blaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 39

blaðið - 17.03.2006, Blaðsíða 39
blaðið FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 FÓLK I 39 HEYRST HEFUR... Akvörðun Bandaríkja- manna að flytja orrustuþotur og þyrlur frá íslandi í haust kom mönnum í utanríkisráðuneytinu í opna skjöldu. Blaðið hefur traustar heimildir fyrir því að íslending- ar hafi nýverið lagt fram tilboð um kostnaðarskiptingu vegna reksturs Keflavíkurflugvallar og þyrlubjörgunarþjónustu sem talið var að Bandaríkjamenn gætu samþykkt. Var því bjart- sýni ríkjandi í ráðuneytinu um að takast myndi að halda þotun- um og þyrlubjörgunarsveitinni hér á landi. Símtalið sem Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, fékk frá Nicholas Burns, aðstoðarut- anríkisráðherra Bandarfkjanna, kom því sem þruma úr heiðskíru lofti. f svari Bandaríkjamanna er samkvæmt heimildum Blaðs- ins minnst á þetta tilboð. Sagt er að það sé út af fyrir sig ágætt en niðurstaðan er eftir sem áður sú að þoturnar og þyrlurnar verði fluttar á brott í haust. Burns og Geir H. Haarde þekkjast vel. Burns var um skeið sendiherra Bandaríkjanna hjá Atlantshafsbandalaginu. Fram kom í Morgunblaðinu í byrjun febrúar að þeir Geir og Burns hefðu haft sama kennara á háskólaárum þeirra í Banda- ríkjunum. Athygli vekja líka ummæli Ingi- bjargarSólrún- ar Gísladóttur, formannsSam- fylkingarinn- ar, í Morgunblaðinu í gær. Þar kemur fram að hún telur að ís- lendingar eigi að reyna að halda í varnarsamninginn við Banda- ríkjamenn og að viðræður hljóti nú að snúast um hvernig hann verði útfærður í framhaldinu. Þetta er athyglisvert ekki síst vegna þess að innan Samfylking- arinnar hafa verið úppi raddir um að íslendingar eigi að horfa til Evrópu í þessum málum. Ingibjörg Sólrún virðist nú hafa tekið upp nýja raunsæisstefnu í varnarmálunum. En stendur flokkurinn með henni? Og nú velta menn því fyrir sér hvort ís- Æ.. « * lendingar standi ; við stóru orðin og Jk, w segi einfaldlega flBSL. v upp varnarsamn- ingnum við Bandaríkjamenn. Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, sagði oft á sínum tíma að færu orrustuflugvélarnar væri eins gott að loka sjoppunni. HalldórÁsgrímsson, forsætisráð- herra, var varkár- ari í yfirlýsingum sínumenísamtali við Morgunblaðið árið 2001 sagði Halldór, sem þá var utanríkisráð- herra, m.a: „Islensk stjórnvöld hafa fyrir sitt leyti metið það svo að við núverandi aðstæður sé sá viðbúnaður sem er fyrir hendi í varnarstöðinni á Miðnes- heiði, lágmarksviðbúnaður. Að öðrum kosti verði ekki talað um trúverðugar varnir fyrir ísland og Norður-Atlantshaf. Um þetta, eins og svo margt annað, gildir að slíkt mat fer vitanlega eftir því hvort horft er frá íslandi eða Bandaríkjunum. Að okkar mati er ekki nóg að horfa til þessa ein- vörðungu frá ströndum Banda- ríkjanna.“ HVAÐ FINNST ÞÉR? Stefán Pálsson, talsmaður Samtaka herstöðvarandstœðinga. Hvað gera samtökin eftir að herinn fer? „Við getum núna bara hellt okkur út í íslensku útrásina og barist gegn herstöðv- um út um allan heim. En fyrst viljum við klára að reka flóttann hér heima. Við erum á móti þeim hugmyndum að breyta þessu í eitthvað draugaþorp sem bíður þess að þeir geti komið aftur með stuttum fyrirvara og verið með æfing- ar. Við krefjumst þess að stöðinni verði að fullu lokað og að Bandaríkjamenn hreinsi til eftir sig á svæðinu." Bandaríkjamenn tilkynntu í fyrradag aö þeir ætli að flytja orrustuþotur sínar og björgunarþyrlur á brott frá Islandi. Leno biðst afsökunar Spjallþáttastjórnandinn Jay Leno bað áhorfanda afsökunar í vikunni fyrir að segja brandara i þætti sínum sem tengdist voðaskoti Dick Cheney, varaforseta Bandaríkj- anna. Leno bar atvikið saman við skotárás í Los Angeles frá árinu 2003 sem tekin var upp á spólu og birt í fjölmiðlun. Wendy Brogin, vinkona fórnarlambs skotárásarinnar, skrifaði til Leno og sagði brandarann hafa sært sig og bað hann um að „gera hið rétta í málinu.