blaðið - 23.06.2006, Qupperneq 36
36 IDAGSKRÁ
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2006 blaöiö
I morgunsárið skalt þú vera opinn og einlægur.
Taktu inn það sem fólk segir við þig og svo þegar
líöa tekur á daginn skaltu einbeita þér að þvf sem
þú vilt og láta hendur standa fram úr ermum, ekki
miða út i loftið heldur á einn ákveðinn stað.
Naut
(20. apríl-20. maO
Að reyna að finna hjáleið eða styttri leið er ekki gott
fyrir þig i dag. Þú veröur að vinna verkin af natni og
það þýðir ekki að vera með hroðvirknis vinnubrögð.
Þú skalt bera höfuðið hátt og vera glöð/glaður.
©Tvíburar
(21. mai-21. júní)
Sköpunar-alda flaeðir yfir þig f dag. Þú gætir allt
eins búiðtil heiltfjall af málverkum, Ijóðum og jafn-
vel tískufötum svo mikil er sköpunargleðin. Nýttu
þér þessa öldu, búðu til eitthvað fallegt og reyndu
að gleðja aðra með því.
©Krabbi
(22. júnf-22. júlf)
Þó aö þú hafit mikla orku til þess að byrja á hlutun-
um í dag muntu ekki Ijúka mörgum verkum. Það
er þitt vandmál en ekki örvænta, á morgun er nýr
dagur og þá veröur þú ánægð(ur) með að hafa byrj-
aðáhlutunum.
®Lj6n
(23. júlf- 22. ágúst)
Ef þú ert skipulögð/lagður í dag mun það gefa þér
mikið. Þú ert hetja dagsins ef þú nærð að nýta skipu-
lagið og þá nærðu að gera allt sem þig langar. Ekki
vaða úreinu í annað og mundu að þú getur allt sem
þú villt.
CS Meyja
(23. ágúst-22. september)
. Þú þarft að búa til meiri skil á milli þíns innra sjálfs
og þeirrar manneskju sem þú ert út á við. Ekki láta
aðra segja þér fyrir verkum heldur taktu stjórnina
sjálf(ur). Samt sem áður er mjög mikilvægt fyrir
þig að rækta þinn innri mann.
Vog
(23* september-23. október)
Það mun hægjast á hjá þér meira og fyrr en þig
grunaði. Þú sitalt ekki hika við að taka völdin því
þú getur það alveg um leið og það er orðið rólegra
hjá þér. Hættu að þvælast fyrir fólkinu sem er í
kringum þig, stjórnaðu þvf
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Besta leiöin til þess að losa sig við óæskilegar og
vondar tilfinningar er að tjá sig. Ekki vera feiminn
og byrgja allt inn i þér, talaðu við góðan vin þinn
því hann eða hún getur hjálpað þér að losa um til-
Tinningastifluna.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Haltu þig á hliðarlínunni í dag. Hlutirnir gætu versn-
að og þú mátt alveg búast við þvf versta. Hins vegar
ef þú breytir rétt, ert jákvæður og glaður þá verður
allt í lagi. Búöu þig samt undir það að þú gætir átt
erfitt kvöld.
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Lif allra í kringum þig er betra vegna þín. Þú hefur
áhrif á svo marga og það er jákvæðni þín og drif-
kraftur sem fólk hrffst af. Þú átt skilið það hrós sem
þú færð og það er ekki sagt bara út f loftið, þú ert
frábæreinstaklingur.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Brettu upp ermarnar og láttu hendur standa fram
úr þeim. Þú hefur verk að vinna og skalt takast á
við þau og vinna þau vel en þú hefur samt ekki
allan daginn. I kvöld skaltu vera rómantisk(ur) og
koma einhverjum á óvart
Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Lifðu í núinu, þú breytir ekki því sem orðið er og
framtíðin er óráðin gáta. Njóttu augnabliksins, ef
þú gerir það þá vegnar þér vel. Til hvers að lifa ef
maður getur ekki látið sér líða vel og notið þess
aðveratil?
