blaðið - 23.06.2006, Page 10
10 I FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaöið
Bandarískir hermenn í
írak ákærðir fyrir morð
Sjö landgönguliðar og sjóliði sagðir hafa myrt fatlaðan mann í bænum Hamandiya.
Bandarískur hermaður á vakt í bænum Hit í frak.
Einar ráðinn
aðstoðarmað-
ur Jónínu
Einar Sveinbjörns-
son, veðurfræð-
ingur, hefur verið
ráðinn aðstoðar-
maður Jónínu Bjart-
marz, umhverfis-
ráðherra. Hann
var aðstoðarmaður
Sivjar Friðleifs-
dóttur, fyrrverandi
umhverfisráðherra,
á árunum 1999-2003 en hefur að
undanförnu starfað sem deildar-
stjóri sérþjónustu á Veðurstofu Is-
lands. Einar er 41 árs og hefur MS
próf í veðurfræði frá Óslóarháskóla.
Hann hóf störf í ráðuneytinu í gær.
Sjö bandarískir landgönguliðar og
sjóliði hafa verið ákærðir fyrir að
hafa myrt fatlaðan mann í írak. Að
sögn talsmanns landgönguliðs flot-
ans eiga mennirnir einnig yfir höfði
sér ákæru fyrir mannrán og sam-
særi. Bandarísku hermennirnir eru
í haldi í herstöð einni í Kaliforníu.
Áttmenningarnir eru sakaðir um
að hafa skotið fatlaðan mann til bana
í bænum Hamandiya í aprílmánuði
og síðan að hafa leitast við að dylja
hvernig dauða hans bar að höndum.
Þetta er ein af mörgum rannsóknum
sem nú fara fram vegna gruns um að
bandarískir hermenn hafi myrt og
niðurlægt óbreytta borgara í Irak. Á
vegum bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins er nú unnið að rannsókn
á meintu fjöldamorði í bæúum Had-
itha í nóvembermánuði. Þar leikur
grunur á að 24 óbreyttir borgarar
hafi verið teknir af lífi.
Sagðir hafa skilið eftir
riffil og skóflu við líkið
Rannsóknin á dauða fatlaða manns-
ins í Hamandiya, sem er í miðhluta
Iraks, beinist að því hvort maðurinn
hafi verið myrtur að yfirlögðu ráði.
Mennirnir eru sakaðir um að hafa
ruðst inn á heimili hans og tekið
hann með sér. Þeir hafi síðan skotið
manninn og skilið riffil og skóflu
eftir við líkið í því skyni að láta líta
út fyrir að hann hafi verið uppreisn-
armaður sem vann að því að koma
fyrir jarðsprengju þegar dauða hans
bar að höndum. Sagt er að bæjar-
búar hafi greint foringjum sveita
landgönguliða frá málavöxtum og
þeir hafi í kjölfar þess ákveðið að
hefja rannsókn á dauða mannsins
sem var 52 ára gamall.
Talsmaður Bandaríkjahers sagði
að við upphaf málarekstursins
væri gengið út frá því að mennirnir
væru allir saklausir. Það væri síðan
yfirvalda að leiða fram hið sanna í
málinu.
Fréttamenn í Irak segja að morðin
meintu í Hamandiya og Haditha
hafi skaðað landgönguliðið stórlega.
Áhyggjur magnist innan liðsaflans
af framgöngu landgönguliða í Irak.
Talsmaður herstjórnar Banda-
ríkjamanna í Irak skýrði frá því að
nú hefði fjórði hermaðurinn verið
ákærður fyrir að hafa skotið þrjá
fanga til bana nærri borginni Tik-
rit í Norður-írak 9. maí sl. Þrír her-
menn voru ákærðir fyrir morð þessi
á mánudag.
Þáhefur rannsókn á vegum Banda-
ríkjahers að sögn ekki leitt í ljós
sannanir fyrir því að bandarískir
landgönguliðar hafi drepið óbreytta
borgara í bænum Ishaqi í marsmán-
uði. Fyrr í mánuðinum skýrði tals-
maður Bandaríkjahers frá því að
allir hermenn í frak myndu sækja
30 daga námskeið í siðfræði. Var til-
kynnt um þetta eftir að fregnir bár-
ust af meintu fjöldamorði í Haditha.
