blaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 blaöiö
Einn á ferö í viðsjárverðum heimi. George Bush er reiðubúinn að standa einn gegn ógnvöldum heimsins.
Bandaríkjamönnum stafar mest
ógn af klerkastjórninni í íran
Ekki er hvikaðfrá „Bush-kenningunni“ um stríð íforvarnarskyni í nýrri hernaðarstefnu Banda
ríkjastjórnar. Rikjum sem hyggjast kjarnorkuvígvœðast er hótað hernaðaraðgerðum.
Stjórnvöld í Washington kynntu í
gær endurskoðaða hernaðarstefnu
Bandaríkjanna, þá fyrstu frá því að
hin svokallaða „Bush-kenning“ um
hernaðaraðgerðir í forvarnarskyni
var sett fram árið 2002. Hernaðar-
stefnan ítrekar að stjórnvöld áskilji
sér rétt til hernaðaraðgerða gegn
ríkjum sem vinna að því að koma sér
upp gereyðingarvopnum. Boðað er
að Bandaríkjamönnum standi mest
ógn af klerkastjórninni í Iran.
Hernaðarstefnan var unnin af Ste-
ven Hadley, öryggisráðgjafa Banda-
ríkjaforseta, og hefur hennar verið
beðið með nokkurri eftirvæntingu.
Er það ekki síst vegna spennunnar
sem kjarnorkuáætlun trana hefur
skapað og ástandsins í írak. Fram
kemur í skýrslunni að Bandaríkja-
menn séu reiðubúnir undir átök ná-
ist samningar ekki um að íranir láti
af auðgun úrans.
Þrátt fyrir að enn hafi ekki fundist
gereyðingavopn í Irak eru forvarna-
árásir réttlættar í skýrslunni. Fram
kemur að vegna eðlis þess stjórnar-
fars sem ríkir í þeim löndum sem
sækjast eftir að koma sér upp gereyð-
ingavopnum í trássi við alþjóðalög sé
ekki alltaf tryggt að sannanir fyrir til-
vist þeirra finnist. Ekki er minnst á
mögulega hernaðaríhlutun í Norður-
Kóreu en stjórnvöld í Pyongjang ráða
yfir kjarnorkuvopnum. Sú staðreynd
hefur vakið athygli stjórnmálaskýr-
enda en margir þeirra telja að með
því sé verið að senda misvísandi skila-
boð til stjórnvalda í Teheran. íranir
geti álitið að komist þeir nægjanlega
nálægt því að koma sér upp gereyð-
ingavopnum þurfa þeir ekki að óttast
aðgerðir Bandaríkjanna.
Kjósa lausleg bandalög
fram yfir formleg
Tekið er fram í skýrslunni að Banda-
ríkjamenn kjósi fyrst og fremst að
leysa vandamál alþjóðasamfélags-
ins með samningum og í samstarfi
við bandamenn sína og líta má á þá
yfirlýsingu sem tilraun til þess að
endurbyggja brúna til Evrópu, sem
skaðaðist nokkuð í aðdraganda írak-
stríðsins. Þrátt fyrir yfirlýsinguna
kemur fram í skýrslunni að banda-
risk stjórnvöld hafni því að alþjóð-
legt samstarf hefti svigrúm þeirra
til aðgerða. Sú skoðun er sett fram
að upp geti komið mál þar sem að
stofnanir eins og NATO og Samein-
uðu þjóðirnar gera minna gagn en
lausleg og tímabundin bandalög,
líkt því sem stofnað var til við að-
draganda Iraksstríðsins.
Nýja hernaðarstefnan þykir endur-
óma þær áherslubreytingar í alþjóða-
málum sem George Bush boðaði í
West-Point herskólanum í júní 2002.
Þó má greina breyttan tón. Nýja
stefnan þykir ekki jafn mótuð af hug-
sjónum og er ítarlegri þegar kemur
að einstaka löndum. Fram kemur að
bandarísk stjórnvöld líti á N-Kóreu,
fran, Kúbu, Hvíta-Rússland, Burma
og Zimbabwe sem útlagaríki í alþjóða-
samfélaginu. Varað er sérstaklega
við Hugo Chaves, forseta Venesúela,
og honum lýst sem hættulegum lýð-
skrumara sem stefni að því að skapa
óstöðugleika í Suður-Ameríku.
Staðið er við fyrri yfirlýsingar
um hlutverk Bandaríkjanna við út-
breiðslu lýðræðis, mannréttinda og
frjáls viðskipti í heiminum. Því er
lýst yfir að stjórnvöld í Washington
muni veita andófsmönnum í einræð-
isrikjum stuðning og þróunaraðstoð
verði notuð til þess að þrýsta á lýð-
ræðislegar kosningar og umbætur á
borgaralegum réttindum í slíkum
ríkjum. Sá varnagli er þó sleginn
að niðurstaða frjálsra kosninga er
ekki alltaf ásættanleg og er í því
samhengi vísað til kosningasigurs
Hamas-samtakanna í Palestínu. Sam-
tökin eru talin til hryðjuverkahópa í
Bandaríkjunum.
