blaðið - 17.03.2006, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 blaðið
„Nánast verið að setja í
gang rýmingaráætlun"
Verkalýðsleiðtoginn Kristján Gunnarsson segirþað koma á óvart hversu hröð atburðarásin
í tengslum við brottflutning varnarliðsins er og aðfólki á svœðinu sé mjög brugðið.
Danir tapa á ís-
lensku krónunni
mbl.is | Dönsku fjármálafyrirtækin
Nykredit og Nordea seldu fjök
mörgum dönskum viðskiptavinum
sínum sparnaðarleiðir sem tengdar
eru gengi íslensku krónunnar. Við-
skiptavinirnir fjárfestu fyrir rúma
fimm milljarða króna skömmu áður
en gengi krónunnar fór að veikjast
og nú hefur þessi sparnaður rýrnað
svo um munar að því er kemur
fram í ffétt Berlingske Tidende í gær.
Um svokölluð skuldabréf í
íslenskum krónum er að ræða og
sagði Peter Rixen, einn af forstöðu-
mönnum Nordea, að efnahagur
fslands væri eins og eldfjall, þ.e.
svo mikill væri hagvöxturinn en
líka viðskiptahallinn. Hann myndi
leiða til veikingu krónunnar þegar
til lengri tíma væri litið, en til
skamms tíma sagðist Rixen reikna
með að krónan myndi styrkjast.
Krónan veiktist hins vegar miklu
fyrr og miklu hraðar heldur en bæði
Nordea og Nykredit höfðu reiknað
með og nú situr fjöldi danskra spari-
fjáreigenda uppi með sárt ennið,
samkvæmt frétt Berlingske Tidende.
Boðað til borg-
arafundar
Þjóðarhreyfingin hefúr boðað til
almenns borgarafundar í Háskóla-
bíói á morgun, laugardag, klukkan
13. Tilefni fundarins er að þá verða
þrjú ár liðin frá innrásinni í írak.Á
fundinum verða sýndar tvær heim-
ildarmyndir um innrásina í írak en
að þeim loknum verður boðið upp á
pallborðsumræður þar sem m.a. Jón
Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi
utanríkisráðherra, og Hallgrímur
Helgason, rithöfundur, taka þátt.
Umsvif varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli hafa minnkað mjög mikið
síðustu ár og nú liggur fyrir að þau
muni minnka ennþá frekar. Á starfs-
mannafundi sem boðaður var með
skömmum fyrirvara í gærmorgun,
og um 2000 hermenn og starfs-
menn varnarliðsins sóttu, var farið
yfir þá stöðu sem nú er komin upp.
Þar kom fram að hermenn verða
einfaldlega fluttir til en einnig að ís-
lenskir starfsmenn geti gert ráð fyrir
að fá uppsagnarbréf á næstu dögum
og vikum.
Hröð atburðarás
Kristján Gunnarsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur, segir það koma á óvart hversu
hröð þessi atburðarás er.
„Mér sýnist að það sé nánast verið
að setja í gang rýmingaráætlun.
Sumir starfsmenn varnarliðsins
fréttu ekki af þessu fyrr en i gær-
morgun og fengu síðan strax í kjöl-
farið boðun á starfsmannafundinn.
Þar var það tilkynnt formlega að
herinn færi og óskað eftir vinsam-
legum samskiptum við starfsmenn
um málið,“ segir Kristján.
En hvernig er hljóðið í fólkinu á
svæðinu?
„Þetta var auðvitað áfall svona til
að byrja með. Auðvitað segja allir
núna að við höfum átt von á þessu
en þegar þetta er síðan tilkynnt á
þennan formlega hátt þá bregður
mönnum óneitanlega í brún.“
Kristján segir að sérstaka athygli
veki að samkvæmt fundinum í gær-
morgun hefjist breytingar á starf-
semi varnarliðsins nú þegar.
„Ég tel að þetta muni hellast yfir
okkur á miklu meiri hraða en gert
var ráð fyrir,“ segir Kristján.
Helmings fækkun hermanna
Það þarf ekki að leita langt aftur í
tímann til að sjá að samdráttur hjá
varnarliðinu hefur verið stöðugur
síðustu árin. Þannig voru hér tæp-
lega 3.300 hermenn árið 1990 og
með fjölskyldum þeirra dvöldu hér
á landi tæplega 5.000 einstaklingar
á vegum hersins það árið. Þá voru ís-
lenskir starfsmenn tæplega 1.100.
Nýjustu tölur um fjölda hermanna
og starfsmanna sýna hins vegar að
nú dvelja hér um 1.250 hermenn og
með fjölskyldum eru þetta um 2.800
einstaklingar. Islenskir starfsmenn
eru hins vegar nú innan við 600.