ENN AF SKOÐUNUM FJÖLMIÐLAFÓLKS
Fjölmiðlar
EinarJónsson
Nokkur umræða hefur verið um
hvort það sé við hæfi að fjölmiðla-
menn viðri skoðanir sínar opinber-
lega í kjölfar brotthvarfs Jóhanns
Haukssonar af Fréttablaðinu. Lengi
hefur tíðkast að blaðamenn skrifi
pistla um þjóðfélagsmál og á undan-
förnum árum hefur færst í vöxt að
þeir séu kallaðir til sem „álitsgjafar"
í spjallþáttum og fréttatímum. Sum-
um finnst jafnvel nóg um og telja
að fjölmiðlafólk eigi eftir fremsta
megni að halda sig til hlés og helst
ekki tjá sig um eitt né neitt til að
ekki verði hægt að draga í efa óhlut-
drægni þess eða heilindi í starfi.
Fjölmiðlamenn, ekki síst þeir
sem flytja fréttir, verða vissulega
að gæta orða sinna. Þeir þurfa að
hugsa vel um hvað þeir segja opin-
berlega og hvort það geti á einhvern
hátt skaðað trúverðugleika þeirra
eða hlutlægni. Það er ekki aðeins
mikilvægt fyrir þá sjálfa heldur
ekki síður fyrir þann miðil sem þeir
starfa fyrir.
Hlutlægt fréttamat
Á hitt ber líka að líta að frétta-
menn hafa yfirleitt yfirgripsmikla
þekkingu á þeim málum sem til
umræðu eru. Gildir einu hvort
um sé að ræða stjórnmál á Islandi,
ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs
eða eitthvað allt annað. Þeir hafa oft-
ar en ekki fylgst með málum vikum
og mánuðum saman og búa því yfir
góðri yfirsýn til að fjalla um þau og
setja í víðara samhengi. Þeir eru
sjaldnast dregnir í sjónvarpssal til
að tjá persónulegar og hlutdrægar
skoðanir sínar á mönnum og mál-
efnum heldur til að leggja kalt (og
hlutlægt) mat á fréttir líðandi stund-
ar.
Síðast en ekki síst kunna fjöl-
miðlamenn öðrum fremur þá list að
koma upplýsingum til skila á stutt-
an, skýran og hnitmiðaðan hátt og
án óþarfa orðalenginga. Það sama
verður því miður ekki sagt um alla
sérfræðinga og álitsgjafa sem fram
koma í sjónvarpsþáttum nú um
stundir.
einar@bladid.net
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
SJÓNVARPIÐ
16.50 Fótboltakvöld
17.05 Leiðarljós (Guiding Light)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Ævintýri H.C. Andersen (16:26) (The Fairy Taler)
18.30 Ungar ofurhetjur (10:26) (Teen Titans II)
19.00 Fréttir, fþróttir og veður
19.35 Kastljós
20.05 Lögregluhundurinn
21-45 Paradísarheimt (Paradise Found) Áströlsk bíómynd frá árinu 2003 um Paul Gauguin sem var verðbréfasali í París en gerðist listmálari og fluttist til Tahiti..
23.20 Týnda geimfarið (Event Horizon) Bresk/bandarísk spennumynd frá árinu 1997 Björgunarsveit rannsakar geimskip sem hvarf inn í svarthol en snýr aftur með eitthvað óþekkt inn- anborðs. Leikstjóri er Paul W.S. Ander- son og meðal leikenda eru Laurence Fishburne, Sam Neill, Kathleen Quinl- an Kvikmyndaskoðun telur myndina ekki hæfa fólki yngra eni6 ára. e.
00.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
[■ SIRKUSTV
18.10 Byrjaðu aldrei að reykja (Gerð myndbands2)
18.30 Fréttir NFS
19.00 ísland í dag
19.30 Fashion Television (e)
20.00 Þrándur bloggar (2:5) Nú getur þú séð öll bloggin hans aftur.
