blaðið - 15.03.2006, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaAÍA
26 I
Foreldrar í
á byrgðarstöðu
Gríðarlegirfjármunir eftirfermingardaginn.
Peningagjafir hafa færst mikið í
aukana þegar kemur að fermingum
og fjármunir barna hlaupa iðulega
á tugum og hundruðum þúsunda
eftir fermingadaginn. Sjálf eru
börnin hæstánægð með gjafir sem
þessar en foreldrar þurfa hins
vegar að halda vel á spöðunum svo
peningunum sé eytt skynsamlega.
Bankarnir bjóða svo flestir upp á
hinar ýmsu ávöxtunarleiðir fyrir
fermingabörn sem komið geta sér
vel þegar til framtíðar er litið.
„Oft eru þetta töluverðar fjár-
hæðir. Maður hefur heyrt tölur
í kringum 300.000 krónur og
svo eins að börn hafi fengið allt
að milljón frá vel efnuðum aðila
innan fjölskyldunnar. Auðvitað er
þetta mjög misjafnt, en ég myndi
segja að fæstir fái undir 100.000
krónum,“ segir Linda Sverrisdóttir,
deildastjóri Verðbréfa- og lífeyris-
þjónustu Landsbankans.
Ábyrgð banka og foreldra
Linda segir að leiðbeiningar for-
eldra og ráðgjöf sérfræðinga við
ráðstöfun fjármunanna sé afar
mikilvæg.
„Maður skilur svo sem alveg að
fermingarbörnin vilji fá einhvern
hluta af peningunum til eigin
ráðstöfunar, svo þau geti kannski
keypt sér hluti sem þau hafa ekki
Linda Sverrisdóttir.
áður getað keypt. Hinsvegar sé
skynsamlegt að leggja fyrir hluta
peninganna og láta þá vinna fyrir
sig. Með því að sýna þeim hversu
mikið peningarnir geta ávaxtast
og hvað þau geta keypt sér í fram-
tíðinni verða þau eflaust opnari
fyrir því að leggja peningana fyrir,“
segir Linda og bætir við að áþreifan-
leg dæmi séu besta leiðin til koma
krökkunum í skilning um mikil-
vægi þess að leggja fyrir. „Það er
náttúrulega ágætt að sýna krökk-
unum lifandi dæmi, t.d. að ef þau
leggi 100.000 inn á verðtryggðan
innlánsreikning með 4,5% vöxtum
verði peningurinn orðin 124.618 að
raunvirði eftir 5 ár. Það er þá orðin
ágætis innborgun inn á notaðan bíl
eða annað slíkt. Eins getur verið
gott að fara með þau inn í reikni-
vélar bankanna og leyfa þeim að
prófa sig áfram miðað við sínar
eigin forsendur.“
Linda telur foreldra í ábyrgð-
arstöðu þegar kemur að leiðbein-
ingum um hvernig fermingar-
peningunum sé ráðstafað, þó svo
að bankarnir spili einnig stórt
hlutverk.
„Fléstir bankanna fara af stað
með fermingarátök á þessum
tíma þar sem krakkar eru hvattir
til að passa vel upp á peningana.
Þar með sýna bankarnir ákveðna
ábyrgð sem verður svo að fylgja
eftir af foreldrum - þeir þurfa að
ýta á krakkana og vekja með þeim
umræðu um þetta. Svo bjóðum við
hjá Landsbankanum að sjálfsögðu
upp á fjármálaráðgjöf þar sem
farið er yfir markmið barnanna
með innlögninni sem og forsend-
urnar að baki, sem kunna að vera
mjög einstaklingsbundnar.“
halldora@bladid.net
Fermingarskreyt-
ingar í öllum stœrð-
um og gerðum
Rósir, gerberur, brúðarslör vax-og silkiblóm
í blómaskreytingar.
„1 blómaskreytingum er allt í gangi
og við erum með blóm í öllum litum
og gerðum", segir Ólöf Á Erlings-
dóttir blómaskreytir í Garðheimum.
„Við tökum einnig að okkur að áletra
kerti, sálmabækur, sérvéttur og
gestabækur. Áletrun á kerti kostar
1.280 krónur en í ár eru þau vinsæl-
ustu ýmist pýramídalaga, kubbar
eða sívalningar og mikið tekin í bláu,
grænu, hvítu, kremuðu og fleiri
litum. Áletrun á sálmabók er á 1.850
krónur og hægt er að kaupa þær á
staðnum. Þá seljum við gestabækur
á 3.380 krónur og þá er áletrunin
innifalin. Það kostar 2.750 krónur
að áletra allt að 80 sérvéttur sem yf-
irleitt eru hafðar í stíl við kertin.
Fermingarkertið er oft haft með
í blómaskreytingunni en skreyting-
arnar geta verið af öllum stærðum
og gerðum. Kertið er yfirleitt haft
á bakka og skreytt í kring og við
erum einnig með mikið úrval silki-
blóma og fjaðra sem hægt er að nota
í skreytingar. Á borðin er vinsælt
að nota yfirdúka úr tjullefni sem
er hægt að fá i bláu, bleiku og ap-
pelsínugulu og eru vinsælir á ferm-
ingarborðin. Ðúkana er bæði hægt
að nota slétta eða krumpaða eftir
smekk hvers og eins.
Blómin í skreytingunum eru
í mörgum litum en í fermingar-
veislum hjá stelpum eru bleik, ap-
pelsínuglul, vínrauð og lime-græn
blóm vinsæl. Blóm í skeytingum hjá
strákum eru ýmist lime-græn eða
blá.“ Ólöf segir að rósir og gerberur
séu vinsælar i fermingarskreytingar
og þær sé líka hægt að lita að vild.
„1 skreytingar er einnig vinsælt að
nota blómagreinar, brúðarslör og
vaxblóm. í skreytingarnar er hægt
að nota aðeins knippið af silkiblóm-
inu og þá er þeim yfirleitt dreift
yfir veisluborðið. Verð skreyting-
anna er breytilegt og getur farið frá
5.500 krónum og upp úr og fer það
allt eftir stærð þeirra og innihaldi.
Einnig er hægt að fá einfaldar skreyt-
ingar fyrir 1.500-1.700 krónur.“
hugrun@bladid.net
Merkin sem pú treystir...
j~Abu
Garcia
Mitchell AC 4000
Riptidc 4-0
PURB
FISHING
Vasahnífssctt
NightHawk
Tikkina höfuðljós
fETZL
Tactikka höfuöljós
i ! Kf « | m L
0 -i
íl .
...fást í berti verslunum
um land allt