Ákveðin skilaboð til
Rússa og Kínverja
Hernaðarstefnan endurspeglar
aukna spennu í samskiptum Banda-
ríkjamanna og Rússa. Lýsa Banda-
rikjamenn yfir miklum áhyggjum
af stöðu lýðræðis í Rússlandi. Sagt er
að stjórnvöld í Moskvu sýni minni
vilja til skuldbindinga um að efla lýð-
ræði í landinu og í nágrannaríkjum
þess. Lögð er áhersla á að samskipti
Bandaríkjamanna og Rússa í fram-
tíðinni muni mótast af þeirri stefnu
sem þeir síðarnefndu reka í utan-
ríkis- og innanlandsmálum. Fram
til þessa hefur stefna Bush gagnvart
Rússlandi fyrst og fremst mótast af
sameiginlegum hagsmunum frekar
en hugsjónum.
Skýrslan gagnrýnir einnig stjórn-
völd í Kína og eru þau sökuð um að
stunda kaupauðgisstefnu á alþjóð-
legumorkumarkaði. Kínverskstjórn-
völd eru hvött til þess að reka ábyrga
utanríkisstefnu og til að auka stjórn-
mála- og efnahagslegt frelsi en á
sama tíma er því lýst yfir að Banda-
ríkjamenn muni verða reiðubúnir til
þess að svara öllum tilraunum Kín-
verja til þess að grafa undan stöðu
Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi.
Nýtt mann-
réttindaráð
Sameinuðu
þjóðanna
mbl.is | Allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna hefur samþykkt
að stofna nýtt mannréttindaráð.
Nýja ráðið hefur fengið nafnið
Human Rights Council og fer
starfsemi þess fram í Genf. Það
kemur í stað gömlu mannrétt-
indanefndarinnar sem hafði
sætt vaxandi gagnrýni á undan-
förnum árum en í ráðinu höfðu
setið ríki sem hafa verið harðlega
gagnrýnd fyrir bágborið ástand
mannréttindamála. Ályktunin
var samþykkt í atkvæðagreiðslu
með 170 atkvæðum, 4 mótat-
kvæðum og þrjú ríki sátu hjá.
47 ríki munu eiga sæti í ráðinu
hverju sinni og verða kjörin af
allsherjarþinginu. Kosið verður
til nýja ráðsins 9. maí 2006 og
verður fyrsti fundur þess hald-
inn 19. júní 2006. Fastafulltrúi Is-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum,
Hjálmar W. Hannesson, flutti
ávarp við þessi tímamót og sagð-
istvonaaðhið nýjamannréttinda-
ráð Sameinuðu þjóðanna yrði til
þess að efla starf samtakanna á
sviði mannréttinda. Hann árétt-
aði að ísland legði ríka áherslu
á samsetningu ráðsins og að ís-
land myndi ekki styðja ríki til
setu í ráðinu sem kerfisbundið
vanvirtu skuldbindingar sínar
á sviði mannréttinda eða sættu
refsiaðgerðum af hálfu öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna vegna
mannréttindabrota.
Fór í mál við
sjálfan sig
Curtis Cokey, bæjarstarfsmaður
í bænum Lodi í Kaliforníu-ríki
i Bandaríkjunum, fór í mál við
bæjaryfirvöld eftir að bíll í eigu
þeirra bakkaði á bíl hans. Málið
flæktist þegar í ljós kom að Co-
key var sjálfur undir stýri þegar
hannbakkaði á eigin bíl. Bæjaryf-
irvöld vísuðu málinu frá á þeirri
forsendu að Cokey, sem vildi fá
20 þúsund króna skaðabætur,
væri í raun að fara í mál við
sjálfan sig. Cokey dó ekki ráða-
laus. Hann fékk eiginkonu sínu
til þess að fara í mál við bæjaryf-
irvöld en þar sem að bíllinn var í
eigu þeirra hjóna átti hún einnig
kröfurétt vegna skemmda. Kona
Cokey, Rhonda, krafðist hins
vegar mun hærri bóta eða um 40
þúsund krónur. I samtali við fjöl-
miðla sagði hún ástæðuna vera
að hún væri mun illgjarnari en
eiginmaður hennar.
Sí Punna.
PRP
Plan
'&f
ROY4L CKNIN
20 % afslattur
af öllum vorlaukum fram yfir helgi
GARÐHEIMAR
' •»
heimur skemmtilegra
hluta og hugmynda
DahlUi Tupnvr
2
S itini
Stekkjarbakka 6 - Simi 540 3300
www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is