20.30 Stacked (2:13) (e)
21.00 Sailesh á fslandi (e) Dávaldurinn Sailesh hefur svo sannarlega slegið í gegn á fslandi. Bannað börnum.
22.15 Supernatural (19:22) (e) (Proven- ance) Bannuð börnum.
23.05 X-Files (e) (Ráðgátur)
23.55 Anywhere But Here (e)
01.45 Sirkus RVK(e)
\f\ STÖÐ2
06.58 fsland í bítið
09.00 Bold and the Beautiful (Glæstar vonir)
09.20 ffínuformi 2005
09.35 Oprah (70:145) (Black Women Dating White Men: It's Something New!)
10.20 Alf (Geimveran Alf)
10.45 MyWifeand Kids
n.05 Það var lagið (e)
12.00 Hádegisfréttir
12.25 Neighbours (Nágrannar)
12.50 ffínuformi 2005
13.05 Home Improvement
13.30 Kóngur um stund (4:16)
13-55 BlueCollarTV (10:32)
14.20 Punk'd 2 (e) (Negldur)
14-45 Entourage (8:8) (Viðhengi)
15.10 Arrested Development (11:22) (e)
15-35 George Lopez (16:24)
16.00 The Fugitives (Á flótta)
16.20 Skrímslaspilið
16.40 Scooby Doo
17.00 Bold and the Beautiful
17.22 Neighbours (Nágrannar)
17-47 Simpsons (Simpson-fjölskyldan)
18.12 fþróttafréttir
18.30 Fréttir, íþróttir og veður
19.00 fsland í dag
19.40 Mr. Bean (Herra Bean)
20.05 Simpsons (21:21)
20.30 Two and a Half Men (12:24)
20.55 Stelpurnar (22:24)
21.20 Beauty and the Geek 2 (4:9)
22.05 The Last Shot (Síðasta skotið)
23.40 National Security (Þjóðaröryggi)
01.05 The Man With One Red Shoe)
02.35 FeardotCom (Hræðslapunkturis)
04.15 Simpsons (21:21)
04.40 Mr. Bean (Herra Bean)
05.05 Fréttir og fsland í dag
06.15 Tónlistarmyndböndfrá PoppTíVí
© SKJÁR EINN
07.00 6 til sjö (e)
08.00 Dr.Phil(e)
15.40 Völli Snær (e)
16.10 Point Pleasant (e)
17.05 Dr.Phil
18.00 6 til sjö 6 til sjö er vandaður síðdegis- þáttur i umsjón Felix Bergssonar og Guðrúnar Gunnarsdóttur. Þátturinn er sendur út alla virka daga í beinni útsendingu frá myndveri SkjásEins
