blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 6
6IFRÉTTIR FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaðið Aflaverðmæti 18,5 milljarðar Á fyrstu þremur mánuðum ársins nam heildaraflaverðmæti íslenskra skipa 18,5 milljörðum króna saman- borið við 20,4 milljarða á sama tíma- bili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um i,8 milljarða, eða 9%. f frétt frá Hagstofunni kemur fram að aflaverðmæti botnfisks var svipað og í fyrra, eða 14,4 milljarðar sem er 2,8% aukning. Aflaverðmæti þorsks er einnig svipað, eða 8,4 millj- arðar og dróst saman um 2,1%. „Af einstökum landsvæðum var mest aflaverðmæti tekið til vinnslu á Suðurnesjum eða 3,6 milljarðar sem er 9,9% samdráttur milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu var unnið úr afla að verðmæti 3,5 milljarðar króna og jókst verðmætið um 13% frá fyrra ári. Hlutfallslega varð mest aukning á aflaverðmæti sem fór til vinnslu á Vesturlandi eða um 15% en mest dró úr verðmæti afla unnum á Norðurlandi eystra eða um 32%,“ segir í frétt á heimasíðu Hagstofunnar í gær. Bjartsýn á sumarið sem hef- ur farið ágætlega af stað Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að starfsemi fyrirtækja í ferðaþjón- ustu hafi víðast hvar farið vel af stað í sumar. Lækkandi gengi ýtir undir bjartsýni. Eftir Atla fsleifsson Erna Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, er bjartsýn á sumarið fyrir hönd ferða- þjónustunnar. Hún segir að það hafi mikið að segja fyrir marga að gengi krónunnar hafi lækkað undanfarið. „Sum fyrirtæki finna fyrir því strax, en aðrir ekki fyrr en á næsta ári. Það fer eftir því hvers konar fyrirtæki er um að ræða. Framboð á flugsætum til landsins hefur aukist og nú er einnig flogið frá Kaupmannahöfn til Akureyrar. Allt hefur þetta mikið að segja og ég er bjartsýn á sumarið,“ segir Erna. Samtök ferðaþjónustu hafa enn ekki fengið tölur yfir fjölda ferða- manna til landsins, nema fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins. „Við eigum þó von á nýjum tölum bráð- lega. Fyrstu fjóra mánuði ársins var 5% aukning ferðamanna miðað við síðasta ár. Eg á von á því að það hafi einnig verið aukning í maímánuði þar sem talsverð aukning var á her- bergjanýtingu hótela í Reykjavík," segir Erna. Að sögn Ernu fara ferðalög Islend- inga mikið eftir veðri. „Umferð Is- lendinga um landið hefur ugglaust verið eitthvað meiri fyrri ár. Það er hins vegar þannig að ferðalög íslend- inga um landið aukast mikið eftir að júlímánuður er genginn í garð. Um leið og hlýnar og birtir yfir þá fara margir af stað í ferð um landið," segir Erna. Dýrast í heimi Niðurstöður nýrrar könnunnar evr- ópsku hagstofunnar, Eurostat, sýna að Island er dýrasta landið í Evrópu. Þar kom fram að verðlagið hér á landi er 51% hærra en það er til jafnaðar í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Erna segir að þetta séu ekki lengur neinar fréttir. „Það hefur margoft komið fram að ýmislegt hér á landi er of dýrt. Við höfum ítrekað bent stjórnvöldum á að það gangi ekki til lengdar að vörur eins og matur og vín séu svona miklu dýrari en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Þetta hefur að sjálfsögðu áhrif á ferðamannaþjónustu, eins og landsmenn alla.“ Erna bendir á að nefnd á vegum Erna Hauksdóttir forsætisráðuneytisins hafi verið að fjalla um matarverð á íslandi. „Við bindum vonir við og treystum á að eitthvað bitastætt komi út úr því starfi. Við höfum einnig bent á að við erum með hæstu áfengisskatta í heimi, en við höfum ekki enn fengið nein viðbrögð við því. Þetta er bara stefna stjórnvalda.