blaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 14
blaðið------------------------------------------------
Útgáf ufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: ÁsgeirSverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
JÖFN SKIPTI, KYRR KJÖR
Fyrirkomulag svonefndra helmingaskipta Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hefur enn á ný verið staðfest á vettvangi rík-
isstjórnar lýðveldisins. Líkt og venjur, ef ekki beinlínis lögmál,
mæla fyrir um hér á landi var tækifæri til breytinga ekki nýtt nú um
helgina þegar ákveðin voru skipti valda innan ríkisstjórnar Geirs H. Ha-
arde, verðandi forsætisráðherra. Stjórnmál kyrrstöðunnar halda velli og
vel það þrátt fyrir róttækar þjóðfélagsbreytingar á Islandi á undanliðnum
árum.
Hugmyndin um hina „íslensku sérstöðu" ristir djúpt í þjóðlífinu og er
oft notuð sem réttlæting fyrir því að hér á landi er hlutum um sumt háttað
á annan veg en yfirleitt tíðkast erlendis. Þetta á ekki m.a. við um stjórn-
málin. Að vísu er fyrirkomulag helmingaskipta ekki óþekkt í Evrópu. I
því viðfangi kemur Austurríki upp í hugann en þar hafa tveir álíka stórir
valdaflokkar lengstum iðkað kyrrstöðustjórnmál af verulegri íþrótt.
Nú hafa tveir menn náð samkomulagi um að skipting ráðuneyta í stjórn-
arsamstarfinu skuli vera jöfn. Sjálfstæðisflokkurinn er risinn í íslenskum
stjórnmálum, Framsóknarflokurinn er... eitthvað allt annað. Sjálfstæðis-
flokkurinn nýtur fylgis tvöfalt fleiri kjósenda. Það fyrirkomulag sem
tíðkast í samstarfi þessara tveggja flokka og þeir Geir H. Haarde og Hall-
dór Ásgrímsson hafa nú staðfest og innsiglað ögrar í raun hefðbundnum
skilningi á framkvæmd lýðræðisins.
Þrátt fyrir að núverandi stjórnarsamstarf hafi um margt reynst árang-
ursríkt réttlætir það ekki helmingaskiptin. Augljós vandi Framsóknar-
flokksins felst ekki síst í því að hann hefur haft of mikil völd í stjórnar-
samstarfinu. Kjósendur vita mætavel að flokkurinn hefur ekki umboð
til slikra valda. Það er ekki almenn andúð á stefnu flokksins sem hefur
komið honum í þennan vanda heldur sannfæring stórs hluta þjóðarinnar
að flokkurinn misnoti oddaaðstöðu sína í íslenskum stjórnmálum og taki
sér völd umfram fylgi. Þá aðstöðu hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú staðfest
eina ferðina enn.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa helmingaskiptin til marks um að
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur stefni að því að viðhalda sam-
starfinu eftir þingkosningarnar að ári. Ekki skal fullyrt hvort greining
þessi er rétt en skiljanlegt er að slík ályktun sé dregin.
Fyrirkomulag helmingaskipta mun sæta vaxandi gagnrýni á næstunni;
lýðræðið er ekki kyrrstætt fyrirbrigði og skilningur manna á eðli þess og
inntaki er það ekki heldur.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar. Hádegismóum 2,110 Reykjavík.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Simbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Tilboðsdagar
20% afsláttur
Rafstillanleg rúm með
9 svæða pokafjaðrakerfi
frá kr. 148.800.-
14 I ÁLIT
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaðið
Hræðslubandalagið
herðir tökin
Hrunadans Framsóknarflokksins
tekur á sig sérkennilegri myndir en
nokkurn hefði órað fyrir. Eftir versta
pólitíska plott í manna minnum
hrekst Halldór Ásgrímsson nú frá
formennsku og forsætisráðuneyti
í skugga klúðurs og djúpstæðra
átaka við varaformann flokksins.
Til bjargar Framsóknarflokknum
kemur stóri bróðir: Sjálfstæðisflokk-
urinn. Helmingaskipti hræðslu-
bandalagsins voru endurnýjuð um
helgina með mjög skýrum hætti.
íhaldið fórnar ráðherra og Fram-
sókn fær sex. Þrotabúi íslenskra
stjórnmála eru afhent á silfurfati yf-
irráð yfir helmingi samfélagsins út
á sín 6 prósent. Þetta er gert til að
tryggja framhaldslíf hræðslubanda-
lags hægriflokkanna til framtíðar.
Geir hefur gefist upp á því verkefni
að endurreisa Sjálfstæðisflokk-
inn eftir Davið Oddsson og skapa
flokknum sjálfstætt líf án Fram-
sóknar. Hræðslan við Samfylking-
una og nýja ríkisstjórn undir fory-
ustu jafnaðarmanna rekur hægri
flokkana saman í valdabandalagið.
Geir hefur gefist upp
Með endurnýjun ríkisstjórnarinnar
og hreinum helmingaskiptum á
milli flokks sem innan við tíundi
hver maður styður annars vegar og
hins sem þó nýtur stuðnings þriðja
hvers kjósanda er Geir Haarde í raun
að negla saman kosningabandalag
þessara flokka. Hræðslubandalag
sem býður fram í tvennu lagi en
ætlar klárlega að mynda áfram ríkis-
stjórn. Fjórða kjörtímabilið í röð.
Geir hefur einnig gefist upp á því
að koma flokki sínum í nýja ríkis-
stjórn með einhverjum hinna flokk-
anna, t.d. Samfylkingunni sem er
vaxandi stuðningur við í báðum
flokkum.
