blaðið - 08.04.2006, Page 24
24 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 bla6Í6
■■pp íjrj ál átt
Blóðuga baráttan um spegilinn
L
|lfk
Það er oft talað um kröfur nútímans varðandi útlit og óneitan-
lega finna margir sig knúna til að leggja hönd á plóg til þess að
gera þjóðfélagið fallegra. Þá á ég sérstaklega við ungar konur
sem kappkosta að líta sem best út og fjárfesta gjarnan í allskyns
kremum og öðrum apparötum með það eitt fyrir augum, enda
deginum ljósara að þorri ungra kvenna virðist eiga ráð undir rifi
hverju þegar kemur að bættu útliti. Þó virðumst við stundum
misskilja þessar útlitskröfur og taka þær alltof bókstaflega og
kemur það einna best í ljós þegar á að flikka upp á útlitið fyrir
útstáelsi helganna. Þá virðast kröfurnar svo miklar að hópurinn
kemst varla út sökum áhyggja af úfna hárinu, „hliðarspikinú',
eða miður fallegum upphandleggjunum.
Þetta fer oft ansi skemmtilega fram; Það er komið saman
heima hjá einni, dreypt á rauðvínsglöggi, rætt um málefni líð-
andi stundar og jafnvel dillað bossum við skemmtilega tóna.
En síðan hefst sjálf baráttan; - baráttan um spegilinn góða! Oft
kemur þetta ansi spánskt fyrir sjónir og ósjaldan vill þetta verða
svo að allar planta sér eins og hrægammar fyrir framan eina speg-
ilinn í húsinu og keppast við að sjá ásýnd sína sem best
með því að khfra upp á klósett eða annað til þess að
sjá betur. Oftar en ekki verða lætin til þess að maskar-
inn endar út á eyrum hjá einni og önnur klemmir
óvart nefið á næstu manneskju með sléttujárninu.
Svo við förum nú ekki út í líkamspælingarnar; Þá
heyrast oft ansi skoplegar setningar, allar varðandi
ósýnilega fitu og meinta samkundu bólufélagsins
á andlitinu. Og á meðan við þykjumst svakalegar
vitsmunaverur stöndum við fastar á því að íoo
gramma brauðhleifur morgunsins hafi pottþétt
gert það að verkum að maginn á okkur er engum
klæðnaði hæfur!
Jæja, nóg komið af þessu. Hitt er aftur eilítið
skondnara. Það er þetta þegar komið er í bæinn
og bakkus tekur völdin. Þá virðist sem allar útlits-
áhyggjurnar um kvöldið séu látnar lönd og leið og
þessi fyrrum glæsilega dama endar rúllandi á rassinum,
skítug og ótalandi sökum hiksta. Svona
getum við verið ótrúlegar.
Þá er spurninghvort ekki sé betra að leggja
aðeins minni metnað í kjólaval eða magaæf-
ingar og þeim mun meiri í það eitt að halda
haus. Svo má jafnvel deila um hvort ekki
/ sé fallegra að sjá kófdrukkna konu með
hversdagslegt útlit en eina sem er uppstr-
íluð og með varalitinn niður á brjóst.
Ég skal ekki segja en ég þykist vita að
við erum eflaust mun myndarlegri en
við höldum og þurfum ekki að tapa
glórunni af áhyggjum áður en haldið
er út. Leggjum frekar meiri metnað í
fágaða framkomu og sleppum síðustu
tveimur drykkjunum.:)
Halldóra Þorsteinsdóttir
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ ' ,*! V í
Ert þú
tækjafrík?
Á íslandi samtímans skiptir ekki
máli hver þú ert eða hvað þú
hefur gert heldur er meira um
vert hvað þú átt. Það er enginn
maður með mönnum nema að
eiga 52 tommu sjónvarp, heima-
bíó, borðtölvu og fartölvu að ekki
sé minnst á nýjasta farsímann.
Þeir sem eiga ekki slíkt voga sér
ekki í ræktina enda er allt fullt af
hoppandi fólki þar með iPod. Að
sama skapi forðast þeir að ræða
um sjónvarpsefni gærkveldsins
ef gæði sjónvarpsins skyldi bera á
góma. ísland virðist því vera fullt
af tækjafríkum með loga tækn-
innar í augum. Hvað með þig,
tekur þú þátt í brjálæðinu eða
ertu hófsemdarmanneskja þegar
kemur að tækjum og tólum?