“ Leno hringdi í Wendy og bað hana afsökunar „Ég vil að þú vitir að við gerum mistök eins og aðrir en við vildum ekki særa neinn,“ sagði Leno. Talsmaður NBC sjónvarpsstöðvarinnar sagði það mjög sjaldgæft að Leno hringi í fólk í þessum tilgangi en að honum hafi liðið mjög illa yfir þessu og orðið að bæta það einhvern veginn upp. Indiana Jones nálgast Kvikmyndagerðarmaðurinn George Lucas hefur loksins lokið við fyrsta uppkast hand- ritsins fyrir hið nýja framhald af kvikmyndinni um Indiana Jones. Lucas tók sinn tíma í að klára handritið og hefur nú komið því í hendur leikstjórans og vinar síns Steven Spielberg, sem mun leggja lokahönd á það. Framleiðandinn Rick McCallum sagði á Empire-verðlaununum í London í síðustu viku að tökur á kvikmyndinni hefjist á næstunni. „George er nýbúinn að klára sína útgáfu af handrit- inu og Steven er að láta endurskrifa það og laga hitt og þetta,“ sagði McCallum. Harrison Ford, sem mun snúa aftur í hlutverki Indiana Jones, sagði í viðtali við breska kvikmyndatímaritið að ekkert uppkast hefði verið nógu gott fyrr en nú. „Ástæðan fyrir því að við erum ekki byrjaðir að taka upp myndina er að handritið var aldrei nógu gott.“ Blunt seldi systur sína Dama í vandræðum, þarf að komast til Suður-írlands í jarðaför. Hvað færð þú sem hæst- bjóðandi? Þú færð bara að vera bjargvætturinn hennar.“ Svona hljómaði uppboðsauglýsingin sem söngvarinn James Blunt notaði til að auglýsa systur sína á ebay fyrir tveimur árum. Allar ferð- ir til Suður-írlands voru fullbókaðar og þess vegna ákvað Blunt að skella henni á uppboð. Blunt segir auglýsinguna hafa virkað fullkomlega og að tilboðunum hafi rignt inn. „Maðurinn sem vann átti þyrlu og flaug með hana í jarðar- förina. Þau eru ennþá saman og hún er flutt inn til hans. Ég á aðra systur, hún verður boðin upp fljótlega." FRÆÐINGUR TÝNDIST Smáborgarinn er stundum svolítið barna- legur í hegðun. Reyndar kallar hann það að vera I nánu sambandi við sitt innra barn en fyrir ókunnuga er líkast til auð- veldara að kalla þetta barnalega hegðun. Þannig er mál með vextl að Smáborgar- inn á það til að kalla fólk sem hann þekkir ekki ýmsum furðulegum nöfnum við félaga sína. Með þeim hætti getur hann talað frjálst um fólkið í kringum sig án þess endilega að það geri sér grein fyrir því. Þarað auki gefurnafngiftin ókunnug- um litríkan persónuleika I skúmaskotum hugarfylgsnis Smáborgarans. Reyndar veit Smáborgarinn til þess að fleiri stundi þessa iðju. Til þess að fyrirbyggja misskilning er best að segja strax í upphafi (að minnsta kosti þegar hingað er komið) að sjaldnast eru umræðurnar illkvittnar. Frekar mætti líkja þeim við leikhússpuna í huga Smá- borgarans. Smáborgarinn hefur verið með bögg- um hildar það sem af er mánuðinum þar. sem einn af þessum sýndarfélögum hans er horfinn. Svo virðist sem jörðin hafi gleypthann með húðog hári. Smáborgarinn kynntist kjarneðlisfræð- ingnum á stefnumótastoppistöð nútím- ans, í ræktinni. Þar sprangaði hann um (þ.e. kjarneðlisfræðingurinn) með þeim hætti að lítill möguleiki var að láta hann framhjá sér fara. Þegar Smáborgarinn ásamt félögum sínum hafði komist að starfa kjarneðlisfræðingsins fóru hjólin aðsnúast. Þrátt fyrir að aldrei hafi komið til orða- skipta milli félaganna Smáborgarans og kjarneðlisfræðingsins finnst þeim fyrrnefnda sem þeir séu tengdir órjúf- anlegum böndum, augnatillit geta sagt meira en þúsund orð. Smáborgaranum er sérstaklega minnisstætt þegar kjarn- eðlisfræðingurinn rakst „óvart" í hann á förnum vegi á milli tækjanna. Nú eru liðnar þrjár vikur slðan kjarneðl- isfræðingurinn lét síðast sjá sig í ræktinni. Þetta þykir Smáborgaranum ákaflega leitt. Hann hefur jafnvel hugsað út I að fækka ferðum sínum í ræktina þar sem honum þykir þær ekki jafnskemmtilegar og þegar kjarneðlisfræðingurinn var og hét. Hinn möguleikinn væri náttúrulega að kynnast Flex aðeins betur. Flexar- inn er ákaflega liðugur og virðist mjög skemmtilegur. Þannig verða langar stund- ir skemmtilegar og áiíugaverðar. Smáborgarinn er með mörg pokahorn í huga sinum sem gott er að leita í þegar hversdagurinn verður aðeins of hvers- dagslegur. eftir Jim Unger í Ijósi breytinga á væntingavísitölu kosta allar óskir nú tvo 100 krónu peninga. TÍSKA & SMYRTING Mánudaginn 20. mars MHHMB blaðió Auglýsendur, upplýsingar veita:

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.