¥
Hýdrófíl
Karbamíð rakakrem 3%
Hýdrófíl rakakrem með karbamíð. Kremið eykur
rakadrægni húðarinnar. Hentar vel á þurrar
hendur og á mjög þurra bletti (andliti.
rakakrem
3% a
,Jöo
Milt rakakrem sem hentar vel fyrir andlit og
líkama. Gefur mikinn raka, er ekki feitt og fer
vel inn í húðina. Kremið hentar öllum
húðgerðum og er ágætt undir farða. Kremið
inniheldur hvorki ilmefni né litarefni og hefur
pH gildi 5,5. Fæst einnig án rotvarnarefna.
j^%
Jpo
'ul
Un
*akrem
J0%
Karbamíð rakakrem 10%
Hentar vel á þurra fæturog mjög þurrar hendur.
Kremið má ekki nota í andlit.
Jty
ra^kren,
jty ml
Tímosjenko verður
forsætisráðherra
Reuters
Júlía Tímosjenko (t.h.) þykir búa yfir mikium persónutöfrum og nýtur mikils fylgis í Úkra-
ínu. Hún hefur verið vænd um spillingu og þykir erfið í samstarfi en ef marka má fréttir
gærdagsins hafa nú sættir náðst með henni og Víktor J ústsjenko, forseta
Stjórnarkreppunni í Úkraínu lauk
í gær þegar þegar flokkarnir þrír
sem fóru fyrir appelsínugulu bylt-
ingunni í landinu tilkynntu form-
lega um meirihlutasamstarf sitt á
þinginu og ríkisstjórnarmyndun.
Júlía Tímosjenko, fyrrverarndi for-
sætisráðherra, tekur á ný við emb-
ættinu en auk flokks hennar standa
flokkarnir Vor Úkraína, sem Víktor
Jústsjenko forseti fer fyrir, og Sósíal-
istafiokkurinn að samstarfinu. Allir
þessir flokkar eru hlynntir nánari
samvinnu við Vesturlönd.
Flokkarnir þrír sem fóru fyrir
,appelsínugulu byltingunni“, sem
leiddi til þess að Jústsjenko forseti
komst til valda, munu samtals hafa
243 fulltrúa á þingi Úkraínu, Rada,
þar sem 450 þingmenn sitja. Þrír
mánuðir eru nú liðnir frá því að
þingkosningar fóru fram í landinu.
Stjórnarmyndunarviðræður eru
m.a. sagðar hafa strandað á þeirri
kröfu Júlíu Tímosjenko að hún verði
forsætisráðherra á ný. Jústsjenko
forseti rak hana úr því embætti í
septembermánuði.
Júlíu Tímosjenko sagði í gær að
sitt fyrsta verk í embætti forsætis-
ráðherra yrði að hefja viðræður við
Rússa um endurskoðun á orkusölu-
samningum ríkjanna. Miklar deilur
hafa staðið rnilli ríkjanna um verð
á því jarðgasi sem Úkraínumenn
kaupa frá Rússlandi. Umdeildur
orkusamningur sem var gerður í
janúarmánuði rennur út í lok júní-
mánaðar. Júlía Tímosjenko hefur
sagt að Úkraínumenn borgi allt of
hátt verð fyrir gasið en á sama tíma
hafa forráðamenn rússneska orku-
fyrirtækisins Gazprom lýst því yfir
að þeir vilji hækka verðið þegar að
samningurinn rennur út. I ræðu
á þinginu sagði Tímosjenko enn-
fremur að ríkisstjórn hennar myndi
berjast gegn spillingu og skipulagðri
glæpastarfsemi.
Sókndjarfur fíll
Knattspyrnukeppni fíia og tailenskra námsmanna var haldin í Ayuttaya héraði í Tailandi
í gær. Fílarnir þóttu afar sókndjarfir leik sínum. Á myndinni má sjá þegar einn fíllinn
braust í gegn og setti bo.'tann i netið. Markið var hinsvegar dæmt af þar sem að fíllínn
var rangstæður.