blaðið - 12.06.2006, Page 22
fiajMSÝMils/G
J*r
ÁLFABAKKA
SAMmtfk
POSEIDON
POSEIDON VIP
SHE'STHEMAN
X-MEN3
AMERICAN DREAMS
SHAGGYDOG
Ml:3
SCARY MOVIE 4
KL 3:40-5584-10:10
KL 3:40-550-8-10:10
KL 350-5:45-8-10:20
KL 350-5:45-8-10:20
KL 550-10:10
KL 3:40-550
KL 8-1050
KL4-8
KRINGLUNNI
IULUNNI 'VB
SHE'STHEMAN KL 5:45-8-10:15
POSEIDON KL 6-8-10:10
AMEKICAN DREAMZ KL8
Ml:3 KL 10:10
SHAGGYDOG KL6
KEFLAVlK
SAMmtmk
POSEIDON KL 8
X-MEN 3 KL8
THE DA VINCICODE KL 10:10
THEINSIDE MAN KL10
AKUREYRI
IUKCTKI
SHE'STHEMAN
POSEiDON
KL8-10
KL8-10
POSEIDON KL 7-9-11
THE DA VINCI CODE KL 6-8-10
SHAGGYDOG KL6-8
Ml:3 KL 5:30-8-10
J
smttRn^jBíá
THE OMEN Bi 16ífiA
W. 550,8 og 1050
X-MEN 3Ð112ÁRA
Id. 5.40,6,8,8.30,1020 og 10.50
DAVINCICODE
kl. 5,8og11 B114ÁRA
DAVINCICODE ILÚXUS
kl. 5,8og 11 B.1.14ÁRA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
uaso
(SÖLD2
W.4ÍSLENSKTTAL
REGflBOGinn
THEOMENB116ÁRA
kJ. 5.30,8 og 10.30
16-BLOCKS
W. 5.50,8 og 10.10 B114 ARA
DA VINCICODE
W.6og9 B114ÁRA
PRIME
W. 8
RAUÐHETTA BISKT TAL
W. 10.15
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
W. 6
THE OMEN B116ARA
W. 5.30,8 og 1020
16-BLOCKS
W. 6,8og10.10Bl14ÁRA
X-MEN3
W. 8og 10.10B.L12ÁRA
INSIDE MAN
W. 5.45B116ÁRA
JHíi/tj, u tii i j 1
THE OMEN Bi 16 ARA
W.8og 10.10
16-BLOCKS
kl.6og8Bi14ÁfiA
X-MEN3BÍ12ÁRA
W.10
DA1/INCIC0DE
W.5BÍ14ARA
PD Dolby /00/
26 I AFPREYING
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaðÍA
Tólið rumskar
eftir vœran svefn
Tónlist
Jón Þór Pétursson
Tool-70.000 Days
Jool Dissectional
Hljómsveitin Tool hefur sent frá sér
nýja plötu eftir fimm ára hlé. Platan
heitir ío.ooo Days. Síðasta plata
hljómsveitarinnar, Lateralus, fékk
frábæra dóma þegar hún kom út og
Tool á marga dygga aðdáendur sem
hafa beðið þessarar plötu með mik-
illi eftirvæntingu.
Hljómsveitina skipa þeir Mayn-
ard James Keenan, söngvari, Danny
Carey, trommuleikari, Justin Chanc-
ellor, gítarleikari, og Adam Jones, gít-
arleikari. Þetta er sjötta breiðskífa
sveitarinnar og hljómar við fyrstu
hlustun lágstemmdari í samanburði
við fyrri plötur. Á íslenskum útvarps-
stöðvum hefur lagið „Vicarious" að-
allega heyrst en það er fyrsta lag plöt-
unnar og æði gott í þokkabót.
Vandmeðfarin mýkt
Aðdáendur verða væntanlega ekki
fyrir vonbrigðum með þessa plötu
en hún hefur reyndar ótrúlega margt
fram að færa. Á þann máta þarf ekki
að ræða sérstaldega um plötu fyrir
aðdáendur sem er einungis ein leið
til að orða það pent að manni þyki
þetta frekar slöpp plata.
ío.ooo Days er alls ekki slöpp
plata, þvert á móti þá virðast Tool-
meðlimir hafa nýtt tímann vel til
þess að þróa stíl sinn og lagasmíðar.
Það er kraftur á þessari plötu en það
er einnig að finna meiri mýkt en oft
áður. Þessi mýkt er vandmeðfarin og
margar rokkhljómsveitir sem ég hef
hlýtt á valda því illa. Tool vandar til
mýktarinnar þannig að hún verður
ekki tilgerðarleg og væmin. Það er
nefnilega það sem oft gerist þegar
rokkarar ætla að sýna á sér mjúku
hliðina.
Dregið úr krafti
Lagaútsetningar á þessari nýju plötu
eru afar vandaðar og er ég á köflum
bergnuminn af trommuleiknum
(ég er pínu veikur fyrir hressandi
trommuleik). Allur annar hljóðfæra-
leikur er þó frábær en það hefur
smávegis dregið úr kraftinum fyrir
meiri tilraunamennsku hvað heild-
ina varðar. Að mínu mati erþað virð-
ingarvert og tekst oftast vel til. Ég
er þó ekki viss um að þessi breyting
hugnist öllum jafn vel. Hljómsveitin
fer greinilega sínar leiðir þrátt fyrir
kröfur markaðarins. Þannig má
finna á plötunni að minnsta kosti
tvö lög sem eru á tólftu mínútu. Lög
sem seint verða talin útvarpsvæn,
eingöngu vegna lengdarinnar.
