blaðið - 12.06.2006, Qupperneq 26
30 I FÓLK
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaöiö
SMÁ
borgarinn
STÖÐUGLEIKINN
Smáborgarinn hefur löngum furð-
að sig á því að stöðugleiki hafi tryggt
Sjálfstæðisflokknum og Framsóknar-
flokknum meirihlutastjórn síðastliðin
kjörtímabil. Vinkona Smáborgarans sem
um skeið vann að kosningarannsóknum
fullyrðir að þegar (slendingar hafi verið
spurðir af hverju þeir styðji núverandi
ríkisstjórn hafi þeir svarað allir sem einn:
Stöðugleikil
Nú má það svo sem vel vera að Smá-
borgarinn sé ekki með puttann á þjóðar-
púlsinum en honum hefur þótt sem svo
að stöðugleiki hafi ekki beinlínis verið
einkennandi fyrir stjómarsamstarfið síð-
ustu árin. Endalaus stólaskipti og út af
skiptingar hafa gert stjórnarsamstarfið
hálflamað á köflum, svo ekki sé minnst
á stöðuveitingar út í þjóðfélagið endrum
og eins. Það hefur þó gerst nokkuð stöð-
ugt.
Undanfarið hefur leiðindasuð statt, já
og stöðugt, truflað tilveru Smáborgarans.
Þess vegna var Smáborgarinn ákaflega
feginn þegar Framsóknarflokkurinn fann
lausn á sínum málum, fram á haustið að
minnsta kosti. Þetta stanslausa suð allan
daginn og endalausar fregnir af nýjum
framsóknarfíeskóum var gersamlega að
gera út af við almennt friðsæla tilveru
Smáborgarans svo hann fagnaði því með
sjálfum sér þegar mennsáu loks hylla und-
irfarsæla lausn á vandræðaganginum.
Vissulega hvarflar það að Smáborgar-
anum að ráðherrastólana hljóti að þurfa
að endurnýja hvað á hverju. Eitthvað
hljóta gormarnir að vera farnir að gefa
sig úr því menn spretta stöðugt upp úr
stólunum með jafn skyndilegum hætti
og raun ber vitni. Það getur vel skýrt það
að fleiri konur komist nú að í ríkisstjórn
því eins og alkunna er hafa konur til að
bera aukna mýkt sem hefur mikið varnar-
gildi gagnvart óstýrilátum gormum.
Það má svo sem vel vera að sívaxandi
ofvirkni og athyglisbrestur skýri betur
þennan mikla brest sem hleypur í ein-
staka ráðherra með stöðugu millibili.
Hvað sem öðru líður telur Smáborgar-
inn að umliðnir mánuðir hljóti að verða
stjórnarflokkunum fjötur um fót í kom-
andi kosninum. Sá stóri hópur kjósenda
sem gefið hefur stjórnarflokkunum at-
kvæði sitt á undangengnum árum hlýtur
og velta vöngum yfir þvi hvort stöðugleik-
inn sé eitthvað sem raunverulega er eft-
irsóknarvert. Getur þetta orðið eitthvað
annað en stöðugt vesen?
HVAÐ FINNST ÞÉR?
íslenski þorskurinn
Fagnaðir þú sjómannadeginum?
„Já við gerum það árlega við þorskarnir. Það má segja að þetta sé
frídagur okkar þar sem flest skipin eru í landi. Það er því alltaf
ákveðinn léttir sem fylgir þessum degi. Við þurfum þá ekki sýknt
og heilagt að vera að fela okkur fyrir þessum fjárans veiðarfærum.“
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í gær
Slysavarnafélagið Landsbjörg bauð þáttakendum f Play station í skottinu á sérútbúnum Play station bíl dróg að sér fjölda
hátíðarhöldum á Sjómannadaginn í vonsæla siglingu. áhugasamra ungmenna á sportbílasýningu í Laugardalshöll um helgina.
riEg vildi kyrkja
Timbaland"
Söngkonan Nelly Furtado gekk ekki
vel að vinna með framleiðandanum
Timbaland að nýju plötinni sinni
Loose sem kemur út á Islandi í dag.
Nelly greindi frá því nýlega að hún
hefði viljað kyrkja rapparann vegna
þess að samvinna þeirra
gekk ekki vel.