19.00 Beverly Hills
19.45 Melrose Place
20.30 OneTreeHill
21.30 The Bachelorette III
22.30 Law & Order: Criminal Intent
23.25 C.S.I: Miami (e)
00.20 Boston Legal (e)
01.10 Close to Home(e)
02.00 Beverly Hills (e)
02.45 Melrose Place (e)
03.30 TvöfaldurJay Leno(e)
05.00 Óstöðvandi tónlist
4^SÝN
06.45 Gillette Sportpakkinn (Gillette World Sport 2006)
07.15 HM 2006 (Króatía - Ástralía)
09.00 HM 2006 (Tékkland - ftalía)
10.45 HM 2006 (Japan - Brasilía)
12.30 442
13.30 HM stúdíó (þróttafréttamenn Sýn- ar fá góða gesti í heimsókn í HM stúdíóið þar sem spáð er (spilin.
13.50 HM 2006 (Sádí Arabía - Spánn)
16.00 HM stúdíó
16.10 HM2006 (Úkraína-Túnis)
18.00 HMstúdíó
18.50 HM 2006 (Tógó - Frakkland)
21.00 442
22.00 HM 2006 (Sviss - Kórea)
23.45 HM 2006 (Úkraína - Túnis)
01.30 HM 2006 (Sádí Arabía - Spánn)
r r 1 V/ NFS
07.00 fsland í bítið
09.00 Fréttavaktin
11.40 Brot úr dagskrá
12.00 Hádegisfréttir
13.00 Sportið
14.00 Fréttavaktin
17.00 Sfréttir
18.00 Iþróttir og veður
18.30 Kvöldfréttir
19.00 fsland í dag
1940 Peningarnir okkar
20.00 Fréttayfirlit
20.20 Brotúrfréttavakt
20.30 Örlagadagurinn (2:10)
21.00 Fréttir
21.10 48 Hours
22.00 Fréttir
22.30 Peningarnirokkar
23-05 Kvöldfréttir
00.05 Fréttavaktin
03.05 Fréttavaktin
06.05 Peningarnir okkar
STÖÐ 2 - BÍÓ
06.00 The Stepford Wives (Stepford-eig- inkonurnar)
08.00 James Dean
10.00 Miss Lettie and Me (Frú Lettie og ég)
12.00 A Rumor of Angels (Sagan um englana)
14.00 James Dean
16.00 Miss Lettie and Me (Frú Lettie og ég)
18.00 A Rumor of Angels (Sagan um englana)
20.00 The Stepford Wives
22.00 Blood Work (Blóðugt starf)
00.00 Lovely and Amazing (Yndislegar elskur)
02.00 Picture Claire (Hin rétta Claire)
04.00 Blood Work (Blóðugt starf)
RÁS1 92,4 / 93,5 • RÁS2 90,1 / 99,9 • KissFM 89.5 • Xfm 91,9 • Bylgjan 98,9 • FM 95,7 • X-ið 97,7 • Útvarpsaga 103,3 • Talstöðin 90,9
Heidi Klum á von á barni
Súpermódelið Heidi Klum og eiginmaður hennar Seal hafa
staðfestþœrfregnir aðþau eigi von á öðru barni sínu saman.
Hin 33 ára gamla fegurðardís og söngvarinn
með slæmu húðina eignuðust fyrsta barn sitt
saman í september síðastliðnum. Heidi átti
fyrir tveggja ára gamla dóttur með fyrrverandi
eignmanni sínum, Flavio Briatore. Það má
því gera ráð fyrir að mikið fjör verði á heimili
þeirra hjóna á næstunni. Fregnir af þessu birt-
ust fyrst á heimasíðu Klum þegar Seal sagði
aðdáendum fyrirsætunnar að eitt barn væri að
bætast við í systkinahópinn. „Við erum bæði
mjög spennt og lánsöm að fá að deila þessari
lífsreynslu einu sinni enn,“ segir Seal. Klum
hefur að undanförnu verið þáttastjórnandi í
þættinum Tískuþrautir eða Project Runway
sem sýndur er í Sjónvarpinu en fyrr í þess-
um mánuði sýndi hún sjálf á Council of Fas-
hion Designers Awards.
Brandy byrjuð með
fyrrverandí?
Poppstirnið Brandy er að taka aftursaman viðfyrrverandi
unnusta sinn, körfuboltakappann Quentin Richardson.
Söng- og leikkonan Brandy hefur
staðið eins og klettur á bak við
fyrrverandi unnusta sinn að
undanförnu. Quentin Richard-
son missti bróður sinn um
síðustu jól í skotárás og hef-
ur það reynst honum mjög
þungbært. Hin 27 ára gamla
stjarna hætti við fyrirhugað
brúðkaup þeirra skötuhjúa
í fyrra en eftir skotárásina
leitaði körfuboltastjarnan til
Brandy. Þá var hún með Nick
Cannon en svo virðist sem
hún hafi enn verið ástangin
af Quentin og vinur þeirra skötuhjúa
hefur greint frá því að þau séu aft-
ur byrjuð saman.