blaðið - 16.05.2006, Qupperneq 22
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 blaöiö
Gunnleifur Gunnleifsson
Markvörður HK
Hugþrautin
Hugþrautin er vikulegur liður á íþróttasíðu
Blaðsins. Tveir menn úr íþróttaheiminum
mœtast í spurningaeinvígi og tengjast allar
spurningarnar íþróttum á einn eða annan
hátt. Reglurnar eru einfaldar: keppend-
urnirfá sömu 16 spurningarnar ogsá sem
hefur fleiri rétt svör heldur áfram en sá
sem tapar fær að velja nœsta andstæðing
sigurvegarans. Takist einhverjum að sigra
fimm keppnir í röð verður hann krýndur
Hugþrautarmeistari og fær að launum veg-
legan verðlaunagrip.
Daníel Berg Grétarsson
Handknattleiksmaður úr FH
1. Hvers lenskur er
kylfingurinn
Retief
Goosen?
G: Suður-
afrískur.
D: Hann er frá
Suður-Afríku.
2. A móti hvaða þjóð vann
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu sinn stærsta sigur, 9-0,
árið 1985?
G: Færeyjum.
D: Færeyjum.
3. Hvaða tenniskona, sem þykir
í hópi bestu íþróttakvenna
sögunnar, fæddist íTékkóslóv-
akíu 1956 en flúði land og
gerðist bandarískur ríkisborg-
ariárið 1981?
G: Martina Navratilova.
D: Pass.
4. Justin Gatlin setti heimsmet í
100 metra hlaupi á dögunum.
Hver átti metið á undan
honum?
G: Pass.
D: Asafa Powell.
5. Hver varvalinn
íþróttamaður árs-
insá Islandi árin
1995 og 1996?
G: Jón Arnar
Magnússon.
D. Jón Arnar
Magnússon.
6. Hvað heitir
Englendingur-
inn sem ekurfyrir
Honda-liðið í Formúlu 1 ?
G: Button.
D: Jenson Button.
7. Hvaða íslenski íþróttamaður
hrópaði gjarnan:„l'm a viking,
not an eskimo," þegar hann
keppti á mótum erlendis?
G: Jón Páll Sigmarsson.
D: Jón Páll Sigmarsson.
8. Hvað nefndist sameiginlegur
heimavöllur austurrísku knatt-
spyrnuliðanna Grazer AK og
Sturm Graz þar til á annan
í jólum ífyrra, þegar nafn-
inu var breytt af pólitískum
ástæðum?
G: Arnold Schwarzenegger leik-
vangurinn.
D: Ekki hugmynd.
9. f hvaða íþrótt vann hin rúss-
neska Yelena Isinbayeva gull-
verðlaun á Ólympíuleikunum í
Aþenu 2004?
G: Stangarstökki.
D: Stangarstökki.
10. Hvaða íþróttasamband hefur
skammstöfunina KL(?
G: Keilusamband Islands.
D: Kappaksturssam-
band Islands.
11. Hvað nefnist heimavöllur NBA-
liðanna Los Angeles Clippers
og Los Angeles Lakers?
G: Staples Center.
D: Staples Center.
12. Hvaða eftirnafn bera bræð-
urnir sem sagðir eru heilarnir
á bak við hinn geysvinsæla
tölvuleik, Championship
Manager?
G: Þeir heita Karíus og Baktus.
D: Collyer.
13. Hvaða fyrrum landsliðsmaður
Englands lék með bæði Aston
Villa og Arsenal á tíunda ára-
tugnum, en gerðist spilandi
knattspyrnustjóri Notting-
ham Forest árið 1999 og náði
þar slæmum árangri?
G: David Platt.
D: Paul Merson.
14. Hvaða íslenski handknattleiks-
maður varð bikarmeistari með
spænska liðinu Bidasoa árið
1991?
G: Alli Gísla.
D: Júlíus Jónasson.
15. Fyrir hvaða íþróttafélag
hleypur Silja Úlfarsdóttir?
G: FH.
D: FH
16. Hvaða landslið, sem
keppir á HM í Þýskalandi
í sumar, þjálfar Hollend-
ingurinn Leo Been-
hakker?
G: Trínidad og
Tóbagó.
D: Sádí-Arabía.
„Kemur á óvart að mark-
maður viti eitthvað"
Gunnleifur Gunnleifsson sigrar Daníel Berg
glœsilega, með 14 réttum svörum gegn 10.
