blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 11
blaöiö FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006
FRÉTTIR I 11
Athugasemd vegna
forsíðufréttar Blaðsins
Kærum Þjóðarhreyfingar-
innar hafnað og vísað frá
Mig langar til að gera nokkrar at-
hugasemdir vegna forsíðugreinar
Blaðsins þann 22. júní, 2006, með
fyrirsögninni „Pýramídafyrirtæki
vill hagnast á aðstoð við þriðja
heiminn."
Fyrst af öllu langar mig að gera
þá athugasemd við greinina í heild
að „blaðamaðurinn" sem skrifaði
hana, Valur að nafni, skrifar hana
bersýnilega af illum hug, staðráð-
inn í að koma höggi á starfsemi
Nourish the Children og gera lítið
úr henni. Það er til dæmis fyrir
neðan allar hellur að hann talar
margsinnis um þann næringarríka
og góða mat sem við erum að út-
vega þessum börnum sem „fóður“,
en samkvæmt minni þekkingu á ís-
lensku þá er aldrei talað um „fóður“
nema þegar um skepnur er að ræða.
Þessi málnotkun, að líkja þessum
börnum við skepnur á þennan hátt
segir allt um þann hug sem býr að
baki tilganginum með „fréttinni“.
í öðru lagi er ég afar óánægður
með að Valur hvorki notar né birtir
stóran hluta af þeim upplýsingum
sem ég lét hann fá og rannsakar
málið ekkert áður en hann birtir
texta eins og að maturinn sé „að
sögn“ sendur til sveltandi barna
og að „erfitt sé að fullsanna að fyr-
irtækið dreifi matnum...“. Þetta
er alrangt, það er nákvæmlega
enginn vandi að fullsanna að mat-
urinn komist til skila, en þar sem
Valur vildi ekki líta á þær upplýs-
ingar sem ég lét hann fá, þá lætur
hann frekar að því liggja að hér sé
um eitthvert svindl að ræða. Þetta
er að mínu mati blaðamennska á
afar lágu plani. Ég nenni ekki að
elta meira ólar við greinina sjálfa,
hún dæmir sig sjálf, en vil að
lokum taka fram að ég tókloforð af
Val um að hann myndi láta fylgja
„fréttinni“ vefslóðina www.Frjals.
com þannig að þeir sem læsu skrif
hans gætu farið sjálfir og aflað sér
sjálfstæðra upplýsinga um málið.
Valur sveik mig um þetta loforð og
birti þessa vefslóð ekki, og nú fer
ég fram á það við ritstjórn Blaðsins
að þessi athugasemd mín verði birt
í heild á áberandi stað í blaðinu,
ásamt vefslóðinni www.Frjals.com
þannig að hver sem er geti farið og
kynnt sér málið frá annarri hlið en
Valur kærði sig um að gera.
Með vinsemd og virðingu,
Guðbergur Isleifsson.
Eftir Björn Inga Hrafnsson
Makalaust var að fylgjast með
fréttum NFS í gærkvöldi þar sem
enn er reynt að glæða lífi í tilhæfu-
lausan áburð um að nýbúar hafi
fengið greitt fyrir að kjósa Fram-
sóknarflokkinn í nýliðnum borg-
arstjórnarkosningum. Að þessu
sinni var kynntur til sögunnar
blaðamaður einn sem hafði heyrt
frá vini sínum að menn fengju borg-
aðar 1700 kr. fyrir atkvæðið og hann
hefði ásamt vinkonu sinni farið
með þessum manni á kjörstað með
viðkomu á kosningamiðstöð Fram-
sóknarflokksins þar sem þeim hafi
verið kynnt stefna flokksins. Hvergi
kom fram að þeim hefði verið boðin
greiðsla, hvergi kom fram að eitt-
hvað saknæmt hefði átt sér stað en
samt er gefið í skyn að Framsóknar-
flokkurinn hafi haft uppi ólöglegar
aðferðir í kosningabaráttunni sem
eru auðvitað alvarlegar ásakanir og
hreinar dylgjur.
