blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 12
12 I DEU LA v FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 bla6iö m BÚÐIN ÞAR SEM FAGMENNSKA OG GÆÐI KOMA SAMAN www.budin.is v ’W* iV Þegar kemur að því að velja tölvubúnað skipta gæði og þjónusta höfuðmáli! AMD Turion 64 ML-32 1,8MHz15.4MWXGA 1024DDR/mest2GB • 80GB Diskur DVDSkrifari • ATI Radeon 128mbskjákort Hljóökort • Netkort • Þráölaust • Módem Stýrikerfi: Windows XP Home 129.900 kr. HP3940 Prentari 16bls svörtu/min • 12bls lit/min 4800 x 1200 dpi • USB tengi PC&MAC 8.900 kr. Þráðiaus útprentun! Með linksys prentþjón Styður flest allar gerðir laser og bleksprautuprentara Kynntu þérmálið! 12.900 kr. HPBÚÐIN EHF • business partner á ísiandi Brautarholti 10-14 • Sími 568 5400 Jónsmessu fagn- aö f Hafnarfiröi „Fyrirhugað er að Ijúka dagskrá um kl 23 í kvöld en hún gæti mögulega teygst fram að miðnætti. Við reyndum þó að hafa dagskrárlið- ina sem sniðnir eru fyrir börnin fyrr um kvöldið þannig að mögulegt er að fara heim með börnin í fyrra fallinu. Þetta hefur alltaf verið ótrúlega vel heppnað og öll fjölskyldan hefur getað fundið eitthvað við sitt hæfií," segir Marín og vonast til þess að sjá sem flesta í Hellisgerði í kvöld. í kvöld munu Hafnfirðingar gera sér glaðan dag í tilefni Jónsmessu- hátíðar. Þar mun verða margt í boði fyrir alla fjölskylduna og mögulega munu verur af öðrum heimi láta á sér kræla. Jónsmessan er fæðingarhátíð Jóhannesar skírara en samkvæmt nýja testamentinu fæddist Jóhannes um það bil sex mánuðum á eftir frelsaranum. Hér á landinu kalda hefur þessi hátíð alltaf haft yfir sér allt annan blæ en sunnar í álfunni. I Evrópu var Jónsmessan fyrr á öldum gjarnan samofin svallveislum af verstu sort, drunandi dansveislum þar sem gestir voru oftar en ekki yfirnáttúrulegar verur á borð við nornir og djöfla. Kirkjunnar menn voru, eins og gefur að skilja, ekki yfir sig hrifnir af þessari bullandi gleði alþýðunnar og reyndu að stemma stigu við ólifnaðinum með ýmsum aðferðum. Sérstaða (stands Ýmislegt kom í veg fyrir að Jóns- messuhátíðin væri með sama sniði hér á íslandi. Hér voru veðurfar, trúarlíf og atvinnuhættir með allt öðrum hætti auk þess sem allar samfélagforsendur voru mjög ólíkar. Á fslandi er ekki mikið um tré til að höggva í brennur og dansa í kringum af miklum móð í góðum fé- lagsskap norna og djöfla. Dreifbýlið gerði samkomur líka erfiðar. Jóns- messunóttin þótti engu að síður ein magnaðasta nótt ársins og var sterk- lega tengd náttúrutrú af ýmsu tagi. Sagt er að á Jónsmessunótt fljóti upp ýmiss konar náttúrusteinar sem geta komið að góðu gagni. Þá má einnig finna ýmis nýtileg grös til lækninga. Jónsmessudöggin taldist vera ákaflega heilsusamleg og margir afklæddust og veltu sér upp úr henni naktir. Geri menn það batna þeim allir sjúkdómar og þeim verður ekki misdægurt næsta árið á eftir. Álfar fara á stjá Margt er í boði á Jónsmessu þetta árið i Reykjavík og nágrenni. Hafn- firðingar ætla ekki að láta sitt eftir liggjaogblásatilallsherjarfjölskyldu- skemmtunar í dag í Hellisgerði. Þar mun trúin og krafturinn leika stórt hlutverk og m.a. mun verða leitað lognandi ljósi að óskasteinum sem ættu að geta fært gestum ham- ingjuna sjálfa ef vel er vandað til verks. í Hellisgerði er jafnan mikið um að vera hjá álfum og vættum af öðrum heimi. Því má búast við að þar verði sérstaklega mikið líf og fjör í kvöld þegar dulúðin svífur yfir vötnum. Dagskráin er spennandi og er óhætt að fullyrða að flestir munu finna eitthvað við sitt hæfi. Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferða- málafulltrúi Hafnafjarðarbæjar hefur staðið í ströngu að undan- förnu við undirbúning hátíðarinnar. „Það er komin á nokkuð sterk hefð hjá okkur Hafnfirðingum að halda Jónsmessuna hátíðlega en þetta er í sjötta skipti sem það er gert. Okkur finnst sérstaklega gaman að halda há- tíðina í skrúðgarðinum í Hellisgerði þar sem mikil dulúð hvílir yfir garð- inum. Erla Stefánsdóttir, sjáandi, er ekki í vafa um að í Hellisgerði sé stór álfa- og huldufólksbyggð og hefur margoft séð þeim bregða fyrir. Við hefjum leikinn kl ío um morgun- inn með því að taka á móti öllum leikskólabörnum í Hafnarfirði og þau leita að óskasteinum sem er að finna í garðinum. Síðan tekur Sigur- björg Karlsdóttir á móti krökkunum og fræðir þau um þjóðtrúna og segir þeim sögur af álfum og huldufólki. Leikurinn hefst svo fyrir alvöru um kvöldið kl 20 og þar verður glæsi- leg dagskrá á sviði,“ segir Marín að vonum spennt fyrir kvöldinu. Spennandi dagskrá Tónlistarunnendur munu ekki verða fyrir vonbrigðum með dagskrána í Hellisgerði. Gaflarakórinn mun taka lagið undir stjórn Kristjönu Ásgeirsdóttur og Tónlistarskólinn í Hafnarfirði mun mæta á staðinn með Big Band undir stjórn Stefáns Ómars Jakobssonar. Hin ástsæla söngkona Ragnheiður Gröndal mun taka lagið ásamt hljómsveitinni Black Coffee og Blússveit Þollýjar mun töfra fram rafmagnaðan bíús af bestu sort. Leikarar úr sýning- unni „Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður“ munu setja á svið at- riði úr sýningunni og ættu börnin að verða margs vísari um þjóðsög- urnar okkar eftir þann leik. Doktorsvörn í dag í HI I dag kl 13 mun Helga Margrét Páls- dóttir, matvælafræðingur, verja doktorsritgerð sína The novel group III trypsin Y and its expression in the Atlantic cod. Andmælendur verða þeir Dr. Nils-Peder Willassen, prófessor við læknadeild Háskólans 1 Tromso, Noregi og Dr. Bjarni Ásgeirsson, pró- fessor við raunvísindadeild Háskóla íslands. Leiðbeinandi Helgu Margr- étar var Dr. Ágústa Guðmundsdóttir, prófessor. Markmið doktorsverkefnisins var að varpa ljósi á eiginleika trypsíns Y úr þorski sem tilheyrir nýlega skilgreindum trypsín flokki. Önnur trypsín úr þorski eru þegar notuð í snyrtivörur, náttúruvörur og til matvælaframleiðslu. Helga notaði aðferðir sameindaerfðafræði og líf- efnafræði til að skilgreina tjáningu og sérkenni trypsíns Y. Ritgerðin er byggð á fimm vís- indagreinum fyrir ritrýnd erlend vísindatímarit þar sem tvær þeirra eru þegar birtar, ein er samþykkt og tvær hafa verið sendar til birtingar. í doktorsnefnd sátu auk leiðbein- anda Dr. Eiríkur Steingrímsson, prófessor við læknadeild Háskóla Islands, og Dr. Jón Bragi Bjarnason, prófessor við raunvísindadeild Há- skóla íslands. Dr. Hörður Filippusson, forseti raunvísindadeildar, stjórnar athöfn- inni sem fer fram í Hátíðasal Há- skóla íslands, Aðalbyggingu og hefst klukkan 13.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.