blaðið - 08.04.2006, Side 4
www.expressferdir.is
ROLLING STONES
í DANMÖRKU
8.-9. JUNI
Það verður heldur betur stuð í
Horsfens í Danmörku þegar
Rolling Stones mætir á svæðið
8. júní næstkomandi.
Skelltu þér með okkur á
magnaða tónleika Rolling
Stonesl
Æ
TONLEIKAR I DANMORKU
79.900 kr.
INNIFALID: Flug og flugvallaskattar,
flug tll Árósa, allar rútuferðir, ein nótt á
hóteli með morgunverði og miði á
tónleika Rolling Stones. Miðað er við
að tveir séu saman I herbergi.
» Nánar á www.expressferdir.is
Express Feróir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, slmi 5 900 100
Express Ferðir
Ferðaskrifstofa I eigu lceland Express
Þú fcerð fermingargjafirnar
hjá okkur
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 blaöiö
Skartgripasmygl-
ari dæmdur
mbl.is | Héraðsdómur Reykjaness
dæmdi í gær enskan karlmann i 800
þúsund króna sekt fyrir tilraun til
að smygla skartgripum og óunnu
silfri að verðmæti um 1,8 milljón
króna til landsins. Þar að auki voru
skartgripir mannsins gerðir
upptækir.
Þann 6. desember 2005
reyndi maðurinn að
smygla skartgripunum
til landsins með flugi
frá London. Við
tollhliðið á Kefla-
víkurflugvelli fram-
vísaði hann engum
tollskyldum varn-
ingi en við gegnum-
lýsingu á skjalatösku
hans kom í ljós að í
henni voru skartgripir.
Verðmæti skartgrip-
anna var metið á rúm-
lega i,8 milljónir króna.
Maðurinn hélt því fram að
þetta væru sýnishorn.
Ritstjórnarlegt sjálfstæði og
gegnsæi á fjölmiðlamarkaði
Fréttastofum verður gert að setja sér reglur varðandi ritstjórnar-
legt sjálfstœði verði nýttfrumvarp umfjölmiðla að lögum.
Heimasíða útvarpsréttarnefndar
mun samkvæmt nýju frumvarpi um
f j ö 1 - miðla gegna
Mikið að gera
Lögreglan á ísafirði hefur haft í
nógu að snúast að undanförnu.
Hefur hún meðal annars haft
afskipi af aðilum, sem grunaðir
voru um fíkniefnamisferli, í alls
átta málum. Þetta eru mun fleiri
fíkniefnamál en lögreglan sinnti á
sama tímabili í fyrra.
Auk þessarar fjölgunar hefur
lögreglunni tekist að leggja hald á
mun meira magn fíkniefna fyrstu
þrjá mánuði ársins, í samanburði
við sama tímabil undanfarinna
ára, eða rúm 265 grömm af hassi
og tæp 30 grömm af amfetamíni.
Rétt er að geta þess að lögreglan á
ísafirði hefur haldlagt árlega um
140 grömm af ólöglegum vímu-
efnum, að meðaltali undanfarin
7 ár.
Á sama tíma hefur öðrum af-
brotum í umdæmi ísafjarðarlög-
reglunnar fækkað. Þannig voru 29
ökumenn kærðir fyrir of hraðan
akstur á fyrstu þremur mánuðum
ársins, en að meðaltali hafa slíkar
kærur verið 42 á þessu tímabili
undanfarin ár. Ennfremur hefur
ekkert innbrot verið tilkynnt í
umdæmi ísafjarðarlögreglunnar
fyrstu þrjá mánuði ársins, en þrátt
fyrir að slík afbrot séu afar fátíð
hafa þau engu að síður verið 1 til 5
á sama tímabili undanfarin ár.
nokkuð veigamiklu hlutverki við að
viðhalda gagnsæi á fjölmiðlamark-
aði. Heimasíðan skal birta ítarlegar
upplýsingar um þá sem hlotið hafa
útvarpsleyfi og nafn útvarpsstjóra.
