blaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 18
22 I ÍPRÓTTIR
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaðiö
Um afleiðingar óumflýjanlegs
sigurs Bandaríkjanna á HM
Þessir Hollendingar þyrftu að klæðast bláu en ekki appelsínugulu væru þeir að styðja sameiginlegt landslið ESB.
Bandaríkin hefja leik á HM í dag
og mæta þeir harðsnúnu liði Tékka.
Þrátt fyrir ólíka stöðu á alþjóðavett-
vangi eru þjóðirnar tvær tengdar
órjúfanlegum böndum en þau eru
ekki síst tilkomin vegna þess að
uppáhaldsdrykkur Bandaríkja-
manna er afskræming á annars
ágætum tékkneskum bjór. Auk þess
er það til marks um náin tengsl
ríkjanna að Bandaríkin hafa fengið
Tékka í stól utanríkisráðherra, Ma-
deleine Albright, sem og einn höf-
uðsnilling bandarískrar menningar
á 20. öldinni, Frank Zappa, en bæði
eru af tékkneskum ættum.
Fæstir búast við að bandaríska
liðið afreki mikið á HM. Það þykir
helst marktækt við liðið að leik-
menn þess eru flestir þindarlausir.
Hins vegar eru Tékkar með gott lið
og eru til alls líklegir með kempur
eins og Pavel Nedved og Tomas Ros-
icky innanborðs.
Þrátt fyrir að ekki sé búist við
miklu af Bandaríkjunum er það
óumflýjanleg staðreynd að þeir
muni sigra HM í náinni framtíð.
Knattspyrnuáhugi fer vaxandi dag
frá degi vestan hafs og líkt og Banda-
ríkjamenn drottna yfir flestum
íþróttagreinum á alþjóðavettvangi
eru allar líkur á því knattspyrnan
verði næsta fórnarlamb þeirra.
Margir stjórnmálafræðingar og
sérfræðingar um Evrópusamrun-
ann telja að sigur Bandaríkjanna á
HM yrði slíkt áfall fyrir evrópska
knattspyrnu að fólk myndi hrein-
lega krefjast að Evrópusambandið
myndi stíga skrefið til fulls og verða
að formlegu sambandsriki með sam-
eiginlegt landslið.
Það er viðbúið að landslið Evr-
ópusambandsins yrði alla jafna
firnasterkt og til alls líklegt. Þar
sem að slikt lið þyrfti að keppa við
lönd eins og Island, Noreg og Liech-
tenstein í undakeppninni er næsta
vist að það myndi ekki eiga í erfið-
leikum með að tryggja sér sæti í
lokakeppninni. Reyndar er hugsan-
legt að EFTA-ríkin myndu bregðast
við þessari þróun með því að sam-
eina sín landslið en það er önnur
saga sem er óþarfi að rekja. Hins
vegar er tilhugsunin um leik ESB og
EFTA á Laugardalsvelli óneitanlega
skemmtileg.
Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn
hafa ekki enn orðið heimsmeistarar
í knattspyrnu og sameiginlegt lands-
lið Evrópusambandsins er ekki enn
í burðarliðnum fékk Blaðið til sín
nokkra sérfræðinga til þess að bolla-
leggja um hvernig slikt landslið yrði
skipað tæki það þátt í HM í ár.
Leikaðferð: Auðvitað verður
gríðarlega erfitt fyrir aðildarríki
Evrópusambansins að koma sér
saman um leikkerfi. Hinsvegar er
líklegt að niðurstaðan verði 4-4-1-1.
Þjálfari: Klaus Toppmöller, það
hreinlega blasir við
að maður með svo
frábært nafn eigi að
gegna mikilvægu
hlutverki fyrir Evr-
ópusambandið. Þar
af leiðandi er Topp-
möller hið augljósa
val í þjálfarastöðuna.
Markmaður: Það er enginn betri í
markinu i dag en Tékk-
inn Petr Cech. Nafni
hans svipar líka til
nafns föðurlandsins
og það er alltaf líldegt
til vinsælda, samanber
Stefán íslandi.
Miðverðir: I þessa stöðu eru margir
kallaðir en fáir út-
valdir. Það væri með
öllu ótækt að stilla
uppi varnarlínu án
þess að vera með Itala
um borð. Klárlega er
Fabio Cannavaro
maðurinn til að taka
það hlutverk að sér. Með honum i
varnarmúrnun verður Finninn geð-
þekki Sami Hyypia.
