blaðið - 08.04.2006, Qupperneq 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 blaöiö
Telja ekki óábyrgt að hækka
laun ófaglærðra starfsmánna
Rtkið verður að setja aukið fjármag í dagheimili aldraðra til að hœkka megi laun starfs-
manna. Um þetta eru Jónína Bjartmarz ogÁgúst Ólafur Ágústsson sammála.
blaðite
Baejarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Samið um
gagnkvæma
dreifingu
Samkomulag hefur náðst á milli
Símans og 365 miðla um að báðir
aðilar dreifi íslenskum sjónsvarps-
rásum Digital fslands og Skjásins.
Viðskiptavinir fyrirtækjanna munu
því fá aðgang að öllum íslenskum
sjónvarpsrásum sem í boði eru.
Hluti samkomulagsins tekur gildi
15. apríl en allar stöðvarnar verða að-
gengilegar í síðasta lagi 15. júní nk.
.Samkomulagið felur í sér mikinn
ávinning fyrir sjónvarpsnotendur
og sjónvarpsefni beggja aðila mun
ná til fleiri notenda en áður,“ segir
í sameiginlegri tilkynningu frá
fyrirtækjunum.
Lægsta tilboði
var hafnað
Fyrr í vikunni var skrifað undir
samninga á milli Ríkiskaupa og Vél-
smiðju Orms og Víglundar í Hafn-
arfirði um endurbætur á Grímseyj-
arferjunni. Tilboð vélsmiðjunnar í
verkið hljóðaði upp á 1,3 milljónir
evra, eða rúmar 115 milljónir króna.
Ríkiskaup virðast því hafa
ákveðið að taka ekki lægsta tilboði
í verkið, því það barst frá skipavið-
gerðastöðinni JSC Western Shipr-
epair frá Litháen, sem var tilbúið að
sinna viðhaldinu fyrir 1,27 milljón
evra, sem samsvarar um 113 millj-
ónum króna.
Nýr formaður
bankaráðs
Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra, hefur sagt
af sér formennsku í bankaráði
Seðlabankans. Helgi S. Guð-
mundsson var kjörinn formaður
í hans stað en Ólafur verður
varaformaður bankaráðsins.
Setuverkfalli um 900 ófaglærðra
starfsmanna Hrafnistu, Vífilsstaða,
Grundar, sem og fleiri dvalarheim-
ila aldraðra lauk á miðnætti í nótt.
Með aðgerðum sínum vildu starfs-
menn vekja athygli á að starfsmenn
hjúkrunarheimila sveitarfélaga eru
með mun hærri laun, þrátt fyrir að
vinna sambærileg störf.
Ljóst er að ástandið hefur þær
afleiðingar að starfsfólk hefur sagt
upp og fært sig milli stofnana til
að hækka laun sín. Ennfremur er
ljóst að slíkt mun halda áfram ef
ekkert verður að gert. 1 Blaðinu í
gær fullyrðir Guðmundur Hallvarðs-
son, stjórnarformaður Hrafnistu,
að búið sé að skapa tvöfalt kerfi
þar sem sveitarfélögin fái meira og
betra starfsfólk og geti því boðið
upp á betri þjónustu og að „hinir lán-
sömu fá inni á hjúkrunarheimilum
borgarinnar“.
Aldraðir verða að fá full-
nægjandi umönnun
Jóntna Bjartmarz, alþingismaður
og formaður heilbrigðis- og trygg-
inganefndar tekur undir þessi orð
Guðmundar.
„Umönnun er
betri þar sem
mönnun er betri
og meiri. Færra
starfsfólk hlýtur
að þýða lakari
þjónustu. Þetta
er mál sem þarf
að leysa. Þegar
varaformaður
fjárlaganefndar
gagnrýndiborgar-
stjóra sem mest fyrir að hækka laun
ófaglærðra var ég honum ósammála.
Það er erfitt að manna þessar stöður
ogþví þarf að hækka laun.“
Agúst Ólafur Ágústsson, sem
einnig á sæti í nefndinni segir ljóst
hvar ábyrgðin liggur.
„Það þarf að endurskoða hið úr-
elta daggjaldakerfi sem grundvallar
tekjur þessara stofnana. Helmingur
allra hjúkrunarheimila er rekinn
með halla og ríkisendurskoðun
hefur gert athugasemd við kerfið.
Það þarf einfaldlega að setja aukna
fjármuni í þennan málafíokk, en
því miður hafa málefni eldri borg-
ara ekki verið í
forgangi ríkis-
stjórnarinnar,"
segir Ágúst.
