blaðið - 17.03.2006, Síða 35

blaðið - 17.03.2006, Síða 35
blaöið FÖSTUDAGUR 17. MARS 2006 i - '5V ?/\ \U '11 AFÞREÝING I 35 Lœrimeistarinn Jolie Drew Barrymore leitaði til Angelinu Jolie til að fá ráð fyrir Afríkuferð sem hún fór í nýverið. Þar tók Barry- more myndir af fátækum skóla- börnum fyrir tímaritið Marie Claire. Henni þótti líklegt að bestu ráðin kæmu frá Jolie sem er sendiherra Sameinuðu þjóðanna og þekkir til málefnisins. Barrymore fór ásamt ritstjóra tímaritsins, Lesley Jane Seymour, og nokkrum fulltrúum matvæla- aðstoðar Sameinuðu þjóðanna í nokkra skóla í nágrenni Naíróbí. Barrymore þókn- aðist ekki að líta út eins og hinar kvik- myndastjörn- urnar með myndavél- ina á lofti svo hún leitaði til Jolie. „Ég vildi fara af því að ég las grein í New York Times um fría menntun sums staðar í Afríku þar sem skóla- stofurnar bókstaflega rifnuðu vegna þess hversu margir vildu koma. Ég virði Angelinu mjög mikið og hringdi i hana til að biðja um ráð- leggingar. Hún var mjög hjálpsöm og indæl. Mér finnst hún standa sig frábærlega," segir Barrymore. Myndirnar verða seldar á uppboði og rennur ágóðinn til World Hunger Campaign. Clooney brjál- aður út í blogg George Clooney er bálreiður vegna ummæla sem eignuð eru honum á bloggi Ariönnu Huffington, banda- rískrar konu sem áberandi er í lífi þotuliðsins og þeirra sem eru stjórnmálalega þenkjandi. Clooney hafði gefið samþykki sitt fyrir að Huffington mætti nota hugsanir sínar og gagnrýni á stefnu Demókrataflokksins á bloggsíðu sinni en hafði ekki hugmynd um að snúið yrði út úr ummælunum. „Það sem hún (Huffington) hafði ekki leyfi fyrir var að nota einungis svör min í blogg- inu,“ segir Clooney. „Lesand- inn er leiddur í gildru þar sem hann kemst að þeirri niður- stöðu að ég hafi skrifað greinina. Þetta er ekki mitt verk heldur svör við spurningum og þar er mikill munur á. Ég stend við það sem ég sagði en ég skrifaði ekki þessa færslu." í blogginu segir Clooney m.a.: „Hræðslan við gagn- rýni getur verið lamandi. Líttu bara á það hvernig demókratar hafa hlaupið í burtu með skottið á milli lappanna í umræðunni um að- draganda Iraksstríðsins." „Arið 2003 spurðu margir hver tengingin væri milli Saddam og Os- ama. Hvernig tengist írak því sem gerðist ellefta september?" „Við verðum að vera sammála um það að maður getur vel verið föðurlandsvinur þótt maður vilji að þeir sem stjórna land- inu taki ábyrgð á gjörðum sínum og geri grein fyrir þeim.“ Ummmm... PANINI Ekta ítalskt og brakandi ferskt! ÞITT ERVALIÐ SMÁRALIND • ESSO ÁRTÚNSHÖFDA • ESSO FOSSVOGI BUXNAPILSIN VINSÆLU SEM FERMINGARSTELPURNAR HAFA BEÐIÐ EFTIR ERU KOMIN phink ALLIR SEM VERSLA FERMINGARFOT I EXIT KRINGLUNNI OG SMARALIND GETA UNNIÐ GLÆSILEGT FOOSBALL SPIL DREGIÐ 10. APRIL.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.