blaðið - 17.03.2006, Page 34
34 I AFPREYING
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 blaöiö
smtifíiÁ^BÍó
BtG MOMMA S HOUSE
kl.3.40,5.45,8 og 10.15
BIG MOMMA'S HOUSE í LÚXUS
kl.3.40,5.45,8 og 10.15
RENT
kl.8og10.45 B.U4ÁRA
YOURS, MINEAND OURS
W.4og6
PINK PANTHER
kl. 3.45,5.50,8 og 10.10
NANNY MCPHEE
kl. 5.50
WALKTHE LINE
kl.8og10.45 B.L 12ÁRA
REGílBOOinn
BIG MOMMA'S HOUSE
kl. 6.50,9 og 11.10
RENT
kl. 5.20 B.L14ÁRA
CAPOTE
W. 5.30 og 8 BJ.16ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN
W.9 B112ARA
CONSTANT GARDENER
W. 10.20 B.I.16ÁRA
FERÐALAGIÐ
W. 6 HNSEGW BlóOAGAR
SÍÐARIDAGAR
W. 8 HWSEGJN BÍÓOAGAR
PETER BERUN
W. 10 HINSEGIN BlóDAGAR
BIG MOMMA'S HOUSE
W.4,6,8og 10
YOURS, MINE AND OURS
W.4og6
MATCH POINT
w.8og10.15
NANNY MCPHEE
W.4og6
GOOD NIGWT, AND GOOD LUCK
W. 8
MEMOIRS OFAGEiSHA
Kl. 10 ALLRA SÍÐASTA SÝNIGAR HELGI
NYTTIBIO
Hringnum lokað
Hnútur verður bundinn á tónleikaferðalagRásar 2 í kvöldþegarAm-
pop, Dikta og Hermigervill spila á Nasa ásamt hljómsveitinni Vax.
Hermigervill á Egilstöðum en þar þóttu tónleikar sveitanna takast einstaklega vel.
Ampop, Dikta og Hermigervill hafa
síðustu vikuna spilað á tónleikum
víðs vegar um landið. Hermigervill,
eða Sveinbjörn Thorarensen eins
og stendur á ökuskírteininu hans,
var eini tónlistarmaðurinn í ferð-
inni sem steig ávallt einn á svið en
meðlimir hljómsveitanna höfðu
stuðning hvors annars á tónleiknum.
Hann segir helsta muninn á að hafa
ekki hljómsveitarmeðlimi með
sér að hann þurfti að „róta“ sínum
græjum sjálfur.
„Viðtökurnar voru mjög góðar,"
segir Hermigervill og það er ekki frá
því að hann hljómi ögn þreytulega.
„Ferðin var nokkuð mikið rokk þó
maður sé ekki beinlínis rokkari
sjálfur, ég rokkaði samt með þeim
í anda.“
Ferðalangarnir voru boðnir
velkomnir á mismunandi hátt. ísa-
fjörður tók til dæmis á móti tónlist-
armönnunum með flensu og náði
að smita helminginn af áhöfninni,
en það stoppaði ekki ferðina því hiti
og hósti hefur aldrei stöðvað rokk
og ról. „Mér finnst tónleikarnir á Eg-
ilsstöðum og Akureyri standa upp
úr, það var hörkustuð þar,“ heldur
Hermigervill áfram, aðeins hress-
ari en áðan en bætir við að tónleik-
arnir voru haldnir þar um helgi og
því aðeins meiri stemmning meðal
fólksins.
Eins og flestir sem fylgst hafa með
ferðalaginu er undirritaður forvit-
inn að vita hvort eitthvað hafi komið
upp á. Alþekkt er að hljómsveitir
eiga til að koma sér í vandræði á
ferðalögum sínum en vandræði Am-
pop, Diktu og Hermigervils voru
ekki tengd eiturlyfjum, lögreglu né
grúppíum því saklaus skólataska
kom þeim í bobba. „Við vorum auð-
vitað með fullt af farangri og það
hafði fylgt okkur taska sem allir
héldu að einhver af okkur ætti. Loks
kom á daginn að þetta var taska sem
við höfðum óvart stolið úr Mennta-
skólanum á Egilsstöðum og það var
einhver strákur þaðan sem átti hana.
