blaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 18
18 I BRYNDÍS SCHRAM LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 blaöiö BERLÍN KVÖDD FERÐASAGA BRYNDÍSAR VKAFLI Nú er komið að seinasta degi okkar í Berlín, og það er sunnudagur. Við vöknum seint og förum beint í djass- brönsj í gamla mjólkurbúinu í hverf- inu okkar. I þessari stílhreinu og myndarlegu byggingu voru endur fyrir löngu fimmtíu mjólkandi kýr, sem sáu íbúum þorpsins fyrir mjólk og rjóma, osti og smjöri. Nú er hún orðin partur af nýja lífsstílnum og hýsir ekki lengur kýr, heldur fólk, meira að segja fatahönnuði, blóma- sala, hárgreiðslumeistara, bruggara og matargerðarmenn. Við kaupum hálft annað kíló af dagblöðum til að lesa með djassinum. Annars má segja, að þýska pressan valdi okkur hálfgerðum vonbrigðum. Við héldum einhvern veginn, að hún væri betri. Hún er mikil um sig - ekki vantar það - en meiri að um- máli en innanmáli. Við lesum Berliner Morgenpost og Tagesspiegel upp til agna. Erum auðvitað að leita frétta af koalition eða konfusion, eins og það héitir þessa dagana, rétt eftir þýsku haust- kosningarnar. Erum litlu nær að loknum lestri. Utan hvað við vitum, að Þýskaland er í kreppu. Þýskaland er að verða elliheimili, og það eru engir sjóðir til að standa undir elli- lífeyrinum. Þess vegna þurfa Þjóð- verjar immigranta. Immigrantarnir hafa ekki aðlagast þjóðfélaginu, læra ekki þýsku og búa í ímynduðu Tyrk- landi inni í gettóinu. Austur-Þýska- land er enn á framfæri. Og það eru ekki lengur til nógir peningar. Nið- urskurðurinn bitnar fyrst á hinum fátæku og atvinnulausu, og þá sýður upp úr. Frakkland brennur. Hvenær kemur röðin að Berlín? LieberWilly Þetta er fallegur dagur. Birtan mjúk og hlý. Við leiðumst hönd í hönd í gegnum Tiergarten, ilmandi vin í miðri stórborg. Haustsólin leikur í fölnuðu laufi trjánna. Næsti áfanga- staður er Schönberg Raathaus, en í því sloti voru höfuðstöðvar borgar- stjórnar Vestur-Berlínar, þar sem Willy Brandt gerði garðinn frægan sem borgarstjóri í Kalda stríðinu. Það er nú eins konar safnahús, og einmitt um þessar mundir stendur yfir sögusýning um Willy, eftir- læti Jóns Baldvins. Willy Brandt er frá Lubeck (eins og ég!). Hann var óskilgetinn sonur einstæðrar móður, hraktist ungur í útlegð undan svartstökkum Hitlers, varð blaðamaður á vígvöllum Spænsku borgarastyrjaldarinnar, varð enn að flýja undan nazistum við hernám Noregs (hann hafði búið um skeið í Noregi), flúði til Stokkhólms og sneri ekki aftur heim til Þýskalands fyrr en eftir fall Þriðja ríkisins og lok Seinni heimstyrjaldar. Hann reis til æðstu metorða innan raða jafnaðarmanna, fyrst sem borgar- stjóri í Berlín og síðar sem kanslari Þýskalands. Hann varð táknmynd alls hins besta í fari Þjóðverja og þýskrar menningar í andstöðu við mikilmennskubrjálæði og ofbeld- Ég gæti eflaust haldið áfram að segja ykkur ishneigð hins þýska þjóðrembings. Myndin af Willy Brandt, kanslara Þýskalands, þar sem hann krýpur í Varsjá frammi fyrir minnismerki um fórnalömb nazismans og biðst af- sökunar, er greipt í minni fólks um alla Mið- og Austur-Evrópu. Aust- urstefna Brandts breytti Evrópu. Hún losaði um þrælatök Sovétsins RÆKTAÐU VINA- OG FJÖLSKYLDUBÖNDIN Pantaðu fermingarskeyti í síma 1446 eða á netfanginu www.postur.is. í Austur-Evrópu, hún ruddi braut- ina fyrir vorið í Prag, og hún boðaði sögulegar sættir fornra fjandmanna. Willy var ekki venjulegur stjórn- málamaður, hann var pólitískur hugsuður og mannvinur - human- isti, sem bar höfuð og herðar yfir samtímamenn. Leiðsögn er auglýst klukkan fjögur, en þegar við náum á staðinn, er þar enginn gestur nema við, svo að við tvö njótum alein leiðsagnar stúdentsins, sem kann söguna upp á sína tíu fingur. Hin unga ekkja Willys, Birgitta