blaðið - 23.06.2006, Page 31
blaöið FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006
ÍÞRÓTTIR I 31
Farðu alla leið I
(ífsins með heilbrigðum
Sviss - S.-Kórea
• Daniel Gyganz, hinn öflugi sviss-
neski miðjumaður, verður ekki
með vegna meiðsla. Koebi Kuhn,
þjálfari Sviss, mun að öllum lík-
indum tefla fram Hakan Yakin
í fjarveru hans en að öðru leyti
er búist við að byrjunarlið þeirra
verði óbreytt frá leiknum gegn
Tógó.
• Talið er líklegt að Dick Advocaat,
þjálfari Suður-Kóreu, muni láta
undan þrýstingi og velja sókn-
armanninn Ahn Jung-Hwan í
byrjunarliðið, en hann kom inn
á sem varamaður gegn Tógó og
skoraði.
• Jafntefli nægir Svisslendingum
til að komast áfram. Ef Frakkland
vinnur ekki Tógó komast bæði
Sviss og Suður-Kórea áfram.
• Ef Frakkland vinnur Tógó með
einu marki og Sviss og Suður-
Kórea gera jafntefli verða Frakkar
og Suður-Kóreumenn jafnir að
stigum og líklega með nákvæm-
lega sömu markatölu. Þar sem
þessi lið gerðu jafntefli þyrfti því
að varpa hlutkesti til að ákvarða
hvort liðið kæmist áfram.
• Svisshefurþrisvarkomistí8-liða
úrslit HM. Suður-Kóreumenn
náðu sínum besta árangri 2002
er þeir komust í undanúrslit, þá
á heimavelli.
Frakkland - Tógó
• Frakkinn Zinedine Zidane er í
leikbanni og kemur Franck Ri-
bery að öllum líkindum inn í byrj-
unarliðið í hans stað. Þá kemur
Mikael Silvestre inn fyrir Eric
Abidal sem er einnig í leikbanni.
Þá er búist við því að David
Trezeguet eða Louis Saha verði í
framlínunni með Thierry Henry,
en Frakkar hafa aðeins skorað
eitt mark í tveimur leikjum á
mótinu.
• Zinedine Zidane mun líklega slá
upp afmælisveislu á varamanna-
bekknum en hann er 34 ára í dag.
Patrick Vieira á einnig afmæli en
hann verður þrítugur.
Tógómenn eru þegar úr leik. Þeir
munu þó vafalaust leggja allt í söl-
urnar þar sem þeir eru að keppa á
sínu fyrsta HM og vilja ekki fara
þaðan stigalausir.
Ef Lilian Thuram spilar leikinn
verður hann leikjahæsti leik-
maður Frakka frá upphafi með
117 landsleiki. Þar með myndi
hann slá met Marcel Desailly.
Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, liggur eftir í leik Frakklands og Suður-Kóreu.
Verðlauna-
peningi
Dudeksstolið
Þjófar brutust inn til Jerzy Du-
dek, markvarðar Liverpool,
og rændu gullverðlaunapen-
ingnum sem hann hlaut tyrir
að sigra meistaradeildina, yfir
hundrað markmannstreyjum,
skartgripum og öðrum verð-
launagripum. Ránið átti sér stað
á meðan Dudek var staddur í
sumarfríi í heimalandi sínu, Pól-
landi. Þá var glæsilegri sportbif-
reið hans, af gerðinni Porsche
Carrera, stolið en hún fannst svo
í Manchester á miðvikudag.
Dudek var ein af hetjum Li-
verpool í úrslitaleiknum gegn
AC Milan í meistaradeildinni
árið 2005. „Við erum að tala um
minjagripi frá öllum ferli hans.
Jerzy varð heimsfrægur fyrir
afrek sín í úrslitaleik meistara-
deildarinnar og að einhver hafi
brotist inn til hans og stolið
þessum hlutum er auðvirðilegt,"
sagði talsmaður Liverpool. Um-
fangsmikil lögreglurannsókn
hefur verið sett af stað en enn
hafa fáar vísbendingar borist.