blaðið - 17.03.2006, Síða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 blaAÍÓ
blaðið—
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
Varnarvandinn líkast til
leystur á vettvangi NATO
Valur Ingimundarson, sagnfrœðingur, telur sennilegast að Atlantshafsbandalagið komi að
vörnum íslands. Ákvörðun Bandaríkjamanna hugsanlega brot á varnarsamningi.
Heildarafli íslenskra skipa í febrúar-
mánuði dróst saman um 10% miðað
við sama mánuð í fyrra samkvæmt
samantekt Hagstofunnar. Alls
veiddust 214.251 tonn í febrúarmán-
uði en á sama tíma í fyrra var aflinn
300.969 tonn.
Samdrátturinn skýrist fyrst
og fremst af lítilli loðnuveiði en í
febrúar lönduðu íslensk skip tæpum
160 þúsund tonnum samanborið við
246 þúsund tonn í fyrra.
BMIÖ/Frikki
ilVlirTMIiftfi-
Pylsubarínn LaugardaT'
Valur Ingimundarson, sagnfræðingur.
urnar frá Keflavík, en í framhaldinu
sagði Davíð Oddsson, þáverandi for-
sætisráðherra, að Bandaríkjamenn
gætu ekki uppfyllt varnarsamning-
inn með öðrum aðferðum. Gagn-
kvæmur varnarsamningur þýddi að
hann væri í þágu varna og öryggis
beggja. Hvor aðili um sig yrði að
meta lágmarksvarnir og annar
hvor aðilinn gæti ekki breytt samn-
ingnum eftir hentugleikum.
Því hefur verið haldið fram að á
fundi Davíðs Oddssonar og George
W. Bush Bandaríkjaforseta árið
2003 hafi Bush heitið Davíð því
að þoturnar yrðu ekki fjarlægðar.
Valur bendir á að bandarískir emb-
ættismenn hafi ekki viljað stað-
festa þessa frásögn, en tslendingar
hafi talið nokkra tryggingu felast
í þessum fundi, a.m.k. þangað
til samkomulag tækist um aðra
tilhögun. Þetta hefur nú breyst og
er nú rætt hvort í Hvíta húsinu hafi
verið litið svo á, að þessi afstaða hafi
verið bundin við persónu Davíðs
Oddssonar, en ekki eftirmenn hans
í embætti.
Ákvörðun Bandaríkjamanna
brot á varnarsamningi?
„Þess vegna er það góð og gild spurn-
ing nú, hvort Bandaríkjamenn séu
að brjóta varnarsamninginn með
þessari ákvörðun sinni. Samkvæmt
varnarsamningnum á samsetn-
ing herliðsins að vera sameiginleg
ákvörðun ríkjanna beggja,“ segir
Valur og vísar til þess að lögfræð-
ingar bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins í Pentagon hafi skoðað
málið fyrir nokkrum áratugum og
þá komist að þeirri niðurstöðu að
slík einhliða ákvörðun myndi brjóta
í bága við samninginn.
Valur gerir ráð fyrir að íslend-
ingar þurfi að leita á náðir NATO
um varnir landsins og telur ýmsa
kosti hvað það varðar. Minnir hann
á að NATO hafi á þann hátt annast
loftvarnir Eystrasaltsríkjanna og
hafi flugsveitir frá hinum ýmsu að-
ildarríkjum skipst á að sjá um þær.
„I því samhengi er svo sennilegt að
stjórnvöld ráðfæri sig við Norðmenn
og Dani, enda er þeim málið skylt."
Aðspurður um hvort til greina
kæmi að semja við Breta um loft-
varnir Islands telur hann ekki
ósennilegt að íslendingum hugnist
varnasamstarf við Bretland, milli
landanna sé traust samband og vin-
átta. „En þó Islendingum kunni að
finnast Bretar áhugaverður kostur
held ég að áhugi Breta sé af skornum
skammti."
Einu skrefi
nær fríblaði
Dagsbrún hf. hefur stofnað sér-
stakt félag í Danmörku sem eru
fyrstu skrefin í átt að útgáfu frí-
blaðs í líkingu við Fréttablaðið
í Danmörku. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá Dagsbrún í
gær. Félagið ber nafnið Media
Scandinavia A/S og er því ætlað
að „taka yfir þá vinnu sem lögð
hefur verið í undirbúning að
stofnun nýs dagblaðs í Dan-
mörku“ eins og það er orðað í
tilkynningunni.