Þrusugóðar melódíur
Á heildina litið er þessi plata í alla
staði mjög góð. Ég hefði þó kosið
að fá aðeins meira rokk í tvennum
skilningi. 1 fyrsta lagi finnst mér
rólegheitin vera fullmikil á kostnað
kraftsins þó þær lagasmíðar séu
afar góðar. í öðru lagi er eins og
þeir Tool-meðlimir hafi stundum
verið að halda eitthvað aftur af sér.
Það eru þrusugóðar melódíur að
finna þarna en á köflum full meitl-
aðar. Lagasmíðarnar eru því helsti
styrkleiki plötunnar en á móti má
segja að þær dragi örlítið úr henni
vígtennurnar.
Mezzoforte spilar út um allar jarðir og hefur nú fengið til liðs við sig valinkunna tónlistarmenn,
Mezzoforte á Græna hattinum
Loksins fá Akureyringar og nær-
sveitungar tækifæri til að hlýða á
hina fornfrægu hljómsveit Mezzo-
forte en sveitin mun leika á einum
tónleikum á Græna hattinum.
Mezzoforte hefur verið á tónleika-
ferðalagi um heiminn að undan-
förnu. Sveitin hefur meðal annars
troðið upp í Indónesíu, á Norður-
löndum, Þýskalandi, Búlgaríu, Rúm-
eníu og í Sviss. Næstu daga heldur
sveitin til Ungverjalands þar sem
leikið verður í tveimur borgum.
Hljómsveitina Mezzoforte skipa
þeir Eyþór Gunnarsson, Jóhann Ás-
mundsson og Gunnlaugur Briem
en þeir hafa fengið til liðs við sig þá
Óskar Guðjónsson á saxafón, Seb-
astian Studnitzky á hljómborð og
trompet og gítarleikarann Bruno
Muller. Sveitin virðist vera í góðu
formi eins og gestir tónlistarhátíð-
arinnar Rite of Spring fengu meðal
annars að reyna í apríl á Nasa.
Stórir í Japan
Framundan er svo áframhald-
andi tónleikahald víða um heim.
Mezzoforte mun leika á Jazzhátíð á
Egilsstöðum þann 24. júní, á Norð-
urbryggju í Kaupmannahöfn um
miðjan júlí sem og á Ólafsvöku í Fær-
eyjum í lok júlí. Því næst er ferðinni
heitið til Úkraínu og síðar til Japan
og Kína en sveitin nýtur mikilla vin-
sælda í Asíu.
Miðasala hefst þriðjudaginn 13.
júní kl. 10 á midi.is og í verslunum
Skífunnar og verslunum BT á Akur-
eyri, Selfossi og Egilsstöðum. Miða-
verð er aðeins 2000 kr.
Under The
Iron Sea
Úr hafdjúpum Keane kemur
glæsileg 12 laga plata sem inni-
heldur meðal annars lögin
Atlantic og Is It Any Wonder?
1 dag kemur út ný plata frá
íslandsvinunum í Keane en
þeir tróðu svo eftirminnilega
upp í Hafnarhúsinu á Air-
waves-hátiðinni 2004. Nýja
platan heitir Under The Iron
Sea og fylgir hljómsveitin
þannig eftir plötunni Hopes
Ánd Fears, frá árinu 2004, en
hún fékk frábærar viðtökur.
Það tók greinilega á sam-
starfið við gerð nýju plötunnar
því á tímabili stefndi í að hljóm-
sveitin Keane myndi hætta, slík
var togstreitan. Til allra lukku
var það á endanum tónlistin
sem hélt þeim saman og út-
koman er Under The Iron Sea.
Á plötunni eru 12 lög en
fyrsta smáskífa plötunnar Is
It Any Wonder? er komin út
og fór lagið beint í þriðja sæti
breska vinsældalistans í vikunni.
Einnig hefur lagið Atlantic
verið fáanlegt til niðurhals á
Netinu. DVD-diskur verður
fáanlegur, ásamt plötunni sjálfri,
sem inniheldur stuttmynd,
myndbönd og hljómleikaupp-
tökur með hljómsveitinni.
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
20.00-Tónlist
Roger Waters
Egilshöll
Midi.is| Roger Waters, sem var
meðal stofnenda hinnar frægu
rokkhljómsveitar Pink Floyd og
helsti lagasmiður hennar, flytur
meistaraverkið, The Dark Side
Of The Moon í fullri lengd.
20.00 - Leiklist
Fullkomið brúðkaup
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
Síðustu forvöð - Myndlist
Eiríkur Smith, listmálari, sýnir
málverk sín í menningarsal
Hrafnistu í Hafnarfirði. Sýning-
unni líkur í dag og það er opið
allan daginn.
Hrafnista Hafnafirði, Hraun-
vangi 7