Taktu prófið og þá kemstu að
sannleikanum.
Hve nauðsynlegt er fyrir þig
að eiga nýjustu tækin?
a) Mér gæti ekki verið meira
sama.
b) Ef nýtt tæki kemur á markað-
inn þá kaupi ég það, svo einfalt er
það.
c) Helst vil ég eiga allt en ég reyni
stundum að stoppa mig af og velti
því fyrir mér hvort ég þurfi virki-
lega á tækinu að halda.
d) Það er gaman að eiga ný tæki
en svo framarlega sem gömlu tækin
séu ekki biluð þá kaupi ég þau ekki.
Af hverju kaupirðu þér ný
tæki?
a) Ég vil ekki vera síðri
en aðrir og vil helst eignast allt
fyrst/ur.
b) Ég veit það ekki, það er einhver
spenna fólgin 1 því að kaupa nýjustu
tækin og eiga þau.
c) Yfirleittgeriégþaðnúekkinema
mig vanti þau bráðnauðsynlega.
d) Ég kaupi helst ekkert nýtt.
Hvað eru mörg tæki á heim-
ili þínu?
a) Ég á bara þetta hefð-
bundna, sjónvarp í stofu, eldhúsi
og svefnherbergi ásamt heimabíói,
farsíma, borðtölvu og fartölvu og
nokkrar leikjatölvur af mismunandi
gerð.
b) Ég á útvarp og heimasíma
c) Heimilið mitt er allt samtengt
hvað varðar hljóð, lýsingu og gard-
ínur. Það er plasma sjónvarp í hverju
herbergi hússins ásamt leikjatölvu,
borðtölvu og hljómflutningsgræjum.
Ég er alltaf með farsíma, fartölvu,
minnistölvu, I-Pod og símboða á
mér.
d) Heima hjá mér er borðtölva, eitt
sjónvarp og heimasími. Ég hef yfir-
leitt farsímann með mér að heiman.
Hvaða álit telurðu að aðrir
hafi á þér?
a) Ég velti því svo sem ekki
mikið fyrir mér en ég býst við að
flestum líki ágætlega við mig.
b) Ég vildi að ég vissi það en býst
við að meirihlutanum líki vel við
mig en það eru alltaf einhverjir sem
maður nær ekki til. Ég reyni samt
eins og ég get að láta alla líka við
mig.
c) Ég hef enga ástæðu til að ætla
annað en að öllum líki við mig.
d) Þau telja mig vera mjög mikil-
væga/n, að ég hafi alltaf nóg að gera,
eigi marga vini og sé vel liðinn. Orð-
spor mitt er mér mikilvægt.
Hvað eyðirðu miklu í ný
tæki á mánuði?
a) Það fer eftir því hvað ég
þéna mikið en svona um 30 þúsund
á mánuði.
b) Ekkert á mánuði en kannski
svona 10 þúsund á ári.
c) Ég reyni að eyða ekki meir en
100 þúsund á mánuði að meðaltali.
d) Ætli það sé ekki um 20 þúsund
á þriggja mánaða fresti.
6Hvernig líður þér eftir að
þú kaupir nýtt tæki?
a) Ég er yfir mig spennt/ur
og get ekki beðið eftir að sýna vinum
mínum tækið.
b) Ég verð að viðurkenna að ég
finn fyrir einhvers konar adrena-
línkikki og venjulega dríf ég mig
heim til að prófa gripinn.
c) Alveg eins og mér líður venju-
lega nema ég hálfpartinn sé eftir
peningasóuninni.
d) Það er alltaf gaman að kaupa
sér eitthvað nýtt.
Að hve miklu Ieyti skilgrein-
irðu þig út frá því sem þú
átt?
a) Það geri ég alls ekki enda er það
hegðun mín og persónuleiki sem
skilgreinir hver ég er.
b) Eins sorglegt og það er að við-
urkenna það þá finnst mér ég meira
virði ef ég á það sem er flottast í dag.
c) Ég get ekki sagt að ég skilgreini
mig út frá eignum mínum en vit-
anlega gætu aðrir dæmt mig út frá
þeim.
d) Að öllu leyti enda gengur sam-
félagið í dag út á verðmætamyndun
og eignasöfnun. Eignir merkja völd.