Hann segirljóst
að ábyrgðin
liggi að fullu hjá
ríkisstjórninni
og að bregðast
verði við því.
„Það er til
s k a m m a r
hvernig launa-
kjör þessa hóps eru og það er alveg
ljóst að hækka verður launin.“
Undir þetta tekur Jónína
„Ég sé ekki annað í stöðunni en
að hækka þurfi laun þessa hóps.
Slíkt kallar á samstarf heilbrigðis-
ráðherra og fjármálaráðherra. Það
þýðir ekki að varpa ábyrgðinni yfir
á forstöðumenn sem reka stofnanir
sínar eftir þjónustusamningum
og daggjöldum sem greidd eru af
ríkinu. Þeir geta ekki að óbreyttu
hækkað laun. Það er ólíðandi að
aldraðir séu án fullnægjandi umönn-
unar, þeir eiga betra skilið.“
Tíundi hver karl-
maður hefur
farið í meðferð
Á hverju ári leggjast 2.000-2.500
sjúklingar inn á sjúkrahús SÁÁ að
Vogi. 9,6% allra karlmanna eldri en
15 ára á íslandi hafa komið inn á Vog
°g 3.9% kvenna í sama aldurshópi.
Þetta kom fram á árlegum frétta-
mannafundi SÁÁ sem haldinn var
ígær.
Þrátt fyrir öflugan stuðning
ríkisvaldsins hefur að sögn tals-
manna SÁÁ, reynst erfitt að halda
úti nægilegri læknisþjónustu fyrir
sjúklinga. Sem dæmi um þetta var
nefnt að samtökin hafi neyðst til að
loka bráðamóttöku sinni á síðasta
ári. Það hafi ekki verið nema fyrir
sértækar aðgerðir með stuðningi öfl-
ugra fyrirtækja að unnt reyndist að
opna móttökuna aftur í desember
síðastliðinn. 1 tengslum við bráða-
þjónustuna er fyrirhugað að auka
innlagnir um 250-300 á árinu 2006.
Forsvarsmenn samtakanna bentu
á í gær, að þrátt fyrir aukinn vímu-
efnavanda hér á landi, væru fyrir-
hugaðar fjárveitingar ríkisins til
sjúkrahússreksturs SÁÁ 20 milljón
krónum lægri á þessu ári en árið
2005.
Laða verður fólk að starfinu
Verðbólga hefur verið mikil á land-
inu síðustu mánuði og sérfræðingar
hafa margir sagt að ef laun hins
opinbera verði hækkuð muni fara
af stað verðbólguhrina með tilheyr-
andi vandamálum í efnahagslífinu.
En væri óábyrgt af stjórnvöldum að
hækka laun á þessum tímapunkti?
„Það hefur verið launaskrið í
samfélaginu, sérstaklega innan fjár-
málageirans. Laun þar hafa rokið
upp meðan laun starfsmanna við
umönnun og menntun hafa hækkað
lítið og þessir hópar hafa þurft að
berjast fyrir sínu. Laun þessa hóps
eru óviðunandi. Það er einfaldlega
ekki valkostur að bjóða upp á ófull-
nægjandi umönnun," segir Jónína.
„Nei, slíkt er í lagi svo lengi sem
hækkanirnar gangi ekki upp allan
stigann. Það þarf bara aukið fjár-
magn í málaflokkinn. Lausnin
blasir við en ég er persónulega orð-
inn mjög þreyttur á áhugaleysi ríkis-
stjórnarinnar á þessum málaflokki,"
segir Ágúst.
Jónína Bjartmarz
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavik: Morkin 4, s: 533 3500
O Helfoklrt 0 Léttský|að
Algarve 18
Amsterdam 08
Barceiona 16
Berlín 13
Chicago 0
Dublin 09
Frankfurt 12
Glasgow 06
Hamborg 09
Helslnki 02
Kaupmannahöfn 06
London 09
Madrid 19
Mallorka 18
Montreal -04
New York 07
Orlando 20
Osló 03
París 12
Stokkhólmur 05
Vín 12
Þórshöfn 02
Skýjað £ Alskýjað ,• f Rlgnlng, lltilsháttar ///'/ Rlgning 5 5 Súlð * 'I' Snjókoma O siydda Aj Snjóél r-7 Skúr
________1_________’ *____V V V
**ÍJ%**
0, ❖
^-2° *
Á morgun
*
*
* -2°
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
* *'
*
’ r **
no ^