Þá skal dagskrárstefna viðkomandi
stöðvar vera á heimasíðunni auk
reglna um ritstjórnarlegt sjálf-
stæði. Allir þeir úrskurðir
sem útvarpsréttarnefnd
kann að fella um við-
komandi útvarps-
stöð skulu einnig
birtir á síðunni en
gæta skal þess að
úr hinni birtu út-
gáfu séu felldar
út upplýsingar
um viðkvæm
einkamálefni
einstaklinga
og mikilvæga
fjárhags- og við-
skiptahagsmuni
lögaðila sem „sann-
gjarnt er og eðlilegt
að leynt fari,“ eins og
segir í drögunum. Hlið-
stæðar reglur verða settar
um dagblaðaútgáfu.
Fréttastofur setji sér reglur
Útvarpsstöðvar sem reka fréttastofu
sem og útgefendur dagblaða skulu
samkvæmt frumvarpinu setja sér
reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði.
Reglurnar skulu samdar í samvinnu
við starfsmenn fréttastofu og stéttar-
félag þeirra.
í reglunum skal fjallað um starfs-
skilyrði stjórnenda og fréttamanna
við að framfylgja dagskrárstefnu
stöðvarinnar eða ritstjórnarstefnu
blaðsins. Reglurnar skulu einnig
fjalla um starfshætti sem ætlað er
að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði
fréttamanna gagnvart eigendum út-
arpsstöðvarinnar eða dagblaðsins.
Einnig skal tilgreina skilyrði áminn-
ingarogbrottvikningarfréttamanna.
Þessar reglur skal endurskoða ár-
lega í samvinnu við starfsmenn og
tilkynna til útvarpsréttarnefndar.
I frumvarpinu er hvergi getið
um nein viðurlög við því að verða
ekki við þessum tilmælum laganna.
í skýringum með frumvarpinu
kemur hins vegar fram að útvarps-
réttarnefnd beri að taka það fram
á heimasíðu sinni hafi slíkar reglur
ekki verið settar.
Vöruskiptahalli
aldrei meiri
Vöruskiptahalli í nýliðnum mars-
mánuði nam rúmum 13 milljörðum
króna og sló öll fyrri met ef marka
má nýjar bráðabirgðatölur Hagstofn-
unnar um utanríkisviðskipti sem
birtar voru í gær. Þar kemur fram
að verðmæti innflutnings í mánuð-
inum nam rúmum 33 milljörðum
króna meðan aðeins var flutt út
fyrir tæpa 20 milljarða.
„Ýmsir samverkandi þættir urðu
til þess að gera hallann jafn mik-
inn og raun ber vitni. Gengi krónu
í mars var rúmlega 8% lægra en í
mánuðinum á undan, sem leiddi til
samsvarandi hækkunar krónutölu
inn- og útflutnings. Einnig var verð-
mæti eldsneytisinnflutnings óvenju
mikið, bæði vegna mikils magns
og verðhækkunar á heimsmarkaði,"
segir um þessar tölur í Morgun-
korni Glitnis í gær.
Þar er ennfremur greint frá því
að gengislækkun íslensku krón-
unnar að undanförnu verði að
öllum líkindum til að bæta jöfnuð
utanríksiviðskipta á komandi miss-
erum. Ástæðan er að innfluttar
vörur hækki í verði og því dragi úr
kaupum á erlendri neysluvöru. Enn-
fremur eykst verðmæti útfluttra
vara. Áhrifa þessa fari þó ekki strax
að gæta.
„Því má búast við að vöruskipta-
halli allra næstu mánuði verði veru-
legur, en þegar líða tekur á árið gæti
hann minnkað hratt.“
Blóm í meistarans höndum
Páskamir nálgast og nóg að gera hjá blómasölum vlð að útbúa páskaskreytingarnar. Á myndinni sést Steinar Björgvinsson, Is-
landsmeistari í blómaskreytingum, búa til skreytingu af mikilli natni í versluninni Blómálfinum.
Strætó
breytir
leiðakerfi
Á morgun, sunnudag, verður tíma-
töflum Strætó á leiðum 12, S2 og 28
breytt lítilsháttar og þær rýmkaðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Strætó í gær. Þar segir að eftir
að endurskoðað leiðakerfi tók gildi
5. mars s.l. hafi tímatöflur nokkurra
leiða verið til skoðunar og umfjöll-
unar. Umræddar breytingar eru
gerðar í framhaldi af þeirri vinnu.
Ný leiðabók hefur verið gefin út
vegna breytinganna og fæst hún á
skiptistöðvum. Tíma-
töflunni hefur
einnig verði
breytt á heima-
síðuStrætó.www.
bus.is.