blaðið - 22.04.2006, Side 43
blaðið LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006
indin einfaldlega meiri, enda súrt að
horfa á góða leikara túlka hallæris-
legar persónur í míglekri sögu. Virg-
inia Madsen er stórgóð leikkona og
undarlegt að sjá hana í svona mynd
eftir frábæra frammistöðu í konfekt-
molanum Sideways. Hún skilar vissu-
lega sínu sem skelkaða mamman en
hefur, eins og aðrir leikarar myndar-
innar, úr litlu að moða. Hinn annars
ágæti leikari Paul Bettany er í besta
falli kjánalegur í hlutverki hins ofur-
kaldrifjaða illmennis, Bill Cox, sem
fer fyrir einhverju púkalegasta glæpa-
gengi sem sést hefur á hvíta tjaldinu í
háa herrans tíð.
Aðalhetjan Ford veit vissulega
hvað hann á að gera enda hefur
hann leikið þessa persónu oftsinnis
og kann uppskriftina upp á tíu. En
það má spyrja sig að því hvort hann
sé ekki orðinn helst til of gamall í
hlutverk fjölskylduföðurshetjunnar
sem hefur ráð undir hverju rifi þégar
kemur að því að vernda konu sína og
börn? Nú á undirritaður t.a.m. afa
sem er fæddur sama ár og Harrison
Ford (1942) og það mun seint gerast
að hann fari að berja fílhrausta ribb-
alda til ólífis og nappa milljörðum
eins og hendi væri veifað. En eflaust
er Ford að borða sterkari vítamín en
afi því þetta gerir hann allt, og meira
til, kinnroðalaust.
Forðist Eldvegginn eins og heitan
eld-vegg, því enginn ætti að horfa á
þessa mynd ótilneyddur. Og Harri-
son Ford, þar sem ég veit að þú lest
þessa gagnrýni: Hættu að leika í
fjöldaframleiddu drasli! Bæði þú og
við eigum betra skilið.
Björn Bragi Arnarsson
bjorn@bladid.net
Handónýtur Eldveggur
Ef einhver leikari má muna sinn fífil
fegurri er það svo sannarlega Harri-
son Ford.
Maðurinn, sem eitt sinn bar hatt
og svipu með sannkölluðum elegans,
sést ekki í öðru en lapþunnum og
fyrirsjáanlegum lágklassa spennu-
myndum um þessar mundir. Ein-
hverjir héldu að botninum hefði
verið náð með hörmunginni Holly-
wood Homicide, sem kom út fyrir
þremur árum, en Eldveggurinn gerir
heiðarlega tilraun til að slá henni við
í leiðindum.
Jack Stanfield (Ford) er öryggissér-
fræðingur í stórum banka. Vondir
menn taka fjölskyldu hans í gísl-
ingu og hóta að myrða hana brjótist
Stanfield ekki inn í kerfið, sem hann
kann manna best á, og millifæri 100
milljónir dollara á þrjótana. Eldvegg-
urinn tekur á hinum netvædda og
rafræna heimi og drjúgum tíma er
eytt í að sýna flóknar tölvuaðgerðir,
stafræna dulkóðun og viðlíka krús-
ídúllur. Þess á milli hendist Stanfield
milli bankans og heimilis síns í er-
indagjörðum fyrir þrjótana og reynir
að finna út hvernig hann geti bjargað
fjölskyldu sinni.
Sem sagt; réttsýnn fjölskyldu-
maður lendir í rimmu við harð-
svíraða glæpamenn. „Hef ég ekki
séð Ford í einhverri svipaðri ræmu?“
kunna einhverjir að spyrja sig. Svarið
er einfalt: „Jú, ótal sinnum og þið
þurfið ekki að sjá þessa vegna þess
að hún er nákvæmlega eins og allar
hinar - einungis verri.“ Eldveggur-
inn verður aldrei spennandi, aldrei
skemmtileg og aldrei fyndin - nema
þegar hún á ekki að vera það. Öllum
klisjunum í bókinni er beitt og
myndin er fyrirsjáanleg út í gegn.
Botninn á herlegheitunum er svo
smurður með hrikalega lélegri enda-
senu sem er raunar svo slæm að hún
gerir myndina næstum því þess virði
að sjá hana, þ.e.a.s. ef maður hefur
gaman af því að fá bjánahroll niður
í tær.
Leikarahópur Eldveggsins er hinn
ágætasti en fyrir vikið verða leið-
eraðgerast?
*»*•»«••«•»•*•••*•(••
Blaðið vill endllega fjalla um atburði líð-
andi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
Laugardagur
13.00 - Rannsóknarkynning
Klám og kynlíf í íslensku
samfélagi
Oddi stofa íox
14.00 - Leikrit
Kalli á þakinu
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
17.00 - Tónlist
Hammondhátíð Djúpavogs
Djúpavogskirkja
Miðasala á midi.is
17.00-Tónlist
Græn tónleikaröð B
Sinfóníuhljómsveit íslands
Miðasala á midi.is
17.00 - Leikrit
Forðist okkur
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
19.00 - Leikrit
Litla Hryllingsbúðin
Leikfélag Akureyrar
Miðasala á midi.is
20.00 - Leikrit
Pétur Gautur
Þjóðleikhúsið
Miðasala á midi.is
20.00 - Leikrit
Átta konur
Þjóðleikhúsið
Miðasala á midi.is
20.00-Leikrit
Eldhús eftir máli
Þjóðleikhúsið
Miðasala á midi.is
20.00 - Leikrit
Forðist okkur
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
21.00-Tónlist
Hammondhátfð Djúpavogs
Hótel Framtíð
Miðasala á midi.is
21.00-Tónlist
Atlantic Music Event
Nasa
Midi.is | Sjá tilkynningu á opnu
22.00 - Leikrit
Litla Hryllingsbúðin
Leikfélag Akureyrar
Miðasala á midi.is
Firewall_____________________
Leikstjóri: Richard Loncraine
Aðalleikarar: Harrison Ford, Paul Bett-
any, Virginia Madsen, Mary Lynn Rajskub,
Robert Patrick og Alan Arkin.
Lengd: 105 mínútur
Bandaríkin 2006
★ ★ ★★