blaðið - 23.06.2006, Side 28
28 I TÍSKA
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaðió
Upp, upp minn hvirfill...
Það getur verið þó nokkur áskorun
að breyta sinni daglegu venju
hvernig við greiðum á okkur hárið.
Áskorun sumarsins er, allavega fyrir
kvenþjóðina, að hafa hvirfilinn
hæsta punktinn á hárgreiðslunni.
Já, svona í anda sjöunda áratugar-
ins en ekki bein eftirherma, heldur
að sleppa öllum þeim stífleika sem
fylgdi því tímabili. Þó við svífum
inn í sumarið með háan hvirfil þá
er ákaflega mikilvægt að greiðslan
líti út fyrir að vera svona „daginn
eftir“.... Afslappað, ekki fullgreitt.
Gott er að setja froðu eða gel í
rótina meðan hárið er blautt og
áður en blásið er. Til að ná hvirfl-
inum sem hæstum þá þarf að nota
breiðan hringbursta en passið bara
að flækja hann ekki í hárið. Til að ná
enn meiri tilþrifum þá mæli ég með
breiðum rúllum sem eru með sömu
áferð og franskur rennilás. Þær eru
settar í þurrt hárið og aðeins hitaðar
með hárblásara.
Gamla góða túperingin
Hvort sem þið notið hjálpartæki eða
ekki í þessa aðgerð þá er ekkert ráð
sem slær út
gömlu góðu
túperingunni.
Henni má
ekki sleppa
því þá er
mikil hætta
að hvirfilinn
verði eins og
Morisheiðin á
miðjum degi,
kylliflöt. Tú-
perið vel í rótina og greiðið svo létt
yfir flækjuna. Setjið síðan hárlakk
yfir svo herlegheitin haldist yfir dag-
inn. Illnauðsynlegt er að hafa hárið
flatt að framan og í hliðum til að hái
hvirfillinn njóti sín eða að minnsta
kosti líti út fyrir að vera hærri en allt
annað á höfðinu.
„Sixtís"
Til að krydda „sixtís“ útlitið þá er
ekki verra að hafa áberandi skipt-
ingu og/eða taka hárið saman í laust
tagl eða hnút neðst í hnakkanum.
Breið hár-
bönd eru
punkturinn
yfir i-ið. Sum-
arspjarirnar
eru sniðnar
að þessum
hárstfl eða er
það öfugt?
Snúðar og
hnútar hátt
upp á höfð-
inu gera sama gagn, þeir hækka og
lengja og smellpassa við sumartísk-
una, allavega við þær flíkur sem
minna okkur örlftið á þetta tímabil.
Ef letin er að drepa okkur þegar
við erum fyrir framan spegilinn á
morgnana þá má í það minnsta taka
hárið saman í hnakkanum og gera
eitthvað afslappað listaverk með
teygju og nokkrum hárspennum,
svo framarlega sem hárlengdin er
fyrir hendi!
Þessar bráðnauðsynlegu upplýs-
ingar eru samvinna hárgreiðslu-
fólks og fatahönnuða, til að skapa
sterkara heildarútlit. Því hefur verið
fleygt að það sé leitað í smiðju gam-
alla átrúnaðargoða og mun „sixtís“
módelið Jean Shrimpton vera ein
af fyrirmyndunum. Til að kóróna
stílinn þá er um að gera að kaupa sér
tiltölulega eðlileg gerviaugnahár og
ljósan varafit.
3IMfl 61
afsláttur
HœðasmjLra 4 • s. 544-5
Karlmenn eru duglegir að nýta sér leirvafninga. Sérstaklega karlar sem stunda mikla líkamsrækt.
Leirvafningar til að stinna
húðina og minnka ummál
f heilsustúdíóinu Fyrir og eftir í
Kópavogi er boðið upp á margs
konar meðferðir, meðal annars
sogæðanudd, brúnkusprautun
og leirvafninga sem ætlað er að
grenna líkamann og gera hann
um leið stinnari.
Þessir vafningar þykja með því
besta sem stofan bíður upp á. Þeir
eru sérlega hentugir fyrir fólk sem
hefur misst töluverða líkamsþyngd.
Þegar fólk léttist mikið á stuttum
tíma, t.d. eftir barnsburð, vill húðin
oft verða slök. Aldurinn vinnur
gegn teygjanleika húðarinnar og
því kannast margar eldri konur við
það að húðin byrjar að „hanga“ eftir
að kílóin fjúka. Flestar kannast líka
við hugtakið „bingó handleggir“ en
þá er átt við húð á upphandleggjum
sem hangir laus og sveiflast til þegar
höndinni er veifað, en það gerist jú
oft á bingókvöldum.
