blaðið - 12.06.2006, Qupperneq 23
blaöiö MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006
AFÞREYING I 27
■ Takk fyrir spjallið: Gunnar Ólason
Vildi vera lokaður inni i hljóð-
veri að taka upp eigin sólóplötu
Hinn geðþekki gítarleikari Skítamórals, Gunnar Ólason, vinnur þessa dagana á fasteignasölunni Stórborg. Hann hefur þó ekki
lagt gítarinn á hilluna því Skítamórall mun leggja land undir fót og spila víðs vegar um landið í sumar. Ennfremur spilar hann
alla fimmtudaga í sumar á Hverfisbarnum ásamt Sigurjóni Brink, þar sem þeir bjóða upp á létta órafmagnaða stemningu.
Hvaða bók hafði mikil áhrif á þig?
„Ég las bókina „Hann var kallaður
Þetta“. Hún fjallar um strák sem er
komið fram við eins og úrhrak af
mömmu sinni. Ég gafst upp á lesn-
ingunni, ég varð svo reiður.u
Hver er mest auðmýkjandi upplif-
un sem þú hefur orðið fyrir?
„Þegar ég sá nýfæddan frænda
minn og nafna, Gunnar Franz, i
fyrsta skipti og frænku mína sem
fæddist í lok maí síðastliðinn."
Uppáhalds ástarsena í kvikmynd?
„Notebook kom á óvart..
Hvaða frægu persónu hefur þér
verið Ifkt við?
„Mér hefur verið líkt við Kiefer
Sutherland og einnig náunga sem
lék lækni í Judging Amy. Sá var víst
frændi Amy, en ég man ekki hvað
hann heitir."
Versti maturinn?
„Ég borða allt... alveg satt... allt.
En versti matur í minningunni eru
hjörtu og lifur.“
Besta eða misheppnaðasta lygi
sem þú hefur spunnið upp?
„Ég þarf iðulega að „ljúga“ að kær-
ustunni minni, þegar það eru af-
mæli og þess háttar. Það hefur tekist
vel hingað til.“
Ef þú gætir verið hvar sem er í
dag?
„Þá myndi ég vilja vera lokaður
inni í hljóðveri að taka upp mína
eigin sólóplötu.“
Fimm hlutir sem þú gætir aldrei
verið án ?
„Rafmagnsgítarinn minn, kassagít-
arinn, gítarstrengirogallarStarwars
og Lord of the Rings myndirnar."
Mynd/WWW.GASSI.IS
Erlíf eftir dauðann?
„Já, ég trúi því innilega... annars
væri þetta hálf tilgangslaust.“
Ömurlegasta starf sem þú hefur
verið í?
„Það var í unglingavinnunni, sum-
arið 1990. Eins og glöggir lesendur
taka eflaust eftir þá var þetta ár
haldin heimsmeistarakeppni í fót-
bolta. Fyrir utan að finnast þetta leið-
inleg vinna, á þeim tíma, þá þurfti
ég líka að berjast við flokkstjórann
um að fá lengri matarhlé og kaffi til
að horfa á sem flesta leiki á HM. Það
var vinna út af fyrir sig.“
Hvaða iykt finnst þér góð?
„Þegar sumarið er að ganga í garð.
Og flest öll matarlykt.“
Nefndu tvo kosti og tvo galla.
„Nákvæmur og þolinmóður. Þver
og þrjóskur."
Nylon heima á íslandi
á þjóðhátíðardaginn
Margt hefur breyst hjá hinum
fögru Nylon snótum frá þvi að
þær hittust fyrst í prufu hjá
Einari Bárðarsyni. í dag eru þær
orðnar vel þekktar á erlendri
grundu og er gaman að fylgj-
ast með þessum upprennandi
stjörnum. Þær hvika þó ekki frá
hefðinni og troða upp víða um
landið þann 17. júní eins og hin
síðari ár.
Þær Steinunn, Alma, Klara og Em-
ilía sem skipa Nylon flokkinn hafa
haft í nógu að snúast síðan um ára-
mót. Eins og margir vita hafa þær
dvalið stærstan hluta ársins í Bret-
landi á tónleikaferð með Westlife og
stúlknasveitinni Girls Aloud. Þær
komu heim í stutt frí í síðustu viku
eftir að hafa spilað á 32 tónleikum
og fyrir fleiri en 350.000 áhorfendur.
Á laugardaginn 17. júní hafa stelp-
urnar ákveðið að koma fram á fimm
stöðum á víð og dreif um suðvestur
orn landsins. Mikil eftirvænting er
hjá stúlkunum því Nylon hefur ekki
komið fram hérna heima síðan um
áramótin.
A ferð og flugi
Stúlkurnar fara til London í við-
tal hjá OK blaðinu í vikunni en til
stóð að það yrði tekið á Islandi. Það
breyttist þó á síðustu stundu eins
og svo margt í tónlistarbransanum.
Við heimkomuna býður stúlkn-
anna hópur heimildamyndargerð-
armanna sem vinna að mynd um
hljómsveitina. Þær fljúga síðan út á
föstudag til að spila í afmæli Univer-
sal útgáfunnar í Bretlandi og koma
heim snemma daginn eftir til að
koma fram víðs vegar um landið á
þjóðhátíðardegi íslendinga.
Framundan hjá Nylon
Stelpurnar halda svo áfram að
kynna lagið sitt Losing a Friend
fyrir breskum fjölmiðlum en það
er vinna sem staðið hefur síðan í
febrúar og mun halda áfram þangað
til smáskífan með laginu kemur út
um mánaðamótin. Myndbandið
við lagið hefur verið mikið spilað á
breskum sjónvarpsstöðvum og út-
varpstöðvar víðs vegar um Bretland
hafa tekið lagið í spilun. Þess má
geta að lagið hefur fengið feikilega
góð viðbrögð í Dublin í Irlandi þar
sem nánast allar útvarpsstöðvar
borgarinnar hafa spilað það við
góðar unditektir hliustendái
Sir Sean Connery
heiðraður
Ameríska kvikmyndaakademían
hefur heiðrað Sean Connery fyrir
ævistarf hans og framlag til kvik-
mynda. Leikstjórinn George Lucas
og leikarinn Mike Myers fögnuðu
Connery innilega og haft var eftir
Lucas að hann værihæfileikaríkur
og einstaklega mikill fagmaður.
Sean Connery er 34. einstakling-
urinn til að hljóta þessi heiðurs-
verðlaun og kemst þá í flokk með
fólki á borð við Bette Davis, Alfred
Hitchcock, Sidney Poitier, Eliza-
beth Taylor og Clint Eastwood svo
einhverjir séu nefndir.
Ódauðlegur 007
Connery hefur leikið í fjölda kvik-
mynda á sínum langa ferli og má
þar nefna Indiana Jones and the
Last Crusade, The Hunt for Red
October og The Untouchables.
Hans verður sennilega hvað lengst
minnst fyrir hlutverk sitt sem
njósnarinn James Bond.
•qj.'U 5J •úi boUmemóilH
Sir Sean Connery mætir á verðlauna-
afhendingu með eiginkonu sinni
Micheline.