blaðið - 12.06.2006, Qupperneq 4
4IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaóíö
Irösk börn grýttu breska skriðdreka í borginni Amara í gær. Sama dag birtist hótun
Al-Qaeda um umsvifamiklar hryðjuverkaárásir f landinu.
Al-Qaeda hótar
hrinu hryðjuverka
Al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin
í írak hótuðu í gær að hefna dauða
Abu Musab al-Zarqawi með röð
hryðjuverkaárása. Zarqawi, sem
var leiðtogi al-Qaeda í Irak, lést
á miðvikudag í kjölfar loftárása
bandaríska hersins á dvalarstað
hans. Hótanirnar voru birtar á
vefsíðu sem tengist al-Qaeda en
þær voru lagðar fram í nafni Muja-
hideen-ráðsins, en það eru regn-
hlífasamtök andspyrnuhópa í Irak,
sem Zarqawi kom á laggirnar á
sínum tíma.
Samtökin segjast ætla að standa
að röð umsvifamikilla árása sem
munu skekja „óvininn" og fá hann
til að vakna af værum svefni.
Fram kemur i tilkynningunni að
samtökin hafi styrkt stöðu sína í
írak þrátt fyrir dauða Zarqawi og
að liðsmönnum þeirra fjölgi stöð-
ugt. Ekki er minnst á eftirmann
hins fallna leiðtoga í tilkynning-
unni en sérstaklega er tekið fram
að tryggð liðsmanna samtakanna
við baráttumál hryðjuverkaleiðtog-
ann Osama bin Laden sé mikil.
Zarqawi hefur leitt baráttu
íslamista í Irak gegn Bandaríkja-
mönnum og írösku ríkisstjórn-
inni. Hann er sagður bera ábyrgð
á fjölda árása á sjíta-múslima og
helgistaði þeirra. Þær árásir hafa
magnað upp mikið ófriðarbál í
landinu þannig að jaðrað hefur
við borgarastyrjöld. Auk þess er
hann sagður hafa skipulagt fjölda
hryðjuverkaárása í gegnum tíðina,
innan Iraks og utan, þar sem að
þúsundir hafa látið lífið. Hann er
sagður guðfaðir þeirrar hugmy nda-
fræði að nota hryðjuverk til þess
að kveikja upp trúarbragðastríð á
milli súnníta og sjita í landinu.
Ein besta lausnin sem
framsókn gat fundið
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor, segir að Framsóknarflokkurinn
hafi spilað vel úr þeirri erfiðu stöðu sem flokkurinn var kominn í.
Prófessor í stjórnmálafræði segir að
skipan framsóknarmanna í ráðherra-
embætti sé góð lausn í þeirri stöðu
sem var uppi. Jón Sigurðsson, seðla-
bankastjóri, verður iðnaðarráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkis-
ráðherra og Magnús Stefánsson og
Jónína Bjartmarz koma bæði ný inn
í ráðherraliðið. Jón Kristjánsson og
Halldór Ásgrímsson hverfa hins vegar
á braut en Jón mun sitja áfram sem
þingmaður út kjörtímabilið.
