blaðið - 12.06.2006, Page 12
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaöiö
FIAT DUCATO CLIPPER 80 HÚSBll
06/03 ek 30 þ.km. Vel búinn
Húsbfll
FIAT DUCATO CLIPPER 20 HÚSBÍLL
'03 ek 22 þ.km V. Lán 2500,-
HYUNDAISANTA FE 4WD SJÁLFSK.
V.1690,-
NYR HUSBlLL FORO TRANSIT125T
350 NÝR HÚSBíLLTD
Svefnaðst. Fyrír 6, Vel Búinn
HúsbfllM
M.BENZ SPRINTER 311 KÆLIBÍLL
08/04 Ek.35 þ.km V.3800,- + VSK
Lán 3000,-
Mótorhjólakappar
ATHUGIÐ
I mótorhjólun
1. maí til 1. september.
mótorhjólasérfræðing
.A - íS&tMuviÁa&tvutut'
46 S • XlM
www.bilamarkadurinn.is
Smiðjuvegur 46-e
s: 567-
H0NDA CIVIC! 6ÍV-T£CH
Árg.99 ek 179þk V.590,-
T0Y0TAAYG0 03/06 ek3þ
V.1300.- Lán 1230,-
12 I BÍLAR
Önnur kynslóð Hyundai Santa Fe
Lítið tröll sem stígur
létt til jarðar
Það eru alltaf tíðindi hjá bílaáhuga-
fólki þegar nýr bíll, eða nýupp-
færður bíll, mætir á malbikið. Um
helgina kynna B&L einn slíkan til
sögunnar; betur búinn Hyundai
Santa Fe af annarri kynslóð.
Nýi Santa Fe bíllinn er m.a. fáanlegur
með 2.2 ltr. CRDi túrbó díselvél, bein-
skiptur eða sjálfskiptur, sívirku fjór-
hjóladrifi, rafstýrðri læsingu, meira
rými og auka sætum fyrir fleiri far-
þega. Þessi fararskjóti sameinar því
á margan hátt marga bíla í einu, líkt
og þegar hægt er að fá sjampó, hár-
næringu og hárlyftingu, allt i einum
brúsa! Þetta er í senn rúmgóður fjöl-
skyldu- og frístundabíll en um leið
ansi dugmikill jeppi eða jepplingur
eins og þeir eru kallaðir á okkar ást-
kæra og ilhýra móðurmáli.
Ekið í 500 metra hæð
I tilefni þessarar innkomu nýs Santa
Fe á markaðinn ákvað umboðið að
bjóða nokkrum blaðamönnum að
reynsluaka jepplingnum og ég slóst
með í för. Ætlunin var að skreppa
rétt út fyrir bæinn en fara þó út
fyrir alfaraleið. Leita ekki langt yfir
skammt að ævintýrunum. Þetta var
vel til fundið því það kom á daginn
að nágrenni Reykjavíkur býður upp á
margar skemmtilegar ökuleiðir.
Á miðvikudagsmorgun sl. var ekið
frá Reykjavík vestur um Hvalfjarð-
argöng og til Neðra-Skarðs. Þar var
stoppað hjá bóndanum og við fengum
leyfi til að aka fjallaslóða sem liggur
í um 500 m hæð yfir sjávarmáli um-
hverfis Snók. Þaðan ókum við sem
leið lá meðfram Skarðsheiðinni og til
Indriðastaða, þar sem við snæddum
fiskisúpu en þaðan var svo ekið með-
fram Skorradalsvatni að Fitjum og
yfir í Grafardal eftir nokkuð erfiðum
fjallaslóða.
Upp, upp, upp á fjall
Ég vissi ekki alveg við hverju átti að
búast. Það rigndi heilmikið þennan
dag og þvl virkaði það hálfógnvekj-
andi að keyra upp á fjall sem
virtist vera í þann mund að
hverfa af yfirborði jarðar
sökum ausandi regnfalls af
himnum ofan. Spennan
magnaðist eftir því sem
við komum lengra upp
á torfært fjallið en náði M&.'4n:iau
svohámarkisínuþegar RflriiiíöiLÍA
við þurftum að fara
yfir gjótu sem hafði
dýpkað í regninu.
Á leiðinni upp kom
það sér ákaflega vel
að hægt er að læsa
bílnum í fjórhjóladrif
og smella í beinskiptingu
þannig að bíllinn sé í fyrsta. Hann
hélst stöðugur alla leiðina upp en ég
þurfti að gæta þess að halda jöfnum
hraða til að festast ekki í aur og leðju.
Það krefst svolítillar kunnáttu að aka
á öðru en malbiki og þetta var vissu-
lega leið sem bauð upp á töluverðan
lærdóm. Þegar farið var yfir gjótuna
góðu reyndi á jeppaeiginleika bílsins.
Þrjú dekk snertu jörðu en eitt stóð
upp líkt og hali á kátri kú, um það
bil einn og hálfan meter frá jörðinni.
