blaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 26

blaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 26
34 I AFÞREYING ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 blaöÍÓ ÁLFABAKKA SUTHER KL 3:40-5^0-8-10:10 SUTHERVIP KL 3:40-550-8-10:10 KEEPING MUM KL 350-5:4^8-10^0 SHE'STHEMAN KL 350-5:454-10:20 POSEIDON KL 550-8-10:10 AMERICAN D. KL550 SHAGGYDOG KLl-40 MJ5 KL 8-1050 SCAKYMOY1E4 KLl-40 KRINGLUNNI SUTHER KL 6-8:15-10:30 SHE'STHEMAN KL 6-8:15 POSEIDON KL 6-8:15-10:30 Ml:3 KL 10:30 KEFLAVÍK KEEPING MUM KL8 16 BL0CKS KLlOtlO POSEIDON KL8 THE DA VINCICODE KL10 AKUREYRI LUKtY Kl -«■ SAMEmmi SUTHER KL.8-10 SHE'STHEMAN KL8 POSEIDON KL10 KEEPING MUM KL 6-8:20-10:30 POSEIDON KL 6:10-8:20-10:30 THE DAVINCICODE KL 6-8-10 SHAGGYDOG KL6 Ml:3 KL. 5:30-8-10:30 \ J 400 kr. f bió! í Gikfir á aHar sýningar 1 merktar með i raaðul RV M. 3.40, 5.50,8 og 10.10 THE OMEN B.L 16ARA kl. 5.30,8 og 10.30 X-MEN 3B.I.12ÁRA kl. 5.40,8 og 10.20 DA VINCICODE kl. 5og8B.!.14ÁRA DA VINCI C0DE ILÚXUS kl. 5 og 8 B.M4ÁRA RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL kl. 3.40 ÍSÖLD2ÍSLENSKTTAL kl. 3.40 REcnBOEinn RV kl. 5.50,8 og 10.10 TAKETHE LEAD kl. 5.30,8 og 10.30 THE OMENB.1.16ARA kl.8og10.30 DAVINCICODE kl. 6 og 9 B.L14ÁRA RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL M.6 TAKETHELEAD kl. 5.45,8 og 10.20 16-BLOCKS kl. 6,8og 10.108L 14ARA THE 0MENB.L16ARA kl. 8og 10.10 X-MEN 3 kl.6 B.L12ÁRA aTHEOMEN B.L16ÁRA X-MEN 3BJ.12ÁRA M.6 □3 Dotby /DD/ TRx tf bío.is Elska skaltu íjölskyldu þína SMÁAUGLÝSINGAR BLAÐSINS VANTAR MG HHUUPIASS SIMI: 510 37371 SMAAUGLYS1NGAR@BLADID.NET blaöió Kvikmyndir Jón Þór Pétursson RV Leikstjóri: Barry Sonnenfeld Aðalhlutverk: Robin Williams, Cheryl Hi- nes, Jeff Daniels og Kristin Chenoweth. Lengd: 98 mínútur Ástralía og Bandaríkin 2006 ★ ★ Ekki var búist við miklu aí Hoffman Robin Williams leikur í fjöl- skyldu- og gamanmyndinni RV (Runaway Vacation) sem fjallar um fjölskylduföðurinn Bob Munro er má muna fífil sinn fegurri. Myndin hefst á því að allt leikur í lyndi í fjölskyldunni en fljótlega er spólað fram í tímann og Bob er töluvert á skjön við sína eigin fjölskyldu. Hann er alltaf í vinnunni, börnin hans telja hann vera púkó og konan er ófullnægð eins og gefur að skilja því Bob er aldrei heima. Þetta plott verður einnig mjög skiljanlegt þegar það er sett í samhengi við bandaríska kvikmyndahefð og þau gildi sem Hollywood reynir að miðla. Bob Munro ákveður að fara með fjölskylduna í húsbílaferð eftir að vinnuveitandi hans skipar honum að aflýsa ferð til Hawaii með fjölskyldu sinni. Bob lýgur að fjölskyldunni og segir að þetta sé einungis fjölskyldu- frí þegar hún er í raun vinnuferð. Nánast allt sem getur farið úrskeiðis gerir það að sjálfsögðu og úr verður mikil hasarferð. A endanum þarf Bob að gera það upp við sig hvort sé mikilvægara: fjölskyldan eða vinnan. Pabbi úti, mamma inni