8Hefur tækjaeign þín
einhver áhrif á aðra í
fjölskyldunni?
a) Nei, en stundum er þrætt um á
hvaða útvarpsstöð á að hlusta.
b) Nei en ég væri alveg til í að eiga
annað sjónvarp til að geta frekar
horft á það sem mig langar til.
c) Það er varla hægt að segja það
en makinn nöldrar töluvert yfir
snúrufjölda í húsinu og peninga-
eyðslu minni.
d) Þetta eru mín tæki og koma
engum öðrum við en eitthvað heyri
ég um að ég hafi ekkert að gera með
þetta allt saman og önnur ljótari
ummæli.
Teldu saman stigm:
1. a)1 b)4 03 d) 2
2. a)4 b) 3 02 d) 1
3. a)3 b) 1 04 d)2
4. a) 2 b)3 01 d) 4
5. a) 3 b) 1 04 d) 2
6. a)4 b) 3 01 d) 2
7. a) 1 b) 3 02 d) 4
8. a) 1 b)2 03 d) 4
0-10 stig:
Lif þitt er mjög einfalt og i föstum
skorðum. Þér finnst algjör óþarfi að fylla
líf þitt af einskisverðum og ónauðsyn-
legum tækjum sem gera engum gott.
Svo lengi sem þú ert sátt/ur við iífið og
tilveruna þá þarftu engar áhyggjur að
hafa. Nýjustu tækin eru engum nauðsyn-
leg en þau geta gert lífið auðveldara og
jafnvel skemmtilegra á stundum. Vertu
því opin/n fyrir nýrri tækni og ekki hafna
henni algjörlega áður en þú hefur kynnt
þér hana.
11-19 stig:
Þú virðist hafa fundið hinn gullna með-
alveg þegar kemur að tækjum. Þrátt
fyrir að þér finnist þægilegt að hafa
tæki f kringum þig þá áttarðu þig á að
lífið stendur ekki og fellur með þeim. Þú
kannt að nota tæki án þess að ofnota
þau og þú kannt þér hóf. I raun mættirðu
alveg fjárfesta i fleiri tækjum en myndir
samt halda þig á þessum gullna meðal-
vegi. Haltu sama viðhorfinu og njóttu
þeirra tækja sem þú átt.
20-26 stig:
Það mætti segja að þú sért háð/ur spenn-
unni sem þú finnur fyrir þegar þú kaupir
og notar nýtt tæki. Þrátt fyrir að þú
hlaupir ekki út i búð og verslir um leið
og nýjungar koma á markaðinn þá finnst
þér nauðsynlegt að eiga allt það nýjasta.
Hið jákvæða er að þú áttar þig á þessu
hvimleiða vandamáli og þvi er auðveld-
ara að gera eitthvað í þvf. Fyrsta skrefið
er að skilja að það er ekki nauðsynlegt
að eiga allt. Uf þitt mun Iftið breytast
þó þú kaupir ekkert f nokkra mánuði en
notar peninginn frekar f ferðalög eða
eitthvað sem auðgar Iff þitt. Prófaðu það,
þú hefur engu að tapa.
27-32 stig:
Þú ert tækjafrík og ert með tækjaf íkn
á háu stigi. Þú berð þig vægðariaust
saman við aðra og verður að eignast allt
fyrst, Ifkt og hluturinn rýrni f gæðum ef
einhver hefur eignast hann á undan þér.
Þú þarft að opna augun og Ifta vel f kring-
um þig. Þarftu virkilega á öllu þessu að
halda? Væri kannski ekki léttir að leyfa
sér að sleppa þessu? Hluti vandans er að
þú skilgreinir þig út frá tækjaeigninni og
ert sennilega með lágt sjálfsmat. Það er
miklu meira í þig spunnið en tækin segja
til um. Trúðu á sjálfan þig, leggðu vfsa-
kortinu og taktu upp einfaldara lif sem
er laust við tæki, streitu og vanlíðan.