Við komumst ekki að þessu fyrr en á
sunnudagskvöldinu á Isafirði og þá
var hann örugglega að leita að henni
eins og brjálæðingur en þá var hún
hinu megin á landinu."
Stela skólastösku? Er það ekki of
stór skammtur afrokki?
„Við erum náttúrlega hræðilega
vondir menn og sjáum mjög mikið
eftir þessu. Þetta tekur mikið á
hjartað," segir Hermigervill.
Tónleikarnir á Nasa í kvöld verða
sérstaklega glæsilegir ef marka má
Hermigervil en hann segir að öllu
verði tjaldað til svo þeir verði sem
bestir. „Við ætlum að spila lengur
en við höfum gert úti á landi þannig
að ég verð með söngkonuna mína
með mér,“ segir Hermigervill. „Am-
pop meðlimir hafa yfirleitt spilað
síðastir en í þetta skiptið mun ég
enda. Ég spila „live settið“ mitt í
tæpan klukkutíma og verð svo plötu-
snúður þangað til næsta atriði byrjar
á Nasa.“
Húsið opnar klukkan 20 í kvöld
og hefur hljómsveitin Vax leikinn
stundvíslega klukkan 21. Miðaverð
er 1.500 krónur en forsala aðgöngu-
miða er á www.midi.is
atli@bladid.net
Hvað erað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur llnu á
gerast@bladid.net.
12.15-Fyrirlestur
Eyja Margrét Brynjarsdóttir: Er
veröldin tófú? Hugleiðingar um
eiginleikahyggju.
Árnagarður - stofa 201
12.50-Ráðstefna
Móðurmál eru máttur
Hátíðarsalur Háskóla íslands
13.30 -Málþing
Guðfræðin og menningarrýnin
Fyrirlestrarsalur í Öskju
14.00 -Málþing
Hjartasjúkdómar og þróun
hjartalæknisfræði
Hringsalur LSH við
Hringbraut
15.00 - Málþing
íslenskir kvenrithöfundar og
verk þeirra
Aðalbygging HÍ - stofa 111
Gerður Kristný, Hallgrímur
Helgason og Þorbjörg Gísladóttir
taka til máls.
19.00 - Leikrit
Maríubjallan
Leikfélag Akureyrar
Miðasala á www.midi.is.
19.00 Skemmtun
Stelpukvöld Klúbbsins og
hárgreiðslustofunnnar Stubba-
lubba
Klúbbrinn við Gullinbrú
Kynningar, sýningar ofl.
20.00-Tónleikar
Ég skemmti mér
Salurinn Kópavogi
Midi.is | Guðrún G. og Friðrik
Ómar skemmta.
20.00 - Leikrit
Viðtalið
Hafnarfjarðarleikhúsið
Miðasala á www.midi.is
20.00 - Leikrit
Ég er mín eigin kona
Iðnó
Miðasala á www.midi.is
20.00 - Leikrit
Pétur Gautur
Þjóðleikhúsið
Miðasala á www.midi.is
20.00 - Leikrit
Virkjunin
Þjóðleikhúsið
Miðasala á www.midi.is
20.00-Leikrit
Hungur
Borgarleikhúsið
Miðasala á www.midi.is
20.00 - Leikrit
Glæpur gegn diskóinu
Borgarleikhúsið
Miðasala á www.midi.is
21.00-Tónleikar
Rás 2 rokkar hringinn
Nasa við Austurvöll
Midi.is | Sjá umfjöllun á síðunni.
22.00-Tónleikar
Sweet Sins, Múgsefjun og Helgi
Valur
Classic Rokk - Ármúli 5
Frítt inn.
24.00 - Skemmtanir
Dj Gulli í Ósóma
Bar 11
Frítt inn.
01.00 -Skemmtanir
Schemeoo3
Nasa
Fram koma Luke Vibert og Dr.
Mister & Mr. Handsome. Miða-
verð 1.500 krónur við hurð.