Líkleg til að skapa frið
.Framsóknarflokkurinn var að vinna í
þröngri og erfiðri stöðu og mér sýnist
að þetta sé ein besta lausnin sem þeir
gátu fundið,“ segir Ólafur Þ. Harðar-
son, prófessor í stjórnmálafræði, við
Háskóla íslands. Ólafur segir að þegar
á heildina sé litið komi umskiptin í
ríkisstjórninni vel út fyrir Framsókn-
arflokkinn. „Mér sýnist að þeim hafi
tekist vel að raða sínu liði og einnig
virðist þetta vera lausn sem líkleg er
til að skapa frið í flokknum." Ólafur
segir að þá eigi flokkurinn aðeins
eftir að fara í gegnum formannsslag
í haust og það sé mikilvægt að þeim
takist að halda þeim slag innan ein-
hverra marka. „Það skiptir þá miklu
að missa þetta ekki í of mikla og harka-
lega baráttu.“ Ólafi sýnist, eins og
staðan sé í dag, að framsóknarmenn
séu því á góðum vegi með að rétta úr
kútnum eftir ágjöf síðustu daga og
vikna. „Það segir samt ekkert um það
hvort þeim takist að laga hjá sér fylgið
í næstu kosningum. Það er lengri tíma
vandamál.“
Ör ráðherraskipti ekki úrslitaatriði
Ólafur segir allt of snemmt að segja til
um hvaða áhrif komandi formannss-
lagur muni hafa á flokkinn. „Það er of
snemmt að fara að velta því fyrir sér
af einhvérju viti.“ Stjórnarandstaðan
hefur að undanfömu gert mikið úr
þeim breytingum á ráðherraliði ríkis-
stjórnar sem orðið hafa síðustu miss-
erin. Ólafur segir eðlilegt að minni-
hlutinn skammist yfir því. „Það er
mjög eðlilegt. Á sama hátt og það er
eðlilegt að stjórnarandstaðan krefj-
ist þess að boðað verði til kosninga.“
Hann segist ekki telja að örar breyt-
ingar á ráðherraliðinu hafi mikil áhrif
á starf ríkisstjórnarinnar. „Það gefur
augaleið að ef þú ert að skipta oft um
ráðherra, þá getur hann ekki sett sig
mjög vel inn í starf ráðuneytisins. Það
má Hka segja, að þessar breytingar
hafi verið svo miklar undanfarið, að
menn mundu líklega telja það lak-
ara en ella. Hins vegar er ofmælt að
þetta sé eitthvað úrslitaatriði sem
valdi verulegum vandræðum í starfi
stjórnarinnar.“
Vel heppnuð aðgerð
sem vartímabær
Skipun Jóns Sigurðssonar í embætti
iðnaðar- og viðskiptaráðherra er
nokkuð óvenjuleg að sögn Ólafs. Hann
segist finna sjö önnur viðlíka dæmi úr
sögunni ef undan er skilin utanþings-
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor
stjórnin 1942-1944. Hann segir engin
pólítísk vandkvæði á því að sækja
ráðherra utan þingflokksins. „Þetta er
ekkert sem ég myndi hafa áhyggjur af
fyrir Framsóknarflokkinn.“
I kjölfar skipunar Jóns Sigurðssonar
í ráðherraembætti hafa þær raddir
gerst háværari sem spá því að Halldór
Ásgrimsson verði seðlabankastjóri. Ól-
afur segir að það yrði mjög óvenjulegt
ef tveir fyrrverandi forsætisráðherrar
væru í bankanum á sama tíma. „Ég
held nú að ýmsir yrðu hugsi yfir þvi.“
Ólafur segir aðrar skipanir ekki
koma á óvart. „Valgerður er auðvitað
með mikla reynslu og fer í utanríkis-
ráðuneytið. Það er í sjálfu sér ekkert
sem virðist blasa við, að hún eigi að
fara þangað, en það er heldur eng-
inn annar kostur augljósari. Nú er
helmingur ráðherraliðsins konur og
Valgerður er fyrsti kvenkyns utanrík-
isráðherrann, sem hljómar ekkert illa
ef þú ert að reyna að laga ímyndina.
Mér sýnist þetta því vera frekar vel
heppnuð aðgerð, og var kominn tími
til, myndi einhver segja,“ segir Ólafur
Þ. Harðarson.
Tímabundnar fórnir til að
byggja upp þorskstofninn
SJÓMENNSKAN ER EKKERT GRlN: Góöur hópur fólks lagði leið sína niður á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn þrátt fyrir úrhellisrigningu til
að hlýða á fyrstu sjómannadagsræðu Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra.
Svanberg Már
íslandsmeist-
ari í skólaskák
Svanberg Már Pálsson er Islands-
meistari í skólaskák I yngri flokki.
Ingvar Ásbjörnsson, Matthías Pét-
ursson og Sverrir Þorgeirsson þurfa
að tefla aukakeppni um titilinn í
eldri flokki. Svanberg lauk keppn-
inni með 10,5 vinningum af 11 mögu-
legum og var vel að sigrinum kom-
inn að því er segir í tilkynningu.
