blaðið - 15.03.2006, Qupperneq 30
30 I ÍPRÓTTIK
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaðið
SKYNDIPRÓFIÐ
David
Beckham
Beckham ekki til Arsenal
Peter Hill-Wood segir sögusagnir af vœntanlegum kaupum Arsenal
á enska landsliðsfyrirliðanum vera úr lausu lofti gripnar.
1. Númer hvað er treyja hans
hjá Real Madrid?
2. Hvaða ár er hann fæddur?
3. Hvað heitir elsti sonur
hans?
4. Til hvaða neðrideildarliðs
var hann lánaður frá Man
Utd árið 1995?
5. í hvaða leikmann sparkaði
hann í leik Englands og Arg-
entínu á HM 1998 og fékk
fyrir vikið rautt spjald?
auodiujs o6d;o S
'pu] qjjQN uojsðJj k 'uX|)|00jg í 'SZ6i z 'íz ‘i
Ballackvill
til Chelsea
Þýski landsliðsfyrirliðinn Mi-
chael Ballack vill ganga til liðs
við Englandsmeistara Chelsea,
samkvæmt umboðsmanni kapp-
ans. „Það er mikill áhugi hjá
báðum málsaðilum. Það hefur
ekki verið skrifað undir neitt en
viðræður eru sannarlega í gangi,“
sagði umboðsmaðurinn Michael
Becker. Hann sagði Chelsea
vera eina liðið sem hann ætti í
viðræðum við og að sér þætti
líklegast að Ballack yrði orðinn
leikmaður þess fyrir HM í sumar.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
lýsti því opinberlega yfir á mánu-
dag að Ballack væri sá leikmaður
sem hann vildi helst fá til sín.
Ballack, sem er 29 ára, er sagður
vilja gera fjögurra ára samning
sem tryggir honum 120 þúsund
pund i vikulaun eða rúmar tvær
milljónir íslenskra króna á dag.
í kjölfar fregnanna af
væntanlegri komu Ballack til
Chelsea hefur verið ýjað að
því að Barcelona ætli sér að fá
Frank Lampard til sín þar sem
hann leikur sömu stöðu og
Ballack. Mourinho segist hins
vegar vilja hafa bæði Lampard
og Ballack í byrjunarliðinu því
þeir muni koma til með að
mynda draumapar á miðjunni.
Agassi vill bjarga gripum Borg
Stjórnarformaður Arsenal, Peter
Hill-Wood, þvertekur fyrir að
David Beckham sé á leið til liðsins í
sumar. Fjölmiðlar á Bretlandseyjum
greindu frá því um helgina að Ar-
senal hyggðist bjóða í enska lands-
liðsfyrirliðann sem á eitt ár eftir af
samningi sínum við Real Madrid.
Wenger lét hafa eftir sér á sunnudag
að hann væri mikill aðdáandi Beck-
ham en ræddi ekki hvort hann hefði
áhuga á að fá hann til sín.
„Þetta er argasti þvættingur. Nafn
Beckhams hefur aldrei komið upp
á stjórnarfundi og það kæmi mér
mjög á óvart ef að Arsene hefði
áhuga á að fá hann, sagði Hill-Wood.
„Ég er viss um að hann hefur augun
opin með góðum leikmönnum. En i
hvaða stöður veit ég hins vegar ekki
að svo stöddu.“
Nafn Beckhams selur
Fjölmiðlar á Bretlandseyjum gáfu í
skyn að Wenger teldi Beckham geta
hjálpað Arsenal að fylla nýjan heima-
völl sinn, við Ashburton Grove, og
þá myndi nafn hans einnig auka til
muna sölu á varningi tengdum liðinu.
Hill-Wood neitaði þessu. „Arsene
hefur ekki áhuga á að kaupa stjörnu.
Við erum að leika alveg nógu góðan
fótbolta til að fylla nýja leikvanginn
okkar,“ sagði Hill-Wood og bætti við
að Wenger hefði aldrei haft þann
hátt á að kaupa stóru nöfnin, heldur
vildi hann unga leikmenn sem hent-
uðu leikskipulagi hans.
