
Stjarna Allens hefur risið hratt
innan raða repúblikana undanfarin
ár. Hann vakti fyrst á sér athygli
þegar hann hóf störf fyrir öldungar-
deildarþingmanninn Jesse Helmes,
en það þótti í frásögur færandi að
blökkumaður ynni fyrir þingmann
sem hafði jafn umdeildar skoðanir á
réttindum minnihluta. Eftir að hafa
sinntýmsum trúnaðarstörfum fyrir
repúblikana var hann skipaður yfir-
ráðgjafi Bush í innanríkismálum.
AlÍen sagði af sér sem ráðgjafi
forsetans í síðasta mánuði vegna
þess að hann vildi eyða meiri tíma
með fjölskyldu sinni. Raunveruleg
ástæða afsagnarinnar virðist þó
hafa verið að lögreglan hafði komist
á snoðir um búðarhnupl Allens og
hann hafi viljað forðað stjórn Bush
frá enn einu hneykslismálinu.
I byrjun janúar reyndi Allen
að falsa út vörur í Target-verslun
í Maryland-ríki með því að nota
kassakvittun sem hann hafði fengið
vegna kaupa í annarri slíkri verslun.
Atvikið var tilkynnt til lögreglu og
rannsókn leiddi í ljós að Allen hafði
svikið út varning með þessum hætti
á síðasta ári fyrir um 35 þúsund is-
lenskar krónur. Clyde Allen hafði
tæpar 12 milljónir króna í laun á ári
fyrir störf sin í Hvíta húsinu. Hann
getur átt von á allt að 15 ára fangels-
isdómi fyrir hnuplið.
Claude Allen sveik meðal annars
út tvenn sólgleraugu, Kodak-lita-
prentara og heimabíó frá hinum
þekkta framleiðanda Bose.