blaðið - 15.03.2006, Page 24
24 I FERMINGAR
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaðiö
Toppurinn að vera í teinóttu
Blúndukjólar, pils og toppar vinsœlir hjá fermingarstelpunum.
,í ár eru teinótt jakkaföt mjög vin-
sæl hjá fermingarstrákunum og
skyrturnar eru bleikar, fjólubláar,
ljósbláar og svo svartar og hvítar
en litaðar skyrtur eru þó vinsælli
núna“, segir Sigurþór Jónsson starfs-
maður í Herra Hafnarfirði. „Einlit
svört jakkaföt eru líka mikið tekin
enda eru þau klassísk og með þeim
er hægt að fá mynstuð vesti í bleiku
eða svörtu. Með bleikri skyrtu er
gjarnan tekið bleikt bindi sem ýmist
er einlitt eða röndótt. Núna er bind-
ishnúturinn i algleymingi en hann á
að vera stór og þykkur.
Verð á jakkafötunum er frá 13.900
krónur og skyrta og bindi er selt
saman á 4.900 krónur. Stök skyrta
kostar 3.990 krónur en stakt bindi er
á 2.900 krónur.
í ár eru támjóir skór vinsælir og
þeir koma í svörtu og brúnu. Verð
þeirra er 9.990 krónur."
Blúndur í toppum og kjólum
.Stelpurnar taka mikið blúndukjóla
í svörtu og hvítu“, segir Signý Dav-
íðsdóttir aðstoðarverslunarstjóri
í verslunni Sautján. Undir kjólana
eru teknar blúnduleggings en kjól-
arnir eru ýmist stuttir eða hnésíðir
og kosta á bilinu 5.990-6.990 krónur.
Þá er líka mikið um buxna- og pilsd-
ragtir sem eru til í svörtu, hvítu og
drapplitu. Jakkarnir kosta á bilinu
8.990-9.990 og buxurnar kosta 6.990
og pilsin 4.990. Undir jakkana eru
teknir blúndubolir sem kosta 2.990
krónur. Fermingarskórnir í ár eru
sléttbotna sandalar og rúskinns-
stígvél. Sandalarnir eru til í svörtu,
hvitu, bleiku og rauðu en rúskinns-
stígvélin eru svört og ná upp á
miðjan kálfa.
Hvíta línan áberandi
„Stelpurnar eru mikið að taka pils
og toppa en pilsin eru útvíð og ým-
ist hné- eða kálfasíð“, sgeir Guðrún
Inga Grétarsdóttir verslunarstjóri í
Exit. „Þá eru hvítar dragtir vinsælar
og eru til í hörefni og hvítu teygju-
efni. Topparnir koma í hvítu og turk-
isbláu og eru til í silki og næloni og
www.kokkarnir.is
skreyttir pallíettum. Stelpurnar
taka mikið blúnduleggings
undir pislin. Pilsin kosta frá
2.990 og topparnir frá 1.990,
dragtarjakkarnir kosta
3.990 krónur og buxurnar
2.990 krónur.“
Guðrún segir teinóttu
jakkafötin langvinsæl-
ust hjá strákunum en
einnig er hægt að fá
einlit svört jakkaföt. „Tei-
nóttu fötin eru flott í sniðinu og
undir jakkana eru strákarnir ýmist
að taka skyrtur eða flottar peysur.
Skyrturnar eru til í rauðu, bleiku,
bláu, svörtu og hvítu.
Jakkarnir kosta 8.990 krónur
og buxurnar eru á 5.990 krónur. I
Exit er einnig hægt að fá nokkrar
gerðir starkra jakka sem eru
flottir með skytum og dökkum
gallabuxum."
hugrun@bladid.net
* ■*
u gjora
Glæsilegur salur til veisluhalda
KOKKarnir
I VEISLUÞJÓNUSTA ■
VEISLUSALURINN
LANGHOLTSVEGI 109
HRINGDU OG FÁÐU UPPLÝSINGAR
SÍMI: 511 4466
Veislusalur okkar er 350 m2
og rúmar 40-170 manns í sæti.
Þar er til staðar flygill og bar
auk setustofu.
Pantanir: kokkarnir@kokkarnir.is
i
►—
s
Ferming 2006
Flott undirföt
...fyrir ungar stúlkur
c3-'~
Síöumúlo 3
Opiö virka daga kl: 11-18
laugardaga kl: 11-15
Bh. 2800.-
Buxur 1400.
í
Bh. 2480
Boxer 1
Bh 2480.-
1230.-