David Beckham var í liði Real
Madrid sem Arsenal sló út úr Meist-
aradeildinni á Highbury á dögunum.
David Beckham mistekst að skora í æfingaleik gegn Úrugvæ á dögunum. Reuters
Hann hefur látið vel af dvöl sinni á leikmaður og þó að treyjur hans rok-
Spániogsagstviljaframlengjasamn- seldust væri það ekki ástæða til að
ing sinn við stjörnuliðið. Lorenzo halda honum í liðinu.
Sanz, sem nýverið bauð sig fram til
forseta liðsins, sagði hins vegar á dög- ..............................
unum að Beckham væri ekki góður bjorn@bladid.net
McLaren vill halda Ráikkönen
Tennisstjarnan Andre Agassi hefur
í hyggju að kaupa verðlaunagripi
Björns Borg frá Wimbledon- mót-
inu þegar þeir verða settir á upp-
boð á næstu dögum. Hinn 49 ára
gamli Borg hefur átt í fjárhagsörð-
ugleikum og ákvað af þeim sökum
að selja verðlaunagripina fimm sem
hann vann á mótinu áður en hann
hætti, 26 ára að aldri.
„Tilhugsunin um Wimbledon-bik-
ara í höndunum á einhverjum auð-
jöfri er óþægileg. Maður á ekki að
geta keypt bikar, maður á að þurfa
að vinna hann,“ sagði Agassi. „Ég
held að ófáir vilji aðstoða Borg og
mér finnst að fleiri úr íþróttinni
ættu að stíga fram og sjá til þess
að verðlaunagripirnir lendi ekki í
röngum höndum," sagði Borg, en
Bjargvætturinn Andre Agassi í ham.
annar fyrrum Wimbledon-meistari,
Jimmy Connors, hefur einnig látið
sig málið varða. Lagði hann til að
aðstandendur Wimbledon kaupi
gripina og bjóði Borg að kaupa þá
til baka í framtiðinni, þegar hann
hefur rétt úr kútnum.
Uppboðshaldararnir hjá Bon-
hams segja erfitt að verðmeta verð-
launagripina en telja að þeir muni
seljast fyrir allt að 25 milljónir ís-
lenskra króna..
McLaren vonast til að Kimi Ráik-
könen verði áfram í röðum liðsins á
næsta ári en miklar líkur eru taldar
á því að Finninn vilji reyna fyrir sér
annars staðar eftir þetta tímabil. Þá
hefur orðrómur verið á kreiki um að
Raikkönen hafi þegar komist að sam-
komulagi við Ferrari um að ganga til
liðs við þá 2007.
„Á næsta ári fáum við heimsmeist-
ara til okkar og það væri frábært
ef Kimi tæki titilinn í ár og myndi
svo aka við hlið Fernando á næsta
ári,“ sagði Martin Whitmarsh, fram-
kvæmdastjóri McLaren, en Fernando
Alonso er sem kunnugt er á leið til
liðsins eftir þetta tímabil. Whit-
marsh sagðist enn fremur vonast
til að Ráikkönen léti það ekki hafa
áhrif á ákvörðun sína þó að bíll hans
hefði orðið fyrir skakkaföllum við
timatökur í Barein um síðustu helgi.
McLaren þurfti þá að hefja keppni
Kimi Ráikkönen til vinstri, ásamt Fernando Alonso og Michael Schumacher. Reuters
aftastur ökumanna eftir að hafa ekki
náð að ljúka tímatökum.
Montoya hugsar sér til hreyfings
„Burtséð frá ákvörðun Kimi verður
það alltaf megintakmark okkar að
vinna heimsmeistaratitilinn. Til þess
þurfum við hraðskreiðan og traustan
bíl,“ sagði Whitmarsh, en McLaren
lenti í endurteknum vandræðum
með bíla sína í fyrra sem urðu til þess
að Ráikkönen tókst ekki að fara alla
leið eins og hann stefndi að.