Séfræðingar Blaðsins
nefndu einnig Jamie
Carragher en gátu
ekki komið sér saman
um hvort að Liverpool
borg tilheyri raunverulega Evrópu
og því kom hann ekki til greina á
endanum.
Bakverðir: Góðir vinstri bakverðir
eru hinir hvítu hrafnar
knattspyrnunnar. Þeir
eru ákaflega sjaldgæfir,
ekki síst á meginlandi
Evrópu. I ljósi þessa er
Englendingurinn As-
hley Cole hið augljósa
val í þá stöðu. Frakk-
inn William Gallas
vill alla jafna leika í
hjarta varnarinnar en
er einnig ansi góður í
stöðu hægri bakvarðar.
írinn Steve Finnan kemur einnig
til greina, en það er talið honum til
tekna að hafa átt frábært
tímabil fyrir Liverpool I
auk þess sem hann þykir K' ' J
firnalíkur bandarísku
leikkonunni Hillary |
Swank, sem er kostur.
Vængmenn: Það blasir við að stjórn-
mál munu ávallt leika stórt hlutverk
þegar kemur að því að velja sameig-
inlegt landslið Evr-
ópusambandsins.
Ljóst er að Miðjarð-
arhafslöndin í ESB
munu gera tilkall til
stöðu vinstri væng-
manns. En þrátt
fyrir kröfur ltala,
Spánverja og Frakka
eru sérfræðingar Blaðsins á því að
þá stöðu muni Portúgalinn Christi-
ano Ronaldo skipa. Ákvörðunin er
ekki síst tekin vegna
þess að hannfærþað
hlutverk að skipta
um kanta við Hol-
lendinginn Arjen
Robben í leikkerfi
liðsins. Valið á Rob-
ben á hægri kantinn
er vissulega umdeilanlegt en það
er ómögulegt að vera með sameig-
inlegt landslið ESB án þess að hafa
Hollending sem rústar móralnum
í aðdraganda stórmóts. Robben er
kjörinn til þess.
Miðjumenn og leikstjórnendur:
Þjóðverjar hafa löngum
haft mikla þörf til þess
að stjórna Evrópu.
Því er við hæfi að Mi-
chael Ballack fái það
hlutverk að stjórna
leik liðsins. Þjóðverjar
hafa einnig haft ýmsar
hugmyndir um hvernig landamæri
Mitteleuropa eigi að liggja. Það er
því einnig vel við hæfi að Tékkinn
Pavel Nedved sjái um miðjuspilið
með Ballack.
Vissulega kom
Englendingur-
innStevenGerr-
ard til greina en
sökum þess að
maðurinn getur gert nánast allt
eru allar líkur að hann muni ekki
gefa kost á sér sökum þess að hann
verður upptekinn við önnur verk-
efni. Líklegt er að hann muni taka
að sér að stýra friðarferlinu á milli
ísraela og Palestínumanna.
Maðurinn í „holunni“ og „ör-
lagalúðinn“: Toppmöller mun
kjósa að hafa
einn mann í
frjálsu hlut-
verk mitt á
milli miðju
og sóknar.
Enginn er
betur til þess
fallinn en Englendingurinn Wayne
Rooney. Um hæfileika hans efast
enginn auk þess er bráðnauðsyn-
legt að hafa Englending í liðinu sem
tekur að sér hlutverk „örlagalúðans"
og brennir af vítaspyrnu sem kostar
liðið titilinn.
Framherji: Þrátt fyrir að allir sér-
fræðingar Blaðsins séu sammála um
að Thierry Henry ætti að skipa
þessa stöðu urðu þeir sammála um
að það yrði aldrei sátt um að vera
með tvo Frakka í byrjunarliðinu en
aðeins einn Þjóðaverja. Þess vegna
er ljóst að fáir henta betur í að leiða
sóknina en Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan er stórmenni sem sameinar
bæði sænska velferðarmódelið og
tengingu Evrópu við hinn íslamska
heim. Hann er líka ansi góður
framherji.
Varamenn: Liðið þarf einn Pólverja
og þar af leiðinni verður Jerzey Du-
dek varamarkmaður. Á bekknum
verða einnig Englendingurinn
David Beckham, Spánverjinn
Pablo Ibanez, Frakkinn Thierry
Henry og svo Skotinn Duncan
Ferguson, enda er nauðsynlegt að
hafa einn mannasættir í hópnum.