Auk undirbúnings að stofnun
nýs dagblaðs mun 365 Media
Scandinavia A/S vinna að
stofnun fyrirtækis utan um
dreifikerfi hins nýja dagblaðs.
„Vinnan við undirbúning að út-
gáfu nýs dagblaðs er komin það
langt að rétt er að áframhald
hennar verði innan sérstaks
félags í Danmörku. Þetta félag
mun jafnframt verða vettvangur
okkar til að skoða önnur tæki-
færi á fjölmiðlamarkaði á Norð-
urlöndum," segir Gunnar Smári
Egilsson, forstjóri félagsins.
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
03
14
01
-04
05
01
-03
01
05
15
14
-07
01
13
03
08
0
06
01
16
05
06
✓ s
s '
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Á morgun
AUGLÝSINGADEILD:
51Q 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Staðfesta
óbreytt láns-
hæfismat
Alþjóðlega lánsmatsfyrirtækið
Standard & Poor’s staðfesti í gær
óbreytt lánshæfismat íslenska ríkis-
ins og óbreyttar horfur. Langtíma-
skuldbindingar ríkissjóðs í erlendri
mynt fengu lánshæfiseinkunnina
AA- og langtímaskuldbindingar í
íslenskum krónum AA+. Þá voru
horfur um lánshæfismat sagðar
vera stöðugar.
I greinargerð frá Standard &
Poor’s kemur fram að lánshæfi-
seinkunn Islands byggi á stöðugu
stjórnkerfi og mjög auðugu og
sveigjanlegu hagkerfi ásamt góðri
stöðu opinberra fjármála.
Sérfræðingar hjá Standard & Po-
or’s vara þó við vaxandi ójafnvægi
í þjóðarbúskapnum sem m.a. skap-
ast af hraðvaxandi innlendri eftir-
spurn sem knúin er áfram af vænt-
ingum neytenda og fyrirtækja. Til
að sporna við þessu og viðhalda láns-
hæfiseinkunninni þarf að standa
við langtímastefnu stjórnvalda í rík-
isfjármálum og auka aðhaldið enn
frekar að mati Standard & Poor’s.
Minnkandi afli
Valur Ingimundarson, sagnfræð-
ingur, telur sennilegast að varnir
íslands verði teknar upp á vettvangi
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
svo skjótt sem auðið er, en segir
jafnframt líklegt að sérstakt samráð
verði haft við hinar Norðurlanda-
þjóðirnar í NATO.
I samtali við Blaðið taldi Valur
erfitt að segja til um hvað valdið
hafi hinni afdráttarlausu ákvörðun
Bandaríkjamanna, sem kynnt var á
miðvikudag. „Ég bara veit það ekki,“
segir Valur, en í ávörðuninni fólst að
hér á landi verða ekki bandarískar
loftvarnir lengur en fram á haust
og óvissa er raunar um allan varnar-
viðbúnað Bandaríkjanna hér á landi.
„íslendingar eru í þrengri stöðu en
ella vegna þeirra yfirlýsinga, sem
féllu í varnarviðræðunum 2003, en
þá var því hótað að varnarsamn-
ingnum yrði einfaldlega sagt upp ef
Bandaríkjamenn flyttu orrustuþot-
urnar á brott.“
Vorið 2003 tilkynntu bandarísk
stjórnvöld þá einhliða ákvörðun sína
að fjarlægja bæði þoturnar og þyrl-
(^) Heiðsklrt Léttskýjað wh Skýjað A Alskýjað - ■■ Rignlng, lltilsháttar //* Rlgnlng 5 9 Súld + 'f' Snjðkoma V' / Slydda v~7 Snjóél \—7
’ * v v V
Skúr
Fylgst með umræðunni
Nemendur f Verslunarskóla fslands fylgdust spenntir með ræðu Geirs H. Haarde um
utanríkismál á Alþingi í gær. Nemendurnir voru í vettvangasferð og fengu að fylgjast
með umræðum um brotthvarf Bandaríkjahers frá islandi, sem er eitt helsta umræðuefni
íslenskra stjórnmála þessa dagana.