blaðið - 12.06.2006, Qupperneq 10
10 I FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaAÍð
Nautnafullt nesti
og nýir skór
Ferðaþyrstir íslendingar streyma
um þessar mundir út um land,
ekki bara til að skoða land sitt og
þjóð, heldur í raun einnig til að
leita að þvi. Við erum eins ólík og
við erum mörg og veljum okkur
ákaflega mismunandi ferða-
máta. Sumir vita ekkert betra
en að bruna um landsbyggðina
á upphækkuðum jeppa og finna
við það hina einu sönnu frelsistil-
finningu hríslast um líkamann.
Aðrir þurfa bara góða gönguskó,
ullarleista og bláleit ullarnærföt
til þess að leggja upp í langferð
og þrá ekkert heitar en að brosa
við blásvörtum hrafni á miðjum
Sprengisandi.
Hvað sem öðru líður þá þurfum við
öll að nærast á ferðum okkar um
blómlegar sveitir og nöturlegar eyði-
slóðir Islands. Því er ekki úr vegi að
velta fyrir sér nestisvenjum landans.
Hvað er vinsælast og hvort tísku-
bylgjur láti á sér kræla á þessu sviði
eins og öðrum. Hvaða eiginleikum
hin fullkomna nestiskarfa þarf að
hafa til að bera? Smekkur manna er
jú vitanlega misjafn í þessu eins og
öðru en flestir eru þó sammála um
að ekki er hægt að hugsa sér betri
ferðafélaga en bólgna og bústna nest-
iskörfu hvort sem ekið er um á jeppa
eða ferðast á annan máta.
ílát fullt af góðgæti
Á tjaldstæðum út um landið má líta
úttroðin kælibox full af góðgæti.
Jeppafjölskyldurnar sem gjarnan
eru oft svo vel útbúnar að vera með
tjaldvagn, fellihýsi eða hjólhýsi í eft-
irdragi búa líka oftar en ekki svo vel
á ferðalögum að vera vopnuð heilum
ísskáp og þurfa því ekki að íhuga
eins vandlega útbúnað körfunnar
góðu. Við hin sem aðhyllumst naum-
hyggju í útilegum þurfum eilítið
meira að skipuleggja okkur. Fyrst
þurfum við vitanlega að útvega
okkur góða körfu eða myndarlegt
kælibox. Á þessum árstíma er mikið
framboð af slíku í helstu búsáhalda-
og útivistarverslunum þannig að
skortur á íláti ætti ekki að verða
okkur fjötur um fót á yfirvofandi
ferðalögum. í þessum verslunum
má einnig finna hentug og litrík
matarstell úr plasti með viðeigandi
hnífapörum sem gott er að grípa
með sér. Þegar kemur að því að velja
matartegundir ofan í körfuna vand-
ast málið eilítið. Það er ýmislegt
sem þarf að hafa í huga við þann
gjörning. Gott er að hafa í huga að
velja þær matartegundir sem þola
vel hnjask og hitabreytingar, t.d. er
ekki gæfulegt að vera með mikið af
majonesi í farteskinu þa'r sem það
geymist ekki vel og verður ólystugt í
löngum ferðum. Það sama má segja
um aðrar feitar sósur.
Listaverk í amstri dagsins
Samlokan verður líklega að teljast
hin fullkomna útilegufæða og auð-
velt er að útbúa girnilegan og hollan
nestispakka sem samanstendur af
samlokum, ávöxtum og einföldum
drykkjum. Samloka er nefnilega
ekki bara samloka. Möguleikarnir
eru óendanlegir. Við getum valið
okkur brauð af ýmsum stærðum
Samloka með grœn
meti og ricotta
íoo gr ricotta ostur 1 tómatur, niður-
skorinn í gulrót, rifin niður Nokkur
kálblöð Ólífuolía Salt og pipar
Rúnstykki að eigin vali
Skerið rúnstykkið í tvennt. Smyrjið
annan helminginn með ricotta ost-
inum og setjið síðan smá ólífuolíu
út á. Kryddið eftir smekk. Bætið
kálblöðunum, tómatsneiðunum og
rifnu gulrótinni út á. Setjið hinn
helminginn ofan á.
Samloka með skinku
og mozzarella
íoo gr mozzarella Góð skinka
Ferskt spínat Ólífuolía Salt og pipar
Rúnstykki að eigin vali
Skerið rúnstykkið í tvennt, setjið
spínatið á einn helminginn og
sneiðar af mozzarella ofan á. Setjið
smá ólífuolíu yfir, kryddið með
salti og pipar eftir smekk. Setjið
síðan skinkuna ofan á og að lokum
afganginn af spínatinu. Setjið hinn
helminginn af rúnstykkinu ofan á.