“ Meiri kynningu Erna segir að þróunin síðustu ár hefur verið í átt frá hópferðum til þess að erlendir ferðamenn komi hingað til lands á eigin vegum. „Það hefur verið að færast í vöxt að ferða- menn fljúgi til íslands, taki sér bíl á leigu og leggi af stað. Staðir með einhver náttúruundur í nágrenn- inu eru gjarnan vinsælir. Þetta á að sjáfsögðu ekki einungis við um Is- land. Alls staðar í heiminum draga þjóðgarðar og náttúruperlur að sér ferðamenn. Það liggur fyrir að nátt- úruperlur okkar Islendinga eru mis- frægar. Við eigum margar náttúru- perlur sem þurfa meiri kynningu, enda skiptir miklu máli að ferða- menn fari sem víðast,“ segir Erna. Erna segist vera bjartsýn á sum- arið. „Það fer víðast hvar vel af stað. Lækkandi gengi og fjölgun flug- sæta ýtir undir bjartsýni svo menn bera sig vel. Það er svolítið misjafnt hvernig menn láta, en mér finnst al- mennt vera ágætt hljóð í fólki.“ atlii@bladid.net Morðingi Gísla dæmdur Desiree Oberholzer, 44 ára, hefur verið dæmd í 20 ára fangelsi fyrir morðið á Gísla Þorkelssyni, sem fannst látinn i Jóhannesarborg í Suður-Afríku í júlí í fyrra. Gísli, sem þekkti Oberholzer, hafði búið í Suður-Afríku í um 11 ár og stund- aði þar sjálfstæðan atvinnurekstur. Oberholzer játaði sekt í málinu, en félagi hennar, Willie Theron, neitar aðild að því. Gísli hafði selt fasteign sem hann átti, skömmu áður en hann var myrtur. Talið er að fólkið hafi framið morðið til að komast yfir söluandvirði eignarinnar. Þau létu til skarar skríða í lok maí í fyrra, þegar Gísli sneri aftur til Suður-Afr- íku eftir að hafa verið í fríi í Banda- ríkjunum. Oberholzer segist ekki hafa myrt Gísla sjálf. Hún heldur því fram að vitorðsmaður hennar hafi gert það og síðar komið líki Gísla fyrir í tunnu sem síðan var fyllt með steypu. Oberholzer segir að hún hafi verið fjárþurfi, en fyrir sinn þátt í málinu hafi hún átt að fá andvirði um einnar milljónar króna. Hún segir að fyrrverandi eiginmaður hennar hafi flutt úr landi til Bret- lands þremur árum áður með bæði börn þeirra og slitið öllu sambandi við hana. Hana hafi því vantað pen- inga til að komast til Bretlands til að hafa uppi á börnunum og því fallist á að myrða Gísla. Réttað verður yfir Willie Theron í lok ágústmánaðar. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins Framkvæmdastjóri Starf framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs ATVINNULÍFSINS ER LAUST TIU UMSDKNAR Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er áhættufjárfestir sem tekur virkan þátt í þróun og vexti atvinnulífsins með því að fjárfesta í vænlegum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum nr. 61/1997. Sjá nánar á vefsetri: www.nsa.is Meðal æskilegra kosta eru: ■ Víðtæk stjórnunarreynsla úr fyrirtæki og þekking á íslensku atvinnulífi og rekstrarumhverfi ■ Reynsla af samningagerð og fjárfestingarverkefnum ■ Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum ■ Háskólamenntun ■ Málakunnátta Umsóknarfrestur um starfið er til 29. júní n.k. og umsóknir skulu berast skrifstofu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Borgartúni 35,105 Reykjavík, merktar stjórnarformanni sjóðsins, Jóni Steindóri Valdimarssyni, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. NÝSKÖPUNARSJÓÐUR Blaðið/Frikki Horft til hafs Útsýnið ofan af Reynisfjalli fyrir utan Vík í Mýrdal er ekki af verri endanum eins og sjá má. Á fjallinu var til skamms tima rekin LORAN-stöð sem nú er í eyði. Fyrir þá fjölmörgu ísiendinga sem aka um á vel útbúnum bílum er þetta afar áhugaverður viðkomustaður úr alfaraleið. naverslun fyrir stelpur I VERSLUN MEIRA ÚRVAL Reykavíkurvegur 22 220 Hafnarfírði 565-5970 Þar sem gæðagleraugu.... ....kosta minna

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.