blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 2
—..4^4ppys^
Allar gerðlr festinga
fyrir palla og grindverk
á lager
Ármúli 17, lOB Reyhjavíh
Slml: 533 1334 fax: 55B 0493
WWW.ISOl.IS
Helðsklrt-. J' LéltskýjaðSkyjað Alskýjaðí-'— RiQning,lltllsháttai^j^Rlgnlng.4£*Súld^ Sn|ðkoma-ÍÍ - > SlyddaÍÖÍ^ Sn|ðél »CÍuSkúr
2IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaöiö
Algarve 26
Amsterdam 19
Barcelona 26
Berlín 24
Chicago 20
Dublin 15
Frankfurt 23
Glasgow 13
Hamborg 18
Helsinki 26
Kaupmannahöfn 19
London 21
Madrid 35
Mallorka 29
Montreal 16
New York 24
Orlando 25
Osló 15
París 20
Stokkhólmur 20
Vín 26
Þórshöfn 08
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
HM 2010 í
Sjónvarpinu
Á morgun
..það sem
fagmaðurinn
notar!
UUSIÍ=Í
blaóió_
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Ferðaþjónusta Vest-
mannaeyja ályktar
Aðilar í ferðaþjónustu og áhuga-
menn í Vestmannaeyjum hafa sent
frá sér harðorða ályktun vegna sam-
gangna á milli Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja. Segir í henni að Herj-
ólfur sé nær fullnýttur allar helgar
og flesta daga sumars og því nægi
ferjan engan veginn til þess að ferja
alla þá ferðamenn sem halda vilji
til Eyja. Einnig eru flugsamgöngur
harðlega gagnrýndar og fullyrt að
þær séu í „ólestri“. Þá sé bilanatíðni
flugvéla há. Þeir sem að ályktun-
inni standa óska eftir nýju og gang-
miklu skipi og vilja það eigi síðar en
árið 2007. Einnig er stærri flugvéla
krafist.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vest-
mannaeyja, hefur áður sagt að sam-
göngur milli lands og Eyja séu ófull-
nægjandi. Flugfélag Vestmannaeyja
hugðist kaupa Landsflug sem sér
um flug á milli Reykjavíkur og
Vestmannaeyja en af því varð ekki.
Kaupsamningi var rift vegna þess
að Landsflug taldi félagið ekki hafa
staðið fyllilega við skilyrði sem voru
í samningnum.
Veitt í soðið
BlaDið/Frikki
Dagur Ingi renndi fyrir fisk í blíðskaparveðrinu í gær. Ekki er vitað hvort hann hafi veitt eitthvað í dagslok en fullvíst er að það hefði
orðið góð búbót fyrir heimilið.
Bjarni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins, segir að heims-
meistarakeppnin í knattspyrnu árið
2010 verði sýnd í Sjónvarpinu. „Við
erum mjög ánægð að geta boðið
landsmönnum öllum upp á þessa
veislu. Við munum sinna þessu
verkefni, eins og öðrum verkefnum
sem við tökum okkur fyrir hendur,
eins vel og við frekast getum fyrir
áhorfendur.“
Að sögn Bjarna hafa Samtök
evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU)
gengið frá samningnum fyrir hluta
aðildarsjónvarpsstöðva sinna og
er Ríkissjónvarpið þeirra á meðal.
„Allir leikirnir verða sýndir. Ég
reikna með að ný tækni, sem býður
upp á fleiri rásir, muni gera okkur
kleift að sinna útsendingu af heims-
meistarakeppninni mjög vel.“
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu fer fram í Suður-Afríku árið
2010. Enn á eftir að ganga frá samn-
ingum um hvar EM í Austurríki og
Sviss verði sýnt að tveimur árum
liðnum.
Dæmi um að 15 ára stúlka
hafi farið í fegrunaraðgerð
Fimmtán ára stúlka fór í brjóstastækkun samkvæmt staðfestum heimildum. Mun
stúlkan hafa fengið leyfi hjá móður sinni og í kjölfar gerði lýtalæknir aðgerð á henni.