Það var rafmagnað
andrúmsloftið í stúdíó-
inu á meðan á upptök-
um stóð og alltaf þegar
Timbaland leiddist eða
var ósammála söngkon-
unni gekk hann einfald-
lega út og skyldi söngkon-
una eftir í sárum. Nelly
viðurkennir fúslega að
Timbaland sé snilling-
ur í tónlist og upptöku
tónlistar en segir enn-
fremur að hann þurfi
að vinna verulega í sín-
um mannlegu samskipt-
um og þurfi að leita til
sálfræðings. Nelly segir
að hann hafi mjög litla
þolinmæði og marga
galla en ef hún ætli að vinna með
hæfileikaríkum tónlistarmanni að
því að gera góða plötu geti það verið
þrautinni þyngri og að hún verið að
taka því.
8-18
C Jlm Ungor/dlst. by Unlted Medla, 2001
eftir Jim Unger
Ég er bara með fimmkall. Ég ætla að fá einn bita af þessu.
HEYRST HEFUR...
Pað hefur vart farið framhjá
þeim sem lesa dagblöðin
að töluverð hægrisveifla er á
hinum ýmsu dálkum, eins og
þessum, þar sem velt er vöng-
um yfir mönnum og málefnum.
Gamli fréttahaukurinn Jóhann
Hauksson, sem vart
hefur verið málaður
bláum litum hingað
til, hefur nú verið
skotinn niður af
umbótasinnaðri
hægrivæðingu blaðanna en
honum hefur verið legið á hálsi
af ritstjóra og fréttastjóra Frétta-
blaðsins að greina ekki á milli
pólitískra skoðana sinna og
fréttaskrifa i blaðinu. Málið er
víst enn ófrágeng-
ið en það verður
forvitnilegt að
heyra af því hvort
dálkaskrif fleiri
manna fari illa
með ritstjórnar-
stefnu Þorsteins Pálssonar.
Mýráðinn aðalritstjóri
Fróða, Mikael Torfason,
fyrrverandi ritstjóri DV, kem-
ur landsmönnum fyrir sjón-
ir sem iðrandi syndari, sem
litla ef nokkra ábyrgð bar á
ritstjórnarstefnu
hins alræmda og
andaða DV, í við-
tali við Kolbrúnu
Bergþórsdóttur
í Blaðinu um
helgina. Nokk-
uð önnur mynd
er dregin upp af kappanum
í síðasta tölublaði Mannlífs
ar sem blaðamaðurinn Páll
sgeir Ásgeirsson fjallar með
ítarlegum hætti um átaka-
sögu DV frá því að blaðið var
keypt úr gjaldþrotarústum
af Gunnari Smára Egilssyni.
Segja kunnugir að sú mynd
sem Páll Ásgeir dregur upp sé
öllu líkari raunveruleikanum
en það sem Mikael sjálfur kýs
að draga fram í viðtalinu um
helgina.
Iundanfarasveitarstjórnakosn-
inganna var gamli R-listinn
mikið gagnrýndur af sjálfstæð-
ismönnum fyrir að skipta um
mann í brúnni á ögurstundu
sem og tíð borgarstjórastóla-
skipti í borgarstjórnartíð hstans.
Það er Ijóst að ekki ber að taka
þeirri gagnrýni sem léttvæg-
um pólitískum áróðri heldur
öllu fremur sem reynslu þeirra
sem vel til þekkja og tilraun til
að miðla af brunni sínum. Sjálf-
stæðismenn í ríkisstjórn hafa
nú enn og aftur farið í partíleik-
inn með framsóknarmönnum
þar sem einum stóli er kippt
í burtu á meðan ritúallinn er
dansaður í takt við rythmann.
Sigríður Anna pompaði í gólfið
að þessu sinni og þótti sárt en
það var líklega bara það sem
sjálfstæðismenn voru að benda
kollegum sínum vinstra megin
á að hætta væri á...
Sjálfstæðismenn í borginni
eru víst alveg jafn pirraðir
enda fuðraði sigur-
vímaneftirborgar-
stjórnarmyndun
með Birni Inga
fljótt upp þegar í
ljós kom að búið
var að skipta helstu nefndum
og sætum virkilega bróðurlega
á milli flokkanna. Bræðralagið
er víst það eina sem eftir á að
reyna segja þeir sem gefist hafa
upp á lýðræði og jafnrétti og það
verður forvitnilegt að sjá hvort
þessi tilraun skili sér í borginni.
Margir hafa lýst þeirri skoðun
sinni að þetta bandalag endur-
spegli síst vilja fólksins.