Seebacher-Brandt, hefur að vísu reynst flokksfélögum erfið. Hún situr á öllum handritum, gömlum bréfum og ljósmyndum og hefur til þessa neitað að láta af hendi þennan fjársjóð. Það var ekki fyrr en “ríkið” tók málið í sínar hendur, að hún féllst á að lána bréf og myndir á þessa sýn- ingu, sem er svo til algerlega byggð á hennar einkagögnum. Unga manninum tókst að gera söguna persónulega og spennandi og sagði okkur ýmislegt, sem við höfðum ekki heyrt áður um Willy. Hins vegar gat Jón Baldvin líka sagt unga manninum ýmislegt um Willy, sem hann hafði ekki heyrt áður, og þótti ekki síður merkilegt! Ég get líka sagt ykkur frá því, að síðasta utanlandsferð Willys var ein- mitt til íslands nokkrum mánuðum áður en hann dó haustið 1992. Við Jón Baldvin vorum gestgjafar hans, og er mér sérstaklega minnistæð kvöldstund, sem við áttum með honum á Þingvöllum. Hann hafði mikla útgeislun og hélt öllum við- stöddum föngnum með hrífandi frá- sögnum af mönnum og málefnum. Og enn eitt Ég gæti eflaust haldið áfram að segja ykkur frá ævintýrum Berlín- arborgar alveg endalaust, en ég verð að halda áfram, svo að sögu minni ljúki einhvern tíma. Samt get ég ekki sagt skilið við höfuðborgina án þess að segja ykkur frá Gyðinga- safninu sunnan við Brandenborgar- hliðið. Það er rétt rúmlega ár síðan það var opnað með mikilli viðhöfn. Heimurinn stóð á öndinni. Þetta var eitthvað nýtt, eitthvað öðru vísi. Svo óvænt og óhugnanlegt. Og kannski er safn ekki rétta orðið; þetta mætti heldur heita hrollvekjusmíð, þvi að höfundur gerir frekjulega innrás i hugarheim mannanna, hann gerir tilraun til að setja okkur í spor hinna kúguðu, hinna smáðu og hæddu. Hvergi sér til sólar, hvergi má höfði halla, hvergi er hlýja né mýkt. Á þúsund fermetra svæði á einum verðmætasta bletti borgarinnar er raðað saman hlið við hlið, langsum og þversum, ílöngum steinkössum, mannhæðarháum, gráum og kulda- legum. Þessir kassar mynda eins konar völundarhús, þannig að þú missir áttir, veist ekki á hvaða leið þú ert, ratar ekki til baka, verður að halda áfram. Og þú kemst í skelfi- legt hugarástand, verður gripinn ofs- hræðslu. 0, Guð, hvar ertu? Þetta var ótrúleg lífsreynsla og minnti mig óþægilega á dagana, sem ég eyddi í Holocost safninu í Washington á árum mínum þar. Þá leið mér líka svona illa. Gamlir draugar Síðdegis þennan dag ókum við út úr borginni suður á bóginn. Við vorum búin að ákveða að koma við í Dres- den áður en við færum yfir landa- mærin við Tékkland og skoða hina nýuppgerðu Frúarkirkju. Það er eiginlega ekki hægt að aka um Evrópu án þess að vera stöðugt minntur á hrylling og óhugnað Seinni heimstyrjaldarinnar. Berlín byggð á rústum, þar sem sumt fær að birtast aftur í sömu mynd, en annað er börn síns tíma, í funkis, neoklassik og jafnvel futuristik. Vegna heimsku og hroka mannanna hefur verið traðkað á gersemum lið- inna alda, sagan hefur verið afmáð á broti úr sekúndu. Maður fæðist af manni, kynslóð vex af kynslóð, en húsin hverfa, og þau koma aldrei aftur. Bara annars konar hús og annars konar andi. Upp úr rúst- unum reis andi Sovétkommúnism- ans í formi hrikalegra steinblokka, sem voru hvort tveggja óíbúðarhæf skrímsli og smánarblettur í lands- laginu. Undarlegt annars, að eftir kommúnismann stendur ekki uppi eitt einasta hús, sem seinni kyn- slóðum finnst vert að skoða - fyrir utan pyntingarkjallara KGB, þar sem blóðsletturnar blasa við uppi um alla veggi enn í dag. Fólk sem búið hefur við svona hryggðarmynd afbökunarinnar sættir sig ekki við það. I Austur-Þýskalandi er verið að setja jarðýturnar á kommablokk- irnar og endurreisa miðaldir. Það sáum við í Dresden, en sú saga bíður næsta blaðs. Bryndís Schram disschram@yahoo.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.