Samkvæmt því sem fram kom á
starfsmannafundinum í gær geta
meira og minna allir íslenskir
starfsmenn varnarliðsins átt von á
uppsagnarbréfi á næstu dögum og
vikum. Það segir ekki nema hálfa
söguna því talið er að um 400 aðrir
íslendingar hafi beint eða óbeint lifi-
brauð sitt afvarnarliðinu. Það er því
ljóst að brotthvarf hersins er mikið
áfall fyrir atvinnulíf á Suðurnesjum,
sérstaklega þegar litið er til þess að
um 70% af öllum starfsmönnum
þess eru búsettir á svæðinu.
íslenskirstarfsmenn
Ekki liggur nákvæmlega fyrir
hvaða starfsemi mun verða á varnar-
svæðinu á Keflavíkurflugvelli í fram-
tíðinni, hvort og þá hversu margir
hermenn muni þar búa o.s.frv.
Þannig vildi til að mynda Friðþór
Eydal, upplýsingafulltrúi Varnarliðs-
ins, ekkert segja til um hvað fram-
tíðin bæri í skauti sér þar sem fréttir
af brotthvarfi hersins hefðu borist
svo nýlega.
Hermenn og fjölskyldur þeirra
Orkuverð hækkar í kjöl-
far frjálsrar samkeppni
Frá 43*895 kr.
Vinsætasta
sólarströnd Ítalíu
frá 43.895 kr.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, vikuferð í maí eða 21. júní.
Riviera íbúðahótelið.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður simi: 510 9500
þremur árum. í nóvembermánuði
2002 nam raforkukostnaður heim-
ilis á höfuðborgarsvæðinu miðað
við verðskrá Orkuveitu Reykjavíkur
34.426 krónum. 1 dag er þessi kostn-
aður kominn upp í 39.987 krónur
og hefur því hækkað um alls 4.961
krónur eða 16%. Mest er þó hækk-
unin í Hafnarfirði og Reykjanesbæ
en þar hækkaði kostnaður vegna
raforkukaupa heimila um 23% milli
kannana.
Almennt hefur raforkuverð á
landinu öllu hækkað á milli kann-
ana nema á Selfossi, í Borgarbyggð,
á Sauðárkróki og á Egilsstöðum en
þar hefur verð lækkað um 3 til 11%.
Ný raforkulög tóku gildi um síð-
ustu áramót sem kveður á um frjálsa
samkeppni á raforkumarkaðinum.
Framkvæmd laganna hefur þó verið
slegið á frest fram á mitt ár af tækni-
legum ástæðum.
Skilar sér ekki til neytenda
Að sögn Þuríðar Hjartardóttur, fram-
kvæmdastjóra Neytendasamtak-
anna, hafa menn töluverðar áhyggjur
af því að ný raforkulög muni aðeins
skila sér í verðhækkunum til neyt-
enda. „Það er ekki óeðlilegt að verð
hækki eitthvað á milli kannana en
þessi hækkun er langt fyrir ofan það
sem má telja eðlilegt. Við höfum
töluverðar áhyggjur af því að þessi
samkeppni muni ekki skila sér til
neytenda og í könnun sem Alþýðu-
samband íslands gerði á dögunum
mátti skynja sama áhyggjutón."
Þuríður bendir á að nú þegar
hafi raforkuverð til framleiðanda
hækkað og það muni fyrr eða síðar
koma fram í vöruverði. Þá bendir
hún á að þó raforkuverð hafi lækkað
í sumum þéttbýliskjörnum úti á
landi sé raforka enn ódýrustu á höfu-
borgarsvæðinu. „Það hefur orðið
verðlækkun á sumum svæðum en
sennilega vegna þess að það var svo
hátt á sínum tíma. Fyrir þremur
árum var 45% verðmunur á milli
suðvesturhornsins og annarra land-
svæða en nú er hann bara 5%.“
Orkuverð til heimila á höfuðborg-
arsvæðinu hefur hækkað um allt
að 23% á síðustu þremur árum sam-
kvæmt verðkönnun Neytendasam-
takanna sem birt var í gær. Fram-
kvæmdastjóri samtakanna segist
óttast að frjáls samkeppni á raforku-
markaðinum muni ekki skila sér til
neytenda í lægra verði.
Mesta hækkunin í Hafnar-
firði og í Reykjanesbæ
Samkvæmt könnun Neytendasam-
takanna hefur raforkuverð á höf-
uðborgarsvæðinu hækkað töluvert
umfram verðbólgu á síðastliðnum
Lestrardagar
BlaliMngó
Þessa dagana standa yfir lestrardagar hjá nemendum Varmárskóla i Mosfellsbæ. Þessi
ungi maður sat einbeittur yfir bókinni þegar Ijósmyndari Blaðsins átti leið hjá og leit
ekki einu sinni upp þegar smellt var af.