Sannleikurinn virðist ekki skipta
neinu máli í þessum efnum. Það virð-
ist hreinlega mega segja hvað sem
er um Framsóknarflokkinn. Engu
skiptir þótt sannanir séu engar, allt
er látið flakka af því að einhverjir
hafi heyrt ein-
hverju fleygt;
heyrtsöguríheita
pottinum og svo
framvegis. Ólyg-
inn sagði mér, var
einmitt viðkvæði
Gróu á Leiti.
Hin svokall-
aða Þjóðarhreyf-
ing hefur gengið
lengst í þessum efnum og komið
fram með dylgjur og tilhæfulausar
ásakanir opinherlega án þess að
hafa sannanir eða vitni að einu eða
neinu. Ólafur Hannibalsson fékk
heilan Kastljósþátt til þess að kynna
helstu samsæriskenningar sínar en
viðurkenndi í lokin að hafa ekkert
í höndunum sem styddi ásakanir
hans. Óskaði hann eftir aðstoð frá
landsmönnum sem kynnu að búa
yfir einhverjum upplýsingum sem
að gagni kæmu í málinu. Sönnun-
arbyrðinni var þannig alveg snúið
við; ásökunum kastað fram og svo
óskað eftir vísbendingum og stað-
festingum. Hvers konar vinnubrögð
eru þetta eiginlega?
í gær var kærum Þjóðarhreyfing-
arinnar vísað frá að því er varðar
kröfur um opinbera rannsókn og
hafnað að því er varðar kröfur um
ógildingu kosningarinnar. Var það
aðalfréttin hjá NFS í kvöld? Nei, al-
deilis ekki. Áfram var haldið með
kjaftasögurnar óstaðfestu. Ólyginn
sagði mér...
Þá má að lokum geta þess að rit-
stjóri DV kom fyrir nokkru fram
opinberlega og sagði að lausafregnir
af hinum meintu atkvæðakaupum
hefðu komið inn á borð DV. Þar
hefði málið verið tekið til sérstakrar
athugunar og komið hefði í ljós að
um væri að ræða rakalausar dylgjur.
Því hefði DV ákveðið að birta ekkert
um málið að athuguðu máli.
Pólitík er harður slagur, en illt
er að sitja endalaust undir tilhæfu
lausum dylgjum af þessu tagi. í þeim
felast líka að mínu mati fordómar í
garð útlendinga og gefið í skyn að
atkvæði þeirra sé falt. Ég fagna því
þeirri niðurstöðu að kærum Þjóðar-
hreyfingarinnar hafi verið hafnað
og vísað frá og vona að þar með sé
þessu máli lokið.
Höfundur er borgarfulltrúi
Af www.bjorningi.is
20% afsláttur
Húðvörurnar frá Gamla apótekinu eru án viðbættra litar- og ilmefna. Þær eru
góður kosturfyrir alla, ekki síst þá sem þola illa aukaefni í kremum.
Afsláttur gildir út júní
Apótekarinn
(ayr* * verái!
Nóatúni 17 • Akureyri • Mjódd • Smiðjuvegi
Sjálfstæðisflokkurinn tekinn
við stjórn Reykjavíkurborgar
Mynd/BrynJarGauti
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tekur viö lyklavöldum úr höndum Steinunnar Valdísar
Óskarsdóttur
Eftir ögmund Jónasson
Ekki fer það framhjá nokkrum
manni að stjórnarsamstarf íhalds
og Framsóknar hefur nú tekið sér
bólfestu í Ráð-
húsi Reykjavíkur.
Linnulaus frétta-
flutningur í gær
af áformum um
mislæg gatnamót
hér og þriggja
hæða gatnamót
þar minnti okkur
á að stjórnarskipti
hafa átt sér stað í
Reykjavík.
Nú stjórnar Sjálfstæðisflokkur-
inn borginni en Éramsókn styður
allt það sem hann vill eftir að hafa
þegið sínar sporslur og bitlinga:
Sama mynstur og í Stjórnarráðinu.
