blaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 26
26 I GÆLUDÝR
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaöið
Skógarbjörn
í heilsuíœði
Kanadísk kona kom á dögunum
að skógarbirni í eldhúsinu sínu
sem sat í mestu makindum og
gæddi sér á haframjöli.
Konan forðaði sér út úr húsinu
hið snarasta og hringdi á lögreglu.
Þrír lögreglumenn komu á vettvang
en þeim tókst ekki, þrátt fyrir itrek-
aðar tilraunir, að bola birninum út
enda virtist björninn hafa komið
sér afar vel fyrir i húsinu. Reyndist
hann ekki árásargjarn og skemmdi
enga innanstokksmuni og ákváðu
lögreglumennirnir því að bíða þar
til hann hafði sig á brott út í skóg.
.Þetta mál var allt hið furðulegasta.
En þetta var að minnsta kosti skóg-
arbjörn sem hugsar um heilsuna,"
sagði lögreglustjórinn Paul Skelton.
Opið frá 9:00 til 18:00 virka daga
Bakvaktir um helgar og á kvöldin
Twrduj-Ufjlíir
Komdu og spjalladu við
annað dýraáhugafóik á einu stærs
Risastór gagnagrunnur um fugla, sjávarfiska,
kóralla, ferskvatnsfiska og gródur, hunda og ketti.
Fyrir hundinn þinn
Að treysta böndin milli fjöl-
skyldunnar og hundsins
Óhætt er að gera ráð fyrir því að
langflestum hundaeigendum
þyki afar vænt um hunda sína
og vilji þeim allt hið besta. Lengi
má þó gera gott betra og það
er alltaf hægt að finna nýjar og
góðar aðferðir við að treysta bönd
fjölskyldumeðlima og hundsins.
Gefðu þér tíma í að endurskoða
með barninu þínu hvernig hægt
er að bæta samband ykkar og
hundsins. Hér eru nokkrar
hugmyndir:
IFarðu yfir með barninu þínu
hvaða skyldum það hefur að
gegna gagnvart hundinum. Þó
að fjölskyldumeðlimir séu uppteknir
við hin ólíkustu störf á að vera hægt
að koma upp verkaskiptingu sem
hentar öllum. Tilvalin verkefni fyrir
yngri krakka eru t.d. að fara með
hundinn út að ganga, fóðra hann og
snyrta hann.
2Finndu nýja og skemmtilega
hluti fyrir barnið til að gera
með hundinum. T.a.m. er
sniðugt að fara með hundinn á
hlýðninámskeið, fara á hundasýn-
ingar eða jafnvel bara út í garð að
kenna hundinum einhver brögð.
3Skoðaðu með barninu þínu
bækur eða heimasíður sem
fjalla um hunda. I bókum
og á Netinu má finna fróðleik og
svör við flestöllum þeim spurn-
ingum sem kunna að vakna hjá
hundaeigendum.
Hvettu barnið þitt til að nota
hugmyndaflugið og taka á
málum sem varða hundinn.
Hvort sem það er að endurbæta
svefnaðstöðu dýrsins eða að fá það
til að hætta að hoppa upp á fólk.
Láttu barnið þitt einnig vera
meðvitað um atriði áborð við;
hvenær hundurinn þarf að
fara í skoðun hjá dýralækni, hvenær
þarf að hreinsa tennurnar í honum
og hvort það sé kominn tími á að
ormahreinsa hann. Þannig finnst
barninu það gegna stærra ábyrgðar-
hlutverki gagnvart hundinum.
Sprengjuleitarhundurinn Apollo
Lögreglumaður leiðbeinir Schaefer-hundinum Apollo á öryggismálasýningu á Penn-stöðinni í New York í gær. Apollo er sprengjuleitar-
hundur en þeim hefur fjölgað gríðarlega undanfarin ár, allt frá árásunum á tvíburaturnana í september 2001.
Bavíanar styðja England á HM
Safarígarður í Liverpool hefur varað
gesti sína við því að hafa enska
fána á bílum sínum þegar þeir aka
í gegnum garðinn. Fjölmargir Eng-
lendingar hafa fest enska fána á bíla
sína í tilefni af HM í knattspyrnu en
starfsmenn dýragarðsins segja að
fánarnir séu afar eftirsóttir af bav-
íönum sem búa í garðinum. Um 120
bavíanar eru í garðinum og hafa þeir
komið upp stórum haug af enskum
fánum og í kjölfarið látið nær al-
farið af þjófnaði á rúðuþurrkum.
„Fjölmargir gestir eru klókir og fjar-
lægja fána af bifreiðum sínum áður
en þeir aka í gegn,“ sagði David Ross,
yfirmaður safarígarðsins. „En þeir
sem gleyma því eru yfirleitt rændir
afbavíönunum.“
Enskur baviani og fánaþjófur með meiru.