blaðið - 12.06.2006, Side 2
2IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaöið
Opið: Virka daga 12-16,
nema fimmtudaga 12-18
Eldshöfða 16, Bakhús
S: 616-9606
blaðið—
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 -www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Umferðarslys í
Ártúnsbrekku
Umferðarslys varð í Ártúnsbrekku
aðfaranótt sunnudagsins. Unglings-
stúlka, sem var farþegi í bílnum
liggur á gjörgæsludeild Landspítala-
háskólasjúkrahúss í Fossvogi, en að
sögn lækna hlaut hún höfuðáverka
og er haldið sofandi i öndunarvél.
Ökumaður missti stjórn á bílnum
sem var á vesturleið með þeim afleið-
ingum að bíllinn hafnaði á ljósastaur.
Ökumaður bílsins var réttindalaus
en hann og fjórir aðrir, sem allir voru
á aldrinum 14 til 16 ára voru fluttir á
slysadeild.
Vill stöðva þjóðar-
atkvæðagreiðslu
Ríkisstjórn Hamas mun leggja til
við palestínska þingið í dag að það
greiði atkvæði gegn fyrirhugaðri
þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu
um stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu.
Tillagan, sem Mahmoud Abbas for-
seti Palestínu lagði fram á dögunum,
felur einnig í sér að Palestínumenn
viðurkenni tilverurétt Israelsrikis.
Kannanir sýna að meirihluti Pal-
estínumanna styðja tillögu forsetans
en þrátt fyrir það er ríkisstjórn og
þingmeirihluti Hamas-samtakanna
andvíg. Deilt er um hvort að forset-
inn hafi rétt til þess að boða til þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar og telja þing-
menn Hamas að hann hafi brotið lög
með því að efna til hennar. Einnig
deila sérfræðingar í palestínskum
lögum um hvort að þingið hafi rétt til
þess að ógilda tilskipun forsetans.
Samráðsþing um loftslags-
breytingar hefst í dag
Forseti íslands kynnti á blaðamannafundi alþjóðleg verkefni á sviði umhverfismála og
loftslagsbreytingar sem hann hefur beitt sér fyrir að undanförnu.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti fslands á
Alþjóðlegt samráðsþing um loftslags-
breytingar hefst á Nordica hótelinu
í dag. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands, hefur undanfarið
beitt sér fyrir samræðum áhrifa-
fólks, vísindamanna og sérfræð-
inga í loftslagsbreytingum. Ólafur
Ragnar kynnti meginþætti á sam-
ráðsþinginu á blaðamannafundi
sem var haldinn á Bessastöðum í
gær. Forsetinn kynnti og fjallaði
einnig um fjögur önnur alþjóðleg
blaðamannafundi á Bessastöðum í gær
verkefni á sviði umhverfismála og
loftslagsbreytinga sem hann hefur
beitt sér fyrir að undanförnu. Sér-
stök áhersla hefur verið lögð á glím-
una við hlýnun jarðar og að tengja
ísland við lausnir á því sviði.
Samráðsþingið sækja tæplega 200
fulltrúar um hundrað stórfyrir-
tækja, vísindastofnana og háskóla
víða að úr heiminum, meðal annars
Bandaríkjunum, Indlandi og Kína.
Markmið þingsins er að reyna á
næstu misserum að ná samstöðu
um hvaða leiðir séu vænlegar til að
mæta orkuþörf framtíðar á þann
hátt að hvorki loftslagi né lífríki
sé ógnað. Meðal þeirra fyrirtækja
sem taka þátt í þinginu eru ýmis
þekktustu fyrirtæki heims á sviði
orkuframleiðslu, fjármála, iðnaðar,
tækni og fleiri greina.
Unnið yfir landamæri
Forsetinn segir að samvinna ólíkra
aðila geti leitt til raunhæfra lausna
og hamlað gegn þeirri vá sem steðjar
að mannkyni vegna hraðra loftslags-
breytinga. Ólafur Ragnar átti ásamt
Jeffrey Sachs, hagfræðingi, forstöðu-
manni Jarðarstofnunarinnar við Col-
umbia háskólann í Bandaríkjunum
og sérstökum ráðgjafa Kofi Annan,
þátt í að stofna til samráðsþingsins.
Ólafur Ragnar taldi Jeffrey Sachs á
um að halda samráðsþingið á Islandi
og þannig myndi fást fleiri þátttak-
endur. Sú var einnig raunin því að
fleiri taka þátt í samráðsþinginu nú
en síðustu tvö ár þegar þingið var
haldið í New York.
Samráðsþingið muni koma saman
sex sinnum á þremur árum, frá 2005-
2007. Fundurinn á íslandi er sá þriðji
í röðinni og sá eini sem haldinn er
utan Bandaríkjanna. Verið er að
ná saman nýrri tegund af hópi sem
getur fundið leiðir til að berjast við
loftslagsbreytingar. Þarna koma
saman fulltrúar úr einkageiranum í
samræðu við vísindasamfélagið.