Gott er að grilla rúnstykkið í smá
stund.
Nanna Rögnvaldardóttir, matargúrú og blaðamaöur á Gestgjafanum. Bla6!&/Frikkl
undir að njóta kælingar. í styttri
lautarferðir sem jafnvel eru farnar
innan borgarmarka verður að mæla
með myndarlegri tágarkörfu og
rauðköflóttum dúk í klassískum
stíl. Ekki ætti að taka blá plastbox
með i för nema það sé algjörlega
nauðsynlegt. Körfuna skal svo fylla
af vel völdu góðgæti af ýmsu tagi. 1
rómantíska lautarferð sem farin er
eftir vinnu í Hljómskálagarðinn eða
Laugardalinn er nánast nauðsyn-
legt að grípa með vel kælt hvítvín
eða ávaxtaríkt rauðvín. Samlokur
gerðar úr franskbrauði með kletta-
salati, ljúfum hvítmygluosti og
svörtum pipar væru ákjósanlegur
fylgifiskur í Hljómskálagarðinn auk
franskrar súkkulaðiköku og belg-
ísks konfekts. Þetta kann að hljóma
klisjukennd uppskrift en hví að
kasta því fyrir róða því sem reynst
hefur vel í áranna rás?
Hertu upp hugann og taktu upp sí-
mann strax. Hringdu í hny ttinn pilt
eða heillandi stúlku. Útbúðu hina
fullkomnu nestiskörfu og bjóddu
upp í brjálaðan tangó undir vökulu
auga Jónasar Hallgrímssonar og
litríkra sumarblóma sem ráðvilltir
unglingar hafa plantað í hinum ör-
fáu grænu svæðum borgarinnar síð-
ustu daga.
Gríptu gæsina í þann stutta tíma
sem hún gefur færi á sér. íslenska
sumarið verður liðið áður en þú
veist af.
og gerðum, gróf ellegar fín, stútfull
af korni eða hrein. Þau geta verið
hnoðuð upp úr spelti eða hvítu hveiti,
verið skreyttbúsældarlegum fræjum
eða pensluð með eggjum. Áleggið á
sér heldur engin takmörk nema þau
sem okkar eigið ímyndunarafl setur
okkur. Samlokan er áskorun. Hún
getur orðið listaverk í amstri dags-
ins ef rétt er á spilum haldið. Allir
geta spreytt sig á þessari iðju - það
geta fleiri en Jói Fel smurt brauð svo
vel sé. Samlokunum fjölbreyttu skal
svo koma haganlega fyrir í góðu
kæliboxi áður en haldið er til fjalla.
Fegurð hins smáa
Við skulum gæta okkar að líta ekki
framhjá fagurfræðilegu gildi nest-
iskörfunnar. Kælibox eru vissulega
góð og gild til síns brúks enda er
nauðsynlegt fyrir sumar matarteg-
- Bátasiglingar - Vatnaleikir - Sparkleikir - Ædol - Kassabílaakstur -
llppiysingar og skraning o nelinu:
www.ulfljotsvatn.is
Fyrir stráka og stelpur 8-1 2 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífscQMtatýri - fjör og hópeflisandi!
•JiTiiiir~»iBMMiBi<nwMii^i<i«irtnmariirndwiiíTiiriraMriiTrtMWiii'iiTii ir<~'Tíim ~rrn MMBBrttt-
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is.
Fjölbreytni
er lykillinn
Nanna Rögnvaldardóttir, matarg-
úrú og blaðamaður á Gestgjafanum,
er dugleg yfir sumartímann að fara
með fjölskylduna í stuttar nestis-
ferðir út um hvippinn og hvapp-
inn. „Við förum oft í „pikknikk“-
ferðir og þá reyni ég að smyrja
samlokur með sem fjölbreytileg-
Er þér heitt?
Skrifstofu-
og tolvukœlar
Ishúsið ehf S: 566 6000
ustu áleggi. Gjarnan eru þær mjög
óhefðbundnar og ég reyni alltaf að
breyta reglulega til í þessum efnum.
Ég nota mikið kryddsósur og pestó
á samlokurnar. Fjölskyldan er ekki
mikið fyrir majones en við notum
þeim mun meira af fersku græn-
meti, kryddjurtum og fjölbreyttu
kjötáleggi. Ef eitthvað sætt ætti
að vera í nestiskörfunni þá myndi
ég helst grípa með smákökur eða
múffur með banana og súkku-
laðibragði. Svo er það bara kaffi
handa fullorðna fólkinu og safi
handa börnunum. Ef ætlunin er að
fara í rómantíska lautarferð þá er
næstum nauðsynlegt að grípa með
vel kælda hvítvínsflösku og jarða-
ber,“ segir Nanna.