Hinn ökumaður McLaren, Kólumb-
íumaðurinn Juan Pablo Montoya,
lenti í fimmta sæti í Barein þrátt fyrir
að hafa orðið fyrir smávægilegri vélar-
bilun. Samningur hans við McLaren
rennur út eftir þetta tímabil og hefur
hann þegar lýst því yfir að hann íhugi
að fara annað.
LENGJAIM
LEIKIR DAGSINS
Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is
Vitoria Setubal - Boavista 2,35 2,60 2,30
Wisla Plock - Lech Poznan 1,85 2,75 2,90
Hamburger - Rapid Búkarest 1,35 3,35 4,75
Baulmes - Vaduz 1,75 2,80 3,15
Admira Wacker - S V Ried 2,10 2,65 2,55
Austria Vín - Grazer AK 1,55 3,00 3,70
Maritimo - Porto 3,35 2,90 1,65
Winterthur - Sion 2,90 2,75 1,85
Zurich - Young Boys 1,70 2,85 3,25
Oxford - Bristol Rovers 2,30 2,60 2,35
Liverpool - Fulham 1,25 3,65 5,70
West Ham - Bolton 2,10 2,65 2,55
Roma - Middlesbro 1,30 3,50 5,15
Deportivo La Coruna - Espanol 1,45 3,10 4,25
Sevilla - Lille 1,50 3,00 4,00
Academica Coimbra - Sporting Lissabon 3,35 2,90 1,65
Bentica - Guimares 1,25 3,65 5,70
Chicago - Columbus 1,85 3,45 2,40
Detroit - Anaheim 1,45 4,00 3,25
Florida - Philadelphia 2,40 3,45 1,85
Skeytin inn
Manchester United
hyggst selja sóknar-
manninn Ruud van
Nistelrooy í sumar neiti hann
að framlengja samning sinn
um þrjú ár, samkvæmt Daily
Mirror. Núgildandi samningur
Nistelrooys rennur út 2008 en
félagið er tilbúið að hækka laun
hans um 10 þúsund pund á viku
sem þýðir að hann fengi 90 þús-
und pund í vikulaun.
Alex Ferguson vill fá hæsta
mögulega verð fyrir hollenska
landsliðsmanninn og vill því
selja hann strax sé hann ekki
tilbúinn að sanna hollustu
sína við félagið. Nistelrooy
hefur ekki verið í byrjunar-
liði United frá því að liðið
tapaði fýrir Liverpool í
bikarkeppninni í febrúar.
ose Mourinho, stjóri
Chelsea, segir að Totten-
ham eigi frekar skilið en
Arsenal að leika í Meistaradeild-
inni á næsta tímabili. Chelsea
sigraði Tottenham síðastliðna
helgi í
jöfnum og
spennandi
leik og sagði
Mourinho
að gestirnir
hefðu átt
skilið stig
úr viðureign-
inni.
„Ég var vissulega ánægður
með sigurinn, en get ekki að því
gert að mér finnast óréttlátt að
Tottenham færi frá Stamford
Bridge með tómar hendur. Ég
vona sannarlega að liðið nái
takmarki sínu í vor, að lenda
í fjórða sæti í deildinni og
komast í Meistaradeildina.
Gunnar Hrafn Gunnars-
son og Melissa Ortiz
Gomes lentu í 7. sæti af
40 keppendum á opnu IDSF-
móti i latíndönsum á Spáni
á sunnudag. Voru þau einu
sæti frá þvi að komast í úrslit
mótsins en þar kepptu sex pör.
Gunnar og hin spænska Melissa
keppa fyrir Islands hönd en þau
eru búsett í Freiburg þar sem
þau stunda æfingar. Gunnar,
sem er 21 árs, er í hópi albestu
dansara landsins.
Jenson Button hefur biðlað
til Honda að gera allt sem
hægt er til að bæta bílinn
sem hann ekur. Vandkvæði
með kúplinguna komu í veg
fyrir að Button kæmist á verð-
launapall en hann lauk keppni
í fjórða sæti. „Ef okkur tekst að
laga það sem er að er ekkert því
til fyrirstöðu að Honda verði
í toppbaráttunni í ár,“ sagði
Button.