Málþing í Háskóla íslands
Á blaðamannafundinum kynnti
Ólafur Ragnar einnig önnur alþjóð-
leg verkefni á sviði umhverfismála.
Fjallaði forsetinn meðal annars um
fyrirlestraröðina Nýir straumar sem
hann stofnaði til fyrr á árinu og um
samvinnu heimsþekktra háskóla við
íslenska vísindasamfélagið sem hann
hefur beitt sér fyrir í heimsóknum
sínum til erlendra háskóla.
Samráðsþingið verður sett á Nord-
ica hótelinu kl. 10, en það er ekki
opið almenningi. Að samráðsþing-
inu loknu efnir Háskóli fslands til
málþings í Hátíðarsal háskólans
miðvikudaginn 14. júní. Málþingið
er öllum opið og hefst klukkan 9. Þar
munu vísindamenn og sérfræðingar
fjalla um hreina orkugjafa framtíðar,
meðal annars vetni og jarðhita, auk
þess sem nýstárlegar hugmyndir ís-
lenskra og erlendra vísindamanna
um bindingu koltvíoxíðs djúpt í
jörðu verða kynntar.
„Mjög mikilvægt að leyndinni verði aflétt"
Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður í Landsvirkjun, tekur undir þá skoðun að leynd yfir samningi fyrirtækis-
ins við Alcoa eigi að aflétta. Hún segist trúa því að tillaga Helga Hjörvar þess efnis verði samþykkt.
Að minnsta kosti tveir stjórnar-
menn af sex í Landsvirkjun vilja af-
létta leynd yfir samningi við Alcoa
um verð á raforku til álversins á
Reyðarfirði. Einar Oddur Kristjáns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
segist einnig vera á þeirri skoðun.
Sama má segja um Guðna Ágústs-
son, landbúnaðarráðherra og vara-
formann Framsóknarflokksins.
Blöndunartæki
MT912-9
Vero
2.446 kr
Goðar vörur á
v góðu verðiy
Leyndinni þegar aflétt
af hálfu Alcoa
„Ég tel mjög mikilvægt að þessari
leynd verði aflétt," segir Álfheiður
Ingadóttir sem sæti á í stjórn Lands-
virkjunar. Hún segir að alla tíð hafi
verið uppi efasemdir um að Kára-
hnjúkavirkjun væri arðbær. „Þeir
sem samþykktu virkjunina á sinum
tíma sögðu margir hverjir að þá
eyðileggingu á landi sem hún kostar
mætti réttlæta með því hve arðbær
virkjunin væri. Ef í ljós kemur að
hún er það ekki, þá er það mjög mik-
ilvægt að þjóðin fái að vita það.“
Álfheiður segir að þegar stjórnar-
formaður Alcoa sé búinn að aflétta
leyndinni á samningnum, þá þýði
lítið fyrir Landsvirkjunarmenn að
gera annað en að opna sínar bækur.
Hún segist eiga von á því að
stjórnendur Landsvirkjunar fari
að óskum stjórnarinnar fari svo að
tillaga Helga verði samþykkt. „Þá
verða verðin birt.“ Álfheiður segist
trúa því að stjórnin samþykki til-
lögu Helga.
Áhrifamenn í stjórnarflokkunum
Einar Oddur Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins og nefnd-
armaður í iðnaðarnefnd, hefur sagst
vera þeirrar skoðunar að leyndinni
eigi að aflétta. I þætti á NFS í gær tók
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra og varaformaður Framsóknar-
flokksins, undir sjónarmið Einars.
Álfheiður bendir á að þessir menn
séu áhrifamenn í sínum flokkum
og því sé ástæða til að ætla að sam-
komulag náist um það að stjórnin
samþykki að létta leyndinni af samn-
ingnum. „Þar að auki, þegar Alcoa
er búið aflétta leyndinni að sínu
leyti þá getur Landsvirkjun ekki
setið undir því að mega ekki sýna á
Alverið í Reyðarfirði
sín spil. Ég á því ekki von á öðru e
að stjórnin samþykki þetta.“ Stjór
arformaður Landsvirkjunar og aðr
stjórnarmenn sem Blaðið hafði tal í
í gær vildu ekki tjá sig um málið vi
fjölmiðla. Jóhannes Geir Sigurgeii
son, stjórnarformaður Landsvirl
unar, sagðist hafa það sjónarmið a
ræða ekki við meðstjórnendur sína
gegnum fjölmiðla.
Heiöskfrt' Léttskýjað MÍ skýjaö Alskýjaö'^* Rigning, litilsháttai
Snjókomaifeii Slydda Snjóél d
25
Algarve
Amsterdam 27
Barcelona 22
Berlín 26
Chicago 14
Dublin 22
Frankfurt 26
Glasgow 18
Hamborg 26
Helsinki 18
Kaupmannahöfn 22
London 29
Madrid 30
Mallorka 25
Montreal 25
New York 18
Orlando 25
Osló 27
Paris 28
Stokkhólmur 24
Vín 23
Þórshöfn 11
Skur
A morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu (slands