Þetta kom alls ekki að sök því bíllinn
gat vel valdið þessari torfæru. Hann
steig aftur niður til jarðar eins og þol-
inmótt lítið tröll og hélt áfram ferð
FAG O TI
BíLAMmm
*Legur
• Höggdeyfar
•Kúplingar
• Reimar
• Hjöruliðir
• Hemlahlutir
Eins og bjór
Fjöðrunin í bílnum fannst mér tölu-
vert fín. Ekki of hörð og ekki mjúk
eins og amerískt rúm, eða amer-
ískur sleðabíll, heldur einhvers
staðar þarna mitt á milli. Ég
fann í það minnsta ekki fyrir
miklum óþægindum. Þá
má vel dæma gæði fjöðr-
unar út frá því hvort konur
þurfa að skreppa á kló-
settið eða ekki þegar ekið
er y fir urð og grjót og þessi
* fjöðrun var ekki slæm í
fkj því sambandi.
Þar sem við komumst
algerlega áfallalaust í
gegnum þessar aðstæður
og aftur niður á jafnsléttu get
ég ekki annað sagt en að þessi bíll
hljóti að hafa það sem til þarf til að
aka utan vega. Smæðar sinnar vegna
kemst hann kannski ekki yfir það
allra harðasta, en hann stóð sig þó vel
að mínu mati.
Stundum finnst mér gaman að
bera bifreiðar saman við dýrateg-
undir og það tók mig töluverðan tíma
að reikna út að ef þessi bíll væri dýr þá
væri hann eflaust bjór. Verkfræðingur
náttúrunnar. Smágerður en ótrúlega
sterkur og dugmikill í að leysa þær
þrautir sem fyrir honum verða í ófyr-
irsjáanlegri náttúru.
Fjólubláir draumar
Leiðin yfir Skarðsheiði er mjög falleg
og skemmtileg og sérstaklega gaman
að aka yfir heiði sem maður kannast
fyrst og fremst við úr sönglagi (Akra-
fjall og Skarðsheiði, eins og fjólubláir
draumar). Leiðin niður á við var ekki
síðri en þar blöstu við gríðarlegar and-
stæður. Urð og grjót, iðagræn náttúra
og svo hafið framundan.
Á malarvegi stóð Hyundai Santa Fe
sig prýðilega. Hann er búinn stöðug-
leikastýringu sem varnar því að hann
renni til á mölinni. Ég prófaði stýring-
una með því að sikk-sakka á veginum
og það kom á daginn að veggripið var
nánast eins og á nýlögðu malbiki.
Og talandi um malbik... nú kom
að því að bíllinn breyttist úr jeppa í
fjölskyldubíl.
Umskiptingur
Hyundai Santa Fe er hljóðlátur og
þægilegur bíll. Hann er mjúkur í
stýri og vel búinn öllum þeim helstu
þáttum sem nútímafólk kýs að hafa í
bílum sínum. Mælaborðið er smekk-
legt og minnir á lúxusbíla, t.a.m.
er „viðarrönd" í mælaborðinu sem
kemur ansi vel út. Ljósin eru þægilega
blá og hægt er að stjórna hljómtækj-
unum, sem koma með innbyggðum
MP3 spilara, beint úr stýrinu. Þetta
er sérlega heppilegur fjölskyldubíll
og ástæðurnar fyrir því eru margar.
Til dæmis er hægt að fjölga farþega-
sætum úr fimm f sjö og það er gert
með því að smella upp tveimur auka-
sætum úr skottinu (aukabúnaður).
Þetta gerir það að verkum að það
er hægt að fara með alla krakkana
og vini þeirra á leikinn án þess að
neinn verði út undan eða komi of
seint. Sæti bílsins eru mjög þægileg
þó að það væri vissulega kostur að
geta breytt stöðu framsætanna með
rafstýringu en ekki handvirkt í öllum
bílunum, en rafknúin sæti eru aðeins
staðalbúnaður í lúxusútgáfunni. Við
öftustu farþegasætin er tenging fyrir
rafmagn sem ætti að halda ungviðinu
rólegu ef farið er í langferðir með lít-
inn DVD-spilara.
Kostirog gallar
Mér skilst að það sé mál manna að
hér sé komið besta farartækið sem
Hyundai hefur sent frá sér fram til
^FÁLKINN
Þekking Reynsla Þjónusta
Suðurlandsbraut 8*108 Reykjavik • Sími 540 7000 • www.falkinn.is
Gúmmívinnustofan
Öryggi bílsins byggist
á góðum hjólbörðum
Polar rafgeymaþjónusta
Rafgeymar fyrir fellihýsi
og mótorhjól
Frí ísetning og mæling
.Tnnrmi.'i
Michelin dekkar allt
Gúmmívinnustofan - SP dekk • Skipholti 35,105 RVK
s(mi 553 1055 • www.gummivinnustofan,i$ iuaójhfigioíi