Handritið sem slíkt er virkilega klisju- kennt. Pabbi vinnur of mikið, pabbi gerir eitthvað klikkað, pabbi sér hvað skiptir máli og hamingjan ein tekur við. Pabbi er að sjálfsögðu örlaga- Bob Munro ákveður að fara með fjölskylduna í frí á risastórum húsbíl valdur því konan er heimavinnandi og sér um börnin. í tilefni af bleika deginum í gær er þetta hressileg áminning um hvernig málin standa, að minnsta kosti á hvíta tjaldinu í Hollywood. Þessi eilífi skortur á frumlegri úrvinnslu er ótrúlega pirr- andi því með örlítið betri hugsun hefði verið hægt að gera þessa mynd að einhverju meira. Robin Williams er reyndar mjög skemmtilegur í myndinni og víða staðir í henni sem gáfu tilefni til að flissa. Hann dugar því miður bara ekki til að halda uppi heilli mynd. Of mikill hrollur Hollywood-hrollurinn er orðinn að sjálfstæðu hugtaki sem lýsir sérídram- atískum og væmnum atriðum. Eitt sinn þurfti ég nauðsynlega að nýta mér salernisaðstöðu og ég gleymi því aldrei þegar bert hold mitt snerti kalt stálið. Það var virkilega óþægilegur hrollur en hann kemst sennilega næst Hollywood-hrollinum. Myndin hefur þannig ýmislegan boðskap fram að færa og eru fjölskyldugildin þar efst á baugi. Samkvæmt myndinni á maður að eiga fjölskyldu og elska hana. Þá er einnig að finna sterkan boðskap þess að dæma fólk ekki fyrirfram, en Gorn- icke-fjölskyldan er í hlutverki hinnar ,sérstöku“ fjölskyldu. Til að byrja með forðast Munro-fjölskyldan hana en síðan rennur það upp fyrir þeim að þau eru gott fólk eins og flestir í heim- inum. Já, skrýtið fólk er svaka fyndið, sérstaklega hresst Suðurríkjafólk sem syngur og dansar en er fólk eins og við öll. Það er ein tegund atriða í banda- rískum gamanmyndum sem ég hef algjört óþol gagnvart. Það eru atriði sem tengjast því að einhver persóna lendir í slagsmálum við dýr. Eina slíka atriðið sem hefur gengið upp var þegar drápskanínan lét tií skarar skríða í Monty Python myndinni The Holy Grail. Varla er sú gamanmynd gerð í Ameríku sem hefur ekki að minnsta kosti eitt svona atriði og RV er þar engin undantekning. Það eina sem er verra en þetta fyrirbæri eru tal- andi dýr og talsett ungabörn. Það sem bjargar RV fyrir horn er skemmtilegt hlutverk Bob Munro sem er hnyttinn í tilsvörum og svona elskulegur auli. Nokkur skondin at- riði líta dagsins ljós en það er fátt í þessari mynd sem maður hefur ekki séð áður. Það verður þó að segjast að sem fjölskyldumynd er hún nokkuð frambærileg. jon@bladid.net Dustin Hoffman rifjar upp gamla tíma og tekst á við nýtt hlut- verk í mynd með Natalie Portman. Hinn gamalkunni og geðþekki grínleikari Dustin Hoffman, sem vinnur nú að gerð myndarinnar Mr. Magorium’s Wonder Em- porium, hélt hann hefði klúðrað tækifæri sínu þegar hann fór í áheyrnarpróf fyrir eina af fyrstu stóru myndunum sem hann lék í, The Graduate. Dustin Hoffman bjóst við því versta þegar hann gekk út úr leik- listarprufunni