Eflaust mun það gerast í sam-
starfi þessara flokka í borginni, eins
og í ríkisstjórn, að Framsókn gerist
enn harðdrægari í að framkvæma
stefnumál Sjálfstæðisflokksins en
sá flokkur myndi nokkurn tímann
voga sér. Þannig má ætla að mislæg
gatnamót á hverju horni verði innan
tíðar helsta hugsjón Framsóknar-
flokksins og munu þá verða gleymd
loforðin um „frítt í strætó fyrir alla“,
,250 þúsund á hvert mannsbarn fyrir
söluna á hlut borgarinnar í Lands-
virkjun", „50 þúsund í styrk til for-
eldra fyrir hvertbarn áleikskólaldri",
að ógleymdu „skautasvelli á Perlu“
og „flughöfn á Lönguskerjum“. Auð-
vitað er það nánast grínagtugt í fá-
ránleika sínum að horfa upp á Fram-
sóknarflokkinn lofa út og suður í
kosningabaráttu en ganga síðan inn
í stjórnarsamstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn án umræðu um hin dýru
loforð! Þetta er hins vegar ekki til að
gera grín að. Þetta hagsmunabanda-
lag Sjálfstæðisflokks og Framsóknar
er dauðans alvara og af því þurfa
Reykvíkingar að súpa seyðið næstu
fjögur árin. Því miður.
Höfundur er þingsmaður
Af www.ogmundur.is
Ekki sannfærandi
Eftir Mörð Árnason
Svar Þorsteins Geirssonar ráðuneyt-
isstjóraumbréfið
tilBandaríkjanna
(sjá frétt á ruv.is)
er ekki sannfær-
andi - allra síst
frá reyndum emb-
ættismanni eins
og Þorsteini.
Þorsteinn seg-
ist vissulega hafa
undirritað bréfið
f.h.r. - fyrir
hönd ráðherra - og sent það en alls
ekki skrifað það! Það hafi ríkislög-
reglustjóri gert - eða einhver hans
manna - að beiðni hins sérskipaða
saksóknara. Þetta sé gert í gegnum
dómsmálaráðuneytið út af samn-
ingi við Bandaríkjamenn um aðstoð
í sakamálum. Þorsteinn beri ekki
ábyrgð á „efnisinnihaldi“ þess - og
það túlka fréttamenn Ríkisútvarps-
ins í fyrirsögn sem svo að ráðherr-
ann geri ekki heldur.
• Ráðuneyti er skrifstofa ráðherra.
Allt sem fram fer í ráðuneyti er á
ábyrgð ráðherrans sem því stjórnar.
Taki embættismenn eitthvert frum-
kvæði í nafni ráðherra án þess að
ráðherra viti hlýtur ráðherrann að
meta hvort um yfirsjón er að ræða
og lætur þá viðkomendur vita af því
- eða þá ráðherrann tekur ábyrgð á
gerðum embættismannsins eftir á.
• Ákvæði í samstarfssamningi
ríkja um að ráðuneytin sjálf annist
samskiptin er væntanlega samið og
samþykkt vegna þess að talið er mik
ilvægt að ráðherrarnir hafi i hverju
tilviki stjórn á málum - viðfangs-
efni samstarfsins sé öðrum þræði
pólitískt. Starfsmenn ráðherra geta
ekki umgengist slíkt samnings-
ákvæði sem formsatriði.
• í þessu sérstaka máli dettur
engum með fullum mjalla í hug að
embættismaður í dómsmálaráðu-
neytinu láti Björn Bjarnason ekki
vita um bréfaskriftir eins og þær
sem hér ræðir um. Því passar emb-
ættismaðurinn sig á að neita aldrei
í frétt Ríkisútvarpsins. Með yfirlýs-
ingu sinni er Þorsteinn Geirsson í
gamalkunnu hlutverki - embættis-
maðurinn er látinn taka höggið af
ráðherranum. Þorsteinn gerir það
með því að benda á aðra, ríkislög-
reglustjórann og saksóknarann.
Eða hvað mundu undirstofnanir
dómsmálaráðuneytisins segja um
þessa röksemdafærslu:
- Ég stal þessu ekki þótt ég hafi
að vísu brotist inn og tekið það með
mér. 1 raun og veru er það hann Lalli
sem er sekur. Ég bara gerði þetta af
því ég þekkti betur til.
Höfundur er þingmaður
Af www.althingi.is/mordur