blaðið - 15.03.2006, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaöiö
18 I
Sœtar og stelpulegar
á fermingardaginn
Miklar greiðslur á undanhaldi
Hárgreiðslan spilar stóran sess
á fermingardaginn og oft má sjá
hinar glæsilegustu greiðslur prýða
höfuð fermingarstúlkna. Krakkar
virðast allir fara á hárgreiðslustofur
fyrir ferminguna og láta klippa
hárið, setja lit og sumir kjósa íburð-
armiklar greiðslur.
Blaðið fékk hárgreiðslustofuna
Cleo í Garðabæ til að útbúa fáeinar
fermingargreiðslur sem eru vin-
sælar i ár. Guðrún Sverrisdóttir, eig-
andi hárgreiðslustofunnar, segir þó
miklar greiðslur á undanhaldi og
að línurnar fylgi því sem er í tísku
hverju sinni.
„Þessar miklu uppsettu greiðslur
eru ekki eins vinsælar og áður og
krakkarnir vilja vera meira venjuleg.
Stelpurnar vilja flestar hafa hárið lát-
laust, huggulegt og í raun eins stelpu-
legt og kostur er,“ segir Guðrún en
bætir við að ákveðinn hópur kjósi
þó áberandi greiðslur.
Efþær eru stelpu-
legar og huggulegar
fíla þær sig best.
„Það er samt alltaf eitthvað um
að stelpur vilji áberandi greiðslur
með miklum fíniseringum. Þá er
hárið tekið upp og mótaðir allskyns
lokkar og annað til að gera hárið
sem mest.“
Aðspurð segir Guðrún mestu
skipta að stelpurnar séu sætar og
stelpulegar.
„Ef þær eru stelpulegar og huggu-
legar fíla þær sig best. Þær fara, eins
og strákarnir, flestar í klippingu,
lit, strípur eða skol og svo er bara
lífgað aðeins upp á hárið. Við erum
mikið að slétta hárið auk þess sem
við bætum svo við fléttum, semelíu-
spennum og öðru skemmtilegu með.
Helst reynum við að sporna við því
að þær séu alltof gellulegar, enda er
dagurinn kannski ekki þess eðlis
heldur."
halldora@bladid.net
SWIÁRALmE
j KRlNGkUNW.
NY SENDING! VINSÆLU FERMINGARPILSIN
OG JAKKAFÖTIN KOMIN AFTUR
Varað við notkun
Ijósabekkja
Herferð gegn Ijósabekkjanotkunfermingarbarna
Foreldrum og forráðamönnum
fermingarbarna hefur verið sent
póstkort frá Félagi íslenskra
húðlækna, Geislavörnum rík-
isins, Krabbameinsfélaginu og
Landlæknisembættinu þar sem
varað er við ljósabekkjanotkun
fyrir ferminguna. Þá hefur
verið leitað til presta landsins
um að leggja málefninu lið og
dreift hefur verið veggspjöldum
í húsnæði þar sem fermingar-
fræðslur fara fram.
Fræðsluherferðin ber heitið
“Hættan er ljós“ og er fólk hvatt til
að sporna við ljósabekkjanotkun
krakkanna, en eins og flestir vita
eru ljósabekkir vinsælir fyrir ferm-
inguna. Erþettaþriðja árið semher-
ferðin fer af stað og hefur dregið
verulega úr ljósabekkjanotkun
síðustu tvö árin. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélagsins greinast
að meðaltali 45 manns á ári með
sortuæxli í húð, 45 með annars-
konar húðæxli og um 170 með svo-
kölluð grunnfrumuæxli í húð. Ann-
ars hefur tíðni húðæxla hverskonar
tvöfaldast á síðustu tíu árum.
Allt það nýjasta í veisluskrauti -> sýnikennsla í fermingarskreytingum -> sýnikennsla í gerð boðskorta -> kertamerkinga -> og margt fleira skemmtilegt!
GARÐHEIMAR
heimur heillandi
hluta og hugmynda
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is