blaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 29

blaðið - 20.06.2006, Blaðsíða 29
nc ai i DAGSKRÁI 37 anno tt/tttt blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2006 Er Madonna oí gömul? Gagnrýnisraddir segja að ungafólkið þekki ekki stórstjörnuna Nýlega var tilkynnt að söngkon- an Madonna yrði næsta andlit sænska tískuvörurisans H&M en illar tungur segja að Madonna, eða Madge eins og hún hefur verið kölluð af bresku pressunni, sé orð- in of gömul til að höfða til ungra kvenna. Gagnrýnisraddirnar hafa heyrst meðal annars úr auglýsinga- heiminum. Eina þeirra á auglýsing- agúrúinn, Jerry Della Femina, sem segir að unglingar skipti út stjörn unum sínum á tveggja til þriggja ára fresti og margir þeirra þekki ekki þessa 47 ára gömlu konu, Madonnu. Liz Rosenberg, talskona Madonnu, segist vilja sjá þó ekki væri nema 25% unglinga reyna að feta í fótspor Madonnu á sviði og fást við þær erfiðu fettur og brettur sem hún fer svo auðveldlega með. Það er reyndar ólíklegt að mörgum tækist það. Kosturinn við slœmt minni er sá að mað- urgetur notið sömu góðu hlutanna eins og ífyrsta skipti Þýski heimspekingurinn Friedrich Nietzsche (1844 -1900) Þennan dag... ... árið 1837 var Viktoría krýnd Englandsdrottning einungis átján ára gömul. Hún er sá valdhafi sem lengst hefur setið að völdum í Bretlandi eða næstum 64 ár. Henni var lýst sem hjartahlýrri og líflegri stúlku sem hefði ríka listræna hæfileika.Viktoría stjórnaði Bretlandi á tímum gríð- arlegra efnahagsframfara iðnbyltingarinnar. Þegar hún lést var talað um Bretland sem heimsveldi þar sem sólin settist aldrei. EITTHVAÐ FYRIR ...börnin Sjónvarpið, 18.30 Gló Magnaða Þáttaröð um Gló sem er ósköp venju- leg skólastelpa á daginn en á kvöld- in breytist hún í magnaða ofurhetju og berst við ill öfl. Gló getur allt. Hún getur stöðvað snjóflóð og lækk- að rostann í hvaða ofurþrjóti sem er. Hún á líka góða vini sem hjálpa henni í baráttunni við bófana og ill- þýðið og er góð fyrirmynd fyrir ung Skjár einn, 21.30 Brúðkaupsþátt- urinn Já Hvað er kaupmáli og hvaða merk- ingu hefur hann? Hverjir gera kaup- mála? Hvernig er best að bera sig að þegar börn frá fyrri samböndum eru til staðar? Hvað á að gera við afbrýði- saman fyrri maka? Allt góðar og gildar spurningar sem oft vilja sitja á hakanum í hinum rómantíska að- draganda stóru stundarinnar. Elín María Björnsdóttir leitar svara við þessum áleitnu spurningum. ^ ...öfgafulla NFS 19.40 Hrafnaþing Umræðuþáttur um þjóðmál, lífið og tilveruna í umsjón Ingva Hrafns Jónssonar. Ingvi Hrafn hefur skoð- anir á öllu milli himins og jarðar og skiptist á þeim við gesti sína sem sumum þykir nóg um enda eru skoð- anir Ingva Hrafns á mönnum og málefnum einkar sértækar. Hmi 1 - Hraðeldunar ofnar eru engum öðrum líkir! Turbochef ofnarnir elda, sjóða, baka, brúna, rista og grilla hraðar en nokkrir aðrir ofnar og gæðin eru betri. TurboChefC3 TurboChef Tornado TurboChef High h Batch C3 er hannaður fyrir veitingastaði sem framreiða hágæðarétti fljótt. Með því að samnýta hitablástur og örbylgju er eldunartími allt að 10 sinnum styttri en í öðrum ofnum. Tornado er hannaður fyrir veitingastaði sem hafa lítið pláss og þurfa að afgreiða góðan mat fljótt. Hann eldar allt að 12 sinnum hraðar en venjulegir ofnar, sem byggist á tækni sem samfléttar ristun / glóðun, blástur og örbylgju. High h Batch er nýr ofn án örbylgju sem er hannaðurfyrir bakarí, kaffi- hús og pizzastaði. Hann bakar kökur og pizzur úr hráu degi, hentar líka í að elda frosna rétti, franskar og grilla samlokur. C3 ofninn sýður, bakar, brúnar og grillar með sömu gæðum og við hefðbundna eldun. Kostir Turbochef ofnanna: Þeir eru fljótir að elda - Elda allt að 12 sinnum hraðar en aðrir ofnar Engin útblástur frá þeim - Spara mörg 100 þús. kr í lögnum og eldvörnum Þeirtaka lítið pláss - Komast hvar sem er fyrir. Óháðir loftræstiháf Þeirelda góðanmat - Wðskiptavinimir koma aftur og aftur Þeir eru einfaldir í notkun - Hvaða starfsmaður sem er lærir strax á Turbochef Þeir búa yfir fjölbreyttum matseðli - Mismunandi réttir eldaðir eldsnöggt úr kæli eða frysti Tornado bakar, ristirog brúnar matinn með jöfnum gæðum á hraða sem ekki hefur áður þekkst. Með alla þessi kosti, auk þess sem hann er óháður loftræsti kerfi hefurTornado blásið öðrum ofnum út af skyndibitastöðum. High h Batch er 2 sinnum fljótari en færibandaofnar og 5 sinnum fljótari en venjulegir blástursofnar. Hann tekur 16" pizzu og bakar kökur á 20x45 cm plötu. Heitur og góður matur eldaður á met hraða er ávísun á ánægða viðskiptavini og meiri sölu. Það borgar sig að fá sér Turbochef ofn strax! I iast miðar & tæki »ht. Krókhálsi 1-110 Reykjavík - sími 567-8888 - www.pmt.iswww.turbochef.com

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.