blaðið - 15.03.2006, Síða 36
36 I DAGSKRÁ
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 blaðið
HVAÐSEGJA
* m , t ■ >
©Fiskar
(19.febniar-20.mars)
Leggöu alla þína áherslu á mikilvægasta máliö svo
þú bíöir örugglega ekki lægri hlut i því. Stór ósigur
getur skyggt á marga minni sigra.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
Öfugsnúin rök koma þér í koll. Stundum eru þau
þess eðlis að ómögulegt er að svara þeim á vitræn-
an hátt. Þá þarftu að taka upp skófluna og fara í
sandkassaleik.
©Naut
(20.aprfl-20.KiaO
Gleðifundir sem verða munu á næstunni eru ofar-
lega i huga þér þessa dagana. Reyndu þó að ein-
blína ekki á þá með þeim afleiðingum að þú missir
af þvl sem gerist í aðdragandanum.
©Tvíburar
(21. maí-21. júnO
Grjótið er einungis hart vegna þess hversu mjúk-
ur dúnninn er. Andstæður lífsins glæða hver aðra
lifi og því ber að fagna öllu sem eykur fjölbreytni
ilifinu.
©Krabbi
(22. júní-22. júlO
Aðdragandi atburðar sem mun marka vatnaskil í
lífi þínu er þegar hafinn. Hann er enn ekki greinileg-
ur en mun ágerast eftir því sem liður á mánuðinn.
®Ljón
(23. júlf- 22. ágúst)
Oftúlkun á orðum þeirra sem eru þér nákomnir er
þín sérgrein á stundum. Þú þarft að reyna að lita á
heildarmyndina og taka öll sjónarmið til umhugs-
unar.
CS Meyja
|F (23. ágúst-22. september)
Gerðu þér leik að þvi að leika þér með þá sem telja
sig vera að leika sér að þér. Sókn er besta vörnin og
þvi skaltu spila með en vera ætið skrefl á undan.
Vog
(23. september-23. október)
Bíddu ekki með að ganga frá þeim hlutum sem
auðveldlega má koma frá. Mun sniðugra er að gera
lista og vinna markvisst aö þvi að klára hann.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Óeðli er ekki orö sem fólk tengir allajafna við þig.
Þó hefur þú þinar myrku hliðar sem þú reynir að
bæla niður. Hugsanlega þarftu að fara að opinbera
þetta og treysta á umburðarlyndi fólks.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Farðu ætiö beinustu leið i leit að upplýsingum.
Stysta leiðin milli A og B er ávallt bein lina þrátt
fyrir að flestir reyni að koma viðkomustöðunum C
og Ð fyrir á leiðinni.
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Innan um þá sem þér þykir vænt um líður þér vel.
Þó þarftu að hafa dug i þér til að takast á við þaö
sem ekki er jafnþægilegt. Andaðu djúpt og taktu
fyrsta skrefið.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Efasemdir um langferð eru eðlilegar. Þú þarft að
taka meðvitaða ákvörðun um það sem þú telur þér
i hag. Mundu þó að heimurinn stöðvast ekki þótt
þú hverfir frá i stutta stund.
SÖGUSTUND Á ALÞINGI
feolbrun@bladid.net
Ég ákvað að reyna að fá einhvern botn í umræð-
una á Alþingi um vatnalögin. Stillti því á Alþing-
isrásina eftir kvöldfréttir. Þingmaður Frjálslynda
flokksins var að lesa upp úr verki eftir Þórberg
Þórðarson. Öðru hvoru gerði þingmaðurinn hlé
á lestrinum og lýsti vanþóknun sinni á því að
forsætisráðherra væri ekki í salnum. Einhvern
veginn gat ég ekki álasað Halldóri Ásgrímssyni
fyrir að vera á harðahlaupum frá upplestri þar
sem framsögn var stórlega
ábótavant.
Þegar lestrinum lauk loks-
ins sneri þingmaðurinn sér
að því að koma almennum
upplýsingum á framfæri, eins
og því að dæmigerður þing-
maður væri 6o prósent vatn.
Ég stillti á tíu fréttir og sneri
mér síðan aftur að Alþingisrásinni. Sami þing-
maður var að lesa upp úr dagbók sinni. Ég velti
því fyrir mér hversu margir þingmenn væru í
salnum. Ég sá einungis þingforseta. Honum virt-
ist leiðast alveg óskaplega. Þingmaðurinn lét af
BlaðiÖ/Frikki
dagbókarupplestri og hóf að lesa
upp úr Frjálsri verlsun nöfn hinna
ýmsu jarðeigenda þessa lands. Loks
steig hann úr pontu eftir þriggja
tíma fjas. Næsti ræðumaður var
frá Samfylkingu. Hann sneri máli
sínu til þingforseta og sagðist þurfa
að fara á fund morguninn eftir og
spurði hvort ekki væri öruggt að
hann fengi átta tíma svefn. Þegar þingmaðurinn
hafði þrisvar sinnum ítrekað að hann vildi fá átta
tíma svefn áttaði ég mig á því að ég þyrfti líka að
sofa. Ég slökkti á sjónvarpinu og skundaði í bælið.
