blaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 1
Friálst, óháð & ókeypis! KRINGLU 20-50% afsláttur ( afnýjumvorum ^ C<K MEI Illl/I 1111M 5111 ■ VIÐTAL Ekkjur fá meiri stuðning en frá- skildar konur 63. tólublað 2. árgangur föstudagur 17. mars 2006 Hjónaerjum lýkur með sprengingu Mexíkósk hjón eru á batavegi eftir að erjur þeirra fóru úr böndunum. Hnífum var kastað, hleypt af byssum og svo fór að deilunni lauk með réttnefndri sprengingu. Að sögn mexíkóska dagblaðsins Milenio var lögreglan kölluð út í þorpinu Oxkutzcab á Yucatan- skaganum vegna deilna þeirra Juan Espinosa og konu hans Irmu Contreras. Juan var handtekinn en 1 Irma flutt á sjúkrahús vegna alvar- legra brunasára. Að sögn blaðsins voru erjur þeirra Irmu og Juans sem klipptar út úr kvikmyndinni „Mr. And Mrs. Smith“ sem þau Brad Pitt og Ang- elina Jolie fóru með aðalhlutverkin í. 1 kvikmyndinni leika þau leigu- morðingja og fá það verkefni að drepa hvort annað. Þegar fúkyrði og öskur dugðu ekki lengur þeim Irmu og Juan gripu skötuhjúin til hnífa. Því næst voru byssurnar teknar fram og hleypt af þeim óspart inni í íbúðinni. Skothríðin hætti skyndilega þegar heima- smíðuð bensínsprengja sprakk inni á heimilinu. Juan sagðist vera alsæjll með að kona hans hefði hlotið' brunasár en Irma kom þeim boðum til blaða- manna að hún iðraðist þess helst að hafa ekki náð „að svipta Juan karlmennskunni." Alltaf að vinna? Kynntu þér Vildarþjónustu fyrirtækja sjjh« 550 2000 | www.sph.fs Reuters Stúdentamótmæli í Paris Mikill fjöldi námsmanna safnaðist saman í París, höfuðborg Frakklands, í gær til að mótmæla áformum stjórnvalda um breytingu á lögum um atvinnu ungmenna. Námsmenn og verkalýðssamtök hafa efnt til fjöldafunda að undan- förnu í Frakklandi vegna þess sem sögð er vera aðför að réttindum ungs fólks. Stjórnvöld hyggjast auka sveigjanleika á vinnumarkaði með því að setja sérstök lög um réttindi þeirra sem yngri eru en 26 ára og hafa verið skemur en tvö ár í starfi. Verður unnt að segja fólki á þessum aldri upp starfi fyrirvaralaust og án útskýringar. Stöðugt minni tekjur af varnarliðinu frá árinu 1990 Tekjur Islendinga af varnarliðinu í Keflavík hafa farið stöðugt minnk- andi frá árinu 1990 sé miðað við hlutfall af vergri landsframleiðslu. Árið 1990 námu tekjurnar 9,1 millj- arði króna sem var um 2,5% af vergri landsframleiðslu. Á síðasta ári námu heildartekjur Is- lendinga af varnarliðinu hins vegar rúmum 8 milljörðum sem var um o,8% af vergri landsframleiðslu fyrir það ár. Minni greiðslur til launþega og verktaka Þá hafa launa- og verktakagreiðslur einnig farið minnkandi á undan- förnum árum. Árið 2000 voru þær tæpir 7,6 milljarðar en á síðasta ári námu þær rúmum 4,5 milljörðum og hafa því lækkað um rúma þrjá milljarða eða tæp 40%. Mest munar um greiðslur til verktaka en árið 2000 námu þær rúmum 4,2 millj- örðum króna en á síðasta ári voru þær rétt rúmur milljarður. Á sama tímabili hafa launagreiðslur dregist saman um 150 milljónir. Vamir verða áfram öflugar Sendiherra Bandaríkjanna á íslandi segir varnarsamninginn frá 1951 enn ífullu gildi. Ákvarðanir sem varða viðbúnað Bandaríkjamanna á íslandi eru teknar af bandarískum stjórn- völdum, þrátt fyrir að varnarsamn- ingurinn frá 1951 sé tvíhliða. Þetta segir Carol van Voorst, sendi- herra Bandaríkjanna á Islandi, í samtali við Blaðið. Hún segir að fjöldi bandarískra hermanna á íslandi hafi tekið stöðugum breyt- ingum í gegnum árin. „Uppbygging liðsaflans í Keflavík hefur verið háð samkomulagi þjóðanna tveggja, en að endingu hafa slíkar ákvarð- anir verið mál Bandaríkjanna. Við höfum starfað náið með íslend- ingum í gegnum árin og þetta er ekki i fyrsta skipti sem við höfum reynt að flytja orrustuþoturnar fjórar á brott. Við höfum bent á að þær komi ekki að miklum notum hér á landi. Við höfum samt sem áður skilning á því að þetta valdi íslenskum stjórnvöldum áhyggjum.“ Sendiherrann sagðist í gær hafa fulla trú á því að unnt yrði í sam- ræmi við varnarsamninginn að móta kerfi sem fallið yrði til að tryggja varnir Islands fram eftir 21. öldinni. Samningurinn er til framtíðar Aðspurð um hvort hún óttist ekki að ákvörðun um að flytja á brott herþotur og þyrlur geti leitt til þess að samningnum verði sagt upp af hálfu íslendinga kvað van Voorst svo ekki vera. „Við ætlum okkur að halda áfram því samstarfi sem þjóðirnar hafa átt í gegnum árin.“ Van Voorst segir að þegar litið sé til sögunnar sjái menn að samningurinn hafi þjónað báðum ríkjum vel. „Og ég á von á því að það haldi áfram til fram- tíðar.“ Hún hefur ekki trú á því að Carol van Voorst ákvörðun Bandaríkjastjórnar muni hafa áhrif á samskipti ríkjanna tveggja til hins verra. „Ég held að þegar við erum komin yfir fyrsta hjallann sem er breytingunni sam- fara, þá verði samband ríkjanna sterkara, betra og í meira samræmi við varnarþarfir íslands," sagði sendiherrann. Sendiherrann vildi ekki taka undir það sjónarmið að ákvörðun Bandaríkjamanna brjóti í bága við varnarsamninginn en í honum segir að stærð heraflans á Islandi eigi að ákveða í samningum á milli þjóðanna. „Að okkar mati er þessi grein í samningnum skrifuð fyrir Is- lendinga á sínum tíma. Islendingar vildu ekki sjá það gerast að banda- rískir hermenn flæddu inn í landið. íslendingar vildu geta haldið fjöld- anum í skefjum. Varnir íslands munu verða öfl- ugar eftir sem áður. Við virðum skuldbindingar okkar í samræmi við varnarsamninginn frá 1951 og NATO-samninginn og það mun ekki breytast.“ Allar King Koil heisludýnur eru með svæðaskiptum stífleika, bæði í gormakefi og í bólstrun, þannig að þau veita fullkominn stuðning við mjóbak og háls. [ Refcfejan ipholt 35 Sími 588 1955 www.rekkjan.is Gleymum ekki i leit okkar að góðu lifi að það eru liísgæði aö fá góðan svefn Amerískar heilsudýnur í hæsta gæðaflokki. King Koil hefur framleitt hágæða rúm í Bandaríkjunum síðan árið 1898 og framleiðir í dag einu dýnurnar sem eru bæði með vottun frá FCER og Good Housekeeping, stærstu neytendasamtökum Bandaríkjanna. MARS TILBOÐ King Koil Fiesta spine support Queen size K1NG K 011

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.