Salt úr Dauðahafinu
Að sögn framleiðanda munu leir-
vafningar vera náttúruleg leið til
að minnka ummálið, afeitra líkam-
ann og hreinsa húðina og almennt
eru viðskiptavinir ánægðir með ár-
angur meðferðarinnar. Blaðamaður
kom að máli við Helgu Svanlaugu
Bjarnadóttur, eiganda heilsustúdíós-
ins Fyrir og eftir.
„Ég byrjaði með þessa vafninga
fyrir fjórum árum, eða þegar ég
tók við stofunni,“ segir Helga. „Með-
ferðin fer þannig fram að viðskipta-
vinurinn mætir hingað, afklæðist
og fer í slopp. Svo förum inn í
herbergi þar sem leirvafningarnir
eru geymdir í þar til gerðum hita-
potti. Vafningarnir sem slíkir eru
teygjubönd sem eru látin liggja í
leirblöndu, en leirinn er úr Dauða-
hafinu og er því mjög saltur og
ríkur af steinefnum. Viðskiptavin-
urinn er því næst vafinn inn í þessi
teygjubönd og getur valið um að láta
vefja allan líkamann eða ákveðna
staði sem þurfa sérstaklega á því
að halda, til dæmis magann, hand-
leggina eða rass og læri. Um leið og
leirinn í teygjuböndunum er vafinn
um líkamann sogast óhreinindi út
um svitaholurnar og lausa húðin
dregst saman og endurnýjar teygj-
anleika sinn. Við þetta verður húðin
mýkri og stinnari og árangurinn
má merkja samstundis," segir Helga
að lokum og bætir því við að með-
ferðin taki um 70-90 mínútur og að
það sé ráðlegt að fara í 3-5 sinnum í
leirvafningana.
Hrein fegurð
Kynningarkvöld á Dr.Hauschka snyrtivörum í Yggdrasil ncestkomandi þriðjudag.
í versluninni Yggdrasil við Skóla-
vörðustíg 16 hafa að undanförnu
verið haldin námskeið og fyrir-
lestrar sem tengjast heilbrigðum
lífsstíl. Um er að ræða námskeið
í lífrænni ræktun og hollu mat-
aræði en einnig í því að nota
náttúrulegar snyrtivörur sem efla
heilbrigði húðarinnar.
Þriðjudaginniyjúníverðurkynning
á hinum heimsþekktu náttúrulegu
snyrtivörum frá Dr.Hauschka. Þær
eru framleiddar af náttúrulyfjafyr-
irtækinu WALA-heilmittel í Þýska-
landi og hafa verið framleiddar í
39 ár. Dr.Hauschka vörurnar eru
unnar úr lífrænt ræktuðum lækn-
ingajurtum og hreinum lífrænum
jurtaolium. Þær eru unnar með það
í huga að efla heilbrigði húðarinnar
með því að styrkja og efla eigin lækn-
ingamátt hennar.
Er þér heitt?
Skrifstofu-
og folvukœiar
líshúsid ehf & 566 60001
Áhersla á andlitið
I þessari snyrtivörulínu er sérstök
áhersla lögð á húðina í andlitinu.
Þar skiptir hreinsun mestu máli
og verndun gegn ytri mengunar-
áhrifum. Það sem vekur athygli er
að Dr.Hauschka framleiðir ekki næt-
urkrem, því það er mikilvægt fyrir
húðina er að fá að anda og vinna
sína vinnu á næturna. Hins vegar
eru notuð andlitsvötn með mikil-
vægum lækningajurtum sem efla
eiginstarfsemi húðarinnar. Annað
sem skiptir miklu máli er að fara
mildum höndum um húðina og
nota ekki húðslípun sem getur gert
húðina ofurviðkvæma.
Allt sem þarf fyrir kroppinn
Dr.Hauschka framleiðir ekki bara
vörur fyrir andlitið heldur er hægt
að fá allt sem þarf fyrir húð og hár
og einnig förðunarvörur. Vörurnar
frá Dr.Hauschka henta fyrir allar
húðgerðir, en eru sérstaklega góðar
fyrir þá sem eru með viðkvæma
húð.
En til þess að fá sem mest út úr
þessum húðsnyrtivörum ku vera
mikilvægt að nota þær rétt. Á kynn-
ingarkvöldinu verður á staðnum
lærður Dr.Hauschka húðsnyrtifræð-
ingur sem hefur bæði þekkingu og
reynslu og mun veita einstaklings-
bundna leiðsögn. Einnig verður
boðið upp á 20% afslátt af Dr.Hau-
schka snyrtivörunum.
Skráning í verslun Yggdrasils í
síma 562-4082.