blaðið - 15.03.2006, Side 35
blaðið MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006
AFÞREYING I
■ Smáskifurýni
The Vines - Don't listen to the radio
Áströlsku Nirvana aðdáendurnir
í The Vines eru komnir aftur með
rokk og ról slagara. Þetta er lag með
boðskap framreiddan á frekar ein-
faldan og nokkuð skemmtilegan hátt
með skemmtilegum hljóm og klappi
í takt. Frekar fyndið hvað lagið er út-
varpsvænt miðað við nafnið.
Lagið skríður rétt svo yfir tvær
mínútur sem kemur vel út.
★★★ i
Rokk og ról
dauðapönk
Um miðja næstu viku
kemur hljómsveitin Doomri-
ders hingað til lands til að
skemmta rokkþyrstum fs-
lendingum á Grand Rokk.
Doomriders er ný hljómsveit
með kunnáttumönnum í hverri
stöðu. Hún samanstendur af
þeim Nate Newton (Converge,
Old Man Gloom), Jebb Riley
(There Were Wires, Disappe-
arer), Chris Pupecki (Cast
Iron Hike) og John Connors
(Cave in). Eins og sjá má
eru engir aukvisar á ferð.
Sveitin kemur við á Grand
Rokk á leið frá Evrópu til
Bandaríkjanna. Upphitun
verður í höndum I ad-
apt, Myru og Changer.
Tónlist Doomriders lýsa
þeir sjálfir með þessum
orðum; „death and roll punk
rock hardcore mayhem.“
Önnur auka-
sýning Adams
Mikil spenna heíúr myndast hér
á landi fýrir komu töffamanns-
ins Curtis Adams í byrjun næsta
mánaðar. Fljótt var uppselt á
fyrirhugaða sýningu hans og
því var samið um aukasýningu
sem hefur nú einnig selst upp.
Því var sest aftur að samninga-
borðinu og samið um enn aðra
aukasýningu. Fer hún fram
sunnudaginn 9. apríl kl. 19.30
og er miðasala þegar hafin.
Sýningin fer fram í Aust-
urbæ kl. 19.30 og er miðaverð
það sama og áður, frá 1.900
til 3.900 auk miðagjalds.
Miðasalan er á www.midi.is og
í verslunum Skífunnar í Reykja-
vík, verslunum BT á Akureyri
og Selfossi og á www.event.is.
Springsteen
live í London
„Ný“ tónleikaplata með Bruce
Springsteen er komin út en
hún inniheldur upptökur frá
tónleikum Springsteen og
E-Street Band í Hammersmith
Odeon í Lundúnum 18. nóv-
ember 1975. Þrátt fýrir gamla
tónleika hafa upptökurnar aldrei
komið út á geislaplötu áður.
Sagt er að tónleikarnir séu
með þeim bestu sem Bruce og
félagar hafa staðið að sökum þess
hve andrúmsloftið var mang-
þrungið á þessum tónleikum.
Bruce hefur annars í nógu
að snúast þessa dagana. Síðasta
haust kom út 30 ára afmælisút-
gáfa að tímamótaplötunni Born
To Run og þann 24. apríl er vænt-
anleg ný stúdíóplata ff á honum.
Wulfgang - Machinery
Hverjir eru þessir gaurar og úr hvaða
holu skriðu þeir? Wolfgang eru,
samkvæmt því sem ég hef heyrt, ís-
lenskir en ég hef aldrei heyrt um þá.
Machinery er gott lag sem skilgrein-
ingarbrjálæðingar myndu kalla indí
en mín eyru greindu útvarpsvænt
rokk og ról sem sker sig úr íslenskri
tónlistarflóru.
★★★★
My Morning Jacket - Off
The Record
Hljómurinn er svo stór í þessu lagi
að þegar það byrjaði fannst mér eins
og væri verið að éta mig, eða réttara
sagt gleypa mig vegna þess að ég
fann ekki sársauka eins og tennur
væru að tyggja mig í sundur heldur
leið mér eins og ég væri kominn
niður í mjúkan maga skepnunnar
sem kallar sig My Morning Jacket.
Frábært lag.
★★★★^
Clap You Hands And Say Yeah -
InThis HomeOnlce
Söngvarinn í þessari hljómsveit
er svo æðislega pirrandi með brot-
hættu og skerandi röddina sína og
angistarfullan framburðinn. Þetta
er frábært tregapopp lag í rólegri
kantinum sem er samt hresst á sinn
hátt. Lagið er hvorki fjölbreytt né
frumlegt en gengur samt upp nán-
ast fullkomnlega.
★★★★f(
Gorillaz - Kids With Guns
Þetta lag er einhvern veginn ekki
neitt en samt alveg heilmikið, svona
eins og Framsóknarflokkurinn. Það
hefur þó fram yfir flokkinn græna
að vera sæmilega skemmtilegt og
náði það að koma mér á óvart með
því að vera ekki eins augljós smellur
og hin lögin sem ég hef heyrt með
Gorillaz.
I viðlaginu fer lagið á ágætis flug
en erindin heilla mig ekki alveg
nógu mikið.
★★-f
atli@bladid.net
Dark Side of thé Möon
;;rí heild sinni auk hluta af "
> s _' j i-Á ■;► "k’,.. *.tjT'
f-W T-vív* : T. x,- JrZ^ xT*s
Æ-Zt-T ■
»4 \ T L
Ægilshöll 12. júní j :
kl. 20.00 Húsið opnar kl. 18.00^;
Miðaverð:
Svæði A - 8.900 + miðagjald
aeði B - 7.900 + jíniéagjald
’tjrrv
v,#* 14-U
Miðasala eram'iidi.is Skífunni Laugavegi, Kringlunr
og Smáralind. Eins BT Ákúrlyri og BT Selfossi
TUBORG
NJ0TTU LÍFSINS TIL FULLS
iinnti