Ég get upplýst að ég náði sjö tíma svefni.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
SJÓNVARPIÐ
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Disneystundin
18.01 Steini (38:52)
18.23 Sígildar teiknimyndir (24:42)
18.31 Líló og Stitch (60:65)
18.54 Víkingalottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
1935 Kastljós
20.30 Tískuþrautir (3:12) (Project Run- way) Þáttaröð um unga fatahönn- uði sem keppa sín á milli og er einn sleginn út í hverjum þætti.
21.15 Svona er lífið (3:13) (Life As We Know It)
22.00 Tíufréttir
22.20 Handboltakvöld
22.35 Formúiukvöld
23.00 Róska Mynd eftir Ásthildi Kjart- ansdóttur um myndlistakonuna Rósku sem var fyrsta íslenska kvik- myndagerðarkonan og pólitískur aktífisti. e.
00.15 Kastljós
01.15 Dagskrárlok
SIRKUS
18.30 Fréttir NFS
19.00 ísland í dag
19.30 The Warat Home e.
20.00 Friends (17:24) (Vinir 7)
20.30 Sirkus RVK (20:30) Sirkus Rvk er í umsjá Ásgeirs Kolbeinssonar, þar sem hann tekur púlsinn á öllu því heitastasem eraðgerast.
21.00 My Name is Earl Earl hittir fyrrum tengdarforeldra sína sem halda að hann sé enn giftur dóttur þeirra og það sem meira er þá halda þau að hann sé nýkominn heim frá strið- inu í (rak.
21.30 The WaratHome
22.00 Invasion (10:22)
22.45 Reunion (9:13)6.(1994)
23.30 Friends (17:24)
00.00 Sirkus RVK (20:30) e.
STÖÐ2
06.58 ísland í bítið
09.00 Bold andthe Beautiful
09.20 Ifínuformi 2005
09-35 Oprah Winfrey
10.20 My Sweet Fat Valentina
11.10 Strong Medicine (21:22)
12.00 Hádegisfréttir
12.25-' Neighbours (Nágrannar)
12.50 (fínuformi 2005
13.05 Home Improvement (11:25) (Handlaginn heimilisfaðir)
13.30 George Lopez (3:24)
1355 Whose Line Is it Anyway?
14.20 The Apprentice - Martha Ste- wart (2:14) (Lærlingurinn - Mart- ha Stewart) Hvernig farnast hópi ungra og hungraðra kaupsýslulær- linga undir handleiðslu Mörthu?
15.05 FearFactor (30:31)
16.00 Barnatimi Stöðvar 2
17.20 Bold and the Beautiful
17.40 Neighbours (Nágrannar)
18.05 The Simpsons 15 (13:22) e. Nýj- asta syrpan um hina óborganlegu Simpson-fjölskyldu sem er enn við sama heygarðshornið.
18.30 Fréttir, íþróttir og veður Fréttir, íþróttir og veður frá fréttastofu NFS í samtengdri og opinni dagskrá Stöðvar 2, NFS og Sirkuss.
19.00 Island í dag
19-35 Strákarnir
20.05 Veggfóður (7:17)
20.50 Oprah (42:145)
21.35 Missing (18:18) (Mannshvörf)
22.20 Strong Medicine (22:22)
23.05 Stelpurnar(7:2o)
23.30 Grey's Anatomy (19:36)
00.15 Derek Acorah's Ghost Towns (3:8) (Draugabæli)
01.00 Session 9 (Geðsjúkrahúsið)
02.35 Perfume (llmvatn)
04.20 Missing (18:18) (Mannshvörf)
05.05 The Simpsons 15 (13:22) e.
05.25 Fréttir og ísland í dag
06.30 Tónlistarmyndbönd
SKJÁREINN
07.00 6 til sjö e.