EftirVal Grettisson
Fimmtán ára stúlka hefur gengist
undir brjóstastækkunaraðgerð hjá
lýtalækni á Islandi samkvæmt stað-
festum heimildum Blaðsins. Hún
mun vera yngsta stúlka á íslandi
sem vitað er um sem hefur farið í
brjóstastækkun.
Samkvæmt heimildum mun hún
hafa fengið skriflegt leyfi frá móður
sinni og framkvæmdi lýtalæknir að-
gerðina í kjölfarið.
Stúlkan vildi ekki gefa upp
BYGGINGAVINKUR
ástæður þess að hún fór í brjósta-
stækkun svona ung en bendir á að
sumir fari í slíka aðgerð samkvæmt
læknisráði. Stúlkan er sautján ára i
dag.
Guðmundur Már Stefánsson, lýta-
læknir, segir að fegrunaraðgerðir
hafi verið framkvæmdar á svona
ungum stúlkum. Ástæðan fyrir því
að gripið sé til þessa úrræðis sé sál-
arástand viðkomandi og þetta sé
gert samkvæmt ráði sálfræðinga og
fleiri sérfræðinga.
„Það hefur komið fyrir að ung-
menni hafi verið send frá geðlækni
eða sálfræðingi til okkar,“ segir Guð-
mundur Már en leggur áherslu á að
slíkar aðgerðir séu gríðarlega sjald-
gæfar. Hann segir að hugsanlega
sé að meðaltali ein fegrunaraðgerð
framkvæmd á fimm ára tímabili á
ungmennum undir átján ára aldri.
Að sögn Guðmundar eru þeir sál-
fræðilegu kvillar sem viðkomandi
glímir við af ýmsum toga. Nefnir
Guðmundur sem dæmi að hugsan-
lega kunni stúlka að hóta að vinna
sér mein eða sé griðarlega þunglynd
vegna útlits. Geti sálfræðingur ekki
hjálpað henni sé stundum brugðið á
það ráð að leggja til fegrunaraðgerð.
Aðspurður hvort ekki sé tekið til-
liti til þess að líkami viðkomandi
stúlku eigi eftir að þroskast segir
Guðmundur að stundum sé stúlkan
með drengjalegan vöxt og fyrirséð
að hann eigi ekki eftir að breytast
mikið.
Guðmundur segir að ekki komi til
greina að gera fegrunaraðgerð á ung-
mennum undir átján ára aldri undir
nokkrum öðrum kringumstæðum.
Fyrir um tveimur árum gaf Land-
læknisembættið út tilmæli eða nokk-
urs konar siðareglur um að fegrunar-
aðgerðir á ungmennum undir átján
ára aldri séu óæskilegar. Samkvæmt
landlækni er ástæðan fyrir þessum
tilmælum sú að líkamar fólks undir
tvítugu eru ekki fullþroskaðir og
því æskilegra að bíða með slíkar að-
gerðir. Einnig segir hann að andlegt
ástand spili inn í vegna þess að ung-
menni geta verið áhrifagjarnari en
þeir sem komnir eru til vits og ára.
„Efstúlkan hefur farið í fegrunarað-
gerð svona ung þá er það mjög alvar-
legt,“ segir Sigurður Guðmundsson,
landlæknir, en bendir á að vand-
málið sé samfélagslegt og ekki megi
skella skuldinni alfarið á skurðlækn-
ana sem framkvæmi aðgerðina.
Sigurður vill ekki ganga svo langt
að festa í lög einhvers konar aldurs-
takmark heldur telur hann heppi-
legra að leita annarra lausna.
Engar tölur liggja fyrir um aldur
þeirra sem sækjast eftir lýtaað-
gerðum. Samkvæmt Sigurði hefur
Landlæknaembættið nú lcrafið
einkastofur sem sjá um lýtalækn-
ingar um tölulegar upplýsingar til
þess að unnt sé að kortleggja þessa
starfsemi innan heilbrigðisgeirans
betur. Hann segir að Landlæknis-
embættið viti ekki um umfang starf-
seminnar en telur hana velta tugum
milljóna á ári hverju og hugsanlega
meiru.
valur@bladid.net