Hjörvar Steinn Grétarsson hafnaði
í öðru sæti með með 10 vinninga og
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir lenti í
3 sæti með 8,5 vinninga.
I eldri flokki sigraði Ingvar Ás-
björnsson Vilhjálm Pálmason í úr-
síitaskák og það þýðir að þrír urðu
efstir og jafnir í efsta sæti og verður
aukakeppni um titilinn mjög fljót-
lega. Ingvar Matthías og Sverrir
urðu efstir og jafnir með 9 vinninga
af 11 mögulegum. Vilhjálmur og
Daði Ómarsson urðu svo jafnir í 4.-
5. sæti.
Á myndinni má sjá Islands-
meistarann Svanberg Má tefla við
Hjörvar Stein, sem hafnaði í 2. sæti,
en Hjörvar var sá eini sem náði að
marka punkt á Svanberg.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs-
ráðherra, sagði í sjómannadagsræðu
sinni við Reykjavíkurhöfn í gær að
hvorki gangi né reki í uppbyggingu
þorsksins hér við land. „Nú verðum
við með öðrum orðum að móta
okkur uppbyggingarstefnu til lengri
tíma varðandi þorsksstofninn. Slíkt
verður ekki gert nema að vel íhug-
uðu ráði þar sem kallað verður eftir
skoðunum vísindamanna, sjómanna
og annarra þeirra sem geta lagt til
þeirrar umræðu. Við skulum hins
vegar gera okkur grein fyrir því að
slikt getur - og mun að öllum lík-
indum - kalla á tímabundnar fórnir,"
segir Einar.
Áð sögn Einars leiða þau úrræði
sem helst hefur verið bent á til minnk-
andi veiði á einhverjum sviðum sem
mun hafa neikvæð áhrif á tekju-
myndun sjávarútvegsins til skemmri
tíma. „ Slíkt er því þá aðeins réttlætan-
legt að við teljum að það færi okkur
árangur sé litið til lengri tíma. Þetta
er okkar stóra verkefni á komandi
tímum,“ segir Einar.
Ánægðir og stoltir
Sjávarútvegsráðherra greindi einnig
frá niðurstöðum skoðanakönnunar
sem gerð var meðal sjómanna, þar
sem kom fram að rúmlega 84% sjó-
manna sögðust vera bæði ánægðir
og stoltir af starfi sínu. I þessari
sömu könnun kom einnig í ljós að
43% sjómanna gerðu ráð fyrir að
vera til sjós lengur en næstu fimm
ár, en tæplega fjórðungur næstu tvö
til fimm ár.
„Sjómennskan er framtíðarstarfið.
menn ekki nema vera vissir í sinni
sök. Það er gott að vera sjómaður að
þeirra eigin mati og þeir eru bæði
ánægðir og stoltir af starfi sínu. Þetta
eru góð tíðindi sem ég tel að skipti
miklu máli. Fyrst og fremst vitaskuld
fyrir sjómennina sjálfa og fjölskyldur
þeirra, en einnig fyrir þjóð okkar í
heild, vegna þeirrar þýðingarmiklu
stöðu sem sjómenn gegna í þjóðfélagi
Tímabundnar fórnir I tuttugu ár
Magnús Þór Hafsteinsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, segir
í samtali við Blaðið að menn hafi
verið að færa tímabundnar fórnir í
tuttugu ár og árangurinn af þeim er
enginn. „Ráðherra ætti að reyna að
skilja það áður en hann fer að tala
um fleiri fórnir. Hann þarf að fara
að velta því fyrir sér hvort að hann
og hans fiokkur hafi ekki verið
að gera eitthvað vitlaust á undan-
förnum tveimur áratugum.“
Að sögn Magnúsar er nauðsynlegt
fyrir stjórnvöld að fara að hugsa upp
á nýtt. „Það þarf að hlusta á þá sem
hafa gagnrýnt þá aðferðafræði sem
hefur verið viðhöfð fram til þessa.
Það er augljóst að íslensk stjórnvöld
hafi gert margt mjög rangt í þessum
efnum,“ segir Magnús.
Svona afdráttarlausa afstöðu taka okkar," segir Einar.