08.00 Dr.Phile.
08.45 Heil og sæl e.
15.20 Worst Case Scenario e.
16.05 Innlit / útlit e.
17.05 Dr. Phil
18.00 6 til sjö
19.00 Cheers -11. þáttaröð
19.25 Fasteignasjónvarpið
19.35 The Drew Carey Show e.
20.00 Homes withStyle
20.30 Fyrstu skrefin
21.00 Queer Eye for the Straight Guy
22.00 Law&Order: SVU
22.50 Sex and the City - 5. þáttaröð
23.20 JayLeno
00.05 Close to Home e.
00.55 Cheers -11. þáttaröð e.
01.20 Fasteignasjónvarpið e.
01.30 Óstöðvandi tónlist
SÝN
16.20 Enska bikarkeppnin
18.00 íþróttaspjallið
18.12 Sportið
18.30 Skólahreysti 2006
19.15 Gillette World Cup 2006
19.50 Enska bikarkeppnin
22.00 US PGA Tour 2005 - Highlights
22.55 Intersport-deildin Keflavík - Snæfell. Leikurinn fór fram (aprd
á síðasta ári.
00.50 Enska bikarkeppnin
ENSKIBOLTINN
07.00 Aðleikslokume.
08.00 Að leikslokume.
14.00 Brimingham -W.B.A.frá 11.03
16.00 Portsmouth - Man. City frá 11.03
18.00 Everton - Fulham frá 11.03
19.50 Liverpool - Fulham b.
22.00 Charlton - Middlesbrough frá 12.03
00.00 Dagskrárlok
STÖÐ2BÍÓ
06.00 Starsky & Hutch
08.00 The Crocodile Hunter: Collision
Course (Krókudílakarlinn)
io.oo Johnny English Ævintýraleg grín-
hasarmynd fyrir alla fjölskylduna.
12.00 Scorched (Pottþétt plan)
14.00 The Crocodile Hunter: Collision
Course (Krókudílakarlinn)
16.00 Johnny English Ævintýraleg grín-
hasarmynd fyrir alla fjölskylduna.
Dýrgripum er stolið úr Tower-kast-
ala í Lundúnum. Aðalhlutverk: Ro-
wan Atkinson, Ben Miller, Natalie
Imbruglia, John Malkovich. Leik-
stjóri, Peter Howitt. 2003. Leyfð
öllum aldurshópum.
18.00 Scorched (Pottþétt plan) Pottþétt
glæpagrín. Það gerist eiginlega
aldrei neitt merkilegt í litla bænum
en nú kann að verða breyting þar á.
Aðalhlutverk: Alicia Silverstone, Ra-
chael Leigh Cook, Woody Harrelson,
John Cleese. Leikstjóri, Gavin Graz-
er. 2002. Leyfð öllum aldurshópum.
20.00 Starsky & Hutch Geysivinsæl end-
urgerð með Ben Stiller og Owen
Wilson á sigildum sakamálaþáttum
sem þóttu mál málanna á 8. ára-
tugnum. Aðalhlutverk: Ben Stiller,
Owen Wilson, Snoop Dogg. Leik-
stjóri, Todd Phillips. 2004. Bönnuð
börnum.
22.00 Fourplay (Ástin er óútreiknanleg)
Rómantísk gamamynd þar sem
samskipti kynjanna eru í brenni-
depli. Aðalhlutverk: Mike Binder,
Colin Firth, Mariel Hemingway, Ir-
ene Jacob. Leikstjóri, Mike Binder.
2000. Bönnuð börnum.
00.00 Shaolin Soccer (Bardagabolti) Að-
alhlutverk: Stephen Chow, Vicky
Zhao, Man Tat Ng. Leikstjóri, Lik-
Chi Lee, Stephen Chow. 2001. Bönn-
uð börnum.
02.00 FeardotCom (Hræðslapunkturis)
Aðalhlutverk: Stephen Dorff, Nat-
ascha McElhone, Stephen Rea. Leik-
stjóri, William Malone. 2002. Strang-
lega bönnuðbörnum.
04.00 Fourplay (Ástin er óútreiknanleg)
Aðalhlutverk: Mike Binder, Colin
Firth, Mariel Hemingway, Irene
Jacob. Leikstjóri, Mike Binder. 2000.
Bönnuð börnum.
RÁS1 92,4 / 93,5 • RÁS 2 90,1 / 99,9 • Kiss FM 89.5 • Xfm 91,9 • Bylgjan 98,9 • FM 95,7 • X-ið 97,7 • Útvarp saga 103,3 • Talstöðin 90,9
m
Ástin er eilif
Söngvarinn og rugludallurinn Pete Doherty ber greinilega enn miklar tilfinningar í garð ofurfyrirsætunnar Kate Moss. Þegar honum
var ekið frá réttarsal í Lundúnum á dögunum skrifaði hann á móðu á rúðu bílsins að hann myndi elska Kate að eilífu.