fyrir myndina sem gerði hann frægan. „Ég tók í höndina á einum starfsmannanna og út úr vasa mínum dutt allir lestarmiðarnir mínir. Starfsmaðurinn, sem sá um leikmyndina minnir mig, tók upp miðana, rétti mér þá og sagði: Gjörðu svo vel vinur, þú munt þurfa á þeim að halda,“ sagði Hoffman. Hann bjóst sem sagt ekki við miklu af leikar- anum og átti ekki von á því að hann fengi hlutverkið sem síðar gerði hann heimsfrægan. Hoffman fór fögrum orðum um líf sitt, langan kvikmyndaferil og Ósk- arsverðlaunin sem hann hefur unnið þegar hann varð tvöhundruðasti gesturinn í Inside The Actors Studio þættinum. Vinnur með Natalie Portman Nú er Dustin að taka upp nýja mynd, Mr. Magorium’s Wonder Emporium, þar sem hann leikur Edward Mag- orium sem er eigandi verslunarinnar Wonder Emporium. Magorium er ákaflega sérvitur og skrítinn gamall maður sem hefur átt þessa verslun lengi. Þegar hann deyr arfleiðir hann unga starfstúlku, Molly Mahoney, sem leikin er af Natalie Portman, að búðinni og þarf hún að taka við rekstrinum. Portman, sem sló í gegn í fyrstu myndinni sinni Léon, leikur mjög vandræðalega og óör- ugga stúlku sem á erfitt með að axla þessa ábyrgð. Upptökur ganga vel og gengur þeim Hoffman og Natalie Portman vel að vinna saman. Hvaðerað gerast? Blaðið vill endilega fjalla um atburði líðandi stundar. Sendu okkur línu á gerast@bladid.net. 09.00 - Börn í sumar verða leikvellir á vegum iTR opnir frá klukkan 09.00 til 16.30 fyrir 2-5 ára börn í hverfum borgarinnar. Þar er boðið upp á útivist og leik í öruggu umhverfi. Komugjald er 100 kr. Allir leikvellir Reykj aví kurborgar 16.00-Fyrirlestur María Björk Ólafsdóttir mun gangast undir meistarapróf við læknadeild Háskóla Islands og halda fyrirlestur um verkefni sitt: Áhrif lipoxygenasahemj- andi efna á stýrðan frumudauða (The effect of lichen derived metabolites on programmed cell death). Háskóli íslands, kennslu- salur læknadeildar á 3. hæð í Læknagarði 16.15 - Fyrirlestur Anja Andersen, danski stjarneðl- isfræðingurinn, flytur erindi á vegum raunvísindadeildar Háskóla Islands um efnið Líf í alheimi. Háskóli íslands, hátíðarsalur Aðalbygging 19.00 -Gönguferð Fuglaganga í Viðey kl. 19:00 - 21:15. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur stýrir þriðju- dagsgöngu í Viðey í kvöld. Viðey er þekkt fuglaparadís þar sem um 30 fuglategundir verpa. Lagt af stað frá Sundahöfn kl. 19 og tekur gangan um tvær klst. Ferjutollur er 750 kr. fyrir full- orðna og 350 kr. fyrir börn en leiðsögn er ókeypis. Viðey 20.00 -Tónlist Tónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram dagana 20.-25. júní á ísa- firði. Listamenn sem koma fram eru: FLÍS tríó, Sigrún Hjálmtýs- dóttir (Diddú), sópran, Anna G. Guðmundsdóttir, píanó, Peter Máté, píanó, Guðrún S. Birgis- dóttir, flauta, Tinna Þorsteins- dóttir, píanó. Hamrar, ísafirði

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.