blaðið - 08.04.2006, Page 28

blaðið - 08.04.2006, Page 28
28 I TÖMSTUNDIR LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 blaðió Leyndardómar undirdjúpanna grunnatriðum köfunar í grunna hluta laugarinnar en síðan fer leið- beinandi með allt að fimm manna hópa í djúpu laugina þar sem gerðar verða ýmsar æfingar. Að þessu loknu er gestum leyft að synda um og finna þyngdarleysið eða gera það sem þeim langar að prófa að gera í kafi. Verð fyrir fullorðna er 1500 krónur en 1200 krónur fyrir börn. Þeir sem eru yngri en 18 ára þurfa að koma með skriflegt leyfi foreldra eða forráðamanna. Sveinbjörn segir að þátttaka í deginum hafi aukist jafnt og þétt með árunum. „Margir fara bara vegna þess að þetta er skemmtilegt. Sumir koma aftur og aftur en gera síðan ekkert meira. Aðrir komast á bragðið og fara í framhaldinu til köf- unarkennara,“ segir Sveinbjörn og bætir við að alltaf skib einhverjir sér á endanum í félagið. Laus við stress og læti Að sögn Sveinbjörns er það nánast eins og að koma í annan heim að stinga sér á kaf í undirdjúpin. „Þegar maður leyfir fólki að prófa að kafa á stöðum þar sem er þokkalega gott Merrild, prinsessan á bauninni —#—, % Islendingar kjósa Merrild! MmiCd Þeir undraheimar sem leynast undir yfirborði sjávar hafa lengi heiliað menn og margir láta sig dreyma um að stinga sér á bólakaf og svamla eins og fiskar innan um græna þörunga og fúin skipsflök. Sumir láta sér þó ekki nægja að dreyma heldur ganga alla leið og kynnast þessari heillandi veröld af eigin raun. 1 dag gefst áhuga- sömum tækifæri til að kynna sér undirstöðuatriði köfunar og ræða við félaga í Sportköfunarfélagi fslands á árlegum köfunardegi fé- lagsins sem haldinn er i Sundhöll- inni í Reykjavík milli kl. 10 og 17. Köfunardagurinn er nú hald- inn í 11. skipti og segir Sveinbjörn Hjálmarsson formaður Sportköfun- arfélags fslands megintilgang hans vera þann að leyfa almenningi að kynnast þessari íþróttagrein á auð- veldan hátt. „Um leið er þetta fjáröfl- unarleið fyrir félagið þannig að við getum haldið áfram því góða starfi sem það hefur staðið fyrir,“ segir Sveinbjörn. Ahugi hefur aukist Fyrst fá þátttakendur kennslu í Ljósmynd: Stefán Sveinsson Kafarar f lóni viB gjána Silfru á Þingvöllum. Þangað fara félagar f Sportkafarafélaginu reglulega til að kafa og segja fróðir menn að þetta sé einn vinsælasti köfunarstaður í heimi. Á árlegum köfunardegi Sportkafarafélags fslands gefst almenningi kostur á að kynnast undirstöðuatriðum fþróttagreinarinnar undir handleiðslu vanra sportkafara. skyggni og mikið dýralíf þá verður fólk alveg bilað. Þetta er svo flott segir Sveinbjörn og bætir við að þarna niðri sé maður alveg laus við hávaða, læti og stress sem einkenni lífið fyrir ofan yfirborðið. Sveinbjörn segir að skemmtileg- asti tími ársins til að stunda köfun sé í lok vors ög byrjun sumars enda sé þá svif með mesta móti í sjónum og skyggni eins og best verði á kosið. Á veturna er skyggni og veður aftur á móti gjarnan með verra móti. „Við höfum náttúrlega alltaf Þingvelli og þar er hægt að kafa í gjánum enda frjósa þær aldrei,“ segir Sveinbjörn og bætir við að það sé mikill kostur. „Ef sjóköfun fer út um þúfur vegna veðurs þá endar maður oft á Þing- völlum sem er rosalega skemmti- legur staður,“ segir Sveinbjörn og bætir við að erlendis sé lífríki viða fjölbreyttara og meiri litadýrð en Íiegar kafað er í sjónum umhverfis sland. Að sögn Sveinbjörns getur fólk stundað köfun þó að það sé í mis- góðu líkamlegu formi, menn verði einfaldlega að hegða sér í samræmi við aðstæður. Stofnkostnaður fyrir þá sem hafa áhuga á íþróttagrein- inni er tvö- til þrjúhundruðþúsund krónur að mati Sveinbjörns en sá kostnaður felur í sér bæði kennslu og búnað. „Þá er maður orðinn nokkuð góður og getur notað búnað í mörg ár þar sem yfirleitt þarf ekki að endurnýja hann. Nánari upplýsingar um starfsemi Sportkafarafélagsins má nálgast á vefnum kofun.is. Tyax Comp 2006 Stell 6061 Ál:: Dekkjastœrð 26x1,95 :: Stellstœrð S-l6,M-l8,L-20 & XL-22:: Framdempari RST Dempari still. 100 mm :-. Gfrar Shimano Puttaskiptar EF-29-8 EZ Fire:: Framskiptir Shimano C050:: Afturskiptir Shimono Altus 8sp:: Bremsur Promax V-bremsur ^ MVONCOOSE . .. alvöru fjallahjól FJALLAHJOLABUÐIN FAXAFENI 7 S: 5200 200 MÁlý - FÖS. KL. 9-18. LAl); KL. ÍO-lá

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.