Geir er um leið að mynda fleiri
bandalög með því að flýja í skjól
Framsóknar af ótta við að lenda með
flokk sinn utan ríkisstjórnar. Hann
er t.d. svo gott sem að reka stjórnar-
andstæðuna saman í ríkisstjórn þar
sem flest bendir til að hræðslubanda-
lag hægriflokkanna falli eða nái svo
naumum meirihluta að hann dugi
ekki til stjórnarmyndunar. Þá er
Geir með afglöpum sínum og endur-
nýjuðum helmingaskiptum búinn
að einangra Sjálfstæðisflokkinn
frá því að mynda nýja stjórn með
öðrum flokki en Framsókn. Furðu-
leg framganga það og nokkuð aumt
að sjá á eftir Geir Haarde hrekjast í
hræðslubandalag við Framsókn út
af skorti á pólitísku sjálfstrausti og
ótta við Samfylkinguna.
Hörðustu kosningar í áratugi
Kosningarnar næsta vor verða með
þeim hörðustu í áratugi ef marka
má átkökin í aðdragana þeirra. Með
hræðslubandalaginu skerpast einnig
línurnar þar sem valið stendur á
milli banðalags hægri flokkanna og
Samfylkingarinnar. Því held ég að
Geir hafi gert Samfylkingunni mik-
inn greiða í óttaslegnu Framsóknar-
fálminu. Hún er sem breiðfylking
jafnaðarmanna valkosturinn við
valdabandalag hægriflokkanna
og sem slík tilbúin til að leiða land-
stjórnina til framtíðar. Öflugt starf
og stefnumótun innan Samfylking-
arinnar síðustu sex árin á vettvangi
sveitarstjórna og landsmála skilar
flokknum miklum ávinningi og for-
skoti inn í spennandi kosningavetur.
Pólitísku linunar á milli hræðslu-
bandalags hægri flokkanna og
Samfylkingarinnar eru einnig
mjög skýrar. Það verður kosið um
framtíðarstefnuna í atvinnumálum
þjóðarinnar. Stóriðjustefnu hægri
flokkanna eða atvinnustefnu jafn-
aðarmanna sem grundvallast á
menntun og þekkingariðnaði hvers
konar. Auk skynsamlegrar nýtingar
á auðlindum samfélagsins. Áhersl-
urnar eiga ekki að vera á móti
stóriðju og virkjunum heldur með
menntun og hátækni, þar sem hóf-
stillt og skynsamleg uppbygging á
stórðju er til staðar en ekki mál mál-
anna og það eina sem stjórnvöldum
dettur í hug.
Kostirnir á milli jafnaðarmanna
og hægri flokkanna hafa aldrei verið
eins skýrir. Svo bjó Geir um hnút-
ana um helgina með endurnýjuðu
hræðslubandalagi um 50/50 býtti á
öllu milli himins og jarðar.
Þetta verður gott vor.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
Mtí þegar framsóknarstormurinn er
genginn niður og menn geta farið
að átta sig á tjóninu sii
ismenn eftir með sárt ennið
enda fátt eins fúlt í slíku fár-
viðri en að sitja eftir umhverfis-
ráðherralaus. Sigríður Anna
Þórðardóttir hefur fengið fal-
leg eftirmæli í fjölmiðlum frá því að tilkynnt
var um hrókeringarnar í ríkisstjórnin'ni en með
brotthvarfi hennar tír þessu heita sæti hafa
sjálfstæðismenn misst alla von um að hampa
hægri-grænum áherslum í þessum málaflokki.
Fram til þessa hafa ríkisstjórnarflokkarnir litið
á umhverfisráðuneytið sem hverja aðra skipti-
mynt en með ört vaxandi vinsældum grænna
áherslna verður sífellt erfiðara fyrir flokkana
að hundsa möguleg áhrif aðgerða þeirra á nátt-
'úrulögmálin... og tírslit kosnfrt^BÍ
Prátt fyrir að eftirmaður Sigríðar
Önnu í embætti hafi ekki langan
tfma til að koma sínum áherslum í
framkvæmd, og muni vafalaust eiga erfitt
með að samþætta þær við
áherslur rikisstjórnarinnar í
öðrum efnum, er full ástæða
til að búast við góðum hlutum
frá Jónínu Bjartmarz sem var
tilbtíin þegar vorið kallaði. Það
er alltaf fagnaðarefni þegar konum er hleypt
að kötlunum, nægt er ójafnvægi valdskipting-
arinnar samt, en Jónína hefur svo sannarlega
haldið sínum samflokksmönnum við efnið og
það hefði verið allverulega erfitt að ganga
framhjá henni í þetta skiptið. Hvort hún muni
sverja sig í ættir við aðrar framsóknarkonur
skal ósagt látið að sinni en Jónína hefurfram
á haustið til að gera gæfumuninn. Vonandi
nægir henni þetta örstutta pólitíska sumar til
að stimpla sig varanlega inn i umhverfismálin
og marka sér dýpri spor en forverar hennar,
sveifla haka og rækta nýjan skóg.
Petta hafa verið erfiðir tímar fyrir ríkis-
stjórnarflokkana en þessirsviptivindar
sem skilað hafa mönnum inn og út úr
ríkisstjórn hafa verið nefndir ýmsum nöfnum
síðustu daga. Ein tilgátan er sú að tilfærslur
Framsóknarflokksins séu ekkert annað en
spilun á sérstakt punktakerfi. Þannig þarf hver
breyting að vigta töluvert og skila sér fyrir sem
flesta þingmenn. Punktakerflð, sem i daglegu
tali hefur gengið undir heitinu eftirlaunafrum-
varpið, jafnvel eftirað það hlaut lagagildi, þykir
með velheppnuðustu aðgerðum seinni ára enda
ku það skila óbreyttum þingmönnum töluverðu
þó þeir sitji bara skamma stund í stólunum.
:ja sjálfstæð-