„Ég trúi ekki að ég hafi tapað fyrir
markmanni,“ sagði Daníel þegar
hann var inntur eftir viðbrögðum við
úrslitunum. „Það kemur mér mildð
á óvart að markmaður viti eitthvað,“
bætti hann við. Daníel kvaðst þó
ekki vera fullkomlega sáttur við eigin
frammistöðu. „Ég hefði viljað gera
aðeins betur. Taka t.d. spurningarnar
um David Platt og Alfreð Gíslason.
En það hefði verið erfitt að ná Gunn-
leifi fyrst hann tók 14,“ sagði Daníel,
en neitaði því að hann teldi að mögu-
leikar sínir á að hljóta landsliðssæti
hefðu minnkað við það að geta ekki
spurningu um landsliðsþjálfarann.
„Alfreð er náttúrlega fyrir mína tíð
þannig að það er ekkert sjálfsagt að
vita þetta.“
Gunnleifur var- hæstánægður
þegar sigurinn var í höfn og sagðist
strax farinn að huga að næstu keppni.
Daníel skoraði á Gunnar Jarl Jóns-
son, knattspyrnumann úr Leikni, og
tók hann áskoruninni að sjálfsögðu.
„Það verður gaman að vinna Gulla.
En ef mér tekst elcki að vinna hann í
hugþrautinni þá hefni ég mín bara á
knattspyrnuvellinum,“ sagði Gunnar.
Gunnleifur hló að þessum orðum
Gunnars og sagði, innblásinn af anda-
gift: „Ég ætla ekki að vera með neinn
hroka, maður er orðinn of þroskaður
fyrir það. Ég óska Gunnari bara góðs
gengis.“
bjorn@bladid.net
Skeytin inn
Fyrir viðureign Grinda-
víkur og ÍA á sunnudag
hafði Suðurnesjaliðið
aldrei unnið leik í fyrstu umferð
efstu deildar íslandsmótsins.
Grindavík hefur leikið í efstu
deild frá árinu 1995 og var eyði-
merkurgangan því orðin 11 ár.
Leikurinn endaði 3-2 og var það
Jóhann Þórhallsson sem skoraði
sigurmarkið á lokamínútunni.
KR-ingar hafa hins vegar
sjaldan byrjað Islands-
mótið verr. KR tapaði á
sunnudag 0-3 á heimavelli gegn
FH og er langt um liðið frá því
að Vesturbæingar töpuðu svo
illa í Frostaskjóli. KR-ingar töp-
uðu síðast með þremur mörkum
á heimavelli þann 8. ágúst 1993,
þegar þáverandi Islandsmeist-
arar lA lögðu sebrahestana að
velli 1-4. Það voru Mihajlo Bi-
bercic og Þórður Guðjónsson
sem skoruðu tvö mörk hvor
fyrir Skagamenn en Rúnar Krist-
insson klóraði í bakkann fyrir
KR með marki úr vítaspyrnu.
Rétt svör:
1. Suður-Afrískur.
2. Færeyjum.
3. Martina Navratilova.
4. Asafa Powel.
5. Jón Arnar Magnússon
6. Jenson Button.
7. Jón Páll Sigmarsson.
8. Arnold Schwarzenegger
Stadion.
9. Stangarstökki.
10. Keilusamband íslands.
11. Staples Center.
12. Collyer.
13. David Platt.
14. Alfred Gíslason.
15. FH.
16. Trinidad og Tóbagó.
Frístundakort
fyrir börn 5-18 ára
40.000 kr. á ári í íþróttir,
tómstundir og listnám
Pearce vill fá
Wright-Phillips til baka
Stuart Pearce, stjóri
Manchester City,
segist glaður myndi
viljafáShaunWright-
Phillips aftur til liðs-
ins en efast um að
félagið hafi efni á að
kaupa hann. Wright-
Phillips átti stórkost-
legt tímabil fyrir
City í fyrra og var
key ptur til Englands -
meistara Chelsea
síðasta sumar fyrir
21 milljón punda.
Wright-Phillips hefur hins vegar
lítið fengið að spila í vetur og í kjöl-
farið var hann ekki valinn í lands-
liðshópinn fyrir HM í sumar. Eftir
Shaun Wright-Phillips
komu Michaels Ball-
ack til Chelsea hefur
leikmaðurinn svo
færst enn neðar í
goggunarröðinni.
„Shaun er frábær
leikmaður og ég
myndi að sjálfsögðu
vilja fá hann aftur. Ég
reyndi að fá hann lán-
aðan í janúarglugg-
anum en Chelsea
hafnaði því. Það er í
þeirra höndum hver
framtíð hans verður,"
sagði Pearce, en bætti við að hann
væri fullviss um að næsta tímabil
yrði betra fyrir Wright-Phillips,
sama hvar hann myndi spila.